Vísir - 08.07.1975, Page 3
Vísir. Þriöjudagur 8. júli 1975.
3
Eyfells áfram
á Kjarvals-
stöðum
Um 5 þúsund manns hafa séö
sýningu Eyjólfs Eyfells, sem stóö
aö Kjarvalsstööum i sföustu viku
og átti aö ljúka siðast liöiö sunnu-
dagskvöld. Stjórn Kjarvalsstaða
hefur nú sýnt hinum aldna lista-
manni þá sérstöku vinsemd aö
leyfa honum afnot af sýningar-
sainum til næstasunnudagskvölds
og hefur sýningin þannig veriö
framlengd um eina viku.
NEWS FROMICÉLANÐ
Published Monthly by lceland ReVÍeW
Nýtt mánaðarblað
á ensku
News
from
lceland
lcelandic Review
gefur það út
í siðustu viku hóf
göngu sina nýtt frétta-
blað á ensku, sem heitir
News from Iceland. En
Icelandic Review er út-
gefandi að þessu blaði.
Um árabil hefur sérstakt
fréttablaö fylgt hverju eintaki
Icelandic Review, en til þess að
auka og bæta fréttaþjónustuna
ákvað útgáfan að aðskilja frétta-
blaðið og timaritið. En timaritið
mun koma út eins og áður fjórum
sinnum á ári.
News from Iceland er prentað i
sextán þúsund og fimm hundruð
eintökum og mun koma út
mánaðarlega, nema i júli og
ágúst og nóvember og desember.
Þessum mánuðum verður slegið
saman og kemur þvi blaðið út tiu
sinnum á ári.
News from Iceland flytur þeim,
sem erlendis hafa áhuga á að
fylgjast með islenzkum mál-
efnum, almennar fréttir, en legg-
ur þó aðaláherzlu á viðskipta- og
efnahagsmál, iðnað og þá einkum
sjávarútveg.
Þar að auki er fréttablaðinu
ætlað að þjóna erlendum gestum,
sem dveljast hér á landi. M.a.
flytja upplýsingar og gagnlegan
fróðleik, sem auðveldar út-
lendingum að notfæra sér marg-
vislega þjónustu, sem hér er fyrir
hendi.
Mun blaðið fást hérlendis i
lausasölu auk fastra áskrifta, en
til útlanda verður það selt ein-
göngu til ákskrifenda. Kostar ein-
takið 60 kr. i lausasölu, en áskrift-
in er á 600 hundruð krónur.
Ritstjóri blaðsins er Haraldur
J. Hamar, en Haukur Böðvarsson
annast þann þátt er varðar enskt
mál.
—HE
Átti að geymast í 3
mánuði
— en var ónýt
Einn af borgarbúum ætlaöi
sér aö gleöja börn sin meö þvi
aö bjóöa þeim upp á kókómjólk,
hina margauglýstu g-vöru, um
helgina. Hann keypti hana á
föstudaginn, og svo var hyrnan
dregin fram úr skáp á laugar
dag. En viti menn, mjólkin var
ónýt, og samt stóö á umbúöun-
um, aö síöasti söludagur væri
26. september.
Hyrnan hafði öll tútnaö út og
fór svo að springa. Neytandi
þessi var ekkert yfir sig ánægð-
ur og sýndi okkur þvi hyrnuna,
sem átti að geymast að minnsta
kosti I þrjá mánuði.
„Þetta getur komið fyrir”,
sagði Gunnar Jónsson verk-
stjóri i Mjólkurbúi Flóamanna á
Selfossi, þegar við höfðum sam-
band þangað, en þar er gengið
frá g-vörunni.
Gunnar sagði ástæðuna lik-
lega vera þá, að umbúðirnar
yrðu fyrir einhverju hnjaski
þannig að eitthvað kæmi fyrir
lokunina á hyrnunni. Það gæti
átt sér stað i flutningum, en það
mikið eftirlit er haft með pökk-
uninni, að ekkert á að geta farið
gallað úr framleiðslustað.
Sagði Gunnar, að þetta hefði
komið fyrir áður, en væri mjög
sjaldgæft. Það væri þvi ekki um
annað að ræða fyrir kaupand-
ann en að fá skipt á gölluðu hyr-
unni og annarri heilli. Annars
kvað hann geysilega sölu vera á
þessari vöru um allt land, en
sem sagt: „Ekkert sem menn-
irnir gera er alfullkomið”, bætti
hann við.
— EA
Verkalýðsfélögin eiga
að skipa trúnaðarmenn
„Svæöiö viö Mjólká heyrir
undir Alþýðusamband Vest-
fjarða,” sagði Ólafur Hanni-
balsson hjá Alþýðusambandi ís-
lands, en Visismenn höföu tal af
honum varðandi framkvæmd
vinnulöggjafar.
„Löggjöfin frá 1938 gerir ráö
fyrir þvi, að verkalýösfélögin
eigi 2 trúnaöarmenn áhverjum
vinnustaö,” sagöi ólafur.
„Mannskapurinn er vart
kominn og þvi höfum viö ekki
skipað trúnaðarmanninn enn-
þá,” sagði Pétur Sigurðsson hjá
Alþýðusambandi Vestfjarða.
Hann benti ennfremur á, að það
væri einungis unnið i um 4
mánuði á þessu svæði og starfs-
fólk kæmi frá ótal verkalýðs-
félögum. „Þvi miður er allt of
fátt um heimafólk og við skipum
ekki hvern sem er i þessa stöðu”
sagði Pétur að lokum.
—BA
eftir einn dag
Kókómjólkin var ekki beint girnileg til drykkjar, enda svo gerluö,
að hyrnan tútnaöi út og var farin aö springa. Ljósm: Bj.Bj.
Kvikmyndasýningar í vinnustofunni
— tilraun í einn mánuð
Kvikmyndin „Þjóð-
hátið á Þingvöllum”,
fjallar um hátiðarhöld-
in á Þingvöllum 28. júli
1974. Frágangi hennar
var að verulegu leyti
lokið er ósvaldur féll
frá 13. marz sl. Kvik-
myndin verður nú sýnd
i fyrsta sinn.
Tónlist við myndina samdi
Magnús Bl. Jóhannsson, tón-
upptöku annaðist Dennis D. Jo-
hannesson og þulur er Óskar
Halldórsson. Kvikmyndin er
33ja min. löng og i litum.
Myndin ásamt „Eldur i
Heimaey”, sem einmitt fékk
gullverðlaun á Italiu, verður
sýnd á vinnustofu Ósvalds heit-
ins Knudsens i mánaðartima.
Sonur Ósvalds, Vilhjálmur
Knudsen kvikmyndagerðar-
maður, vann að báðum þessum
myndum með föður sinum.
Kvikmyndavinnustofan er að
Hellusundi 6a. Sýnt verður á
hverju kvöldi og kostar miðinn
200 kr. fyrir fullorðna og 100 kr.
fyrir börn. Miða má panta eftir
kl.4isima 13230. Sýningin tekur
rúma klukkustund og hefjast
sýningar 9. júli. EVI
Kvikmyndasýningarnar veröa i vinnustofu Ósvalds Knudsen, og
þaö er Vilhjálmur Knudsen, sem stendur Idyrunum. A hinni mynd-
inni bendir hann á innganginn, en vinnustofan er I Hellusundi 6a.
Ljósm. JIM.