Tíminn - 11.08.1966, Page 7

Tíminn - 11.08.1966, Page 7
7 FIMMTUUAGUR 11. ágúst 1966 Stefán Sveinsson fornbókasali 16. jan. 1893. d. 17. júlí 1966. Það eru nú liðnir sex tugir vetra og þó tveimur betur, síðan íund- um okkar Stefáns Sveinssonar bar fyrst saman. Enginn þeirra vetra, sem síðan hefur gengið um garða okkar mun hafa liðið svo, að fund- um okkar hafi ekki borið saman aftur um sinn, flestir farið svo um, að við höfum átt eitthvað meira eða minna saman að sælda. En öll þessi ár man ég þess engin dæmi, að skugga hafi boríð á vin- áttu okkar. Slík reyndist mér hún af hans hendi. Sú var vinfesta hans. Stefán Sveinsson fæddist í Brekkukoti á Efribyggð í Skaga- firði 16. jan. 1893. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Elísabet Stef- ánsdóttir og Sveinn Sölvason. Fað- ir Elisabetar var Stefán bóndi í Vatnshlíð Einarssonar bónda þar, Jónssonar bónda í Holtskoti, Jóns- sonar bónda í Bjarnastöðum í Blönduhlíð. Móðir EKsabetar var Lilja Jónsdóttir bónda á Kirkju- skarði Jónssonar af Geitaskarðs- S-veinn faðir Stefáns var Sölva- son, ihreppstj. í Skarði, Guðmundss. bónda á Hafragili, Björnssonar. LAUFEY ENGIL- BERTSDÓTTIR FRÁ PULU í HOLTUM Fædd 31. júní 1944. Dáin 29. maí 1966. Ein björk í lundu laufguð stóð, og lyfti krónu himni mót. Og vorsól hlý með geislaglóð, þá glæddi þrótt um stofn og rót. En þegar vorið var sem hæst, kom vetrarhríð svo björkin féll. Svo fagrar vonir fá ei ræzt, þær fólust undir snjó og svell. Þitt líf var þetta laufga tré, sem limið teygði í sólarátt. En veikindin ei veittu hlé. Það varð að falla alltof brátt. En áður en það féll á fold, það fræið hafði þroskað eitt. Sem vex nú upp úr móðurmold, og minningunni um þig er skreytt. Nú ertu horfin Guðs í geim, og gleður þig við fótskör hans. Og lítur þaðan hingað heim, á helgar brautir syrgjandans. Ég veit þín æðsta ósk er sú, að öðlist þroska dóttir kær. ■ Þú vakir yfir vöggu trú, er vært þar sefur lítil mær. Þó gullnir draumar geti ei ræzt, og gengin sé þín æfibraut. Þin minning lifir, Ijúf og glæst, og léttir vinum böl og þraut. Nú setur trega og sorg á brá, en seinna dagur aftur ris. Og ástvinirnir eiga þrá, sm endurfund í Paradís. Því bak við hel í himnasal, þar hyllir undir bláa strönd. Þar safnast kvenna og karla val, og knýtast aftur slitin bönd. Þar hittast vinir hér af jörð, og hylmar yfir döpur spor. Og eftir dauðans angur hörð, mun aftur hefjast lífsins vor. Rangæingur. Móðir Sveins var María Þorsteins- dóttir bónda á Reykjavöllum, Páls- sonar bónda á Steinsstöðum Sveins sonar prests í Goðdölum Pálsson- ar, prests þar, Sveinssonar. Foreldraj Stefáns fluttust vorið 1893 að Álftagerði hjá Víðimýi-i og bjuggu þar unz Sveinn andaðist 16. nóv. 1903. Þau voru fátæk og áttu þá fjögur börn öll ung að árum. Elísabet treystist því ekki til að halda heimilinu saman, og leysti það upp voriö 1904. Hún réðist þá með tvö börnin að Vatns hlíð til systur sinnar Þuríðar og manns hennar Guðmundur Sigurðs sonar. Þar ólst Stefán upp og dvaldist þar til 1926, að tveim ár- um undanskildum. Þau ár var hann vinnumaður í Valadal hjá þeim hjónum Guðríði Pétursdótt- ur og Friðriki Stefánssyni. Minnt- ist hann þess heimilis æ síðan með óblandinni hlýju. Vorið 1926 tók hann að sér forstöðu heimilis ekkju á Botnastöðum er