Vísir - 15.05.1975, Blaðsíða 6

Vísir - 15.05.1975, Blaðsíða 6
6 Visir. Fimmtudagur 15. mai 1975. VÍSIR tJtgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason ,, Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Síðumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjaid 700 kr. á mánuöi innanlands. t lausasölu 40 kr.eintakiö. Blaðaprent hf. Illlllllllll m orn'm Umsjón: G.P. suöurvigstöövunum I Úkrainu, en áöur en margir mánuöir voru liönir, var hann oröinn aöal- stjórnmálaerindreki 18. hersins, sem baröist á viglinunni sem náöi frá nyrzta hluta Kákasus til Prag. í einni greininni, sem birtist I tilefni 30 ára afmælisins, minnist Anton Gastilovich hershöföingi þess, hvernig hann gaf gaum Brezhnev ofursta innan um óbreytta dáta 18. hersins. „Hermennirnir trúðu honum fyrir öllu þeim viökomandi, lásu fyrir hann bréfin aö heiman og leituöu hiklaust til hans meö öll sin vandamál,” segir I greininni. „Hershöföinginn gerði sér strax grein fyrir, aö þarna fór maöur, sem skildi tilfinningar hermannanna og naut takmarka- lausrar virðingar þeirra,” heldur greinin áfram. Hershöfðinginn segir I viötali viö vikurit eitt, aö „Brezhnev ofursti hafi aldrei þreytzt á aö endurtaka, aö réttur staöur stjórnmálaforingjans I hernum væri viö hliö hermannanna I orustunni. — Gat oft aö líta Brezhnef erindreka I skotgröfun- um, þegar bardaginn stóð sem hæst.” Það rifjast einnig upp fyrir Gastilovich hershöfðingja, sem varð yfirmaður 18. hersins, aö hann hafi ósjaldan leitað ráöa hjá þessum stjórnarerindreka um, hvernig hann ætti aö haga hern- aðaraðgerðum dagsins. — Sá einn getur gert sér grein fyrir þvi, hvilikt álit hershöfðinginn hlýtur þá aö hafa haft á félaga Brezhnev sem þekkir rótgróna andúð her- foringja yfirleitt á borgurum og afskiptum þeirra af hermálum. Þegar 18. herinn sótti fram að landamærum Tékkóslóvakiu und- ir árslok 1944, var Brezhnev oröinn hershöfðingi aö tign, þ.e.a.s. i stjórnmáladeild hersins. Þeirri tign hélt hann I striðslok. Kennslukona I einu þeirra þorpa, sem einna fyrst komst á vald Rauða hersins I Tékkóslóvakiu, minnist þess aö hafa hitt Brezhnev á þessum tima. „Einu sinni þegar ég óð leöjuna upp I ökkla með mjólk I fötu handa börnunum, stanzaði vagn hjá mér og sovézkur hershöföingi i hvltum loöfeldi bauð mér far,” segir kennslukonan i blaðaviötali nýlega. Siöan lýsir hún þvi, hvernig Brezhnev hafi leikið viö börnin og ekki látiö loftárásir eöa annir aftra sér frá heimsóknunum. Hækkun Brezhnevs I tign virðist eiga að vera viðurkenning fyrir framlag hans til ættjaröar- innar á ófriöartimum. Æösta ráðiö viröist stórstigt I þessari út- hlutun, þvi að hlaupiö var yfir tvær hershöföingjagráöur, frá þeirri, sem Brezhnev haföi. Harkan happadrýgri Það er alls óvist, að það verði Thailandsstjóm farsælast að „lúffa” lyrir kommúnistum og bandamönnum þeirra, eins og stjórnin virðist nú ætla sér með hlutleysisstefnu og fótasleikingum. Reynslan i Kambódiu varð sú, að Sihanouk, sem fylgdi hlutleysisstefnu, lét kommúnista vaða uppi og er nú orðinn eins konar fangi þeirra. 1 öðru grannrikinu, Laos, sjá menn nú, hvernig komið er fyrir hlutleysissinnum. Þeir eru einnig á valdi kommúnista. Harkan kynni að verða Thai- lendingum happadrýgri. —HH Marskálksstjörnunni hefur nú veriö bætt á barminn á Brezhnev. Eftir fall Laos er grannriki þess, Thailand, nú i brennidepli. Um 800 bandariskir landgönguliðar komu til landsins i gær, i óþökk rikisstjórnarinn- ar. Stefna stjórnvalda i Thailandi hefur farið kollhnis i seinni tið, eftir þvi sem bandamönnum kommúnista hefur vaxið fiskur um hrygg i grannrikjunum. Stjórnin var löngum mjög hlið- holl Bandarikjunum, en nú hallast hún að hlut- leysstefnu i meginatriðum vegna óttans við ná- grannana. Ibúafjöldi Thailands er um 34 milljónir. Það stendur