Tíminn - 07.09.1966, Blaðsíða 1
SJówS Iðnsýrdnguna
202. tbl. — Miðvikudagur 7. september 1966 — 50. árg.
Strandaði
í Sandvík
[HHMHHHHHSEððuVÁ * wi*- < -
KT-Reykjavík, þriðjudag.
Á fimmta tímanum í nótt strand
aði norska skipið „Gesina“ í Sand-
vík, norðan Gerpis. Níu manna
áhöfn bjargaðist í land. Voru
mennírnir fluttir til Neskaupstað-
ar með varðskipinu Þór, en síð-
an fóru þeir til Seyðisfjarðar.
Milli kl. 4 og 5 í nótt sendu
bátsverjar á Gesina út neyðarkall,
en gátu ekki sagt með vissu, hvar
þeir væru niður komnir. Veður
var um þetta leyti hið versta, 8—9
vindstig og stórsjór. Bátsverjar
voru beðnir um að lýsa staðnum
og sögðust þeír sjá radíómastur.
Var af því dregin sú ályktun að
þeir væru staddir í Sandvík við
Gerpi.
Sjálfir höfðu þeir helzt talið,
að þeir væru út af ‘^lettingi enda
munu þeir hafa verið á leið til
Noregs eftir veiðiför hingað til
lands, en ætluðu þó að koma við
á Seyðisfirði, áður en lengra væri
haldið.
Björgunarskipið Goðinn og varð
skipið Þór buðu aðstoð sína þegar
og var varðskipið fengið til þess
að flytja björgunarsveit frá Nes-
kaupstað að Stuðlum á Barsnesi,
en þaðan urðu björgunarmenn-
irnir að ganga yfir nesið, sem er
erfitt yfirferða. Tók gangan tæpa
tvo tíma.
Er björgunarsveitin kom að
skipinu, hafði sandur hlaðizt að
því og var því hægt að vaða út
í skipið, og gátu björgunarmenn-
Framhald á bls. 14
myrtur
NTB—Höfðaborg, þriðjudag.
Dr. Hendrik Verwoerd, forsætisráðherra Suður-Afríku og höfund-
ur kynþáttastefnu stjórnar hvíta minnihlutans í landinu var myrtur i
þióðþinginu í Höfðaborg síðdegis í dag. 35 ára gamall hvítur maður
af grískum og portúgölskum uppruna, starfsmaður i þinginu, réðist í
einkennisbúningi sínum að dr. Verwoerd sitjandi í ráðherrastól sínum
og stakk hann með hnífi þrisvar í hnakka og brjóst í þann mund
að þingklukkurnar boðuðu þingfundarsetningu.
Forsætisráðherrann hné út af í blóði sínu en margir þingmenn
köstuðu sér yfir morðingjann og afvopnuðu liann. Dr. Verwoerd Iézt
af áverkunum skömmu síðar. Ekki er getið um, hvaða hvatir eða ástæð
ur hafa legið til morðsins. Verwoerd, forsætisráðherra var 65 ára
gamall.
Dr. Hendrik Verwoerd
ÞATTTAKA I
ÞOni OF KOSTNADARSOM
Fjórir þingmenn, sem jafnframt
eru læknar hlupu strax til hins
helsærða manns og reyndi einn
þeirra munn-við-munn aðferðina,
meðan beðið var eftir sjúkrabíl.
Þrem stundarfjórðungum síðar
lýsti Ben Schoeman, samgöngu
málaráðherra og forseti þingsins
því yfir fyrir þingheimi. að for
sætisráðherrann myndi vera lát
inn og' rétt á eftir kom opinber
staðfesting þess efnis. Hafði for
sætisráðherrann verið látinn við
komuna til sjúkrahússins.
Banamaður forsætisráðherrans
var sendiboði þingsins og var auð
séð að dr. Verwoerd áleit hann
vera að koma með skilaboð til
sín, er hann gekk að ráðherra-
borðinu. Dr. Verwoerd halláði
sér fram, sýnilega til að hlusta
betur, er sendiboðinn dró upp stór
an rýting og réðist til atlögu. Ver
woerd lyfti upp annarri hendi til
varnar, en of seint. Blóðið
streymdi niður brjóst hans og á
grænt gólfteppið.
Morðinginn, Dimitri Stafendas
hóf störf sem sendiboði í þing
inu fyrir tæpum mánuði. Félögum
sínum á hann að hafa sagt, að fað
ir hans væri grískur og móðirin
portúgölsk. Félagar hans telja
hann einhvers staðar milli þrítugs
og fertugs. Hann er hár og vel
byggður maður með grásprengt
hár. Félagar hans töldu hann búa
einan og héldu að hann hefði get
að talað átta tungumál. Hann á
að hafa búið um tíma í portúgölsku
nýlendunni Angola og Mozamb-
ique. Á hann að hafa unnið um
tíma sem dómtúlkur í Durban.
