Vísir - 11.07.1975, Blaðsíða 5

Vísir - 11.07.1975, Blaðsíða 5
Visir. Föstudagur 11. júli 1975. 5 REUTER AP/NTB ORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTL Umsjón: Guðmundur Pétursson álitinn gg sagði /l/larío Soares, leiðtogi sósíalista á fundi þeirra í gœr og hefur nú flokkur hans sagt „Sósíalistar þola ekki einrœði — hvemig sem það er Heryfirvöld Portúgals eiga nú við einhvern sinn mesta vanda að stríða, síðan þau komust til valda í landinu. Sósíalist- ar, sigurvegarar kosning- anna í apríl, hafa sagt sig úr bráðabirgðastjórninni. Dr. Mario Soares, leið- togi sósíalista og annar ráðherra þeirra í stjórn- inni, kunngerði þetta f gærkvöldi eftir leiftrandi ræðu, sem hann hafði flutt á fundi sósíalista. í ræðunni hafði hann farið beizkum orðum um áætlun herstjórnarinnar að mynda verkalýðsriki undir stjórn kommúnista. Það spurðist um leið út i gær- kvöldi, að leiðtogar næst stærsta flokks landsins, Alþýðudemó- krata, sem sömuleiðis á tvo ráð- herra i bráðabirgðastjórninni, hefðu óskað eftir fundi i dag við sig úr bráðabirgðastjórn Portúgals Francisco Da Costa Gomes for- seta. — Ef þeim er svipað i hug og sósialistum, þá fer ekki á milli mála, að öll eining er úti i Portúgal. Til samans hlutu þessir tveir flokkar 64% atkvæða i kosning- unum i april, meðan kommúnistar, sem vaðið hafa uppi með yfirgangi, fengu að- eins 10%. Hin opinbera ástæða fyrir þvi, að sósialistar segja sig úr stjórninni, er sú, að prentarar (kommúnistar) höfðu sölsað undir sig málgagn þeirra, Republica. Blaðið kom út i gær, gefið út af prenturunum undir vernd hersins. — Herstjórnin hafði þó lofað sósialistum á dög- unum, þegar þeir mættu ekki á rikisstjórnarfundum, að þeim yrði skilað aftur málgagninu, sem og var gert. En hinir her- skáu prentarar lögðu bara aftur undir sig ritstjórnarskrifstof- urnar og siðan hafa hermenn varnað ritstjórnarstarfsliði sósialista inngöngu á skrifstof- urnar. Frelsi fréttamiðla er eitt hita- málanna i Portúgal, þvi að einn af fáum fjölmiðlum, sem ekki var algjörlega á valdi kommún- ista útvarp kaþólskra var þjóð- nýtt á dögunum, og nefnd — mestmegnis skipuð kommúnist- um — var sett til að annast rekstur þess. A fundinum i gær sagði dr. Soares: „Sósiálistaflokkurinn mun aldrei þola einræði, hvernig sem það verður á lit- inn.” Æðstráðendur hersins (valda- mestu menn Portúgals eftir byltinguna) hafa visað á bug ásökunum Soares um að stefna þeirra um rikisstjórn verka- lýðsins muni leiða til einræðis- og lögregluvalds i Portúgal. Goncalves hershöfðingi og for- sætirráðherra ávarpaði útifund kommúnista i gærkvöldi I Lissa- Mario Soarcs veifar til flokksbræðra sinna. bon og þverneitaði þar, að það væri ætlun stjórnarinnar að vana stjórnmálaflokkana. — Réðst hann harkalega á þá, sem hann kallaði „tækifærissinna ævintýramenn og gagn- byltingarsinna ”. En það hafa verið uppáhalds nafngiftir kommúnista á sigurvegara kosninganna. Soares skoraði á forystu hers- ins að gefa til kynna , hvort hún vildi heldur stjórna með minni- hlutanum kommúnistum, eða með meirihluta portúgölsku þjóðarinnar. Undir lokið á fundinum með blaðamönnum I London I gær færði James Callaghan utanrikisráðherra Denis Hills gjöf að skilnaði. Það var vegabréf Hills, sem Amin forseti hafði fengið Callaghan, þegar þeir kvöddust á flugvellinum I Kampala. — Hills situr til vinstri á myndinni hér tii hliðar. FRÚ PERON SKIPAR NÝJA