Vísir - 02.07.1975, Side 8
Visir. Miðvikudagur 2. júli 1975.
Visir. Miðvikudagur 2. júli 1975.
9
Alls staðar
harka í 3.
deildinni!
Mikil barátta er I flestum ef ekki öllum
riðlunum I 3. deild tslandsmótsins i knatt-
spyrnu nú, þegar keppnin I mörgum þeirra er
um það bil hálfnuð. Margir leikir voru leiknir
um siðustu helgi og uröu úrslit I þeim — og
staðan eftir þá — sem hér segir:
A-KIÐILL
Leiknir — Njarövik 1:5
Grindavik — Fylkir 1:3
Hrönn — Þór Þorlákshöfn 0:3
Fylkir Reykjavik 7 7 0 0 29:2 14
Njarðvik 7421 21:5 10
Reynir Sandgerði 6 4 11 12:5 9
Þór Þorlákshöfn 7 3 1 2 13:11 7
Grindavik 7 1 2 4 8:18 4
Hrönn Reykjavlk 7 115 4:18 3
Leiknir Reykjavlk 7 0 1 5 1:29 1
B-RIÐILL
Lið Vestur-Skaftfellinga — USVS — hefur
verið dæmt úr keppninni, og þurrkast þvl
þeir tveir leikir, sem liðið hefur leikið, út
(Víðir-USVS 7:0 og Afturelding-USVS 4:2).
Tveir leikir voru leiknir um helgina og urðu
úrslit þeirra þessi:
Stjarnan — Vlðir 2:3
Alturelding — tR 2:3
Stjarnan 4 2 1 1 9:6 5
Grótta 4 1 3 0 8:6 5
Vlðir Garði 4 2 1 1 8:7 5
1R Reykjavlk 4 2 0 2 6:7 4
Afturelding 4 0 1 3 7:12 1
C-RIÐILL
t þessum riðli hefur veriö mikið um frest-
anir og leikir fallið niður af ýmsum ástæöum.
Margir leikir voru þó um helgina, og urðu úr-
slit* þeirra þessi:
Snæfell — Grundarf jörður 5:2
Bolungavlk — Skallagrlmur 4:2
HVl — Grundarfjörður 1:2
tsafjörður —Snæfell 1:0
isafjöröur — Grundarfjörður 4:0
Bolungavik — Snæfell 3:3
lsafjörður 4 4 0 0 9:0 8
Snæfell Stykkishólmi 4 2 11 9:6 5
Bolungavlk 5 2 1 2 8:11 5
Grundarfjörður 4 2 0 2 7:10 4
H. Vestur-tsaf. 4 1 0 3 5:5 2
Skallagrlmur B. 3 0 0 3 3:9 0
D-RIÐILL
Mikilvægur leikur var I þessum riðli um
helgina KA-KS, en cftir liann er staöan þessi I
riölinum:
KA — KS 4:1
Leiftur — UMSS 3:1
KA Akureyri 4 3 10 16:6 7
KS Siglufirði 4 3 0 1 6:4 6
Leiftur Ólafsfirði 4 112 7:11 3
UMS Skagafjarðar 4 0 1 2 5:7 3
Efling Suður-Þing. 4 0 1 3 6:12 1
E-RIÐILL
Þór Akureyri stendur bezt að vigi I þessum
riöli, en þar urðu úrslitin um helgina þessi:
USAH—Magni 1:2
Þór — UMSE 4:1
Þór Akurey.ri
Magni Grenivik
UMS Eyjafjarðar
US Austur-Ilúnavatnss.