á Malakkaskaga. Kambódia, þar sem hinir rauðu Kmerar hafa nú tekið völdin, er aust- an þess, Laos, þar sem Pathet Lao skæruliðar ráða lögum og lofum, liggur norðan og austan. Hins vegar sitja hægri stjórnir að völdum i hinum grannrikjunum tveimur, Burma og Malasiu. Ótti stjórnvalda i Thailandi er ekki ástæðulaus. Bandariski herinn varð að gripa i taumana árið 1962, þegar kommúnistar i Laos hótuðu innrás i norðurhluta landsins. Kambódiumenn höfðu einnig i frammi hótanir um innrás á þessu skeiði, en þá var Sihanouk prins þjóðhöfðingi i Kambódiu, eins og hann er nú aftur að verða. Thailand sleit þá stjórnmálasambandi við Kambódiu. Meðan Lon Nol og hægri menn réðu Kambódiu var allfriðsamlegt milli rikjahna, og núverandi stjórn Thailands hefur farið mjög var- lega eftir fall Lon Nols og valdatöku rauðu Kmer- anna. Hún hefur lagt sig i framkróka til að styggja ekki hina nýju valdhafa og neitað flótta- fólki frá Kambódiu um landvist. Einnig hafði Thailandsstjórn áður beðið Bandarikjamenn að vikja úr herstöðvum, sem þeir hafa haft i landinu, og nú i gær mótmælti hún ákaft, ef vera kynni, að Bandarikjamenn notuðu herstöðvarnar til árásaraðgerða gagnvart Kambódiustjórn sem hafði tekið bandariskt skip á alþjóðlegri siglinga- leið. Thailandsstjórn veit fullvel, að landið yrði næsta fórnardýr kommúnista, ef þeir hygðu á frekari útþenslu eftir valdatökuna i grannrikjum þess, sem þeir munu liklega gera. Byltingar hafa verið tiðar i sögu landsins og hver herforingja- stjórnin tekið við af annarri. Núverandi forsætis- ráðherra, Kukrit Pramoj, hefur mjög fjarlægzt stefnu stjórnvalda i Washington. Hins vegar eru ekki mörg ár liðin, siðan Bandarikjaforseti, sem þá var Nixon, lýsti yfir, að Bandarikjamenn mundu stoltir styðja við bakið á Thailendingum gegn hverjum þeim, sem ógnaði þeim að utan eða innanlands, eins og hann komst að orði. Er félagi Brezhnev á rangri hiliu? — Heföi hann oröiö meiri her- stjórnarsnillingur en stjúrnmálamaöur? ( Út úr þessum endurminningum kemur Leonid Brezhnev, leiötogi sovézka kommúnistaflokksins, baöaður nýju ljósi. Dreginn hefur verið fram sá þáttur I lffi hans, sem hingaö til hefur litiö veriö haföur á lofti. — Frammistaöa hans á striösárunum. Þaö byrjaöi meö þvi aö sjálfan hátlöisdaginn, þegar afmælisins var minnzt, var Brezhnev heiöraður og hækkaöur I foringja- tign. — Podgorny forseti nældi á hann marskálksstjörnunni til merkis um, aö hann væri oröinn hershöföingi i Rauöa hernum. Siðan hefur hver af öörum veriö kallaöur fram til aö bera vitni um foringjahæfileika flokksleiötog- ans og hversu annt honum hafi veriö um hagi manna sinna, her- manna jafnt sem borgara, sem stóöu i eldlinunni. Miödepilllistsýningar.sem efnt Stríðshetjan Siðustu dagana hafa menn i Sovétríkjunum haft hugann við atburði, sem áttu sér stað fyrir þrjátiu árum eða meir. í tilefni hátiðahaldanna vegna 30 ára afmælis sigursins yfir nazismanum og þriðja rikinu hafa menn þar eystra ornað sér i endurminn- ingum hetjudáðanna á vigstöðvunum. var til I Moskvu vegna hátiða- haldanna, er málverk, sem sýnir Brezhnev, hávaxinn og myndar- legan, innan um hóp hermanna og sjóliöa, sem horfa á hann aödáun- araugum I miöri orustunni um Kákasus. í ræöu sinni, sem leiðtoginn flutti á hátiöisdaginn, vék hann að sinu eigin framlagi til herþjónust- unnar og minnti yngri kynslóöir á þá „daga, mánuði og ár, sem dát- ar og foringjar höföu oröiö aö búa meö dauöann sér viö hliö”. Brezhnev, sem nú er oröinn 68 ára, var kallaöur i herinn frá starfi sinu sem áróðursfulltrúi i bænum Dnepropetrovsk I úkra- inu strax á fyrstu dögum innrásar Þjóöverja I Sovétrikin I júni 1941. Með ofurstatign starfaöi hann fyrst sem aðstoðaryfirmaður stjórnmáladeildar hersins á BREZHNEV

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.