Tíminn - 11.08.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 11.08.1966, Blaðsíða 16
VILJA RÆÐA STOFNUN HEILDAR- SÖLUSAMTAKA SÍLDARSALTENDA Síldarsaltendur á SV-landi vilja óbreytt verzlunarfyrirkomulag við jafnvirðiskaupalönd. Um skipið Undanfarnar 6 vikur hefur ver ið unnið að smíði víkingaskips í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og er smíðinni nú lokið. Að því er Bjarni Einarsson, forstjóri skipa- smíðastöðvarinnar, tjáði blaða- manni Tímans er víkingpskipið 15 m langt, mælt frá trjónu og aftur úr, og 3,5 m þar sem það er breið ast. Aðaluppistaða skipsins er gamail nótabótur, en viðbótin er að mestu smíðuð úr krossvið. Drekahöfuðið er mótað úr plast- frauði og húðað með plastefni. Skildir á hliðum eru úr krossviði og plasti. Jón Benediktsson, mynd höggvari, hefur mótað drekahöfuð ið og annast allar skreytingar skipsins eftir skissum frá Þýzka- landi, sem einnig sögðu til um lita val. Bjarni Magnússon hefur einn ig lagt sig fram um að skipið yrði sem líkast norsku víkingaskipun um, en óhætt er að fullyrða að smíðin hefur tekizt mjög vel og er skipið litríkt og hið glæsileg asta ásýndum. Ekkert mælir gegn því að skip ið geti siglt undir seglum, en samt hefur verið talið ráðlegt að tengja við skipið utanborðshreyfil. Stýr isútbúnaður skipsins er nákvæm eftirlíking af stýrisútbúnaði vík ingaskipanna til foma, og sagði Bjarni, að sá útbúnaður hefði ver ið vel af hendi leystur. Framhald á bls. 14. Myndirnar af skipinu tók Ijós- myndari Tímans GE. Lóðsinn í Vestnwnnaeyjum á að draga víkingaskipið á flot SJ-Reykjavík, miðvikudag. Eitt atriðanna í kvikmyndinni „Die Niebelungen" (Völsungasaga bAturstrandar sem þýzkir kvikmyndagerðar- menn vinna nú að í Júgóslavíu, á að sýna, þegar Sigurður Fáfnis bani kemur á skipi til íslands, ásamt Gunnari Gjúkasyni til að vekja Brynhildi Buðladóttur, af svefni. Þessi þáttur kvikmynd arinnar verður tekinn hér, og kem ur hingað 30 — 40 manna hópur 19. ágúst n.k. og heldur daginn eftir að Skógum og hefst þá undir búningur að töku atriðisins við Dyrhólaey, en þar á Sigurður Fáfn isbani að stíga á land. Eins og þegar hefur komið fram í fréttum, fékk Skipasmíða stöð Njarðvíkur það verkefni að smíða fyrir Þjóðverjana víkinga- skip það, sem flytur Sigurð Fáfn isbana að landi. Smíði skipsins er nú lokið og var fréttamönn- um boðið í dag að skoða þennan glæsilega farkost fyrir utan Skipa smíðastöð Njarðvíkur, en á morg- un fimmtudag verður ekið með -. skipið áleiðis að Dyrhólaey. Áætl j að er að leggja af stað um fimm j leytið og gert er ráð fyrir, að skip \ ið fari yfir Jökulsá á Sólheima- j sandi um sjöleytið á föstudags morgun. Víkingaskipið bíður svo komu kvikmyndagerðarmann- anna við ósinn hjá Dyrhólaey, og verður vörður settur til að gæta þess dag og nótt. Þegar kemur að þeim degi, er kvikmynduð verður sigling vík- ingaskipsins að landi, fær Lóðsinn í Vestmannaeyjum það hlutverk að draga víkingaskipið út á rúmsjó, og verða myndir teknar