Ingibjörg hér Lárusdóttir. Hafði hún misst mann sinn Gunnar Jónsson, frá þrem börnum í ómegð. Reyndist hann því heimili slíkur, að meir mundu þau systkini ekki hafa unn- að honum, þó hann hefði verið þeirra faðir. Vorið 1933 réðst hann að Æsu- stöðum til sr. Gunnars Árnasonar og Sigríðar Stefánsdóttur, og átti þar heimili um 12 ára skeið. Á þeim árum tók hann að kenna þess meins, er síðar þjáði hann til leið arloka, kölkunar í mjöðmum. Gerði það honum erfitt fyrir um ýmsa vinnu, einkum heyvinnu og gang. Varð það til þess að hann tók að stunda vegagerð á sumrum. Bú penings gætti hann samt á vetr- um flest árin, sem hann átti heim ili á Æsustöðum, enda voru þau störf honum hugðarefni. Hann var í því efni „hinn góði hirðir,“ sem unni hjörðinni, hverrar tegundar, sem hún var, vökull og glögg- skyggn á þarfir hennar og þrár. Hún átti hann líka að vini, sem fSjin tli með henni, hvort sem með eða móti blés. 16. jan 1943, þegar Stefán stóð rétt á fimmtugu giftist hann eftir- lifandi konu sinni, Huldu Aradótt ur. Þau fluttust til Reykjavíkur 1945 og hafa búið hér síðan. Þeim varð þriggja barna auðið, sem öll eru á lífi og dvelja heima enn, enda enn á barna- og unglings- aldri. Þó heimili þeirra hjóna væri ekki vítt til veggja né íburðar- TÍMiNN mikið, var þar þó nægilegt húsrými fyrir svo frábæra gestrisni að fá- gætt mun. Sá þáttur í heimilishátt- um þeirra hvíldi að sjálfsögðu mest á herðum Huldu og má hlut- ur hennar áreiðanlega teljast til hreinna afreka. En sú var skap- gerð beggja, að hin sífórnandi hönd gestrisninnar var lífsnautn þeirra beggja. Fannst mér oft, að ég eignaðist dýpri skilníng, en ég átti áður, á hugtaikinu, „gjafmild ur“, þegar nokkur olnbogabörn, sem fárra kosta völ áttu, nutu risnu þeirra og alúðar. Stefán naut engrar skólagöngu í æsku. Þó mun leitun á námfús- ari unglingi en honum. Þessa þrá sína ræktaði hann, og rækti köll- un hennar til ieiðarloka. En um það skeið ævinnar, sem hann mun háfa borið þrá eftir skólagöngu heitast í huga, missti móðir hans svo heilsuna, að hún lagðist í kör. Stefán átti þá um það að velja, að segja hana til sveitar eða leggja til náms, þó með léttan sjóð væri. Hann kaus þann kostinn, sem henni var hagfelldari. Má af því draga nokkra ályktun um það. hversu hann rækti sonarhlutverk- ið. Hinu má ekki gleyma, að hann lagði ekki námsþrána til hliðar, þótt skólinn lokaðist honum til fulls. Lestrarþrá hans var slík að þrátt fyrir frábæra dyggð við störf, hve sem þau voru, tókst honum að verða óvenju víðlesinn, enda fór þar saman ágæt náms- hæfni, glöggskyggni og traust minni. Hann eignaðist snemma á árum allgott bókasafn, að þeirra tíma mati, sem ekki var stofnað til fyrir fordildaæsakir. Bækurnar urðu honum hvorttveggja í senn heimilisvinir og svalalind. Þannig hafa þær löngum reynst mörgum gáfuðum alþýðumanni. Það er því óhætt að fullyrða að hann hefði setið hvern skólabekk með sæmd. Skömmu eftir að Stefán fluttist til Reykjavíkur, tók hann að stunda fornbókasölu, og rak hana um alllangt skeið. Tvennt mun hafa vakið sérstaka eftirtekt manna á honum sem slíkum. Hið fyrra var hve ótrúlega fróður hann varð um útgáfur íslenzkra bóka og um alla gerð þeirra og sérkenni. Kom þar glögglega fram hvorttveggja: frábært minni og óvenjuleg skarpskyggni í þessu