RfKISSTJÓRN Eilífar afmœlisveizlur Geimferðaryfirvöldin sovézku hafa beyg af afmæl- isveizlum þeirra Sevastvanovs og Klimuks uppi i Saljut 4 geimstöðinni, þar sem þeir eru búnir að hring- sóla umhverfis jörðina i 47 daga — sem er reyndar sovézkt met. Um daginn var Sevastvanov fertugur og gæddi sér — i til- efni dagsins — á laukum, sem ræktaðir hafa verið I tiirauna- skyni þar uppi i Saijut 4. Þegar röðin kom svo að Pyotr Klimuk að eiga afmæli, — hann varð 33 ára i gær — þá var aftur siegið upp lauk- veizlu. En þá var geimferðar- stjórninni nóg boðið og bað þá félaga endiiega að skilja eitt- hvað eftir af laukunum, sem koma mætti niður til jarðar til rannsóknar. Maria Estela Peron, forseti Argentinu, kunn- gerir i dag, hverjir taka munu sæti i nýrri rikis- stjórn hennar, og verður þá naumast liðinn sólar- hringur frá sprengjutil- ræðum, sem gerð voru i iðnaðarborginni Cor- doba af skæruliðum, sem heimta, að Maria Estela Siln’on verði látin vikja. Skæruliðar þessir kalla sig „Montoneros” ogkoma úr röðum öfgafullra vinstrisinna Peronista. Réðust þeir á lögreglustöðvar með skriðdrekabönum og hand- sprengjum og kveiktu auk þess I 20 verzlunum. Svona eins og til að auka áhrifin, þá sprengdu þeir upp ritstjórnarskrifstofur tveggja blaða. Aróðursmiðar, sem þeir skildu eftir sig, báru orðsendingar til verkalýðsins um „að sparka út Martinezstelpunni” (en bað var ungfrúarnafn forsetans). Menn búast við þvi, að Maria Peron láti ekki Lopez Rega, ráð- gjafa sinn, öðlast sæti i nýju stjórninni, en uppi hafa verið há- værar kröfur um að hann yrði lát- inn vikja. „Gott fyrir bakveika", sagði Hills um steingólfið í fangelsi Kampala, en þáði þó með þökkum að sofa í rúmi í nótt í fyrsta skipti i margar vikur fékk Denis Hills rúm i nótt til að sofa i, eftir að honum var sleppt úr fangelsi i Uganda i gær. Eftir að vera laus úr Kampalafangelsinu gerði Hills að gamni sinu við blaðamenn, sem hittu hann við komuna til Londan i gærkvöldi, og sagði þeim frá þvi, að hann hefði orðið að sofa á steingólfinu i svarthol- inu. ,,Það er góð lækning fyrir bakveika,” sagði hann. Hills sagðist vonast til þess að geta snúið einn góðan veður- dag til Uganda og tók James Callaghan utanrikisráðherra, sem flutti Hills með sér heim frá Afriku, samsinnandi undir þær framtiðarhorfur. Callaghankvaðst bjartsýnn á, að fundur þeirra Amins Ug- andaforseta kynni að leiða til nýrra og betri samskipta milli Bretlands og Uganda. Amin hafði sagzt gjarnan vilja fá fleiri Breta til Uganda. En þeir 700 brezku rikisborgarar, — sem i Uganda búa, höfðu ekki yfir neinu að kvarta, þegar Callaghan hitti að máli fulltrúa þeirra, meðan hann hafði við- komu I Kampala. Amin gekkst inn á það að veita móttöku nefnd brezkra embættismanna, sem á næst- unni verður send til Uganda til viðræðna um bætur til handa Asiufólkinu, sem Amin flæmdi á sinum tima úr landi. Hills kvaðst ráðinn i að gefa út bókina, sem varð til þess að hann var handtekinn. — „En ég mun gera á henni nokkrar breytingar og gjarnan bæta ein- hverju við,” sagði hann. 1 bók- linni mun hann hafa farið óvægi- legum orðum um Amin á einum stað. Hills kvaðst ekkert hafa út á fangavistina að setja og sagði, að meðferðin á sér hefði öll verið reglum samkvæmt. Af blaðamannafundinum hélt hann til heimilis bræðra inna i Birmingham, þar sem hann mun dveljast um sinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.