Vísir - 08.07.1975, Blaðsíða 9

Vísir - 08.07.1975, Blaðsíða 9
8 Visir. Þriðjudagur 8. júli 1975. Visir. Þriðjudagur 8. júli 1975. -O -£>- -ö- -O O Það var oft mikil óiga I norska vitateignum —og þar hafði Erik Johannesson nóg að gera. A mynd Bjarnleifs að ofan liggur Eirikur markvörður — en hefur slegið knöttinn yfir Jón Alfreðsson. Jóhannes Eðvaldsson fylgist með — og áhorfendur i þéttskipaðri stúku Laugardalsvallarins. Aðeins eitt stig skilur ó milli! í landskeppni í frjálsum íþróttum í Prag Pólland hafði forustu eftir fyrri daginn í þriggja landa keppni Póllands, Bandarikj- anna og Tékkóslóvakíu, sem hófst i Prag i gær — mestu frjálsiþróttakeppni, sem um langt árabil hefur verið haldin i Tékkósló- vakiu. í karlakeppninni höfðu Pólverjar 61 stig gegn 60 stigum Bandarikjamanna en mjög á óvart höfðu bandarisku konurnar forustu gegn þeim pólsku. Að visu aðeins eitt stig yfir — sami litli munurinn og i karlakeppninni — 37-36. Báðar þjóðir höfðu örugga forustu gegn Tékkuin. Frábær árangur náðist i mörgum grein- um i keppninni. Pólverjinn Kozkiewicz, Evrópumethafinn i stangarstökki, reyndi við nýttheimsmet5.67 metra, en tókst ekki. Sigurstökk hans var 5.50 metrar og landi hans Buciarski varð annar á 5.40 m i þess- ari „bandarisku” grein. Bandarikjamenn- irnir, Rogers og Wallick, stukku 5.10 m. Jerzy Hewelt setti nýtt pólskt met i 400 m grindahlaupi á 49.5 sek, og Mike Shine, USA, varð annar með 49.9 sek. Ken Popejoy, USA, sigraði i 1500 m á ágætum tima 3:38.4 min. rétt á undan Penkava, Tékkóslóvakiu, og Heidenreich, USA, sem hlupu á 3:38.8 min. Malinowski, Póllandi, varð fjórði á 3:39.4 mín. og Wasilewski, Póllandi fimmti á 3.39.6 min. Sjötti varð Tékkinn Stefan Polak á 3:40.2 min. Mikið hlaup það. í 100 m hlaupi sigraði Ed Preston, USA, á 10.2 sek. og Young, USA, varð annar á 10.3 sek. Matou- sek, Tékkóslóvakiu, og Liczerski, Póllandi, fengu sama tima. 1 100 m hlaupi kvenna var Irena Szewinska, Póllandi, langfyrst á 11.2 sek. Stan Winson, USA, varð fyrstur i 400 m hlaupi á 45.4 sek. og landi hans Robert Taylor annar á 45.9 sek. Pólverjinn Pietr- zyk varð 3ji á 46.1 sek. 1 spjótkasti kastaði Bob Wallis, USA, lengst eða 85.02 m en Tomas Babiak, Tékk., varð 2. með 83.84 m. Richard George USA, 3ji með 83.08 m. Þá sigraði Tommy Haynes, USA i þrístökki — stökk 16.59 m og var langbeztur. Pól- verjinn Biskupski varð annar á 16.23 m. Keppnin heldur áfram i dag. — hsfm. Mesta dómarahneyksli í landsleikjasögu fslands Sœnski dómarinn, Ulf Eriksson, bjó til vítaspyrnu, sem gaf Norðmönnum jafntefli gegn íslandi 1-1 og eyðilagði leikinn Hann heitir Ulf Eriksson — kostaður alla leið austan úr Svia- riki til að dæma jafn þýðingar- mikinn leik og landsleik Islands og Noregs f undankeppni Olympiuleikanna —nýliði á sviði dómgæzlu i landsleikjum með einn landsieik að baki. Hann var slæm sending — dómgæzia þessa Svia, sem reyndi að verja sig með hroka eftir leikinn, er mesta dómarahneyksli, sem átt hefur sér stað i islenzkri iandsleikja- sögu. Jafnteflið i ieiknum, 1-1, geta Norðmenn eingöngu þakkað þessum sænska heiðursmanni — hann bjó til vftaspyrnu á