Vísir - 14.06.1975, Blaðsíða 3
Vlsir. Laugardagur 14. júnl 1975
3
Hvort átti Kringla að fara í
'' Árnagarð eða Landsbókasafn?
— Áhyggjufullur vegna þessarar þróunar, segir Jónas Kristjánsson í Árnagarði
Forseti tslands tekur við Kringlu úr hendi Sviakonungs I Lands-
bókasafni. — Ljósm. Bj.Bj.
„Ég hef sjálfur spurt
mig þessarar sömu
spurningar," sagði Jónas
Kristjánsson, forstöðu-
maður Árnastof nunar, er
Vísir spurði hann, hví
Kringlublaðið hefði ekki
verið afhent Árnastofn-
un, heldur Landsbóka-
safninu.
„Ég verð að láta i ljós undrun
mina á þessari ráðstöfun og eins
þá skoðun mina, að hér sé um
mjög svo óheppilega þróun að
ræða,” sagði Jónas.
„Mér finnst af ýmsum ástæð-
um, að þetta skinnhandrit hefði
átt að fara til Árnastofnunar og
átti fulla von á þvi frá þvi ég
fyrst heyrði um þessa væntan-
legu gjöf i fyrra,” sagði Jónas.
Jónas nefndi einkum þrenn
rök fyrir þvi, að handritið væri
bezt geymt i Arnastofnun. í
fyrsta lagi þau, að þar væri
beztu geymslu skinnhandrita að
finna, i öðru lagi þá, að þar ynni
hópur sérfræðinga að rannsókn
slikra handrita og i þriðja lagi
væri þetta spurning um for-
dæmi.
Ný stefna?
„Ég er áhyggjufullur vegna
þessarar ráðstöfunar Kringlu-
blaðsins vegna þess að hugsan-
legt er, að við fáum fleiri hand-
rit frá Sviþjóð siðar. Það er
opinbert mál, að ýmsir vinir
okkar þar i landi vinna að þvi,
að skilað verði einhverjum af
þeim mörgu og dýrmætu is-
lenzku handritum, sem þar eru
geymd. Með afhendingu
Kringlublaðsins hefur greini-
lega oröið stefnubreyting hjá is-
lenzkum stjórnvöldum. Þegar
Skarðsbók postulasagna kom
heim frá London, ráðstafaði þá-
verandi menntamálaráðherra
henni til Arnastofnunar. En nú
er mörkuð sú stefna að láta
handrit frá Sviþjóð fara i
Landsbókasafnið,” sagði Jónas
Kristjánsson, forstöðumaður
Árnastofnunar.
Þjóðminjasafn kom
líka til greina
Endanleg ákvörðun um það,
hver hýsa skyldi Kringlublaðið,
var i höndum menntamálaráð-
herra.
„Það voru þrjár stofnanir,
sem til greina komu við varð-
veizlu blaðsins, Arnagarður,
Landsbókasafn og jafnvel Þjóð-
minjasafn,” sagði Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra i viðtali við Visi.
„Bæði hafði það áhrif á end-
anlega ákvörðun, að Lands-
bókasafnið á nokkur samsvar-
andi dýrmæt skinnblöð og eins
að umrætt skinnblað kom frá
samsvarandi stofnun I Sviþjóð
og Landsbókasafniö er. Eins
var það að sumu leyti fyrir
milligöngu landsbókavarða
beggja landanna, að umgetið
blað kom hingað til lands,”
sagði menntamálaráðherra.
„Landsbókasafnið er gömul
og gróin stofnun og ég reikna
með, að vel sé séð fyrir geymslu
gamalla handrita þar. Ég geri
þó ekki ráð fyrir að hér sé um
neina stefnubreytingu að ræða.
Ef okkur áskotnast eitthvert
magn af fornum handritum
verður haldið áfram að safna
þeim saman I Arnagarði,” sagði
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra.
Endahnútur bókagjafar-
innar.
„Fyrir tilviljun var ég úti i
Svlþjóð, er afhending þessa
handrits var i undirbúningi,”
sagöi Finnbogi Guðmundsson
landsbókavörður um Kringlu-
blaðsmálið.
„Mér var af menntamála-
ráðuneytinu falið að fylgjast
með málinu og vera milligöngu-
maður I þvi. Vitanlega benti ég
á Landsbókasafnið sem jafnllk-
legan stað og hvern annan til að
varðveita þetta skinnblað. Hjá
okkur eru geymd mörg skinn-
blöð, þótt þau hafi að visu verið
afhent okkur fyrir daga Arna-
stofnunar. En ég vil taka fram,
að það var menntamálaráð-
herra, sem skar endanlega úr
um það, hvar Kringlublaðið yrði
varðveitt,” sagði Finnbogi Guð-
mundsson.
„Ég benti llka á það, að við
fengum hingað til Landsbóka-
safnsins góðar bókagjafir frá
Svlum á slðasta ári, þótt engin
þeirra bóka hafi að visu verið
jafnforn og Kringlublaðið,”
sagði Finnbogi.
