Vísir - 31.05.1975, Page 1
VISIR
65. árg. — Laugardagur 31. raal 1975 — 120.tbl.
ÞEKKIÐ ÞIÐ
ÞETTA ÁSTAND?
— margt er líkt með mœtti verkalýðs-
hreyfingarinnar í Bretlandi og hér
— bls. 6
6S
Fara í
siglinga-
keppni
alla leið
til Japan
— bls. 3
Bankarnir
erfiðir
— bls. 3
Sjö mánuði
var beðið
eftir próf-
niðurstöðum
— baksíða
LEIGUBÍLSTJÓR-
ARNIR OKKAR
HAFA 8 SINNUM
UNNIÐ SPOR-
VAGNASTJÓRA
NORÐURLAND-
ANNA
- BLS. 4
Héldu tómhentir heim
— beðið nœsta leiks í ríkisverksmiðjumáli fram yfir helgi
//Þeir voru hálfniðurlút-
ir, strákarnir, þegar þeir
þurftu að afferma bílinn,
sem þeir höfðu hlaðið í
morgun. Þeir létu ekki
stóryrði fjúka í það skipt-
ið," sagði starfsmaður við
Aburðarverksmiðju ríkis-
ins, þegarbim. Vísis heim-
sótti verksmiðjusvæðið
eftir hádegi í gær.
Bilarnir, sem höfðu beðið þess
um morguninn að taka áburð til
bænda, voru farnir. Þeir hurfu frá
um hádegisbilið þegar fram-
kvæmdastjðri Aburðarverk-
smiðjunnar tilkynnti, að enginn
áburður yrði afgreiddur að svo
stöddu.
Eini billinn, sem byrjað hafði
verið að ferma, var einnig far-
inn. Hann fór tómur i burtu, en
eins og að framan greinir voru
sömu strákarnir látnir afferma
hann og unnið höfðu að þvi aö
ferma hann um morguninn,
strákar, sem Aburðarverksmiðj-
,,Gæti farið að verða leiðigjarnt lif senn hvað Ilður
sem sátu aðgerðalausir — á fullu kaupi.
sögðu fiutningabiistjórar Sementsverksmiðjunnar,
— Ljósm. Bragi
UMSÓKN AIR VIKING
SEND FLUGLEIÐUM
TIL UMSAGNAR — baksíða
„IÍYFUM ÞtlM AD HVÍLA OG"
— sagði Ólafur Jóhannesson um verkfallsmenn — sjá baksíðu
an hafði fengið til starfa I fyrra-
dag og hugðist láta vinna þrátt
fyrir það verkfall, sem eldri
starfsmenn fyrirtækisins standa
nú i.
Þegar ljóst var að ekki yrði af-
greiddur áburður að sinni héldu
þeir heim, starfsmenn verk-
smiðjunnar, sem höfðu mætt á
vinnustað i gærmorgun til að
stugga flutningabilunum i burtu.
Eftir urðu aðeins tveir verkfalls-
verðir og þeir, sem vinna að vél-
gæzlu og hafa sjö daga undan-
þágu til að halda vélunum heit-
um.
Sementsverksmiðjan
Hjá afgreiðslu Sementsverk-
smiðjunnar við Sæviðarhöfða
voru siðdegis i gær sömu róleg-
heitin og þar höfðu verið um
morguninn. Þar stóð ennþá sami
billinn frá Aðalbraut hf og beið
afgreiðslu. Vöruskemman var
harðlokuð og flutningabilstjórar
verksmiðjunnar, sem eru rikis-
starfsmenn og þvi ekki i verkfalli,
sátu allir inniviö — aðgerðalaus-
ir, nema hvað tveir þeirra voru að
spila borðtennis.
„Við höfum aldrei haft það eins
náðugt á fullu kaupi,” sögðu þeir,
en viðurkenndu, að þetta gæti far-
ið að verða leiðigjarnt lif.
„Hér er unnið á tveim vöktum,
tólf bilstjórar á hvorri vakt. Þó
þeir þrir starfsmenn afgreiösl-
unnar, sem vinna viö að dæla
lausasementi á bilana, væru ekki
i verkfalli værum við stopp. Það
tekur ekki nema einn dag aö
keyra út það sement, sem hér er
til,” sögðu þeir. ,,A meðan ekki
fæst meira sement ofan af Skaga
erum við stopp.”
Útifyrir stóðu tveir menn sam-
an á tali. Það var Haraldur Blön-
dal, lögfræðingur verksmiðjunn-
ar, og Halldór Björnsson frá
Dagsbrún. Þeir voru á einu máli
um það, að sú tið væri liðin, að
ástand eins og nú hefur skapazt
leiddi til átaka. „Það verður ekki
afgreitt seinent héðan á meðan
starfsmenn verksmiðjunnar eru i
verkfalli,” fullyrti Haraldur.
— ÞJM
Halldór og Haraldur ræöa stöö-
una i málum Sementsverk-
smiöjunnar.