Vísir - 15.05.1975, Side 3
Vfsir. Fimmtudagur 15. maf 1975.
3
tékknesku
styttur eru
komnar í
miklu úrvali
Verðið er
mjög hagstœtt
LITIÐ INN OG SKOÐIÐ OKKAR MIKLA
OG VANDAÐA VÖRUURVAL.
VÖRUR FYRIR ALLA~ VERÐ FYRIR ALLA
lllili-
liiihnii
Laugaveg 15 sími 13111
Miðbœjaríbúðirnar í Kópavogi:
HVER Á AÐ BERA VERÐ-
BÓLGUNA, HÚSBYGGJANDI
EÐA VERKKAUPENDUR?
— Samningarnir voru um verkkaup en
ekki íbúðakaup, segja forráðamenn
Miðbœjarframkvœmda sf.
Þrjú slys á
sama klukku-
tímanum
Nokkrir slösuðust I Reykjavfk I
fyrradag I þrem slysum, sem
urðu þar með skömmu millibili
siðdegis I gser. Meiðsl á fólki
munu þó ekki hafa verið mjög
alvarleg.
Fyrsta slysið varð á mótum
Laugarásvegar og Sunnuvegar
rétt eftir klukkan fimm. Þar ók
fólksbill I veg fyrir mjólkur-
flutningabil. Areksturinn varð
mjög harður og skarst farþegi i
fólksbilnum i andliti.
Þá var ekið á fjögurra ára
dreng á Nesvegi rúmlega hálf-
tima siðar. Drengurinn hljóp fyr-
ir bil, en samkvæmt fyrstu rann-
sókn hafði hann sloppið við alvar-
leg meiðsli.
Um klukkan 18:13 varð svo slys
á gatnamótum Hringbrautar og
Laufásvegar. Þar ók bifreið af
Laufásveginum i veg fyrir bil,
sem kom eftir Hringbrautinni.
Áreksturinn varð geysiharður og
urðu miklar skemmdir á bilunum
og farþegar munu hafa hlotið ein-
hver meiðsl. -dB
Minnsta kaup-
félagið hœttir
Elzti kaupfélagsstjóri
iandsins, Ivar tvarsson, lézt á
siðastliðnu hausti. Hafði hann
um áratuga skeið stýrt
minnsta kaupfélagi landsins,
Kaupfélagi Rauðasands. t
Sambandsfréttum segir for-
maður félagsins, Reynir
ívarsson, að stjórn kaup-
félagsins hafi nú ákveðið að
hætta starfseminni, en félags-
menn á siðasta ári voru aðeins
16. Munu þeir nú snúa sér til
Kaupfélags Patreksfjarðar
með viðskipti sin. -JBP-
„Ef Eðvarð er
vinur minnóska
ég að eiga
sem
flesta óvini"
— sagði Jón
Þorleifsson, sem
mótmœlir því að vera
kallaður gamall
baróttufélagi Eðvarðs
„Ég vil mótmæla þvi, sem fram
kom í frétt VIsis 2. mai, að ég sé
einhver ræðuþjófur. Þegar ég tók
ræðuna af Eðvarð Sigurðssyni á
útsamkomunni 1. mai var það að-
eins til að mótmæla þvl, að
Eðvarð kæmi þarna fram sem
slikur,” sagði Jón Þorleifsson,
verkamaður, er hann leit inn á
rltstjórn VIsis.
„Mig langaði lika að sjá, hvort
lög og réttur væru alltaf jafn
svifasein, en á ræðunni hafði ég
engan áhuga. Jafnframt var
þetta til aö vekja athygli á máli,
sem á að þagga niður.”
Orðum sinum til áherzlu rétti
Jón bækling yfir borðið. Bækling-
ur þessi heitir Nútfma
kviksetning og er eftir Jón. í
honum lýsir hann viðureign sinni
við forráðamenn verkalýðs-
félagsins Dagsbrúnar sérstak-
lega og við kerfið i heild, eftir að
hann varð fyrir slysi sem gerði
það að verkum, að hann þolir ekki
alla vinnu. Bæklingur þessi mun
fást i bókabúðum og talar enga
tæpitungu.
„Hefði ég viljað koma i veg
fyrir að Eðvarð gæti flutt þessa
ræðu,” sagði Jón, „var mér i lófa
lagið að rifa hana — eða slá
Eðvarð, ef ég væri geðbilaður,
eins og hann hefur sagt um mig.
En það er einkennilegt, ef ekkert
segist á þvi að beita mig at-
vinnurógi og valda mér marg-
földum skaða I fjölda ára.
Ef Eðvarð er vinur minn, óska
ég þess að eiga sem flesta óvini!”
-SHH.
„Það er ekki nema
einn viðskiptavina
okkar, sem kvartað
hefur yfir þeim
samningum, sem hann
þó sjálfur undirritaði
við gerð verk-
samnirigsins”, sögðu
forráðamenn
Miðbæjarframkvæmda
i Kópavogi i gærdag
vegna másóknar, sem
þessi viðskiptavinur
þeirra hefur nú hótað,
og sagt var frá i
blaðinu i gær.