33007:16
3 2 0 1 5:4 4
3 1 0 2 3:7 2
3 0 0 3 1:4 0
F-RIÐILL
Þróttur Neskaupstaö er hér mcö góöa stöðu
og ekki fengið á sig mark til þessa. Einn leik-
ur fór fram I riðlinum um helgina og urðu úr-
slit hans þessi:
Leiknir — KSH
Þróttur Neskaupsstaö
Leiknir Fáskrúösfirði
Huginn Seyöisfiröi
KSH Stöðvarfirði
4:3
3 3 0 0 16:0 6
3201 6:5 4
3102 4:7 2
3003 5:19 0
G-RIÐILL
1 þessum riðli eru úrslit fyrir spennandi
keppni eftir leikina um siðustu helgi en þeir
fóru sem hér segir:
Austri — Höttur 5:2
Valur — Einherji 2:2
Austri Eskifiröi 3 2 0 1 11:9 4
Einherji Vopnafirði 2 110 7:5 3
Ilöttur Egilsstöðum 2 10 1 4:6 2
Valur Reyðarfiröi 3 0 1 2 5:7 1
—klp—
Marteinn Geirsson varð fyrstur til að átta sig, þegar knötturinn barst óvænt fyrir mark Vals eftir „misheppnaða” hornspyrnu — sendi knött-
inn I markiö og á mynd Bjarnleifs er Marteinn (nr. 5) aö hefja sigurdans sinn — fagna markinu.
Settí heimsmet og sigr-
oði Evrópumeistarann!
— Anders Gœrderud, Svíþjóð, hljóp 3000 m hindrunarhlaup ó 8:09.7 mín.
ó Stokkhólms-Stadion í gœrkvöldi
1
Sviinn hávaxni og granni, And-
ers Gærderud, bætti heimsmet
sitt I 3000 m hindrunarhlaupi um
sjö sekúndubrot — hljóp á 8:09.7
min. —á miklu frjálsiþróttamóti i
Stokkhólini I gærkvöldi. Þar með
hefur hann bætt heimsmet Ben
Jipclio, Kcnýa, um 4.3 sekúndur á
vegalengdinni á einni viku.
En það sem sænsku áhoríend-
unum fannst kannski meira um —
Anders gjörsigraði Bronislaw
Malinowski, Póllandi, — mann-
inn, sem tók svo óvænt frá honum
gulíverðlaunin á Evrópumeist-
aramótinu á Italíu I fyrrahaust.
Malinowski hljóp á 8:12.62 min.
og er það í annað skipti á viku,
sem hann nær betri árangri en
heimsmetið var — aöeins til að
falla I skugga Svíans. Anders
varð um 25 m á undan honum I
mark, en 3ji varð Michael Karst,
V-Þýzkalandi, á 8:16.11 min.
Byrjunarhraðinn var glfurleg-
ur I hlaupinu. Eftir 1000 m var
Anders með 3.8 sek. betri tíma, en
þegar hann setti heimsmetið i
Osló fyrir viku. Malinowski fylgdi
honum, en sá, sem haldið hafði
uppi hraðanum, Evans Mogaka,
Kenýa, hætti. Kapparnir tveir
hlupu saman, þar til riimir 200 m
voru eftir. Þá tók Anders sprett
og skildi Pólverjann eftir. Erfitt
mlluhlaup daginn áður virtist
ekkert sitja i honum — enda-
spretturinn frábær.
í 5000 m hlaupi sigraði belgiski
heimsmethafinn, Emile Putte-
mans, eftir hörkukeppni við Ian
Stewart, fyrrum EM-meistara
frá Skotlandi. Puttemans hljóp á
13:26.29 mín. en Stewart á
13:27.00 mln. Rodolfo Gomez,
Mexikó, varð 3jiá 13:27.61 min. —
allt stórgóðir timar. Irena Sze-
winska, Póllandi, sigraði I 200 m
hlaupi kvenna á 23.09 sek., en
Linda Haglund, Svíþjóð, varð
önnur á 23.61 m. Ludvik Danek,
Tékkóslóvakiu, sigraði i kringlu-
kasti og náði frábærum árangri,
66.10 metrum. Sigraði nýja
heimsmethafann John Powell,
USA, örugglega, en hann kastaði
64.70 m. Ricky Bruch tókst ekki
að blanda sér i toppbaráttuna —
varð 3ji með 61.92 metra.
—hslm.
Ægir meistari 3ja árið í röð!
