Vísir - 14.06.1975, Qupperneq 8
8
Vísir. Laugardagur 14. júni 1975
TONHORNIÐ
Umsjón: Örn Petersen
POPP í
BÓKUM
Það er næsta fátitt,
að bækur um
popptóniist og skyld
efni sjáist i bóka-
verzlunum hérlendis.
Ein og ein bók berst þó
öðru hverju til
landsins, og þá nánast
fyrir tilviljun. Ekki veit
ég hvað kann að valda
þessari tregðu, en
sennilega álita
innkaupastjórar
bókabúðanna, að sá
aldursflokkur, sem
poppbækur eru
skrifaðar fyrir, sé svo
illa að sér i ensku og
öðrum erlendum
tungumálum, að ekki
sé grundvöllur fyrir
innflutningi varnings
sem þessa.
En nú hefur ein af bóka-
verzlunum höfuöborgarinnar
ísafold, ákveöiö að gera tilraun
meö innflutning poppbóka, og
eru nokkur eintök þegar komin
til landsins. — Þaö var nánast
fyrir tilviljun aö ég kom auga á
bækur þessar um daginn, þegar
ég var aö viröa fyrir mér
blómabeö, sem hefur veriö sett
niöur I sýningarglugga
verzlunarinnar. Satt aö segja
varö ég svo furöu sleginn viö þá
sjón, sem við mér blasti, að ég
flýtti mér inn i búöina til
aö forvitnast nánar um tíldrög
þess, aö bækur þessar eru
komnar til landsins.
Innkaupastjóri verzlunar-
innar, ungur og áhugasamur
maöur,tjáöi mér, að nokkuö
heföi veriö spurt um ýmsar
bækur, sem auglýstar heföu
veriö I erl. músikblöðum, og
þvi hefði hann ákveðið að panta
inn nokkur eintök sem getið
væri I pöntunarlistum
verzlunarinnar.
Nú þegar hefðu heföu borizt
bækur um Elvis Presley, Mick
Jagger, Jimi Hendrix, Bob
Dylan og Elton John, auk bókar
um trúarbragðapopp (Super-
star, Gospell o.þ.h.) og
rokkbibllunnar „The Sound of
the City”, sem sögð er vera
greinarbezta bókin, sem skrifuð
hefur verið um þróun og sögu
rokksins frá upphafi. Ennfrem-
ur væru margar fleiri bækur I
pöntun, þ.á m. nýútkomin bók
úm ævi Jánis Joplin, „Buried
Alive” en afgreiðslufresturinn á
þessari tegund bóka væri svo
óheyrilega langur, aö þær bær-
ust ekki fyrr en mörgum vikum
eftir aö pantaö heföi veriö. T.d.
heföu þær bækur, sem nú væru
komnar, verið pantaðar I aprll.
Þaö er vissulega gleöiefni,
þegar bókaverzlun sýnir það
framtak aö flytja inn bækur um
popptónlist og þá margþættu
menningu, er hefur þróazt út
frá henni. Að minu viti ætti þessi
tilraun verzlunarinnar að
heppnast, þvi að hvaö mælir á
móti þvi að fólk kaupi bækur um
þaö efni, sem það les um I mis-
góðum músikblöðum, eins og
Melody Maker, Sounds o. fl.
-AT
„TÓNEYRAÐ
BEE GEES: „MAIN
COURSE”.
Hvern hefði órað fyrir þessu:
Þessir rómantisku, stundum
allt aö væmnu tónlistarlegu
bræður, eru farnir að semja
„funky ”-tónlist. Það var
kannski tlmi til kominn, þvi
slðasta albúm þeirra bræðra
þótti ekki bjóða upp á mikla
framför.
En nú eru þeir sumsé ger-
breyttir og komnir með nýtt lið
sér til aöstoöar, þ.ám. fyrrv.
meölim STRAWBS, Blue
Weaver.
Weaver gerir margt gott a
þessu albúmi (að öðrum
ólöstuöum) þ.ám. I laginu
„Jive talkin”, en það lag hefur
þegar náð umtalsverðum
vinsældum vestanhafs.
ELTON JOHN:
„CAPTAIN
F ANTASTIC AND
THE BROWN DIRT
COWBOY”. Þetta er
siðasta albúm Eltons
með grúppu þeirri sem
hefur aðstoðað hann
siðustu árin. Þ.e. þeir
Olsson, Johnstone,
Cooper og Murray, en
þeir hyggjast spreyta
sig, sinn i hverju lagi.
