Vísir - 15.05.1975, Page 5

Vísir - 15.05.1975, Page 5
Vísir. Fimmtudagur 15. mal 1975. 5 REUTER AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND U msjón Guðmundur Pétursson Náðu Mayaguez með leifturárás Bandariskt herlið náði á sitt vald i morg- un bandariska flutningaskipinu Mayaguez um leið og það réðst til landgöngu á eyjunni Koh Tang á Thailandsflóa. — Skip- ið hefur verið á valdi kambodiskra fall- byssubáta, sem tóku það á mánudaginn, þar sem það var á alþjóða siglingaleið. Um mannfall i átökum þeim, sem áttu sér stað i gærkvöldi og I nótt, er ekki vitað neitt ennþá. Þó munu þrjár bandariskar þyrlur hafa farizt, en hvort þær voru skotnar niður eða hvort þær hröpuðu i sjóinn af slysni, er ekki vitað. Landgönguliðar stigu á land á Koh Tangeyju, sem er um 30 mllur undan strönd Kambodiu. Náðu þeir Mayaguez strax á sitt vald, en fundu engan af áhöfn skipsins um borð. „Leðurhálsarnir”, sem nutu verndar orrustuflugvéla frá flugmóöurskipinu „Coral Sea”, leituðu áhafnarinnar hátt og lágt um alla eyjuna, sem er þakin frumskógi. Mættu þeir ekki mikilli andstöðu. A meðan þeir leituðu á eyj- unni, héldu flugvélar „Coral Sea” hernum á meginlandinu i skefjum. Fengu Kambodiu- menn ekki komið við sinum litla flugvélakosti, vegna þess að næsti flugvöllur, Ream skammt frá Kompong Som, lá undir stöðugum árásum. Það var talið óliklegt, að Kambodiumenn hefðu náð að flytja áhöfn Mayaguez til lands, þvi aö I gær sökktu bandariskar orrustuflugvélar þrem kambodiskum fallbyssubátum, sém haldið höfðu vörð um Mayaguez. Það var gert til að fyrirbyggja, að mennirnir á Mayaguez yrðu fluttir til lands. Undir morgunsárið sást hvar Htill kambodiskur bátur með hvita veifu uppi sigldi að banda- riska tundurspillinum Wilson, sem staddur var skammt undan Koh Tang. — Um borð i bátnum var sagt, að 30 menn af áhöfn Mayaguez hefðu verið. Útvarpið I Phnom Penh ra'uf margra daga þögn sina i gær- kvöldi. í fimmtán minútna út- sendingu, þar sem nýju vald- hafamir fordæmdu Bandarikin fyrir ögrandi hernaðaraðgerðir, var þvi haldið fram, að Maya- guez væri njósnaskip. Engu að siður sögðust Kambodiumenn mundu skipa skipstjóranum að hypja sig úr kambodiskri land- helgi. Vöruðu þeir önnur njósnaskip við að athafna sig I landhelgi Kambodiu. Bandarikjastjórn hefur áður lýst þvi yfir, að Mayaguez hefði ekki verið njósnaskip eða á neinn hátt á snærum Banda- rikjastjómar. —Skipið var enda statt um 60 milur undan strönd- um Kambodiu, þegar það var tekið — langt utan við landhelgi Kambodiu og á alþjóðasiglinga- leið. Sama var um önnur skip að segja, sem kambodiskir fall- byssubátar hafa stöðvað á siglingum á þessum slóðum. Eftir útvarpssendinguna I gærkvöldi reyndi Bandarikja- stjórn að koma áleiðis skeyti með orðsendingu til hinnar nýju stjómar Kambodiu. Var þar fagnað þeirri ákvörðun Kambodiumanna að sleppa skipinu, en bent á, að skipið væri reyndar þegar á valdi bandariskra landgönguliða. — Þá var áhöfnin enn ófundin. — Um leið var þess krafizt, aö Kambodiumenn skiluðu áhöfn Mayaguez, og lofað, að banda- riskt herlið yrði strax kallað burt af þessu svæði, þegar áhöfnin hefði verið endurheimt. Við .