Lið Ægis varð tslandsmeistari I
sundknattleik þriðja árið I röð,
þegar það sigraöi KR I úrslitaleik
tslandsmótsins I Laugardalslaug
sl. föstudagskvöld með 7—5. Þar
með lauk viðburðarlku keppnis-
timabili Ægisliðsins — það sigraði
I öllum mótum i vetur og nú á ts-
landsmótinu og þjálfari liðsins er
auðvitað Þorsteinn Hjálmarsson
— maðurinn, sem þjálfað hefur
nær öll sigurlið tslands I sund-
knattleiknum.
I leiknum á föstudag náði
Vesturbæjarliðið forustu með
marki ólafs Gunnlaugssonar og
þannig lauk fyrstu hrinu. En KR-
ingar misstu mann uppúr I ann-
arri — Erlingur Kristensen jafn-
aði og Þorsteinn Geirharðsson
kom Ægi i 2.-1. 1 þeirri 3ju kom
Erlingur Ægi i 3-1 áður en Ólafur
(viti) og Þórður Ingason jöfnuðu
fyrir KR i 3-3. Þorsteinn náði
aftur forystu fyrir Ægi — Ólafur
jafnaði úr viti, 4-4. Þá skoraði
fyrirliði Ægis, Hreggviður Þor-
steinsson, 5-4.
í lokahrinunni jafnaði Ólafur i
5-5, en Guðjón Guðnason skoraði
tvö siðustu mörk leiksins fyrir
Ægi, 7-5. 1 liði Ægis léku á mótinu
Arni Stefánsson, Axel Alfreðsson,
Erlingur Kristensen, Guðjón
Guðnason, Gylfi Gunnarsson,
Halldór Hafliðason, Halldór Kol-
beinsson, Hreggviður Þorsteins-
son, Jón Hauksson, Ólafur Al-
freðsson, Ólafur Stefánsson,
Sigurður Ólafsson, Þórður Valdi-
marsson, Þorsteinn Geirharðsson
og örn Geirsson.
-hsim.
. n
CD /
M Íí
M
1 i
HEPPNI FRAM RIÐUR
EKKI VK> EINTEYMING
— Sigraði Val 3-1 í 1. deildinni á Laugardalsvellinum eftir að Valur hafði
ráðið gangi leiksins fyrstu 45 mín. — en Valsmenn brotnuðu,
þegar Fram skoraði þrjú mörk á stuttum tíma
Heimsmet
••
Heppni Fram 11. deildarkeppn-
inni hefur veriö meö eindæmum
aö undanförnu —ég minnist þess
varla að hafa séð Islenzkt lið sigla
I öðrum eins meðbyr leik eftir leik
— og I gærkvöldi sigraði Fram
Val ó Laugardalsvelli. Þó virtist
aðeins eitt lið á vellinum allan
fyrri hálfleikinn — Valur — og lið-
ið hefði auðveldlega átt aö vera
búið að skora 3-4 mörk áður en
Fram komst á blað. En aðeins
einu sinni hafnaði knötturinn I
marki Fram — og Fram jafnaði
svo með slðustu spyrnu hálfleiks-
ins. Eina tækifæri liðsins I hálf-
leiknum nýtt — og heppnismark I
byrjun þess siöari — annað fylgdi
strax á eftir — setti Valsliðiö
alveg úr jafnvægi. Eftir það réö
Fram lögum og lofum á vellinum.
En heppnin er þó ekki það eina,
sem Fram hefur yfir að ráða.
Baráttuvilji leikmanna er mikill
— vörn og markvarzla yfirleitt
góð — eins og einhver neisti, sem
svo oft einkennir Islenzka lands-
liðið, leiki á lausu I Fram-liöinu,
neisti, sem oft verður að báli —
sigurbáli. Þannig var það I gær-
kvöldi — smákveikja færði Fram
enn tvö stig i stigasafnið mikla.
Auðvitað geta Valsmenn nagaö
sig I handarbökin — flestir — en
þó einkum Hermann Gunnarsson.
Hann einn gat fært Val sigur —•
fór illa með þrjú opin tækifæri I
leiknum, eitt stangarskot, svo
auðveld tækifæri, aö stundum
virtist léttara aö skora. En hinn
mikli markakóngur Islenzkrar
Reykjavíkur-
leikarnir
í kvöld
Reykjavikurleikarnir I frjáls-
um Iþróttum hefjast á Laugar-
dalsvellinum I kvöld kl. 20.00.
