Vísir - 28.08.1975, Blaðsíða 3
Visir. Fimmtudagur 28. ágúst 1975
3
Endurskoðun fjárhogsáœtlana
— eftir að tekjurnar liggja á hreinu
,,í staö þess aö endurskoöa
fjárhagsáætlunina munum viö
draga úr framkvæmdum og
ákveönir hlutir veröa ekki settir i
gang”, sagöi Bjarni Einarsson,
bæjarstjóri á Akureyri, er haft
var samband vegna endur-
skoöunar fjárhagsáætlana, sem
víöa standa yfir. Sagöi Bjarni, aö
ekki heföi reynzt þörf á aö endur-
skoöa hana, eftir að tekjur bæjar-
ins lágu ljósar fyrir.
Þetta dugar þó ekki alls staðar
til. Viða reynast niðurstöðutölur
eftir álagningu allt aðrar en
gengið var út frá við gerð fjár-
hagsáætlunar.
Kópavogsbúar verða að horfa
upp á niðurskurð á ýmsum svið-
um. Framlag til fræðslumála var
skorið niður um 10,7 milljónir.
Fresta verður byggingu íþrótta-
húss við Digranesskóla. Bóka-
safnið biður enn eitt árið eftir
nýju húsnæði. Dregið verður úr
hraða við viðbyggingu Digranes^-
skólans sem og byggingu leik-
skóla.
Þá var hætt við að kaupa nýjan
strætisvagn.
„Hjá okkur hefur endurskoðun
ekki ennþá farið fram, en það
verður væntanlega um miðjan
september”, sa'gði Kristinn 0.
Guömundsson, bæjarstjóri i
Hafnarfirði. Tekjur bæjarins hafa
þó minnkað allverulega, þar sem
framleiðslugjaldið af álinu er
nokkrum tugum milljona lægra í
ár en fyrra.
Jóhann Einvarðsson, bæjar-
stjóri i Keflavik, sagði, að endur-
skoðun áætlunar stæði nú yfir.
Heföi hún fyrst og fremst farið
fram vegna ákvörðunar, sem
bæjarstjórn tók i vetur. Hins veg-
ar væru tekjur alls ekki svo frá-
brugðnar þvi, sem gengið var út
frá.
— BÁ
Mallorcaprísar
í Húsavíkursól
— Hér er glampandi sól og
steikjandi hiti, berjamóarnir
svartir og bláir af berjum og
ekki nema klukkutlmi I ýmsar
áttir til aö komast á nokkra feg-
ustu staöi landsins, sagöi Einar
Olgeirsson, hótelstjóri á Húsa-
vfk, viö VIsis I gær.
— Við ætlum því að reyna aö
laða til okkar fólk úr
dumbungnum fyrir sunnan og
bjóðum frá og með deginum i
dag gistingu og fullt fæði fyrir
3500 krónur á sólarhring, fyrir
manninn.
— Þetta er nýjasta hótel á
landinu og er sérlega þægilegt
og skemmtilegt. Þetta tilboð er
miðað við, að fólk stoppi I
minnst tvo daga. Það væri lika
synd og skömm að stoppa skem-
ur. Fólk getur tekið lifinu meö
ró hérna á hótelinu, eða þaö get-
ur skroppið I smáferðir að As-
byrgi, Hljóðaklettum I Mý-
vatnssveitina eða á aðra fallega
staði. Af þeim er nóg á þessum
slóðum. Þeir, sem ekki hafa
komizt til Mallorca, geta fengið
hér góðan sumarauka fyrir lltiö
verö. — ÖT.
Ekki niðurgreidd og
því tiltölulega dýr
„Þaö er óvenjumikið til af sviö-
um núna”, sagðiGuðjón Guöjóns-
son hjá afurðasölu S.Í.S., en nú
hefur veriö auglýst iækkun á sviö-
um, sem nemur 70 krónum á
hvert kílö i smásölu. Verðiö fer
því niður i kr. 227 Ur kr. 297.
Guðjón sagði, að ýmislegt kæmi
til. Heldur hefði verið flutt minna
út til Færeyja i ár. Þá væri það
einnig það, að svið væru ekki
niðurgreidd eins og dilkakjöt og
verðið því óeðlilega hátt, sem
leiddi aftur til þess, að minna er
keypt af þeim.
Algengt var hér áður fyrr, að
útsala væri á sviðum á haustin, en
hún hefur ekki verið i 3 ár. Sam-
bandið á um 70 tonn af sviðum
óseld.
Að sögn Guðjóns ætti að verða
nóg dilkakjöt fram að haust-
slátrun, nema þá helzt i 1. flokki.
Vigfús Tómasson hjá Slátur-
félagi Suðurlands sagði, að enn
væru þeir ekki komnir með sviðin
á útsölu, en þess yrði vart langt
að bíða. Þeir eiga þó mun minna
magn en Sambandið eða aðeins
um 10 tonn óseld.
Hann sagði, að birgðir væru að
minnka af dilkakjöti hjá þeim og
myndu ekki gera meira en rétt
hrökkva fram að haustslátrun,
sem venjulegast hefst 12.-15,
september. — EVI
Verða eldisstöðvarnar vinsœlustu lax- og silungsveiðistaðirnir?
