Vísir - 24.05.1975, Side 5
Vlsir. Laugardagur 24. mal 1975
5
Stuöhljómsveitin BORGtS. Frá vinstri Pétur Hjaltested, Atli
Jónsson, Kristján Blöndal, Ari Jónsson. Ljósm. GuSa.
Viljo bóðir
lóta opna
nœturklúbba
ó nýjan leik
i dag var fyrirhugað, að
aðalplássiðá síðunni yrði
helgað hljómsveitinni
Eik, en þar sem sú hljóm-
sveit er dálítið laus í
böndunum um þessar
mundir, þá var ákveðið
aðgeyma henni plássið til
seinni tíma, en taka ann-
að efni fyrir í staðinn.
En hvaö var nú til ráöa? Okk-
ur Tónhyrningum gat I svipinn
ekki dottið neitt efni i hug, sem
lesendum þætti fróðlegt og at-
hyglisvert, svo að ég brá á það
ráð að rölta i bæinn og sjá til,
hvort ég fengi ekki einhverja
uppljómun þar. Og sem ég gekk
um bæinn i þungum þönkum, þá
rak ég skyndilega hausinn I is-
búð. Þar sem hvorugt brotnaði,
hausinn eða isbúðin, þá gekk ég
inn og keypti mér is, en gleymdi
að sjálfsögðu að borga. Það var
ekki fyrr en ég var kominn út á
götu, að ég rankaði við mér við
það, að afgreiðslustúlkan
kallaöi ofur vingjarnlega á eftir
mér: „ætlarðu ekki að borga is-
inn, helvitis plebbinn þinn.” Og
þá kviknaði skyndilega á per-
unni: Borga is.. Borgis! Já,
svo sannarlega. Ég ætlaöi að
skrifa um hljómsveitina Borgis.
Mér var tekið eins og týnda
syninum i ævintýrinu, er ég
birtist i æfingahúsnæði Borgiss-
ins, og var ég fyrst leiddur að
bar einum ægifögrum, sem þeir
félagar hafa fengist við aö inn-
rétta i fristundum sinum að
undanförnu. Þvi miður eru eng-
ar veitingar framreiddar á bar
þessum enn sem komiö er, en
það stendur allt til bóta. Og eftir
aö ég hafði tryggt mér aðgang á
opnunarhátið barsins, þá var
tekið upp alvarlegra hjal.
Þar sem ég hef enn ekki heyrt
iBorgis af persónulegum ástæð-
um, þá spurði ég hljómsveitar-
meölimina i fáfræði minni,
hvers konar tónlist hljómsveitin
hefði upp á að bjóða. Kváðust
þeir leggja aðaláhersluna á
stuömúsik, — þungt rokk, — og
þá yfirleitt lög, sem væru vin-
sælust hverju sinni. Þeir sögð-
ust vera vissir um að vera á
réttri linu i tónlistarmálunum,
þvi aö yfirleitt væru áheyrendur
mjög ánægöir með þá tónlist,
sem þeir byðu upp á.
Einnig sögðust þeir dútla
dálitiö i frumsaminni tónlist, en
sögðu jafnframt, að hún hefði
orðiö að sitja á hakanum aö
undanförnu vegna ýmiss konar
anna. „En hún kemur, áöur en
langt um liður,” sögðu þeir, „og
þá á LP plötu.”
Þeir félagar kváðust hafa
nýlokið upptöku á litilli plötu,
sem hefði að geyma tvö lög,
„Promised Land” og „Give Us
A Race”, eftir þá Atla V. Jóns-
son og einhvern G. Sal., sem ég
kann að sjálfsögöu engin deili á.
Platan var tekin upp i stúdiói
Hljóðritunar h.f., og kváðu þeir
það stúdió veraö það besta, sem
þeir hefðu kynnst hér á landi
(hitt stúdfóið var H.B. stúdió).
Það eina, sem á skorti, væri
reynsla tæknimannanna, en
þegar hún væri fengin, þá yrði
svo sannarlega gaman að lifa.
Annars kváðust þeir engan veg-
inn vera óánægðir með útkom-
una á sinni plötu, — þar hefði
allt tekist eins og best hefði ver-
ið á kosiö.
Þessu næst snerum við sam-
ræðunum aö þvi, hvað þeir
hygðust taka sér fyrir hendur i
sumar, og sögðust þeir ætla aö
halda sig viö að leika á dans-
leikjum, meöan þeir væru að
kynna nafn hljómsveitarinnar
betur. Hins vegar væri freist-
andi að halda hljómleika og þá
jafnvel úti i guðsgrænni náttúr-
unni einhvern góðan veðurdag i
sumar.
Hljómsveitin Borgis er, eins
og mörgum er eflaust kunnugt,
ein af þeim hljómsveitum, sem
Demant h.f. hefur á sinum
snærum. Ég spuröi, hvernig
þeim likaði samstarfið við það
fyrirtæki.
Það sló skyndilegri þögn á
hópinn, en að lokum mælti Ari
trommari varfærnislega, að
þeir væru ekki alveg nógu
ánægöir með, hvað Demant
hefði gert fyrir hljómsveitina.
„En það lagast,” bætti hann við
i flýti, „þvi að til stendur, aö As-
geir nokkur Óskarsson, þó ekki
Pelikani, hefji störf hjá De-
manti, og þá mun hann vinna
fyrir Borgis á sama hátt og
Gunnar Jökull hefur unniö fyrir
Eik.”
„Ég álit,” sagði Ari ennfrem-
ur, „að besta fyrirkomulagið
hjá Demant sé, að hver stjórn-
armeðlimur fái tvær hljóm-
sveitir til að sjá um fram-
kvæmdir fyrir, en að þeir hafi
jafnframt fullt samstarf sin á
milli og umfram allt enga sam-
keppni.”