Skráðir keppendur eru 65 — en
engir erlendir eins og fyrirhugað
var. Sovézku keppendurnir kom-
ust ekki vegna landskeppni við
USA. í kvöld verður keppt I 400 m
grindahlaupi, kúluvarpi, há-
stökki, langstökki, 200 m hlaupi,
800 m hlaupi, 3000 m hlaupi
karla, en konur keppa I 200 m
hlaupi, 800 m hlaupi, hástökki, 100
m grindahlaupi og kúluvarpi.
knattspyrnu, Hermann Gunnars-
son, varð eins og taugaveiklaður
nýliöi i marktækifærunum — allt
rann út i sandinn. Fyrir örfáum
árum hefði Hermann skorað þrjú,
já, frekar 4-5 mörk, i leik sem
þessum. Reyndar furöulegt hvað
Hermann slapp oft frá hinum
sterku miðvörðum Fram I leikn-
um — og mikil var heppni Fram
að jafn öruggur og góður leik-
maður og Hermann yfirleitt er
skyldi þar bregðast.
Knattspyrna Ileiknum var bara
sæmileg miðað við hve hroðaleg-
ur Laugardalsvöllurinn er. Nokk-
ur uppstokkun i Valsliðinu — Sig-
urður Dagsson, Atli Eðvaldsson
og Kristinn Björnsson settir út —
tveir þeir siðastnefndu komu þó
inná undir lokin. Framliðiö hið
sama og áður — Elmar ekki enn
kominn þar inn.
Um miðjan fyrri hálfleikinn
skoraði Guömundur Þorbjörns-
son fallega eina mark Vals —
komst frir að markinu eftir góöa
sendingu Hilmars Harðarsonar.
Eftir markið komu marktækifæri
Vals á færibandi — ekkert nýtt —
og nokkrum sekúndum fyrir hléið
fékk Fram aukaspyrnu. Gefið inn
i Valsteiginn og þar var allt svo
STAÐAN
Staðan I 1. deild eftir leikinn I
gærkvöldi:
Fram— Valur 3:1
Fram 7 5 0 2 8:3 10
Akranes 6 3 2 1 13:6 8
Valur 7 2 3 2 8:7 7
Keflavlk 6 2 2 2 4:4 6
FH 6 2 2 2 6:13 6
IBV 6 1 3 2 6:7 5
KR 6 1 2 3 2:4 4
Víkingur 6 1 2 3 2:5 4
Markhæstu menn:
Guðmundur Þorbjörnss. Val 5
Matthlas Hallgrimsson, Akran 4
örn Óskarsson, ÍBV 4
Kristinn Jörundsson, Fram 3
Teitur Þóröarson, Akranes 3
Næstu leikir
Keflavlkurvöllur I kvöld:
Keflavlk—Valur. Laugardals-
völlur á föstudagskvöldið: Vik-
ingur—FH. Vestmannaeyjum
sama tíma: ÍBV—KR
Evrópukeppnin í frjálsum:
Hvaða sex þjóðir
komast í úrslit?
Búiö er aö draga um hvaóa
þjóðir mætast I undanúrslitum I
Evrópukeppninni I frjálsum
Iþróttum, en þau eiga að fara
fram dagana 12. og 13. júli n.k.
Tvö efstu liðin úr hverjum riðli
komast I úrslitakeppnina, sem fer
fram síöar I sumar.
Riðlarnir I undanúrslitunumeru
þrír, og eru þessar þjóðir I
þeim:
KARLAR: .
London: Bretland, Pólland,
Sviþjóð, Sovétrikin, Spánn,
Búlgaría.
Leipzig: Finnland, Frakkland,
opið aö margir Framarar gátu
skorað — en fyrirliðinn Jón
Pétursson sendi knöttinn I netið.
Leikmenn Fram, sem varla
höfðu átt góða sóknarlotu I fyrri
hálfleik, voru ákveðnari eftir hlé-
iö. Agúst Guðmundsson spyrnti
yfir I góöu færi I byrjun — en Val-
ur fékk slðan gott færi áöur en
Fram skoraði tvlvegis. Arni
Stefánsson, markvörður Fram,
hélt ekki föstu skoti — Hermann
náði knettinum, renndi honum
framhjá Arna að opnu markinu.
