Vísir - 30.04.1975, Blaðsíða 16

Vísir - 30.04.1975, Blaðsíða 16
vísm Miðvikudagur 30. april 1975. STJÓRNIN STÓÐST ÁHLAUPIÐ Stjórn Starfs m annafélags rikisstofnana stóðst með yfir- burðum áhlaup andstæðinga sinna á aðalfundi félagsins. Einar Ólafsson, útsölustjóri hjá áfengisverzluninni, var endur- kjörinn formaður með 649 at- kvæðum, en Jóhann Guðmunds- son, deildarstjóri á Landspitalan- um, fékk aðeins 178. Aðrir I liði stjórnar félagsins náðu og kosningu með yfirburð- um. — HH íslenzk nútímatónverk í London Eftir að hafa flutt verk sin hér i Norræna húsinu á föstudag, munu þeir Iiafiiði Hallgrímsson, Þor- kell Sigurbjörnsson, Leifur Þórarinsson og Robert Aitken frá Kanada flytja eingöngu islenzka nútimatónlist i London á sunnu- dag. Það er ekki i fyrsta sinn, sem þeir kynna islenzka tónlist er- lendis, þvi það hafa þeir gert á mörgum tónleikum. Robert Aitken leikur á flautu, Gunnar Egilsson á klarinett, Haf- liði Hallgrimsson á celló og Þor- kell Sigurbjörnsson leikur á píanó. — EA Hamfarirnar ódýrar — meiri kostnaður við undirbúning „Það er alveg órannsakað enn- þá, hvað það kostar að setja svona hamfarir á svið,” sagði Hafþór Jónsson, erindreki hjá Al- inannavörnum, er Visir innti hann eftir kostnaði við æfinguna á laugardaginn. „Þessi æfing höfðaði það mikið til sjálfboðaliða, að kostnaðurinn er tæpast mjög mikill og engir reikningar hafa borizt inn ennþá. Ég hef þvi engar handbærar töl- ur, en þó tel ég, að það hafi verið undirbúningurinn sjálfur frekar en æfingin, sem mestur kostnaðurinn fólst i”, sagði Haf- þór Jónsson, erindreki. — JB Stundvísir þjófar! Stundvisi virðist vera mikilvæg i augum þeirra er brutust inn i iþróttahöllina i Laugardal i nótt. Eftir það innbrot ætti stundvisi að vera þeim leikur einn, þar sem þeir höfðu þrjú stoppúr upp úr krafsinu. Eitt þessara úra var þar að auki timavarðarúr, sér- staklega útbúið til að mæla lengd kappleikja. Þeir, sem aö innbrotinu hafa staðið, brutu tvöfalda rúðu á austurhlið bakhúss Iþróttahallar- innar og héldu fyrst sem leið lá inn i geymslu húsvarðar. Þár varð nokkuð af sælgæti á vegi þeirra og birgðu þeir sig upp af Opali og Prins Poló. Að þvi loknu ráku þjófarnir augun i stoppúrin og tóku þau traustataki. ftannsóknarlögreglan rannsak- ar nú málið. — JB SMÍÐA EININGAHÚS FYRIR NÁGRANNANA 104 fermetra hús kostar fullbúið 5,7 milljónir Fyrirtækið er ungt. Það var stofnað fyrir tveim árum og er i 300 fermetra byggingu við Lagarfljótsbrú. Tiu manns eru starfandi við fyrirtækið i dag, en þeim kann að fjölga, þegar lokið hefur verið við að reisa 150 fer- metra viðbyggingu við tré- smiðjuna. „Einingar húsanna, sem við smiðum, eru nokkuð stórar. Það eru þrjár tegundir, sem við er- um með teikningar að, en það Hér má sjá tvö af einbýlishúsunum frá trésmiðjunni. Þessi eru á Egilsstöðum. -Ljósm.: B.A. ingastigum. Allt eftir ósk kaup- andans,” hélt Orri áfram. „Fullbúið einbýlishús frá okkur, 104 fermetrar að stærð, kostar með öllu um 5,7 milljónir. Það verður að teljast hagstætt verð og hvað það snertir þori ég að fullyrða, að við séum sam- keppnisfærir við innflutt ein- ingahús.” Ef fjármagn lætur ekki standa á sér, og unninn er eðli- legur vinnutimi, kvað Orri það ekki þurfa að taka nema um þrjár til fjórar vikur að reisa einbýlishús þeirrar stærðar, sem er i dæminu hér á undan. — ÞJM „Núna erum við að vinna að einingahúsi, sem sett veröur upp við Sigöldu. Það er 260 fer- metra svefnskáli fyrir 40 manns, sem skipt verður i tuttugu herbergi. Aður höfum við smiðað niu einbýlishús,” upplýsti Orri Ilrafnkelsson, framkvæmdastjóri Trésmiðju Fljótsdalshéraðs, i viðtali við Visi. Hér er unnið að gerö einingahúsa i Trésmiðju Fljótsdalshéraös. Hús trésmiðjunnar er tveggja ára gamalt og þegar byrjað aö byggja við þaö. eru 80 fermetra hús, 104 fer- metra og loks 130 fermetra,” sagði Orri. „Þegar fram liða stundir gerum við okkur vonir um að fjölbreytnin verði meiri. Það gæti t.d. verið skemmtilegt að hanna einingahús yfir verk- stæði, svo eitthvað sé nefnt.” „Þau einbýlishús, sem við höfum gert, hafa öll verið sett niður hér á Héraðinu. Við höfum ekki viljað fara með þau langt út fyrir byggðarlagið enn sem komið