Vísir - 24.05.1975, Blaðsíða 16

Vísir - 24.05.1975, Blaðsíða 16
Vlsir. Laugardagur 24. mal 1975 | í DAG | í KVÖLD | í PAB | í KVÖLD | í DAB "1 „Stúlkan við lœkinn" sunnudag kl. 21.30: HVI VILL HÚN EKKI Gl FTAST? ,,Stúlkan við lækinn” heitir leikrit, er sýnt verður i sjónvarpinu annað kvöld klukkan 21.30. Leikrit þetta er byggt á sögu eftir A.E. Coppard. Stúlkan við lækinn heitir Mary og elskhugi hennar heitir Frank og er viðarhöggsmaður, enda gerist leikurinn á Ját- varðartímanum. Frank knýr á um að Mary giftist sér, en án árangurs. Hún segist elska Frank en ekki geta gifzt honum. Frank verður aö vonum sár og ruglaður vegna þessarar afstööu. Hann gefst smám saman upp á Mary og fer að ganga á eftir Elisabetu, sem er væntanlegur erfingi söðla- verzlunar bæjarins. En þessi skipti Franks hafa alvarlegar afleiðingar. Þvi þótt Mary hafi hafnað boði Franks er hún jafn- hörð á þvi að Elisabet gangi ekki I eina sæng með honum. Kvöld eitt, er Frank og Elisa- bet eru saman á gangi, skýzt Mary útúr myrkrinu og skvettir flöskufylli af sýru i andlit Elisa- betar. Mary er færð fyrir rétt, og þótt hún heyri vin sinn vitna gegn sér neitar hún stöðugt að ljóstra upp ástæðunni fyrir þessu glæpsamlega athæfi. Mary tekur leyndardóminn með sér i fangelsið og fyrst þeg- ar varðhald hennar er á enda fær Frank að vita ástæðuna fyr- ir tregðu hennar til að giftast honum og þögninni við réttar- höldin. — JB Mary McDowall, stúlkan við lækinn, er leikin af Susan Fleetwood. -1 • g 8 8tfð bðdifi HSpv.JL [jrij m V J ■fevrA ; i iV, 1 ^ * M Kvennakór Suöurnesja við sjónvarpsupptöku fyrir utan skóbúðina I Keflavfk. í sjónvarpi í kvöld og útvarpi ú morgun: Eftirsóttur kór Öhætt er vist að segja að Kvennakór Suðurnesja sé nú á hátindi frægðar sinnar. Útvarp- iðog sjónvarpið keppast um að fá þennan ágæta kór til að syngja f dagskrám sfnum og um þessa helgi gerir kórinn báðum jafnt undir höfði. Kórinn syngur i sjónvarpinu i kvöld klukkan 20.55 og i útvarp- inu á morgun klukkan 21.05. Stjórnandi kórsins i báöum tilvikum er Herbert H. Agústs- son og einsöngvari Elisabet Erlingsdóttir. — JB Sjónvarp kl. 20.35 sunnudag: Sveinn Sœmundsson býður til sín gestum Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flugleiða með meiru, tók fyrir nokkru upp einn þátt af „Það eru komnir gestir” og verður þátturinn sendur út annað kvöld. Sveinn bauð til sin tveim kvæðamönnum i eina kvöldstund og voru þaö þeir Ingþór Sigurbjörnsson og Ormur ólafsson. Á myndinni er Sveinn með gestum sinum. — JB ÚTVARP # Laugardagur 24. mai 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 14.00 Austur yfir sanda Fyrri þáttur Páls Heiðars Jóns- sonar. 15.00 Miðdegistónleikar Haebler leikur Pianósónötu i H-dúr op. 147 eftir Franz Schubert. Erika Köth syng- ur lög eftir Hugo Wolf, Karl Engel leikur á pianó. 15.45 I umferðinni Árni Þór Eymundsson stjórnar þættinum. (16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir). 16.30 A léttum nótum Jón B. Gunnlaugsson annast þátt með blönduðu efni. 17.00 Tiu á toppnum 18.10 Söngvar I léttum dúrTil- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Sænska skólakerfið Sig- mar B. Hauksson ræðir viö skólastjórana Vilhjálm Einarsson og Þorkel Steinar Ellertsson. 20.00 Hljómplöturabb Þor- steinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 20.45 „Undir hjálmi”, smá- saga eftir ólaf Hauk Simonarson Höfundur les. 21.10 Harmonikuleikur I út- varpssal Salvatore di Gesu- aldo leikur verk eftir Byrd, Lecuona, Fancelli og sjálf- an sig. 21.35 „Marsinn til Kreml” kvæðieftir Þórberg Þórðar- son Bima Þórðardóttir og Einar ólafsson lesa. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög. 23.55 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. Sunnudagur 25. mai 8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn Einarsson bisk- up flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. 11.00 Messa I safnaðarheimili Grensássóknar. Prestur: Séra Halldór S. Gröndal. Organleikari: Jón G. Þórar- insson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.15 Leitin að nýju tslandi. Síöari hluti dagskrár um að- draganda og upphaf vestur- ferða af íslandi á 19. öld. Bergsteinn Jónsson lektor tekur saman. Flytjandi ásamt honum: Sveinn Skorri Höskuldsson prófess- or. 14.20 Pianókonsert I a-moil op. 54 eftir Schumann. Justus Frantz og Sinfóniuhljóm- sveit finnska útvarpsins leika. Kari Tikka stjórnar. — Frá tónlistarhátið I Hel- sinki í september. 15.00 Landsleikur I knatt- spyrnu: tsland-Frakkland. Jón Asgeirsson lýsir slðari hálfleik á Laugardalsvelli. 15.55 Harmonikulög. Egil Hauge og félagar hans leika. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Alltaf á sunnudögum. Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 17.15 Barnatlmi: Agústa Björnsdóttir stjórnar. Selur sefur á steini. — Fluttar frá- sagnir af selum, m.a. les Sigurður Grétar Guð- mundsson „Lubba’ eftir Ey- stein Glslason og Sigrún Sigurðardóttir les „Sel i sumarleyfi” eftir Halldór Pétursson. 18.00 Stundarkorn með búlg- arska bassasöngvaranum Nicolaj Ghjauroff. Tilkynn- ingar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Molar úr dulfræðum miðalda. Sigvaldi Hjálm- arsson flytur erindi. 19.50 Sinfóniuhljómsveit Is- lands leikur I útvarpssal. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. a. Forleikur að „Hollend- ingnum fljúgandi” eftir Wagner. b. Intermezzo eftir Mascagni. c. Ensk þjóð- lagasvita eftir Williams. 20.20 Frá árdegi tii ævikvölds. Nokkur brot um konuna I is- lenzkum bókmenntum. Annar þáttur: Þjóðlag. — Gunnar Valdimarsson tekur saman þáttinn. Flytjendur auk hans: Helga Hjörvar, Grímur M. Helgason og Úlf- ur Hjörvar. 21.05 Kvennakór Suðurnesja syngur I útvarpssal. Söng- stjóri: Herbert H. Agústs- son. Einsöngvarar: Elísa- bet Erlingsdóttir og Rósa Helgadóttir. Undirleikarar: Ragnheiður Skúladóttir, Hrönn Sigurmundsdóttir og Sigríður Þorsteinsdóttir. 21.40 „Bernskusumar”, smá- saga eftir Jóhönnu Bryn- jólfsdóttur. Höfundur les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veöurfregnir. Danslög. Hulda Björnsdóttir dans- kennari velur lögin. 23.25 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.