efni. Híð síðara var greiðvirkni hans, hin sívakandi löngun til að greiða götu safnara, að fá bóka- söfn sín sem bezt úr garði gerð. Veit ég um marga, sem enn minn- ast hins fatlaða manns með þakk- læti fyrir ótrúlega margháttaðan greiða, þegar um þessi mál var fjallað. Þegar ég nú, eftir þessi meira en 60 ára kynni okkar Stefáns Sveinssonar, rifja upp þær minn- ingar mínar, sem við hann eru tengdar, veðrur tvennt mér hug- stæðast: drengskapurinn og gleð- in. Drengskapurinn var svo rík- ur þáttur í fari hans, að það var honum svölun að standa við orð sín og skyldur, — að „níðast á engu því, sem honum var trúað fyrir,“ — 'enda sýndi reynslan, að „betri voru orð hans, en eiðar ann arra.“ En hann rækti drengskap sinn svo hljóðlátt, svo langt frá allri yfirborðsmennsku og auglýs- ingaskrumi, að hann varð ekki að- eins sjálfsagður, heldur engu að síður sjálfgerður hluti af Stefáni Sveinssyni. Þó mun það reynsla aldanna, að sú tegund drengskap- ar, sem Stefán var ríkastur af, er „gimsteinninn, sem glóir í(manns- sorpinu." Þennan gimstein átti hann svo fágaðan, að fágætt var. Og gleðin var svo ríkur þáttur í fari hans, að hún entist honum til leiðarloka, jafnvel svo, að hún sveif yfir banasænginni heiðbjört og hlý, en létt eins og löngum áð- ur. En það var mér áratuga við- fangsefni, hvort ríkara var í fari hans: gleði alvörumannsins eða al- vara gleðimannsins. Hvort tveggja var svo samanslungið og fágað, að fágætt var. En trúlegast er, að þessi samtvinnun hafi ráðið mestu ■um það, að hann var í ríkum mæli hvort tveggja: barn gieðinnar og herra hennar í svo traustum tengsl um, að ég veit engin dæmi þess, að þar hafi skeikað. Mig brestur orð til að votta þakklæti mitt fyrir samfylgdina, en sendi þeim samúðarkveðju, er um sárast eiga að binda við fráfall hans. Guðm. Jósafatsson frá Brandsstöðum. SÖLUSKATTUR Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 2. ársfjórð- ung 1966, svo og nýálagðar hækkanir á söluskatti eldri tímabila, hafi gjöld þessi ek'ki verið greidd í síðasta lagi 15. þ. m. Dráttarvextirnir eru lVz% fyrir hvern byrjað- an mánuð frá gjalddaga, sem var 15. júlí s. 1. Eru því lægstu vextir 3% og verða innheimtir frá og með 16. þ. m. Hefst þá án frekari fyrirvara stöðvun atvinnu- rekstrar þeirra, sem eigi hafa skilað gjöldunum fyrir lokun skrifstofunnar mánudaginn 15. þ. m. Reykjavík, 10. ágúst 1966. Tollstjóraskrifstofan Arnarhvoli. ÖNDVEGI H.F. BYGGINGAFÉLAG Símar: Skrifstofan 2 13 75, Menntaskólinn v/Hamrahlíð 3 75 40 Hestur tapaðist 29. júlí tapaðist úr girðingu við Álafoss 6 vetra hestur ójárnaður mark: Vaglskora aftan hægra fjöður framan vinstra. ^ Finnandi hringi 1 síma 23-9-67. ÚTBOÐ Tilboð óskast í að byggja tvær hæðir ofan á norð urálmu Fæðingadeildar Landsspítalans. Uppdrátta má vitja á teiknistofu húsameistara ríkisins, Borg artúni 7, gegn 1.000.00 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð 30. ágúst kl. 2 e. h. Reykjavík, 9. ágúst 1966. Húsameistari ríkisins, Borgartúni 7. SÍLDARSTÚLKUR Óskum eftir að ráða nokkrar vanar síldarsöltunarstúlkur strax. Fríar ferðir, kauptrygging. Mötuneyti á staðnum. Upplýsingar á skrifstofu ísbjarnar- ins í Hafnarhvoli, símar 11574 og 20955. SUNNUVER H. F. SEYÐISFIRÐI.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.