Tíminn - 19.08.1966, Blaðsíða 12

Tíminn - 19.08.1966, Blaðsíða 12
12 TÍIVHNN GunnarVilhjálmsson fæddur 28. sept. 1952. Dáinn 26. júlí 1966. Hugljúfi vinur þú heldur oss frá til himneskra sólfagra stranda, við vitum það öll að þú sól guðs munt sjá er þú siglir til nýrra landa. Við vitum þú lifir þótt líkaminn nár sé lagður í kistu oní jörðu því andinn hann fer inn í eilífið klár og aldrei hann mætir þar hörðu. Nú þökkum við vinur nú þökkum við allt og þó að oss seint finnist hlýna. Þá biðjum við drottin, þó blási oft kalt, að blessa okkur minningu þína. Nú biðjum við öll, sem hin beygðasta rós. Biðjum svo smáir og veikir, að bræðrum og foreldrum ljómi það Ijós sem lýðnum frelsarinn kveikir. Himneski faðir og höndin þín virk sé hjálp vor er sækir að mæða. Gef öfum og ömmu þann eilífa styrk er undina stóru má græða. Gef vissan um mátt þinn verði ei hrjúf þó velti okkar jörð eins og bolti. Gef minningin máist ei góð bæði og ljúf, um Gunnar frá Tunguholti. Aðalbjörn Úlfarsson. AFRÍKUMENN Framhald af bls. 5. sér auði af opinberu fé. Fáir afríkanskir bændur eru reiðubúnir að hverfa frá hefð- bundnu héraðseignarhaldi á landi, — en á því byggjast fé- lagsleg tengsl þeirra að veru legu leytl, — jafnvel þó að breytingunni fylgi fjárhagsleg' ur ábati þeirra og aukning land búnaðarframleiðslunnar. Starfs menn í þéttbýli eru heldur ekki reiðubúnir að hægja á efnahags þróun þjá sér til samræmis við samlamda sína í sveítunum. Bil ið milli lífskjara fjöldans í sveit unum og minnihlutans í borg unum breikkar því háslcalega ört og af því stafar aukin spenna í hinu nýja ríki. áfram að þessum málum og leita til almennings um stuðning við þau. Kváðust konurnar vilja taka fram, að almenningur hefði ætíð tekið málaleitun um stuðning við þetta mál mjög vel og væntu að svo yrði áfram. Mundu þær beita sér fyrir eflingu heyrnarstöðvar- innar sem mest og fyrir almennum heyrnarmælingum, en einnig vinna að því á allan hátt, að hér kæmi sem fyrst sjúkrahúsdeild í þess- ari grein. Stjórn Zonta-klúbbsins skipa: Rúna Guðmundsdóttir, formaður, Vigdís Jónsdóttir, varaformaður, Sigríður Gísladóttir, Guðrún Helga dóttir og Jakobína Pálmadóttir. Stjórn Margrétarsjóðs skipa Friede P. Briem, formaður, Ingi- björg Bjarnadóttir, gjaldkeri og Auður Proppé, ritari. A.K. ENGIR NÝIR Framhald af bls. 9 á landi. í byggingu Landspítalans væri ekki gert ráð fyrir slíkri deild enn, en á teikningu Borgar- sjúkrahússins væri gert ráð fyrir deildinni í þeim hluta hússins, sem óbyggður væri. Væri því ljóst, að enn yrði að bíða hennar um sinn. Starfandi sérfræðingar í greininni héfðu því reynt, að hafa samtök um að ýta málinu áleiðis og óskað eftir því, að sem fyrst yrði komið á laggir einhverri sér- aðstöðu í greininni í sjúkrahúsi, þar sem hægt væri að leggja inn sjúklinga og gera skurðaðgerðir, og væri það álit þeirra, að bót mundi vera að þessu, þótt ekki yrði þegar um fullkomna deild að ræða. Væru þessi mál nú í hönd- um nefndar, sem senn mundi skila áliti, og mundu þá læknarnir ræða málið að nýju og reyna að þoka því áleiðis. Einnig væri mikilvægt að koma á ahnennum heyrnarmæl- ingum á börnum og bæta og efla heymarstöðina til þess að sjá mönn fyrlr hByrnartækjum við hæfi. Éngir mundu fagna því meira en starfandi sérfræðingar hér, ef unnt væri að þoka þessum málum til betri og fullkomnari þjónustu. Zontaklúbburinn hyggst vinna Gróöur og garðar Framhald af bls. 7. ið land við þjóðveginn. — Unadalur er miklu berari •og blásnari en Hrolleifsdalur. 