um borð í Lóðsinum af skipinu á siglingu. Framhald á bls. 14. Miðvikudaginn 3. ágúst sl. var haldinn í Reykjavík aðalfundur Fé lags síldarsaltenda á Suðvestur- landi. Félagssvæðið nær frá Vest- mannaeyjum til Vestfjarða, og eru meðlimir þess síldarsaltendur á þessu svæði. Fundarstjóri var Sig urður Ágústsson, útgm. í Stykkis hólmi og fundarritari Gunnar í. Hafsteinsson, lögfræðingur. Formaðurinn, Jón Árnason, fr. kv.stj. á Akranesi flutti skýrslu stjórnar félagsins fyrir sl. starfsár. Safgði hann, að vegna aflabrests hefði síldarsöltun verið minni á starfsárinu en nokkru sinni áður, frá því að félagið tók til starfa. Söltunin hefði minnkað á þrem undanförnum árum úr tæpum 140. 000 tunnum í 36.000 tunnur. Ræddi hann um nauðsyn þess, að síldarleit og síldarrannsóknir við Suður- og Vesturlaud yrðu stórauknar. Einnig væri nauðsyn- legt, að auka flutninga á fersk- síld til söltunar frá fjarlægum miðum. Nokkuð hefði verið flutt af síld til Suð-vesturlands á síð ustu vertíð frá Austurdjúpi og hefði söltun á þeirri síld tekizt mjög vel. Þá skýrði Jón frá því, að fé- laginu hefðu borizt óskir frá Fé- lagi síldarsaltenda á Norður og Austurlandi um viðræður varð- andi möguleika á stofnun heildar sölusamtaka allra síldarsaltenda, á landinu. Gat formaður þess, að stjórn félagsins myndi leggja fram tillögur varðandi þessi mál og er þeirra gerið hér á eftir. í sam- bandi við tillögu saltenda á Norð ur- og Austurlandi um stofnun sölusambands kvaðst Jón vilja taka það sérstaklega fram, að síldarsalt endur á Suður- og Vesturlandi væru ánægðir með störf Síldarút- vegsnefndar og skrifstofu hennar, en stjórn félagsins teldi þó rétt að verða við beiðni Félags síldar saltenda á Norður- og Austurlandi um viðræður um möguleika á stofnun heildarsölusamtaka síld- arsaltenda, enda væri stjórnin þeirrar skoðunar, að eðlilegast sé að jafnaði að samtök framleið- Framhald á bls. 15. HERAÐSMOT1KROKSFJARÐARNESI Héraðsmót Framsóknarmanna í A-Barð. verður haldið að Króks- fjarðarnesi laugardaginn 13. ágúst og hefst kl. 9 s. d. Ræður flytia alþingismennirnír Hermann Jónasson fyrrv. forsæt isráðherra og Ólafur Jóhannesson, varaformaður, Framsóknarflokks- íns. Klemenz Jónsson, teikari, skemmtir og Guðrún Guðmunds dóttir og Ingibjörg Þorbergs syngja. Hermann Ólafur Hljómsvcitin Röðlar leika fyrir dansi. HZ—Reykjavík, miðvikudag. í nótt sigldi vélbáturinn Reynir BA-66 í strand utar lega á Flösinni hjá Garðskaga. |: Var Slysavarnafélaginu gert aðvart og fór björgunarflokkur úr Garðinum undir forystu Þor steins Jóhan v sonar á strand staðinn, þar sem þeir voru ; komnir rétt fyrir klukkan fjög ur í nótt. Voru skipverjarnir búnir að blása upp gúmbáta og höfðu þá til taks á síðunni. Skipverjar komu línu í Iand og dró björgunarflokkurinn þá í land í gúmíbátnum. Framiiald á hls. 14 Óðinn dregur Reyni inn í Keflavíkurhöfn, (Tímam. GE) , , ^ -. s v Vs 'S SS-.S n ' " 'í « "' - N % s ' T

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.