FANTASTIC er söguleg plata,
eða á a.m.k. að vera það.
„Captain Fantastic” er Elton
John, en „Brown Dirt Cowboy”
er aftur á móti Bernie Taupin,
sá er skrifað hefur texta við lög
Eltons frá upphafi.
Miklu fé hefur verið varið til
albúms þessa, upptakan tók á
fjórða mánuð i allt, albúmið er
fagurlega skreytt, og þvl fylgja
tvær handbækur og plaggat.
Sjálft efnið býður ekki upp á
nýbreytni hjá Elton. Lögin eru
öllu rólegri en fyrr, og það finnst
mér hálfskrltið, þegar Elton er
jú að kryfja feril sinn til
mergjar.
En þetta er persónulegt verk
Eltons, og þegar menn verða
persónulegir róast þeir jú alltaf
dálltið. Eitt gleggsta dæmi um
þetta er lagið „We all fall in
love sometimes”, og lokalagið
. „Curtains.”
Fátt er um lög, sem likleg
væru til vinsælda, það væri þá
einna helzt „Gotta get á Meal
Ticket”, en þetta albúm virðist
alls ekki stilað upp á það að
innihalda „hit-lög” sem
Goodbye Yellow” t.d. Þetta
albúm er kapltuli i sög Eltons,
og verður nú forvitnilegt að
heyra hverjum breytingum
tónlist hans tekur, þegar menn
eins og Jeff „Skunk” Baxter
spila með honum.
## -ÖRP
Carly Simon: „Playing
Possum”.
Já, hún Carly leynir á sér, öllu
meiri en tanngarður, þvilikur
kroppur....
Hvað með kroppinn, tónlistin
er engu slðri.
Að vanda hefur Carly valið lið
sér til aðstoðar, nægir þar aö
nefna James Taylor, Klaus
Voorman, Wiljie Weeks og söng-
konurnar Ritu Collidge og
Carole King.
Rómantikin skin i gegn á
plötu þessari, en eins og alþjóð
er kunnugt gekk Carly I það
allra heilagasta fyrir tveimur
árum með hinum núverandi
ektamaka sfnum, James
Taylor.
Textarnir lýsa þessu bezt:
„And when I’m feeling like the
islands,
and I’m givin’ you all my sighs
I beg you when you love me,
look me in the eye.”
„Serenades and symphonies,
lullabyes and sweet melodies.
We’ll make romantic rapsodies,
music, maestro, if you please.”
— Og svo þessi:
„I hear there’s another sidc
to you,
welltheqé’s another side to me
too.
Let’s get over to the other side,
Real soon.”
Jæja, blessunin, maður skilur
svona tilfinningar,,,, eða?...
Eina lagið, sem ekki ber
rómantiskan texta, er sjálft
titillagið „Playing Possum”,
sem er ádeila á uppreisnar-
gjama stúdenta, sem falla fyrir
kerfinu að lokum, gleyma öllum
baráttumálum og fá sér lepp á
olnbogann og opna ómerkilega
bókaverzlun?
Þetta albúm mun ekki valda
neinum Simon-aðdáenda
vonbrigðum, þvert á móti, það
er þrælgott.
Persónulega finnast mér
„Waterfall” og „Attitude
Dancing” beztu lög albúmsins,
annars eru þau öll állka.
-örp.
Og Bee Gees bregðast ekki
gömlum aðdáendum slnum
(þ.e. þeim er dáöust að
rómantfkinni m.m. og gera
kannski enn), þvi þeir afklæðast
nýja frakkanum i lögum eins og
t.d. „Songbird” og „Country
Lanes”.
Þetta er ein fjölbreyttasta
Bee Gees platan sem út hefur
komiö. -örp.
HEYRZT HEFUR:
Að nýja platan frá Stuðmönn-
um sé væntanleg I bæinn eftir
helgi.
Aö Kiddi rótari skeri nú
skegg sitt tvisvar á dag til að
koma I veg fyrir frekari mis-
skilning um fyrirhugaða. skegg-
söfnun. Kiddi átti annars afmæli
á miðvikudaginn, og náði hann
þá tuttugasta og fyrsta
aldursári, eftir talsvert strit og
erfiði.
Að Mogginn sé kominn með
nýja popp-siðu, gárungar kalla
hana „framkvæmdastjóra-
slðuna”?
-örp.