tsland, þegar tveir ieikmenn hlupu saman án þess um nokkurt brot væri að ræða — atvik, sem alltaf eru að ske f knattspyrnuieik án þess að dómarar gripi til flaut- unnar. Skorað var úr vitinu — og leikur, sem virtist stefna i að verða góð skemmtun fyrir áhorfendur sem leikmenn, gekk allur úr skorðum. Dómarinn beiniinis eyðilagði leikinn — harkan, grimmdin varð allsráð- andi og hr. Eriksson réð ekki við neitt. Beinlfnis aumkunarverður. — Þetta er fáránlegasti dómur sem ég hef orðið vitni að á 20 ára ferli minum sem atvinnumaður i knattspyrnu, sagði landsliðs- þjálfarinn Tony Knapp. — Við Norðmenn höfum ekki yfir neinu að kvarta i sambandi viö dómgæzluna, sagði Einar Jorum, norski landsliðseinvald- urinn og brosti tviræðu brosi. — Við getum verið ánægðir með að hafa sloppið með 1-1 frá íslandi, segir norska fréttastofan NTB eftir leikinn. — Sænskt dómarahneyksli á Islandi bjargaði Norðmönnum, slmaði einn norsku blaðamann- anna til Noregs eftir leikinn. — Viðhér á Visi segjum. Þetta er það versta, sem dómari hefur sýnt i þau 29 ár sem landsleikir hafa verið leiknir á Islandi. Grip- ið til harðasta dóms i knatt- spyrnulögunum á bókstaflega ekkert. — Ahorfendur sögðu hug sinn á Laugardalsvelli I gærkvöldi. Aldrei hefur erlendur dómari fyrr fengið annað eins á sig frá radd- böndum islenzkra áhorfenda. Hr. Eriksson fékk vissulega að heyra hvaða álit islenzkir áhorfendur höfðu á honum. Það var litið. — Sænski fáninn var dreginn i hálfa stöng á meðan á leiknum stóð — þetta var sorglegur dagur fyrir Svia á ísla,ndi. Hópur pilta beið eftir sænska dómaranum eftir leikinn — sumir i vigahug. En þökk sé þeim. Þeir voru beðn- ir að láta þann sænska i friði — og gerðu það. Það var ekki einu sinni baulað á Sviann. En landsleikurinn? — JU, hann fellur beinlinis i skuggann — að- eins viti Svians verður minnis- stætt Ur honum, þegar árin liða. Byrjunin var góð — Norðmenn betri fyrstuminúturnar. Siðan fór islenzka liðið að ná tökum á leikn- um — nýliðinn Arni Sveinsson, með ljUfa knattmeðferð eins og faðir hans, snilldarleikmaðurinn Sveinn Teitsson, skoraði mark tslands á 17. min. eftir glæsi- sendingu Guðgeirs Leifssonar á Matthias Hallgrimsson, og „Matti” lék snilldarlega á bak- vörðinn — spyrnti fast fyrir markið og þegar maður hélt að knötturinn ætlaði framhjá Arna kom hælspyrnan góða hjá unga piltinum — knötturinn lá i netinu hjá Vikingnum mikla, Erik Johannessen, sem nefbrotinn var bezti maður norska liðsins. Fjórar minútur liðu — og þá lamaði Eriksson dómari islenzka áhorfendur og leikmenn með hin- um furðulega dómi sinum, vita- spyrnunni, sem lengi verður minnzt i islenzkri knattspyrnu, sem gjöf Svians til Norðmanna. Eftir að norskir höfðu nýtt sér gjöfina náði leikurinn aldrei sömu reisn og áður — varð heldur litill landsleikur. Sviinn sá um það. íslenzka liðið var áberandi sterkara I leiknum — það var nær stanzlaust i sókn allan siðari hálf- Ragnhildur bœtti tíma sinn mjög Ragnhildur Pálsdóttir, Stjörnunni, bætti tima sinn verulega I 1500 m hlaupi á móti I Arósum i gærkvöldi. HUn hljóp vegalengdina á 4:38.3 min. — sem er nýtt is- lenzkt stUlknamet, en