'Hvað dró hingað „danska" ■Una? Dulið flest, en sumt má gruna. Lánið valt og freyjufuna fékk hann reynt í þessum dal. Þrisvar hljóp hann burt frá brúði, — bresti sjálfs sín kannski flúði. — Kappann loksins lífi rúði Leiðólfur með sér einaval. LAGARFLJÓTSORMURINN Framhald af bls. 8 skrifstofurnar og ferðafélögm eru sú stjórn, sem stýrir orð ið ferðamannastraumnum um landið. — Sækja nú samt ekki hing að einstaklingar á eigin eyk, t. d. til að fá að slá upp tjöldum sínum hér á Hall- ormsstað? — Reyndar færist það nokk uð í vöxt. En það er háð tíðarfarinu. Ef úrkomur eru miklar, þá er vont að tjalda í skóginum, jafnvel enn blaut ara en á bersvæði. Og það er svo, að sé fólk komið í Mý- vatnssveit og veður gott, þá heldur fólk oft áfram hingað,, annars snýr það við, flest fólk leitar þangað sem sólin skín. — Sækist ekki ferðafólk eft ir að fá að veiða í fljótinu? — Hér er ekki um aðra veiði að ræða í Lagarfljóti en sil ungsveiði, og 'hann er ekki veiddur á stöng. Og svo veit ég ekki til þess að menn hafi heldur reynt að kasta fyrir orm inn. Það hefur víst énginn veiðimaður gerzt svo djarfur ennþá, enda duga líklega ekki minna en hákarlalagnir til þeirra hluta. — Já, vel á minnzt, hvað segirðu annars um orminn, er eða er ekki búið að ganga að honum dauðum? — Lagarfljótsormurinn dauð ur? Nei, ekki aldeilis, hann lifir góðu lífi. Þessir menn, sem fóru á bátnum út á Fljót ið í vor og Tíminn gerði mik ið veður út af, þeir gátu svo sem ekkert séð. Við Sigurður Blöndal voru einmitt að fara á fund þetta kvöld og sögðum sem svo, að nú sæist ekkert til ormsins. Einmitt þá var bát urinn að fara hér inn úr. Það er ekkert óvenjulegt að sjá taðkögla og drasl á reki á Lagarfljóti, og ef það er eins og jarðfræðingarnir sögðu, að þetta hafi losnað úr fljóts botninum, þá er ekkert lík- legra en það losni með meira móti, þegar ormurinn er að rífa sig upp úr leðjunni. Og ekki hefur hann nú verið settur saman úr niðursuðudós um hér í gamla daga. Það var dálítið kúnstugt, sem sagt var í Tímanum, að þeir hefðu stað ið uppi í bátnum og skimazt um, eins og hefði mátt ætla, að þeir hefðu fremur átt að kúra sig niður og halda sér sem fastast. En það var talið til tíðinda, að þeir hefðu gerzt svo djarfir, að standa og horfa í kringum sig. — Sástu þetta greinilega, t. d. í kígi? — Ég sá þetta eins og aðrir hér á Hallormsstað í vor, en ekki greinilega, það var svo vont skyggni, við fórum nið- ur í fjöruborðið, en það var dumbungur í lofti og ekki hægt að greina annað en þetta var Iifandi skepna, sem hlykkjaðist áfram. — Hefur þetta komið fyr ir nokkrum sinnum síðan þú komst hipgað að Hallormsstað? — Sárasjaldan, og ég hef ekki séð hann fyrr. En hann sást fyrir nokkrum árum, Þór- ný kona mín sá hann þá og líka Sigurður Blöndal. — Svo fólk hér í sveitinni trúir því statt og stöðugt, að ormurinn sé í fljótinu? — Já, já, fólk trúir því almennt, að þar hafist við eitthvað allóvenjulegt. — Hefur Þórbergur komið hingað að rannsaka þetta fyr irbæri? — Jújú. Þegar þetta sást hér fyrir nokkrum árum, þá fékk Þórbergur bréf frá Skrímslafélaginu í London, þetta hafði borizt þeim til eyrna í London og þeir skrif uðu Þórbergi og biðu í of- væni