þessari orðsendingu fékkst aldrei neitt svar. Þetta er i fyrsta sinn i meira en tvö ár, sem Bandarikjafor- seti beitir her lands sins I Indó- kina — að undanskildu hjálpar- starfi við brottflutning flótta- fólks frá Indókina. Fyrir rúm- um tveim árum samþykkti Bandarikjaþing takmörkun á umboði forseta sins til að beita Bandarikjaher til striðsað- gerða. En Ford greip til þessa ráðs i gær i krafti ákvæðis, sem heimilar honum að beita hern- um til að verja lif bandariskra borgara og eignir. Það sama lagaákvæði gerir hinsvegar ráð fyrir, að hann verði að leggja slika ákvörðun undir dóm þingsins innan tveggja mánaða, og hefur þá þingið i hendi sér að stöðva slikan striðsrekstur, ef það vill. MacWay, eitt flugmóöurskipa 7. flotans, sem þátt tók I aögeröunum á Thailandsflóa I gær og í nótt. Landgönguliðar fluttir burt frá Thailandi KOMU SIGLANDII BÁTI Þeir 1,100 landgöngulið- ar bandaríska sjóhersins, sem fluttir höfðu verið til U-Tapao herstöðvarinnar í Thailandi, voru fluttir það- an aftur snemma í morgun. Þeir voru fluttir um borð i flug- móðurskipið „Coral Sea”, sem héltsigá alþjóðlegri siglingaleið i mynni Thailandsflóa. — Ekkert hefur verið sagt um það, hvort þeim hafi verið teflt fram i átökunum á Thailandsflóa. Það er vitað, að 135 landgöngu- liðar Bandarikjamanna stigu á land á eyjunni Koh Tang seint i gærkvöldi og siðar var þeim sendur liðsauki. Ríkisstjórn Thailands hafði mótmælt harðlega liðsafnaði Bandarikjamanna I U-Tapao her- stöðinni og krafizt þess, að land- gönguliðarnir yrðu fluttir þegar i stað þaðan aftur, ella gætu „af- leiðingarnar orðið hinar alvarleg- ustu fyrir sambúð Thailands og Bandarikjanna”. Thailandsstjórn, sem kviðir þvi að uppgangur kommúnista I Viet- nam og Kambodiu geti orðið kommúnistum I Thailandi hvatn- ing til uppreisnar, vill halda sem beztu sambandi við nýju valdhaf- ana i nágrannarikinu. Vill hún fyrir engan mun styggja þá og tók loforðaf Bandarikjastjórn um, að herstöðvar USA i Thailandi yrðu ekki notaðar til árása á Kambodiu. Talsmaður Thailandsstjórnar fullyrti i morgun, að flugvélarn- ar, sem Bandarikjamenn beittu til að sökkva þrem fallbyssubát- um Kambodiu á Thailandsflóa i gærkvöldi, hafi komið frá flug- móðurskipum 7. flota USA, sem jafnan er til taks á Kyrrahafi. Um 30 menn af 39 manna áhöfn flutninga- skipsins Mayaguez voru komnir fram í morgun, þegar síðast fréttist. — Litlum báti frá Kambodiu var siglt upp að tundurspillinum Wil- son frá Bandarikjunum, þar sem hann var stadd- ur undan eyjunni Koh Tang á Thailandsflóa. Um borð i bátnum voru þessir þrjátiu. Ekkert er hinsvegar vitað um hina niu eða tíu, sem saknað er af áhöfninni. Bandaríkin höfðu lýst þvi yfir, að þau mundu hætta strax við hernaðaraðgerðir sínar við Koh Tang-eyju og Kambodíu, þegar áhöfn skipsins hefði verið endurheimt. Ford forseti á blaöamannafundinum I Hvlta húsinu i morgun, þar sem hann geröi blaöamönnum grein fyrir því, aö Mayaguez og áhöfn heföu veriö endurheimt. Náðu skipi og áhöfn Ford forseti skýrði blaðamönnum frá því i morgun, að öll áhöfn bandariska flutninga- skipsins Mayaguez hefði náðst heilu og höldnu úr höndum Kambodiumanna, sem tóku skipið á mánudag. Sagði forsetinn, að banda- risku herskipin og landgöngu- liðar, sem tekið hefðu þátt i að- gerðum i nótt og i morgun til þess að ná aftur Mayaguez frá Kambodiumönnum, sættu enn- þá skothrið. En erindi þeirra væri lokið og þeir byggju sig undir að hverfa á brott. Fyrri fréttir höfðu greint frá þvi, að 30 af 39 manna áhöfn skipsins hefðu náðst. A fundi með blaðamönnum i Hvita húsinu i morgun fórust Ford forseta orð á þessa leið: „Að fyrirskipan minni stigu bandariskir hermenn um .borð i bandariska flutningaskipið S.s. Mayaguez og á land á eyjunni Koh Tang i nótt i þeim tilgangi að frelsa áhöfn og skip, sem hermenn Kambodiu höfðu tekið ófrjálsri hendi. Til að tryggja að þessi aðgerð gæti farið fram, voru einnig gerðar árásir á nærliggjandi hervirki. Mér hefur nú verið tjáð, að skipinu hafi verið náð og áhöfn- inni bjargað. En herflokkar þeir, sem tóku þátt I aðgerðinni, sæta enn skot- árásum, en búa sig undir að hörfa burt.”

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.