Ragn- hildur er aðeins 17 ára — og bætti tima sinn um átta sekUndur. Ragnhildur varð önnur I hlaupinu — kanadisk stUlka sigraði á 4:35.0 min. í vor setti Ragnhildur Is- landsmet i 1500 m. hlaupi á móti i Arósum, 4:46.3 min. — en siðan hefur Lilja Guð- mundsdóttir, 1R, tvibætt þann árangur — siðast 4:34.0 min. á móti i Stokkhólmi. Þessar snjöllu stUlkur munu keppa fyrir Island á Karlott- leikunum i Tromsö siðast i þessum mánuði — og þá væntanlega hlaupa báðar 800 og 1500 m. Það verður ef til vill eina keppni þeirra gegn hvor annarri i sumar. —hsim, leikinn. En sigurmarkið vildi ekki koma, þó oft væri mikil ólga i norska vitateignum — einkum, þegar Guðgeir Leifsson tók auka- spyrnur eða innköst. Oft lá mark- ið I loftinu, en einhvern veginn bjargaðist allt hjá norskum. Þar var hlutur Eriks Jóhannessonar i markinu ekki lítill. — Hann var i eldlinpnni nær allan leikinn meðan Sigurður Dagsson hafði sáralitið að gera i íslenzka mark inu. Rétt I lokin varð Sigurður þó að taka á honum stóra sinum — honum tókst að koma fremsta kögglinum á löngutöng hægri handar á knöttinn tveimur min. fyrir leikslok, þegar norskir fengu sitt bezta tækifæri i leikn- um. Það nægði — knötturinn hrökk I stöng og siðan var bjargað — en langatöng Sigurðar hrökk einnigUrliði. Fingurinn tvöfaldur eftir leikinn. Þetta var leikur, sem ísland átti skilyrðislaust að vinna — þó ekki léki islenzka liðið allskostar vel. Guðgeir var beztur. — Matthias ógnandi i framlinunni — Marteinn átti snilldarleik i vörn- inni og einnig Jón Pétursson. Jó- hannes stóð fyrir sinu — en hefur leikið betur. Sigurður steig ekki rangt niður fæti i markinu — Bjöm Lárusson kom inn fyrir Gisla Torfason, sem meiddist, og komst allvel frá leiknum. Jón Alfreðsson fékk það erfiða hlut- verk að fylla sæti Ásgeirs Sigur- vinssonar — tókst það auðvitað ekki, en gerði þó margt vel, en framvarðaleikur liðsins var ekki nógu góður i heild. En islenzka liðið er sterkt og átti að vinna —■ já, vinna góðan sigur. — hsim. Björn Lárusson: „Betra skipulag nú en var 1969" Björn Lárusson kom inn á i fyrri hálfleik i stað Gfsla Torfa- sonar, sem meiddist eftir sam- stuðið við Norðmanninn, sem vit- ið fræga var dæmt á. Björn hefur verið varamaður með iandsliðinu í siðustu átta leikjum og aldrei fengið að koma inn á fyrr en nú. Siðasti iandsleikur hans var árið 1969 — i Hamilton á Bermuda — þar sem hann skoraði annað mark tsiands i 3:2 tapleik. „Hlutirnir hafa breytzt siðan þá — sagði Björn og brosti, er við spjöliuðum við hann eftir ieikinn i gærkvöldi. ,,Þá lék ég stöðu mið- herja, en nú er maður orðinn hægribakvörður — eða kominn úr fremstu viglinu i þá öftustu.” Hvaða munur er að leika með landsiiðinu nú og þá? „Það er allt annað og betra skipulag hjá iandsliðinu eins og það hefur verið s.l. tvö sumur en var þá. Það er meiri taktik I þessu núna, og menn vita betur, hvað þeir eiga að gera inni á veilinum. Einnig held ég, að úthaldið sé betra hjá mönnum en það var. Þetta hefur komið með ensku þjálfurunum enda sýnir það sig i árangri okkar i siðustu iands- leikjum, að við höfum mikið af þeim lært.” — klp — Nils Arne Eggen: „Þetta var allt dœmi- gert enskt hjá ykkur „Við vissum um þetta enska ieikskipulag ykkar og vorum þvi viðbúnir að mæta hörku og lát- um,” sagði annar þjáifari norska iiðsins, Nils Arne Eggen, eftir leikinn. ,,Ég held, að við höfum sioppið vel frá þessu — engin stórvægileg meiðsii og menn sæmiiega ánægðir með jafnteflið. Við hefð- um þó átt að sigra, þv! við vorum nær að skora undir lokin. Ég hef bæði leikið á móti og séð islenzkt landsliðið leika, en þetta er það bezta til þessa. Ég skil nú alveg, hvernig staðið getur á þvi, að Austur-Þýzkaland, Frakkland og fleiri hafa lent I vandræðum hér.” Hvernig fannst þér dómarinn dæma? Hann var góður i fyrri hálfleik, /# Gísli Torfason: Það var Norðmaðurinn sem braut — ekki ég ## „Ég fæ engan botn i það, hvernig maðurinn gat dæmt vita- spyrnu á þetta,” sagði Gisli Torfason, sem hin úmdeilda vita- spyrna leiksins var dæmd á. „Ég sá boltann koma I áttina að vítateignum, og um leið, að ég næði honum ekki nema að hlaupa afturábak. Ég sá engan mann nálægt mér og vissi ekkert fyrr en Norðmaðurinn kom með hnéð I mjöðmina á mér og ég féll um koll. Dómarinn benti fyrst á vitalin- una, en breytti siðan dómnum og benti á vitapunktinn. Ég sparkaði aldrei fótunum undan Norð- manninum. Ef ég hef komið við hann, var það eftir að hann hafði sett hnéð I mjöðmina á mér. Höggið var það mikið, að ég varð að fara út af á eftir, og get nú varla stigið i fótinn”. — klp — en dró taum tslendinganna i þeim siðari. Vitaspyrnudómur hans var hárréttur, en hann hefði mátt sýna Tony Knapp gula spjaldið og jafnvel það rauða fyrir framkom- una á eftir. Hún var fyrir neðan allar hellur dæmigerð ensk þjálfaraframkoma, þegar illa gengur hjá þeim.” —klp— Svein Kvia: „Eins og að fara í gegnum hakkavél" ,,Ég hef oft áöur leikið á móti islenzka landsliðinu, en hef aldrei mætt þvi eins sterku og nú,” sagði fyrirliði Norðmannanna, Svein Kvia, eftir leikinn. „Ég vissi, að þetta yrði erfitt, en ekki svona, —enda held ég, að flestum okkar finnist þeir hafa farið i gegnum hakkavél. Við getum vel unað við þessi úr- slit. tsland sótti að visu mun meir, en við áttum hættulegri tækifæri, þegar þau gáfust.” Hvað með vitaspyrnuna? „Ég þori ekki að segja neitt um það — ég var ekki i aðstöðu til þess. En hún var umdeilanleg, það komst maður ekki hjá að heyra og sjá á áhorfendunum.” — Hverjir voru beztir af islenzku leikmönnunum að þinu mati? „Tvimælalaust GuðgeirLeifsson og siðan þeir Jóhannes Eðvalds- son og Marteinn Geirsson. Þeir eru báðir geysilega sterkir leik- menn. Annars var þetta jafnt og gott islenzkt lið.” —klp— * t 'ié''» • • • • , ‘ **"%///+ ' r ^ Æ' Jí Iaa' vm ~ • i' i/ Skoraði — og hefur Ijúfa leikni föður sins Mark tslands er staðreynd — Arni Sveinsson, 19 ára, pilturinn efnilegi frá Akranesi hefur sent knöttinn með hælnum i norska markið. Ljósmynd Bjarnieifur. „Þetta var augljós vítaspyrna á ísland" sagði sœnski dómarinn Ulf Eriksson, sem þó var ekki í aðstöðu að sjá hvort brotið var fyrir utan eða innan vítateig óvinsælasti maðurinn á Laugardalsvellinum . I gærkvöldi var án efa hinn ungi sænski dóm- ari leiksins — Ulf Eriksson — sem þarna dæmdi sinn annan lands- leik um ævina — sá fyrsti var ## ## Jón Alfreðsson: Of mikil harka fyrir minn smekk „Það var einum of mikil harka i þessu fyrir minn smekk,” sagði Jón Alfreðsson frá Akranesi, sem nú lék aftur með islenzka lands- liðinu eftir nær þriggja ára hlé og náði þarna i sinn annan landsleik. „Norðmennirnir voru mjög harðir og gáfu ekkert eftir i ná- vígi. En þeir voru kurteisir inni á vellinum —flestir þeirra a.m.k. — og skemmtilegir andstæðing- ar.” Þú varst nálægt þvi að skora i siðari hálfleiknum? Já, ég hitti boltann i bæði skipt- in ágætlega, en miðið hefði mátt vera utar i annað skiptiö og innar i hitt. Þá hefði maður kannski haft það af að skora.”.. —klp— leikur Austur-Þýzkalands og Pól- lands fyrir þrem mánuðum. „Þetta var mjög erfiður leikur að dæma,” sagði hann, er við töluðum við hann eftir leikinn. „Það var mikið um óþarfa hrind- ingar og spörk á báða bóga, og harkan allt of mikil. Ekkert var gefið eftir og þvi var knatt- spyrnan mjög takmörkuð að minu viti”. Hvað með hina umdeildu vita- spyrnu, sem þú dæmdir á Island? „Það fór ekkertá milli mála, að Islendingurinn spyrnti fótunum undan Norðmanninum. Það sá ég glöggt og hljóp á staðinn, sem var um 25 metrum frá mér, til að sjá hvort brotið hefði skeð fyrir innan vitateig. Það reyndist svo vera, og gaf linuvörður minn þeim megin á vellinum mér merki um það”. En er það ekki strangur dómur að dæma vitaspyrnu á atvik, sem gerist við vitateigshorn, þar sem báðir aðilar snúa baki i markið, og vinna að háum bolta sem kem- ur inn i teiginn? „Það er ekki til umræðu hér. Þetta var vitaspyrna..” — Hvað finnst þér um islenzku áhorfendurna á leiknum? „Þetta eru áreiðanlega góðir áhorfendur að hafa á bak við sig. En það snerti mig ekki þótt þeir væru að baula svona. Við dómararnir verðum að taka þvi eins og öðru. Fólkið kemur til þess.og borgarfyrirþað af sinum aurum, og þvi má það baula og flauta ef það vill min vegna.” — klp — Árni Sveinsson: „Gaman að skora svona með heelnum ## „Þetta var ekki svo erfitt — sagði hinn ungi Akurnesingur, Arni Sveinsson, sem skoraði eina mark tslands i landsleikn- um við Noreg i gærkvöldi. „Ég sá boltann koma fyrir markið lét hann fara á milli fót- anna á mér og tók hann svo meö hælnum, þannig að hann skauzt inn i netið. Þetta var gott upp- hlaup og gaman að taka þátt i þvi á þennan hátt, enda er ég mjög ánægður með að hafa skorað. Þetta var annars erfiður leik- ur — allt of mikil harka I honum — og dómarinn lélegur eins og allir á vellinum sáu.” Arni er, eins og margir vita, sonur Sveins Teitssonar, sem á sinum tima skoraði eitt eftir- minnilegasta mark, sem island hefur gert i landsleik — markið I 1:1 leiknum á móti Danmörku í undankeppni olympiuleikanna á Indrætsparken I Kaupmanna- höfn áriö 1959. Þá hefur Árni verið 3ja ára gamall og litið vitað, hvaða afrek pabbi var að vinna eða hvað þá heldur að hann ætti eftir að leika þetta eftir honum. __klp_ Hafðu þetta, Bommi. Þegar bófarnir hafa samband við þig, get- Mundi lætur Bomma hafa litið senditæki i laginu einsogúr....

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.