„Það var litið á umrætt skinn-
handrit sem endahnútinn á
þeirri bókagjöf og þvi ekki
óeðlilegt, að það færi einnig til
varðveizlu i Landsbókasafnið,”
sagði Finnbogi.
„Ég bendi lika á það, að
Landsbókasafnið er samsvar-
andi stofnun og Konunglega
bókasafn Svfa og mjög gott
samstarf hefur verið á milli
þeirra stofnana. Það samstarf á
vafalaust nokkurn þátt I þvi, að
bókagjöf Svia var beint til
Landsbókasafnsins.
Mér finnst mikilvægust sú
staðreynd, að þetta handrit
skuli hafa fengizt hingað, en
ekki hvort það lenti hjá Arna-
stofnun eða Landsbókasafni,”
sagði Finnbogi Guðmundsson
landsbókavörður.
„Mjög óheillavænleg
stefna"
„Ég vil benda á það að
Konunglega bókasafnið i Kaup-
mannahöfn er jafnmikil systur-
stofnun Landsbókasafnsins og
bókasafnið i Sviþjóð,” sagði
Jónas Kristjánsson forstöðu-
maður Arnastofnunar um rökin
fyrir afhendingu Kringlublaðs-
ins til Landsbókasafnsins.
„Þó var aldrei neinum vafa
bundiö, að Flateyjarbók og
Konungsbók, sem sú stofnun af-
henti okkur, yrðu varöveittar i
Arnastofnun. Arnastofnun var
sett á fót i tilefni heimkomu
handritanna frá Danmörku og
styrkti mjög og styrkir enn
kröfur okkar i handritamálinu
við Dani. Ég get búizt við, að
jafnóheillavænleg stefna og sú,
sem orðið hefur viö afhendingu
Kringlublaösins, verði litin
homauga af Dönum,” sagði
Jónas Kristjánsson.
„Eins vil ég nefna það, að
Arnastofnun hefur fengið ýmsar
bókagjafir frá Svium eins og
Landsbókasafnið,” sagði Jónas.
„Ég tel þvi af ýmsum ástæð-
um mjög óheppilegt ef farið
verður að skipta hinum verð-
mætu skinnhandritum milli
tveggja eöa jafnvel fleiri stofn-
ana,” sagði Jónas Kristjánsson
forstöðumaður Árnastofnunar
að lokum. ...
Vitundh og jóga
Rannsóknarstofnun vitundarinnar
sýnir fjórar nýjar kvikmyndir
Ljóðatónlist við opnun mólverka-
sýningar að Kjarvalsstöðum
Geimfarinn Edgar D.
Mitchell var I áhöfn Appolo 14 er
geimfariðlentiá tunglinuog var
jafnframt sjötti maðurinn, sem
brá fæti sinum á tunglið.
Hann hefur i framhaldi af
þeirri reynslu I alheiminum öðl-
ast mikinn áhuga á hinum innri
heimi mannshugans.
A kvikmyndasýningu, sem
Rannsóknarstofnun vitundar-
innar efnir til I Norræna húsinu
á morgun kl. 16 og aftur kl. 20
verða sýndar fjórar nýjar
myndir um eiginleika manns-
hugans og eru tvær þeirra gerð-
ar aö tilstuðlan Edgars D.
Mitchell.
Onnur þeirra mynda nefnist
Innri heimar og hin Hinn hinzti
leyndardómur. í þessum mynd-
um gerir Edgar D. Mitchell
grein fyrir könnunum sinum og
annarra vlsindamanna á hinum
innra heimi sálarllfsins.
Hinar tvær myndirnar, sem
boðiö verður upp á á þessari
sýningu Rannsóknarstofnunar
vitundarinnar heita Hindúatrú,
sem f jallar um jóga og trúariðk-
anir innan ramma þeirra trúar-
bragða, og Lifræn stjórnun:
Jóga Vesturlanda, sem fjallar,
eins og nafnið bendir til um lif-
ræna stjórnun og möguleika
hennar til eflingar likamlegs og
andlegs heilbrigðis.
—JB
Guðmundur Karl opnar í
dag málverkasýningu að
Kjarvalsstöðum.
Sýning verður opnuð kl. 3
en kl. 4 mun Geirlaug Þor-
valdsdóttir flytja Ijóðatón-
list. Hún mun lesa upp Ijóð
eftir nokkur af yngri
skáldunum við undirleik
hörpu og fiðlu.
Á sýningu Guðmundar
eru 92 málverk, máluð á
árunum 1973-1975. Hún
mun verða opin frá 4-10
daglega nema mánudaga.
Sýningunni lýkur 22.
júní.
—BA—
MUNIÐ
RAUÐA
KROSSINN
Sýna líka ó Nesinu
Myndlistarklúbburinn á Sel- Verk eftir alla 18 félaga klúbbs-
tjarnarnesi stendur nú fyrir sýn- íns. Myndirnar eru jafnframt til
ingu á verkum kiúbbsins. Hún sölu. Sýningin er opin daglega
er haldin I Valhúsaskóia á Sel- frá kl. 5-10. *
tjarnarnesi. Þarna eru sýnd 150 —BA—
Velkominn SMYRIL
FERDASKRiFSTOFAN
URVAL