Stafendas starfaði raunverulega
í blaðaherbergi þinghússins og
átti venjulega ekki erindi í þing
salinn sjálfan. Blaðamönnum á
' Fh-amhald á 2. síðu
SITUR 2
ÁR ENN?
NTB—New York, þriðjudag.
Haft er eftir áreiðanlegum heim
ildum í aðalstöðvum Sameinuðu
þjóðanna í dag, að likur séu til að
U Thant, framkvæmdastjóri sam-
takanna muni fást til að gegna
starfi sínu tvö ár í viðbót ef örygg
isráðið fer þess á leit við hann
og enginn annar frambjóðandi
verður.
Er fréttamenn spurðu U Thant,
hvort afsagnarbeiðni hans væri ó-
afturkallanleg, færðist hann und
an að svara.
Framkvæmdastjórinn kom til
aðalstöðvanna eftir 5 daga fri, sem
hann fór í strax eftir að hann hafði
Fremhald á bls. 15.
MaaBHnmaanaHRaHMiwmHBaBBHBi
IGÞ—Reykjavík, þriðjudag. i Iðnaðardeildar Sambandsins og
Tíminn sneri sér til Harry j spurði hann hversvegna Samband
Frederiksen, framkvæmdastjóra i ið tæki ekki þátt í iðnsýningunni
í ár, en vitað væri að Samvinnu j
félögin starfræktu inargar af
Harry Frederiksen
stærstu verksmiðjum landsins.
Harry sagði að málið liefði verið
atugað mjög gaumgæfilega en
kostnaðarins vegna hefði ekki ver
ið talið rétt að taka þátt í iðnsýn
ingunni í ár. Hann sagðist vel
skilja þýðingu þess fyrir iðnaðimi
að hafa vörusýningar öðru hvoru,
svo hægt væri að sýna landsinþnn
um hvað íslenzkur iðnaður megn
aði að gera, og það hefði iðnaðar
deild Sambandsins gert allt frá
stofnun deildarinnar árið 1949.
Sýningar hefðu verið haldnar bæði
hérlendis og erlendis og að
minnsta kosti annað hvort ár
væru haldnar sölusýningar eða
iðnstefnur á Akureyri og síðast i
ágústmánuði 1965. Það væri að
sjálfsögðu kostnaðarminna að
halda sýningar á Akureyri þar
sem verksmiðjuðrnar væru stað-
settar, heldur en flytja starfsfóllúð
og vörurnar hingað til Reykiavík
ur. Harry minnti á að samvinnu
iðnaðurinn hefði átt langsamlega
stærstu deildina á íðnsýningunni
í rðnskólahúsinu 1952 og árið 1963
sýndi samvinnuiðnaðurinn hinar
! fjölbreyttu framleiðsluvörur sínar
1 í hinu nýja verzlunarhúsi Sam-
j bandsins og Samvinnutrygginga
! við Ármúla. Með þessu vildi Hatry
undirstrika að sér væri vel ljóst^
hvers virði sölusýningar væru
yfirleitt, en hann sagði að auglýs
ingu væri líka hægt að borga of
dýru verði, þegar erfiðleikar steðj
uðu að. Hann sagði ennfremur að
það væri engin launug að iðnaður
samvinnufé'laganna hefði ekki far
ið varhluta af því ófremdarástandi
sem ríkt hefði hér undangengin ár
i iðnaðarmálum landsmanna, eins
og þegar væri vel kunnugt, enda
hefðu margar verksmiðjur í land
inu orðið að leggja niður starfsemi
sína eða draga seglin ailverulega
saman, vegna síhækkandi rekstrar
kostnaðar og þá aðallega kaup
Fremhald á bls. 15.
BORTEN KEMUR
HINCAD í KVÖLD
! FB—Reykjavík. þriðjudag.
I Annað kvöld kemur hing-
! að til Iands í opinbera heimsókn
j Per Borten forsætisráðherra Nor
| egs, og i för með honum verður
kona ltans. Munu þau dveljast hér
fram til 13. september og ferðast
víða um land.
Á fimmtudaginn mun forsætis
ráðherrann heimsækja forseta fs-
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson og
að því loknu ræðir hann við dr.
Bjarna Benediktsson forsætísráð-
herra og’ Emil Jónsson utanríkis
ráðherra. Stutt athöfn verður við
leiði Norðmanna í Fossvogskirkju
garði, en síðan snæða forsætisráð
herrahjónin að Bessastöðum. Síð-
degis verður ekið um Reykjavík
•i° borgin og nágrenni hennar skoð
að og m. a. farið að Mógilsá. Ríkis
Fremhald á bls. 15.
Per Btuten
I