Vísir - 19.08.1975, Blaðsíða 16
Brauzt inn
— til að gera
þarfir sínar
Starfsfólk i skólagörðunum
neðan Hringbrautar kom að illa
útleiknum vinnustað i morgun.
Brotizt hafði verið inn i vinnuhús
með þvi að mölva rúðu og úlpur
rifnar og aðrir munir tættir, þeg-
ar inn var komið.
Að þessari athöfn lokinni þurfti
innbrotsmaðurinn skyndilega að
ganga örna sinna. Svo heppilega
vildi þó til, að hann kom auga á
gamalt Morgunblað og breiddi
hann það snyrtilega á gólfið áður
en hann athafnaöi sig.
Að þessum afrekum ioknum
hélt maðurinn út fyrir, rótaði i
beöum skólabarnanna og tók með
sér nokkuð af grænmeti. —JB
Guömundur tefldi við John Nunn, Englandi, ifyrstu umferðinni.
„Lék hroðalega af mér"
„Ég tapaði fyrstu
skákinni í fyrradag og sat
yfir í gær", sagði
Guðmundur Sigurjónsson
stórmeistari i símaviðtali
i morgun.
,,Ég tefldi við John Nunn,
hafði svart og lenti i smáerfið-
leikum i byrjun en var búinn að
jafna taflið, þegar ég lék hroða-
lega af mér”.
Guðmundur tefldi i fyrstu um-
ferðinni við John Nunn, Eng-
landi, alþjóðlegan meistara og
Evrópumeistara unglinga.
Guðmundur teflir i kvöld við
stórmeistarann Timman, Hol-
landi. Timman og ungverski
stórmeistarinn Sax eru efstir
eftir tvær umferðir með einn og
hálfan vinning hvor.
Alls verða tefldar 10 umferðir
á þessu sterka móti, sem fer
fram i London. Þarna tefla
fimm stórmeistarar.
Guðmundur á, þegar þessu
lýkur, eftir að tefla á fjórum
mótum fram að áramótum.—HH
ÞRJÚ SLÖSUÐ IFT-
IR ÁREKSTUR VIÐ
SANDFLUTNINGABÍL
Japanski fólksbfllinn er ónýtur eftir áreksturinn í morgun, þar sem
þrir slösuðust. Ljósmynd Bragi
Kona og tveir unglingar
slösuðust I geysihörðum
árekstri við sandflutningabil I
morgun. Konan og unglingarnir
tveir voru flutt meðvitundar-
Iaus af slysstað. Unglingarnir
tveir voru að komast til meðvit-
undar er blaðið fór i prentun.
Konari var öllu meira slösuð,
en hún var þó eigi talin i lifs-
hættu.
Areksturinn varð laust eftir
klukkan niu við Nesti við Elliða-
vog. Japanskur fólksbill úr
Reykjavik var að aka niður með
Nesti I átt að Elliðavogi er
á móti henni kom tiu hjóla sand-
flutningabill, sem snögglega
beygði inn að Nesti i veg fyrir
fólksbilinn.
Fólksbillinn náði ekki að
hemla fyrr en rétt i þann mund,
er hann skall á stóra bilnum.
Areksturinn varð þvi geysi-
harður og gekk framhluti sand-
flutningabilsins langt inn i
fólksbilinn, sem telja má ónýtan
eftir.
-JB.
Sþ geta aðeins vakið
athygli ó óréttlœti
eitt eða neitt, heldur geta þær
einungis vakið athygli á órétt-
læti,” sagði Helvi Sipiia.
Hvað hefur gerzt eftir að
ráðstefnunni i Mexico lauk?
í Genf var haldinn fundur
tveimur vikum eftir að fundin-
um lauk i Mexico. Þar voru
mættir fulltrúar frá öllum
stofnunum S.Þ. Var ætlunin
með þessum fundi, að reyna að
fá fram, hvað ætti að gera, og
leitast við að samræma það.
Aðalvandamálið væri, hversu
þjóðirnar væru margar
ogástandið ólikt, þannig að ekki
þýddi að setja af stað neina eina
herferð. Þessi miðstýring, sem
miðar að 10 ára áætlun, á hins
vega að koma i veg fyrir, að
árekstrar verði.
Hver eru aðalvandamálin,
sem blasa við i dag?
Helvi Sipila áleit, að með
tilliti til þess, að hvergi geisaði
strið i heiminum og pólitikusum
kæmi nokkuð vel saman, væri
efnahagsástandið efst á baugi.
Fátæktin og neyðin i þróunar-
löndunum hlyti að hvila á öllum
heiminum. „Það má hins vegar
ekki gleyma manneskjunni eins
og gerzt hefur viða, þegar
áætlanir um stórbættan efnahag
eru gerðar,” sagði Helvi.
Hvað næst með þvi að vekja
konur til umhugsunar jafnvel
viða til óánægju, með stöðu
sina?
„Um leið og við bætum kjör
kvenna, þá bætum við ekki að-
eins uppeldi og aðbúnað barna
okkar, heldur allt þjóðfélagið,”
sagði kvennaárshöfundurinn,
sem trúir einlæglega á, að árið
verði til þess, að hvert land liti i
eiginn barm. -BA.