eftir því að fá skýrslu frá honum um þetta fyrirbæri. Hann fékk vitnisburði sjónar- votta og sendi þehn. Hann var meira að segja að ráð- gera að eyða einu sumri í að kanna þetta hér til hlítar, sögu sagnir og fleira. Hann trúir full komlega á orminn, og jafnvel þótt hann -é ekki af þessum heimi, heldur eitthvert yfir- náttúrulegt fyrirbæri. En hann kom nú samt ekki til að taka skýrslu eftir að hann sást nú í ár. — En hafa ekki útlendir skrímslafræðingar lagt leið sína hingað? — Nei, ekki svo ég viti til. — Eru annars fleiri nýlegar sagnir af orminum? — Hann hefur iézt að vetrarlagi líka. Það kom fyrir, ekki alls fyrii löngu, að mað- ur, sem bjó þá að Brekku í Fljótsdal, Sveinn Jónsson, sem nú er verzlunarmaður á Egils stöðum, sá ísinn á Lagarfljóti hreinlega spýtast upp eins og þrýstingur eða hnykkur hefði komið á hann neðan frá. Sveinn hefur sagt þessa sögu, og hvað er líklegra en hér hafi ormur inn verið að verki? Þegar hér var komið sögu, þeytti Þorsteinn bíllúðurinn fyrir utan og ekki lengur til setu boðið. En næst var til þess að taka, að fara út með fljótinu, og þar að, sem boran ir eftir gasi hafa staðið yfir undanfarið, niður undan bæn- um Vallholti. Þessar boranir hafa ekki borið þann árangur, sem vænzt var, þótt gasbólur standi þar víða upp úr vatns skorpunnL Og Þorsteinn átti nú að taka jarðborinn og til- heyrandi hafurtask og flytja til Akureyrar, en þaðan átti hann að fara út í Grímsey. Það var allseinlegt verk að koma bornum inn í bílhús Þor- steins, og gerði kranabíllinn margar atrennur til að koma bornum inn í pallhúsið. En með seiglunni hafðist það. Þeir sögðu okkur þá sögu þar, að ráðuneytið í Reykjavík, sem þetta heyrir undir, hafi látið semja reglugerð eða var úðarreglur ti1 að fara eftir við borunarverkið, afgreiðsla þessara reglna gekk svo greið lega í Stjórnarráðinu, að þeir voru því sem næst búnir með verlcið, þegar reglurnar loks bárust austur. Hentu þeir gaman að snörum vinnubrögð um reglugerðarmanna fyrir sunnan. G.B. Á VlÐAVANG Framhald af bls. 3 ingarmálum, sem miðar að því að beita vinnuafli og fjármagni á sem hagkvæmastan hátt. ÞAR ER EKKI UM HÖFT AÐ RÆÐA, HELDUR SKYNSAM- LEGA IIAGSTJÓRN“, segir Vísir og bætir við: „SÝNIST VISSULEGA TÍMABÆRT AÐ BEITA SVIPUÐUM RÁÐUM IIÉR Á LANDI“. Hváð segir Ólafur prófessor við þessu? Er þá „hin Ieiðin“ tU, leið skipulagningar í fjár- festingarmálum án hafta, leið, sem Bretar ' og Norðurlanda- þjóðirnar hafa tekið upp en ekki verið beitt hér á landi, þó að „sýnist vissulega tímabært að beita svipuðum ráðum hér á Iandi“, eins og Vísir segir rétti- lega? Trúlofunar- hringar afgreiddir samdægurs. Sendum um íllt land. H A L L D Ó R . Skólavörðustíg 2. FÖSTUDAGUR 19. ágúst 1966 BR IDGESTOSME HJÓLBARÐAR Siaukin sala BRIDGESTONE sannar gæðin. Veitir aukið öryggi I akstri. BRIDGESTONE i ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTA — Verzlun og vfðgerðlr. Sfmi 17-9-84. Gúmmíbarðinn h.t, Brautarholti 8, TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu. Guðm. Þorsteinsson, gullsmíður. Bankastræti 12. ísfirðingar Vestfirðingar Hef opnað skóvmnustofu að Tóngötu 21, ísafirði Gjörið svo ve) og reynið viðskiptin. Einar Högnason, skósmiður. BÍLALEIGAN VAKUR Sundlaugavegi 12 Simi 35135 og eftir loktm símar 34936 og 36217

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.