EINN LAX EÐA SEX SILUNGAR
INNIFALDIR I VEIÐILEYFINU
Fyrir skömmu var
byrjað að selja veiðileýfi
í lóninu við eldisstöðina í
Kollafirði. Að sögn
veiðimá lastjóra Þórs
Guðjónssonar er um
tilraunastarfsemi að
ræða.
t þessu lóni er bæði fiskur frá
eldisstöðinni sjálfri svo og
sjógenginn fiskur. Þegar lónið
er orðið fátækt af fiski, þá er
bætt fiski i það frá eldisstöðinni.
Sagði Þór , að svona starf-
semi við laxeldisstöðvar væri
mjög algeng erlendis.
Leyfðar eru fjórar stangir
samtimis i loninu i fjóra tima i
einu eða frá 8-12 f.h. og 2-6 e.h.
Aðeins er leyfilegt að veiða á
flugu og maðk. Veiðileyfið er
selt á 1500 krónur, innifalið i þvi
er einn einn lax eða sex silung-
ar. Ef veiðin er umfram þetta,
þá verður aö greiða kiló-
þungann, sem umfram er, en
kilóið af laxinum er selt á 400
krónur og silungskilóið á 300
krónur.
Sagði Þór, að geysimikil
aðsókn hefði verið að lóninu og
þarna væri alltaf örugg veiði.
Fólki þætti þægilegt að geta
skroppiö i veiði svona stutt frá
borginni. Tilraunastarfsemin
mun standa út ágústmánuð og
eitthvaö fram I september. Ef
hún reynist vel, verður að öllum
likindum áframhald á henni.
Þeir, sem stundað hafa veiði
þarna fram að þessu eru mjög
ánægðir með veiðina, sagði Þór
aö lokum.
-HE.
Leikhúsfólk aftur til Kanada?
Leikflokkur og kór Þjóöleik-
hússins stóö sig sannarlega vel i
Kanada og Bandarlkjunum. Sýn-
ingum flokksins var ákaflega vel
tekiö, og viö brottförina var kom-
iö aö máli viö forsvarsmenn hóps-
ins um að koma aftur á ts-
lendingaslóöir, og fara þá viöar
yfir og syngja og sýna viöar. Af
þessu getur þó tæplega oröiö fyrr
en haustiö 1976.
Þetta er i fyrsta skipti, sem
Þjóðleikhúsiö sýnir utan Evrópu.
Þetta er einnig lengsta leikför
þess hingaö til og fjölmennasti
hópur, sem sýnir á vegum þess
erlendis.
1 hópnum voru 48 manns á veg-
um leikhússins, auk mennta-
málaráöherra og þjóðleikhús-
stjóra. Gunnar Eyjólfsson tók
saman dagskrána og Carl Billich
stjórnaði söngnum.
A þeim þremur vikum, sem
ferðin tók.kom listafólkið fram 16
sinnum, og voru undirtektir alls
staðar mjög góðar. Dagskránni,
sem nefndist „Þó þú langförull
legðir”, var ætlað að rifja upp
menningararfleið islenzkumæl-
andi manna.
Það, sem af er þessu ári, hafa
listamenn frá Þjóðleikhúsinu sýnt
i samtals 10 löndum.
— EA
Magnús Guölaugsson verzlunareigandi meö steininn, sem piltarnir
vörpuöu I rúöuna. — Ljósm.MH
Stólu skarti í
allra augsýn
Drukknir piltar í
Hafnarfirði frömdu
þjófnað svo að segja
um hábjartan dag, er
þeir brutu rúðu i skart-
gripaverzlun Magnús-
ar Guðlaugssonar á
laugardagskvöldið um
kl. 9.
Piltarnir voru mjög drukknir,
er þeir gripu stóran stein, sem
þeir fundu á Strandgötunni, og
brutu með honum rúðu I
verzluninni og hreinsuðu burt
skartgripi og úr fyrir um 200
þúsund krónur.
Þegar þjófnaðurinn var fram-
inn, var fjöldi manns á ferðinni
um götuna. Fljótlega tókst þvi
að hafa hendur I hári piltanna
og náðist þýfið af þeim.
MEÐ PENSIL VIÐ HÖND
FRÁ BARNÆSKU
„Þessi er seld á 85 þúsund
krónur. Jú, vist sé ég eftir
henni. Þetta er min uppáhalds-
mynd”, segir Steinþór Marinó
Gunnarsson, málari, um leiö og
hann sýnir okkur myndina ,,Sæ-
barin strönd” á Kjarvalsstöö-
um. Þar sýnir hann um þessar
mundir 88 myndir. Þar af 8 lág-
myndir, 30 vatnslitamyndir og
50 oliumálverk.
Steinþór segir okkur, að hann
hafi eignlega veriö með pensil i
höndunum frá barnæsku. Allt
frá þvl að hann sat hjá ánum i
önundarfirði aðeins 9 ára gam-
all. t þá daga var mikið um
álagabletti og huldusteina, sem
ekki mátti koma nálægt eða við.
Enda málar hann mikið
náttúrumyndir, mikið hraun, en
fjaran heillar hann þó mest. Eru
slikar myndir áberandi á sýn-
ingunni.
Milli þess sem hann málar
myndir, geta húsbyggjendur
leitað til hans, þvi að hann er
málarameistari.
Hann hefur selt 8 myndir, þar
af eina, sem fara á I Bókhlöðuna
á Akranesi, en þar bjó Steinþór i
nokkur ár, en nú er hann Reyk-
vikingur i húð og hár.
Sýningunni lýkur sunnudag-
inn 31. ágúst.
— EVI