Að þessum oröum mæltum
létum viö þessu spjalli lokið,
enda sá ég, að þá félaga var far-
iö að klæja i fingurna að prófa
nýtt söngkerfi, sem þeir hafa
nýlega fest kaup á.
Tónhorninu barst nýlega bréf
frá Orphani nokkrum, sem iæt-
ur I ljós álit sitt á hugvekjunni
um skemmtistaða- og leigubila-
vanda höfuöborgarinnar. Þetta
bréf er I lengra lagi, svo að viö
neyöumst til að stytta það veru-
lega og færa sums staðar I
stllinn:
Orphan byrjar á að lýsa
ánægju sinni með, að kraft-
idjótar borgarinnar skemmti
sér allir á sama stað uppi i Holt-
um, þvi að þá fái allir hinir friö
til að skemmta sér. En siðan
spyr hann: En er allt fengið með
þvi að vera laus við slagsmála-
hundana? Nei, þvi að þá kemur
til sögunnar vlnmenningin, sem
er fyrir neöan allar hellur. I
þeim gifurlegu þrengslum, sem
eru á skemmtistöðunum, er
maður aldrei óhultur fyrir að fá
yfir sig annaðhvort væna
skvettu úr glasi eöa ælu frá
dauðadrukknum gestum...
En hvers vegna hafa nætur-
klúbbar aldrei verið starfræktir
hér? Leigubilstjóri nokkur benti
mér á að þá myndi pressan
verulega léttast af leigubilun-
um. Auk þess eru næturklúbbar
mun skemmtilegri stofnanir en
hin islenzka útgáfa á öldur-
húsunum.”
En Orphan hefur einnig
fundið aðra lausn á leigubila-
pressunni: Látið strætis-
vagnana ganga á klukkutima
fresti frá kl. 1-7. Aukakostnaður
yröi ekki svo mikill, þvi að ef
menn geta borgað 500 kall i
leigubil, þá geta þeir ekki siður
horgað 100-150 kr. i strætó. Þá
vlkur Orphan að skemmtistaða-
leysi unglinga á aldrinum 16-18
ára en birting á þeim kafla
verur að biða betri tima. En
niöurlag bréfs Orphans hljóðar
svo I drottnins nafni:
„Skemmtanallfskerfi
helganna á Islandi býður ekki
„Elton skyggnist um”. Eins
og flestum er kunnugt (þ.e.
þeim sem fylgjast meö, og lesa
Tónhornið, ha, ha) hafa hinir
dyggu hljóðfæraleikarar Elton
John 's nú ákveöiö að spreyta sig
á eigin vegum.
Elton hefur þvi verið aö
skyggnastum eftir nýjum hljóð-
færaleikurum, og nú getur hann
tekið gleraugun niöur aftur.
Kenny Passarelli hefur tekið
við bassanum af Murray,
(Passarelli var áður með Joe
Walsh, og Steve Stills). Og
Roger Pope (óskyldur Páli
páfa) hefur tekiö við af Nigel
Olsson á trommunum (fyrrum
meðlimur Kiki Dee Band).
Og sveskjusteinninn I bjúga-
endanum, JEFF „SKUNK”
Baxter fyrrum meðlimur og
driffjöður STEELY DAN, er
einnig genginn i grúppuna, og
má það vissulegast teljast
mikill fengur fyrir Elton. Það er
upp á mikiö, og það er svo
ruddalega upp byggt, að maöur
neyðist til aö vera dauða-
drukkinn til að sleppa I gegnum
það óskaddaður á sál og likama.
Menn kvarta yfir drykkjuskap
— en i núverandi ástandi
skemmtanalifsins hér er varla
hægt að skemmta sér — hvorki
fullur né ófullur.
Þaö er kominn timi til, aö Is-
lendingar fari aö hegöa sér eins
og siðað fólk, sem þekkir
skaðsemi þess efnis, sem þaö
sturtar I sig... Hættum að
hegöa okkur eins og vikingar 9.
og 10. aldarinnar (sbr. Hrollur)
Og hér er svo bref frá JVS,
sem bendir á sömu lausn og
Orphan:
Beztu þakkir fyrir skemmti-
staðagreinina I VIsi þann 26.4...
Þar voru svo sannarlega orð I
tima töluö. Þar sem þið hvöttuð
lesendur til að senda inn uppá-
stungur til lausnar þessum
„þjóðarvanda”, þá kem ég hér
með tillögu, sem að minum
dómi ætti að vera góð lausn, en
hún er sú að opna nokkra nætur-
klúbba. Sú ráðstöfun myndi
létta mestu pressunni af
skemmtistööum bæjarins og
auk þess dreifa leigubilanotkun-
inni allverulega.
Fyrir nokkrum árum spruttu
hér I Reykjavlk upp nokkrir
næturklúbbar, sem mér skilst,
að hafi verið sannkölluð
þjóðþrifafyrirtæki. En svo
komst lögreglan I spilið og eyði-
lagði allt saman.
Það er sem sagt tillaga mln,
að þessi tilraun verði endur-
tekin, og þá væntanlega með
leyfi og undir eftirliti lög-
reglunnar.
Með beztu þökkum fyrir al-
deilis frábæra poppsiðu og I von
um birtingu á þessari tillögu
minni. JVS
reyndar þó nokkuð siöan að
„Skunk” hætti i Steely Dan, en
hann hefur undanfarið leikiö
meö Dobbie Brothers.
örp
ELTON LEITAR
NÝRRA FÉLAGA