— segir Helvi Sipila, hugmyndafrœðingur kvennaársins
Hver er hún finnska konan,
sem kom fram með hug-
myndina að kvennaárinu? Helvi
Sipilá, sem er upphafsmaður og
framkvæmdastjóri þessa árs á
vegum Sameinuöu þjóðanna, er
nú stödd i Reykjavik. Hún situr
hér lögfræðingaþingið, ásamt
maka sínum.
Hún sagði, að það væri friið
sitt I sumar og hefði hún sótt öll
lögfræðingaþing frá 1948. Aður
en Helvi Sipilá hóf störf hjá
Sameinuðu þjóðunum, rak hún
málflutningsstofu i Finnlandi.
Arið 1972 varhún ráðin til starfa
hjá Sameinuðu þjóðunum við
félagslega þróunaraðstoð. Aöur
hafði hún verið fulltrúi
Finnlands á fundum allsherjar-
þingsins.
Hafði hún yfirumsjón með
þriðju nefnd þingsins, sem
fjallaði um þjóðfélagslega
framþróun.
Er hún var beðin að rekja
aödraganda kvennaársins sagði
hún, að það hefði verið i Genf
árið 1972 sem hugmyndin kom
fyrstfram. Siðan hefði þurft til
samþykki allsherjarþingsins og
hefði hún verið svo heppin að
vera i þeirri aðstöðu að hafa
áhrif þar.
„Mér var-siðan falið að sjá
um framkvæmd þess, en hins
vegar voru sjóðirnir rýrir að
venju, svo að ég varð að halda
áfram við min vanalegu störf,”
sagði Helvi Sipilá' hlæjandi og
benti á hversu „typiskt” þetta
væri fyrir kröfurnar sem gerðar
væru til kvenna.
Helvi Sipila vill berjast og trúir á mátt samtaka kvenna.
— Hvaða árangur hefur náðst
með þessu ári?
Frúin sagði, að ekkert væri i
rauninni hægt að segja um það
ennþá. Arið hefði fyrst og
fremst verið ætlað til þess að
kveikja eldinn. Umræður og at-
huganir á stöðukvennaumallan
heim hafa farið fram. Margt
hefur komið fram i dagsljósið,
sem ekki var vitað um áður.
Einstök lönd sagði hún, að hefðu
mjög endurskoðað laga-
setningar á þessu ári. Hins veg-
ar væri ekki hægt að segja fyrir
um, hversu mikið af þessu
næði fram að ganga.
„Sameinuðu þjóðirnar geta
ekki boðið löndunum að gera
Rannsókn á umfangs-
miklu hassmóli í gangi
Rannsókn á umfangsmiklu
hassmáli er nú i fuilum gangi
hjá fikniefnadómstólnum. Að
sögn Asgeirs Friöjónssonar,
fikniefnadómara, er litið hægt
að scgja um málið meðan
rannsókn stendur yfir annaö
en það, að það er umfangs-
mikiö.
Það var fikniefnalögreglan,
scm fann töluvert hassmagn i
heimahúsi fyrir stuttu og hef-
ur sá fundur spunnið utan um
sig önnur mál, bæði varðandi
innflutning á hassi og öðrum
efnum.
t framhaldi af fyrsta hass-
fundinum var piltur um
tvitugt settur i gæzluvarðhald,
þar sem hann situr enn.
-JB.
ism
Þriðjudagur 19. ágúst 1975
KVEIKT í
W W'
BAT I
EYJUM
Kveikt var i eikarbáti I Vest-
mannaeyjahöfn i nótt. Töluverðar
skemmdir urðu á bátnum, en
brennuvargurinn gengur enn
laus.
Það var skömmu eftir klukkan
eitt i nótt, sem tilkynnt var úr bát
i Vestmannaeyjahöfn, að eldur
væri kominn upp i Sjöstjörnunni
VE-92, 53 tonna eikarbáti,' sem
smiðaður var 1949.
Lögreglan kom þegar á staðinn
og stóð þá eldur úr lúkarnum
Lögreglunni tókst að halda eldin*
um i skefjum og loka lúkarnum,
þar til slökkviliðið kom á vett-
vang nokkrum minútum siðar.
Ekki mátti þvi tæpara standa,
að eldurinn yrði það magnaður,
að ekki yrði við hann ráðið. Er
slökkviliðið kom á staðinn, tókst
fljótlega að slökkva eldinn.
Við rannsókn kom i ljós, að
kveikt hafði verið i einni kojunni,
en báturinn hafði komið inn fyrr
um kvöldið. Unnið er að frekari
rannsókn málsins, en ikveikju-
maðurinn hefur ekki fundizt enn.
____________________-JB.
Kaupmanna-
hafnarferð ó
12.500 kr.
Það var ekki ónýtt fyrir þá,
sem voru i ferðahug i siðustu
viku, að eiga framsóknar-
flokksskirteini. Gegn einu
sliku var hægt að fá ferð fram
og aftur til Kaupmannahafnar
fyrir 12.500 krónur, með Air
Viking.
Það er nokkuö algengt, að
stjórnmálaflokkar og ýmis
félagasamtök geri samninga
um ódýrari ferðir fyrir flokks-
menn sina, cnda er þá reiknað
með hópferðum i flestum
tilfellum. Hins vegar munu
fáir, ef nokkrir — hafa náð
betri samninguin en fram-
sóknarmenn i þetta skipti.-ÓT.