En lánleysi Hermanns var algjört
— knötturinn lenti neðst i stöng-
inni og hrökk út, rétt framh'já
Guðmundi og markið opið!
A 57. mln. fékk Fram horn-
spyrnu, sem var afar illa fram-
kvæmd. Laust lágskot, en bak-
verði Vals brást illa bogalistin —
hitti ekki knöttinn og hann barst
fyrir mitt markið. Leikmaðurinn
snjalli, Marteinn Geirsson, varö
fyrstur til að átta sig — sendi
knöttinn I mark Vals, og þar með
höföu varnarmenn Fram skorað
tvö fyrstu mörk liösins. Tveimur
mln. siðar lék Rúnar Glslason inn
ivitateig Vals — gaf vel á Kristin,
sem hitti knöttinn illa — en „pot”
hans var nóg. Knötturinn barst i
mark Vals. 3-1 og Fram náði tök-
um á leiknum. Hefði auðveldlega
átt að geta skorað fleiri mörk
lokakafla leiksins gegn brotnu
Valsliði. Dómari Guðjón Finn-
bogason. —hsím
',í t ■ %
i snorun
Búlgarski lyftingamaður-
inn kunni, Planchov, setti
nýtt heimsmet I snörun I
Sofia I gærkvöldi — snaraði
192.5 kllóum, og bætti þar
með heimsmet hins heims-
kunna, sovézka lyftinga-
manns vassily Alexsjeev
um hvorki meira né minna
en fimm klló!! Hreint ótrú-
legur árangur.
—hslm.
Björn Borg
tapaði
Sænski tennisleikarinn
Björn Borg beið Iægri hlut
fyrir bandariska svertingj-
anum Arthur Ashe á
Wimbledon-mótinu á Eng-
landi I gær. Komst þvl ekki I
undanúrslit — en vöðvaslit I
fæti háðu Birni I keppninni.
Ashe vann 2-6, 6-4, 8-6 og 6-1.
Aðrir, sem komust I undan-
úrslit voru Jimmy Connors,
USA, Tony Roche, Astraliu
og Roscoe Tanner, Astraliu.
—hsim.
Sviinn ungi, Björn Borg, var vonsvikinn I gær — fóturinn gaf sig — og
hann ætlaöi að hætta I fjóröu lotu gegn Ashe — en þjálfari hans fékk
hann til að ljúka keppninni.
Eigið þér tóm
gashylki? «
Viö vekjum athygli viöskipta-
manna okkar á aö tilfinnanlega
skortir á aö tæmd gashylki berist
okkur til baka aö notkun lokinni.
Félagiö hvetur viðskiþtamenn
sína til aö skila inn ónotuðum
hylkjum, en þau eru endurkeypt
hæsta veröi.°
SKILAGJALD GASHYLKJA
11 kg. hylki kr. 4.500.OO
47 kg. hylki kr. 7.500.O
Austur-Þýzkaland, Júgóslavla,
Sviss, Grikkland.
Torino: Tékkóslóvakla,
Vestur-Þýzkaland, Ungverja-
land, ítalla, Belgla, Rúmenla.
KONUR:
Budapest: Frakkland, Ung-
verjaland, Rúmenia, Sovétrlkin,
Austurriki, Belgla.
Ludenschedit: Vestur-Þýzka-
land, Finnland, Irland, Pólland,
Danmörk, Tékkóslóvakla.
Sofla: Búlgaria, Austur-Þýzka-
land, Bretland, Holland, Júgó-
slavla, Svlþjóð.
—klp—
íin eru móttekin á
Ölíum bensínstöövum
félagsins, hjá umboðs-
mönnum um land allt, í
kynditækjaverzluninni aö
Suöurlandsbraut 4 og Olíustöð
félagsins í Skerjafiröi.
Olíufélagið Skeljungur hf
Suöurlandsbraut 4 - Reykjavík Sími 38100 Bheii