er,” sagði Orri, en hann kvað þó búið að lofa einu húsi til Seyðisfjarðar. „Við reisum sjálfir húsin, en skilum þeim á ýmsum bygg- Lögreglan nappaði þrem bílum GÁMUR FÝKUR Á BÍL í EYJUM — mikill vikurbylur veldur skemmdum Miðborgarlögreglan tók i gær- morgun þrjá bila traustataki, þar sem þeir stóðu manniausir i gangi i miðbænum. Samkvæmt lögum er mönnum óheimilt að skilja bila sina mannlausa eftir i gangi. I kuldanum i gær höfðu þó þrir ökumenn freistazt til að skilja bila sina eftir i gangi, er þeir stukku frá, og vafalaust hefur þeim brugðið, þegar þeir sáu að þeir voru horfnir, er þeir sneru aftur. Þegar tilkynna átti lögreglunni stuldinn, sáu ökumennirnir þó bíla sina fyrir utan miðborgar- stöðina, og fengu þeir bilinn með áminningu um að gæta betur að sér næst. Að sögn lögreglunnar hefur það ósjaldan komið fyrir að bilum sé raunverulega stolið á meðan eigendurnir stökkva frá þeim i gangi. Lögreglan á nokkr- ar sögur af slikum þjófnuðum i fórum sinum, ef einhver öku- mannanna bregzt illa við þessari afskiptasemi lögreglunnar. —JB Flutningagámur skoppaði á bil og skemmdi hann i miklu hvass- viðri i Eyjum, er hann tókst á loft i hvassviðrinu i gær og lenti á nálægum bil. Milli 11 og 12 stiga vindur var aö jafnaði i gærdag i Eyjum og var mikill vikurbylur um alla byggðina og eins gekk sjór yfir Eyjarnar. Illfært var af þessum sökum á milli húsa og skemmdir urðu á lakki bila og rúðum vegna vikur- foksins. Veðrið gekk heldur niður með morgninum. Vindur hefur nú aðeins færzt'i austur og þvi má gera sér vonir um heldur mildara veður um mestan hluta landsins i dag. Reiknað er með úrkomu um Norður- og Norðausturland. — JB BÚIZT VIÐ AÐ DRAGI ÚR VEÐRI enn illfœrt víða og ófœrt fyrir flug um allt land Jeppabifreið enda- steyptist í rokinu farþegar sluppu við meiri húttar meiðsl Eftir daginn i dag er búizt við þvi að veðrið fari að ganga niður alls staðar á landinu, nema þá helzt á Vestfjörðum. t morgun hafði hlýnað alls staðar, viða um 5 stig frá þvi I gær, og frost var aðeins á Vestfjörðum. Búizt er við norðaustan átt eða austan átt áfram með lágu hita- stigi en frostlausu. Samfelld snjó- koma hefur verið á Norðaustur- og Norðurlandi og á miklum hluta Vestfjarða. Mikill veðurofsi var um allt landið i gær, og var meira að segja ófært viða, sem þykir óvenjulegt á þessum tima árs. Þegar við höfðum samband við Vegagerðina i morgun var okkur tjáð, að veður væri gengið niður við suðurströndina og umferð um sandana hófst i morgun. Hrið var á Öxnadalsheiði, en þó var talið að fært væri þar yfir, ef hægt væri að fylgja bilunum. Ekki var vitað um Holtavörðu- heiði i morgun. Fært var um Heydal vestur i Dali, en Bratta- brekka var ófær. Þungfært var á Austurlandi, en mokstur er hafin' á láglendi, og hugað verður að íjallvegum, ef unnt er. Slæmt útlit var með flug i dag. Ófært var á alla staði i landinu, en ekki var fyllilega vitað um Sauðárkrók. Flogið var á nokkra staði i gær, en i dag veldur ófærð- inni annaðhvort snjókoma eða vindur. — EA Nýleg amerisk jeppabifrcið fauk út af veginum við bæinn Seljaland undir EyjafjöIIum i gærmorgun. Fjórir farþegar i bilnum sluppu við meiri háttar meiðsl. Tveir bilar úr Reykjavik voru á vesturleið um tiuleytið i gær- morgun, er óhappið varð. Höfðu farþegar bilanna ætlað i silungsveiðiferð, en orðið að snúa við vegna óveðurs. Við bæinn Seljaland kom sterk vindhviða með þeim af- leiðingum, að siðari billinn lyft- ist upp að framan og ökumaður- inn missti stjórn á bilnum, sem við það steyptist fram yfir sig. ökumaður og farþegar hrufluð- ust og skrámuðust allir og nokkrar tennur brotnuðu i ein- um farþeganna. Fyrri billinn var kominn að Hvolsvelli, er slysið varð, og urðu ökumaður og farþegar i honum þvi einskis varir. Fólks- flutningabill á vesturleið kom fyrst á staðinn og tilkynnti um slysið i gegnum talstöð. Á m'eðan beðið var eftir lögreglu og lækni, fluttu hjónin á Selja- landi hina slösuðu heim á bæinn og hjúkruðu þeim þar. Eftir læknisskoðun fengu farþegar og ökumaður að halda ferðinni áfram til Reykjavikur. Jeppabifreiðin er enn fyrir austan og er mikið skemmd, ef ekki ónýt. — JB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.