Sögðu þeir það misskilning
mannsins að hér væri um
kaupsamninga að ræða.
Samningurinn hljóðaði upp á að
fyrirtækið tæki að sér smiðið
íbúðanna gegn föstu verði, en
verkkaupi greiði samkvæmt
vlsitölu byggingarkostnaðar
þær hækkanir, sem verði á
byggingartlmanum.
Flestir þeirra sem eiga Ibúðir
I blokkinni, 100 Ibúðareigendur,
hafa staðið við skuldbindingar
slnar, á byggingatlmanum, og
kváðu þeir félagar samstarfið
hafa verið með miklum ágæt-
um við verkkaupana.
„Að vlsu hefur minnkandi at-
vinna og fjárgeta orðið til þess
að einstaka maður hefur átt
erfitt með að inna af hendi
greiðslur á réttum gjalddögum.
Höfum við þá reynt eftir megni
að hliðra til. Eðlilega gerði
enginn, hvorki verkkaupar né
við, ráð fyrir þvi, að vlsitala
bygginakostnaðar hlypi upp um
rúm 70% á þessu eina ári.
Varðandi tafir á afhendingu,
sögðu Miðbæjarframkvæmda-
menn að þrætumál I bæjarstjórn
Kópavogs hefðu seinkað fram-
kvæmdum um 2 mánuði haustið
1973. Þá töfðu frost I jöröu fram-
kvæmdir enn um 4 mánuði. I
marz 1974 var byrjað af kappi
og stórhýsinu lokið á rúmu ári,
fullbúnu að utan og lóð frá-
gengin. Vlsitala á greiðslur var
reiknuð til 1. nóvember s.l.
Töldu þeir erfitt að hugsa
sér hvernig framkvæmdir sem
þessar gætu orðið á annan hátt
en þann, að kaupandinn greiði
raunvirði framkvæmdanna.
Þegar 100 Ibúðir, verzlanir og
bílageymslur væru reistar, tæki
sllkt allt að 3 ár. Verðhækkanir
á þeim tima hlytu að leggjast á
alla liði byggingarinnar. Fast
verðtilboð I verðbólguþjóöfélagi
eins og Islandi, hlyti þvi að vera
út I hött. Hefði margur
byggingaraðilinn brennt sig á
þessu og lent I greiðsluþroti.
Vandséð væri hver hefði hagnað
af sliku.
„Okkur virðist fólk siður en
svo kvarta yfir viðskiptunum.
Fólk fær þær á þvi gangverði,
sem virðist á svipuöum Ibúðum
á markaðnum,” sögðu forráöa-
menn Miðbæjarframkvæmda.
Bentu þeir á að sumir hefðu
raunar borgað sig frá visi-
tölunni með hreinni útborgun I
byrjun.
Um þessar mundir er unnið aö
sprengingum á slöari hluta
framkvæmdanna við Álfhóls-
veg, 4/10 hlutum verksins, þar
sem verða 50 ibúðir. -JBP
_
STYTTU-
SENDING
Hinar marg-
Miðbæjarframkvæmdir Kópavogs — þarna er I fyrsta sinn relstur
miðbær frá grunni, skipulagður I öllum atriðum. Þar á að blandast
saman verzlun og viðskipti og mannabústaðir. (Ljósmynd BG)
Hvítasunnan:
Tjaldbúðir ekki leyfð-
ar á Laugarvatni
og frekar mœlzt undan því á Þingvöllum
Tjaldbúðir verða ekki leyfðar á
Laugarvatni um hvitasunnuna.
Svo hefur ekki verið I mörg ár,
eftir þeim upplýsingum sem við
fengum þar I morgun. Jarðvegur-
inn er llka alls ekki tilbúinn til
þess að taka við mörgum tjaldbú-
um, og hann þarf að jafna sig vel
til þess að geta tekið sómasam-
lega á móti fólkinu I sumar.
„Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um það ennþá. Það er
lögreglan og Þingvallanefnd sem
ákveða það”, sagði séra Eirikur
Eirlksson á Þingvöllum, þegar
við höfðum samband við hann.
„Annars er hvitasunnan
snemma núna. Tiðafar hefur ver-
ið erfitt og allur gróður er á eftir.
Mér er óhætt að segja að hann sé
svona hálfum mánuöi, þremur
vikum á eftir sveitum hér neðra”.
Eirikur sagði að gróðurinn væri
mjög viðkvæmur, hann væri
sums staðar eins og hálfgerður
grautur. „Þannig að við mælumst
heldur undan fjöldatjaldbúðum.”
Hann gat þess llka að ýmissa
veðra væri von, en kvaðst eiga
von á talsverðum hópi unglinga
nú þegar prófum lýkur, en það
verður ekki fyrr en eftir hvíta-
sunnu.
—EA