Tíminn - 19.08.1966, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 19. ágúst 1966
ít>RÓTTIR
TBSVIINN
ÍÞRÓTTIR
13
Er tímabært
að fjölga
í 1. deild?
Er tímabært að fjölga liðum í 1.
deild? Eftir að hafa séð leik Vest-
mannaeyinga og Fram í fyrra-
kvöld, er ég í engum vafa um, að
í 2. deild eru tvö lið, sem hafa
svipaðan styrkleika og 1. deildar
liðin. íþróttalega séð væri því tíma
bært að fjölga liðunum, en það er
önnur saga, hvort það myndi borga
sig fjárhagslega.
Stöðnun eða jafnvel afturför
hefur verið í íslenzkri knattspyrnu
síðustu árin — og eru margar
ástæður fyrir því. En er ekki ein
aðalástæðan, að 1. deildar keppr,-
inni er sniðinn of þröngur stakk-
ur? Er það heilbrigð þróun, að
2. deildar liðin skuli vera næstum
því helmingi fleiri en 1. deildar
liðin? Á hverju ári fellur eitt lið
úr 1. deild og annað kemur í stað-
inn upp úr 2. deild. Oftast hafa
þetta verið sömu liðin, sem hafa
leikið til skiptis í deildunum —
og með því einokað þessa eilífu
hringrás. Næstbezta liðið í 2. deild,
t. d. Vestmannaeyingar síðustu ár-
in, hefur óhagstæðari samkeppnis-
aðstöðu að því leyti, að liðið hef-
ur minni reynslu að baki, fær sára
sjaldan tækifæri til að leika á móti
Þýðing-
arlaust
að kæra
Alf—Reykj a vík.
Eins og skýrt var frá í
blaðinu í gær, eru Keflvík-
íngar að hugsa um að kæra
leikinn Keflavík-Akureyri á
þeim forsendum, að Magnús
lónatansson í Akureyrar-lið
inu hafi verið í keppnis-
banni, þegar hann lék.
En það verður líklega til-
gangslítið fyrir Keflvíkinga
að kæra, því að í lögum um
sjálfkrafa 10 daga keppnis-
bann leikmanns, sem vísað
er af leikvelli, er jafnframt
tekið fram, aS ef málið sé
tekið fyrir af dómstóli inn
an 10 daga, sé keppnisbann
inu aflétt.
Og það rétta er, að mál
Magnúsar var tekið fyrir
hjá dómstól íþróttabanda-
lags Akureyrar aðeins 2
dögum eftir leikinn Akur-
eyri—Þróttur, og komst
hann að þeirri niðurstöðu,
að brottrekstur af velli væri
nægjanleg refsing í þessu
sambandi, þar sem engin
formleg kæra frá dómara
hefði borizt, aðeins athuga-
semd. Og með því að mál-
ið var tekið fyrir strax, mun
Magnús ekki hafa verið í
keppnisbanni, þegar hann
lék á móti Keflvíkingum.
1. deildar liðum. Eg er ekki í
minnsta vafa um, að ef lið eins
og Vestmannaeyjaliðið fengi tæki
færi til að leika í 1. deild, myndi
það eflast mikið og ná örugglega
þeim „standard“, sem 1. deildar
liðin hafa, en eins og málin standa
í dag, vantar aðeins lítið upp á
það.
Spurningin er því, hvort ekki
sé verið að draga úr eðlilegum
vexti og viðgangi ísl. knattspyrnu
með því að loka 1. deildinni eins
rammlega og raun ber vitni. Ég
geri mér fulla grein fyrir því, að
með fjölgun liða í deildinni myndi
kostnaður við hana aukast og fé-
lögin bera minna úr býtum, a. m.
k. fyrst í stað. En stöðnunin er
orðin svo áberandi, og það kem-
ur m. a. fram í því, að áhorfend-
um að leikjum fjölgar ekkert, að
engu er að tapa. Því ekki að
fjölga í deildinni í von um það, að
keppnin verði líflegri, knattspyrn-
an betri og áhorfendur fleiri?
Fyrir tveimur árum skipaði árs-
Frá leik Vmeyja og Fram í 2. deild í fyrrakvöld. Hallgrímur Scheving spyrnir aS marki
(Tímamynd Bj. Bj.)
þing KSÍ milliþinganefnd til að
fjalla um fjölgun liða í 1. deild
og var hún henni mótfallin, en
mælti með stofnun 3. deildar. En ] botns í málefnum 1. og 2. deild-
með því var farið öfugt að hlutun- ar, áður en þriðja „vandamálinu"
um. Nær hefði verið að komast til I var bætt við. —alf.
Valur fær að glíma við sterka
atvinnumenn frá meginlandinu
- upplýsingar um leikmenn belgiska íiðsins Standard Liege.
Eins og sagt var frá í blaðinu
í gær, eru 8 landsliðsmenn í liði
Standard Liege, sem Valur mætir
n.k. mánudagskvöld í Evrópubikar
keppninni, en ranghermt var, að
þeir væru allir belgískir, því í lið
inu eru leikmenn frá Luxemburg
og Júgóslavíu. Allir leikmenn
Standard Liege eru atvinnumenn
og fá því Valsmenn að glíma við
sterka mótherja.
Hér á eftir fara nokkrar upplýs
ingar um landsliðsmenn liðsins:
Jean Nicolay, fæddur 1937, sjálf i
kjörinn markvörður landsliðs |
Belgíu, hefur undanfarin tvö ár
leikið alla milliríkjaleiki, hefur
verið valinn í Evrópulið.
Guy Raskin, fæddur 1937, kom
frá Beerschot 1965, landsliðsmað-
ur. Rólegur og sterkur leikmaður.
Lucien Spronck, fæddur 1939,
Var í hernum og fyrirliði knatt-
spyrnuliðs hersins í Oran 1961.
Hefur oft verið valinn í Iandslið.
Stór vexti og þvi meistari í að ná
háum sendingum. Talar frönsku,
flæmsku, þýzku og ensku.
Louis Pilot, fæddur 1940. Bezti
leikmaður og fyrirliði landsliðs
Luxemburgar, stór og sterkur.
Fékk 1964 gullknöttinn, sem veitt-
ur er bezta íþróttamanni Luxem-
burgar.
Roger Claesseu, fæddur 1944,
miðherji. Valinn í landslið 1961
en vegna meiðsla og ofreynslu var
hann lengi frá. M.a. skorinn upp í
hné. Hefur æft vel að undan-
förnu og er nú í fullu formi. Tal-
ar frönsku, þýzku og ensku.
Leon Semmeling, fæddur 1940,
hægri útherji. Reglulega valinn í
landslið. ítölsk og spænsk félög
hafa mjög sótzt eftir honum
Paul Vandenberg, fæddur 1937,
Framhald a . ois n
Úrslitaleikir í
yngri flokkunum
N.k. mánudagskvöld, 22. ágúst,
fer fram úrslitaleikur í landsmóti
4. flokks í knattspyrnu. Leika Val-
xrr og Breiðablik til úrslita á Mela
vellinum og hefst leikurinn kl. 18.
N.k. fimmtud. leika svo til úrslita
í 2. flokki Valur og Keflavík á
Melavellinum kl. 19.30. Enn er
ekki ákveðið, hvenær úrslitaleik-
ur í 5. flokki milli Fram og FH
fer fram. í 3. fl. eru enn ófengin
úrslit í öllum riðlinum.
Belgísku bikarmeistararnir Standard Liege.