Vísir - 28.08.1975, Side 7
Jack Nicholson hefur fjórum
sinnum komið til greina við út-
hlutun Óskarsverðlauna fyrir
beztan leik, en aldrei hlotið þau.
Skipt um persónu
Efnið i myndinni „The
Passanger” fjallar um Locke
nokkurn (Jack Nicholson) sem
náð hefur miklum frama sem
sjónvarpsfréttamaður. Hann er
einn á ferð um eyðimerkur
Norður-Afriku iþeim tilgangi að
hafa tal af skæruliðahópum,
sem þar hafa bækistöðvar.
Aform Locke misheppnast
þrátt fyrir mikið erfiði — og
þegar Land-Rover jeppi hans
festist að lokum i sandhólunum,
lætur hann reiði sína bitna
óspart á honum.
Locke finnur að það hallar
undan fæti i einkamálum h.ans
jafntog starfi, og þegar maður,
sem hann hafði kynnzt a af-
skekktu hóteli, læzt snögglega
af hjartabilun, ákveður Locke
að vixla nöfnum við hann. Hann
lætur sem það sé Locke, sem
lezt, en gengur sjálfur út af
hótelinu sem Robertson, sem
hann veit litil deili á.
A flóttanum frá persónu sinni
kynnist Locke stúlku (Maria
Schneider) sem er að ferðast
um i leit að sérstæðum bygging-
um.
Kona Locke er á hælum hans i
þeirri trú, að hann sé Robert-
son, maðurinn sem siðast sá
Locke á lifi, en Locke kemst að
þvi að hann er ekki einungis að
flýja konu sina og persónu sina,
heldur eru á hælum hans menn,
sem vilja Robertson feigan.
Einstök myndbygging
Kvikmyndaaðdáendur hafa
stundum nefnt, Antonioni „hinn
sanna meistara kvik-
myndanna.” í þessari mynd
sem og fyrri myndum Antonioni
er litanotkun, myndamál og
hljóðsetning með einstaklega
listrænu sniðu.
Antonioni er meistari
tækninnar fremur en sögunnar,
en i myndinni „The Passanger”
hjálpar hún þó til við að skapa
spennu i myndinni, sem nær
hátindi i sérkennilegu lokaat-
riði.
Við sjáum þar Locke og
stúlkuna koma inn á herbergi á
litla hótelinu á Spáni. Locke
leggst irúmið en stúlkan gengur
út. Næst er langt óklippt atriði,
þar sem myndavélinni er beint i
gegnum hótelgluggann og út i
stórt rykugt þorpstorgið.
Stúlkan gengur inn i myndina
og fjarlægist siðan, um leið og
hún gengur yfir torgið. Það
heyrist i' bil, sem nálgast, en
hann stanzar áður en hann kem-
ur inn i myndina. Bilhurðum
heyrist skellt og tveir menn
birtast i myndinni. Annar tekur
sér stöðu á götunni, en hinn
gengur inn. A meðan mynda-
vélin fylgist óhreyfð með
stúlkunni, sem tekið hefur eftir
mönnunum og kemur nú til
baka yfir torgið, heyrist maður
koma inn i hótelherbergið og
hleypa skoti af byssu.
Það er ekki fyrr en mennimir
tveir em loks farnir, að mynda-
vélin færist út á torgið og beinir
nú linsu sinni inn i hótelher-
bergið, þar sem Locke liggur
dáinn i rúmi sinu.
A mjög kvikmyndalegan
máta eykur Antonioni þannig
spennuna i mynd sinni. Hann
nýtur þess einnig að þrúga and-
rúmsloftið með suði viftunnar i
loftinu, dropum, sem falla úr
lekum krana og þviliku.
Locke (Jack Nicholson) er bugaður, er hann snýr aftur heim á hótelið eftir að hafa klúðrað verkefni
sinu.
Umsjón: Jón
Björgvinsson
Nýjasta kvikmynd
meistarans Michaelangelo
Antonioni hefur nýlega verið
tekin til sýninga I Evrópu.
Myndin nefnist „The
Passanger” eða „Profession:
Reporter” og hefur hún jáfnt og
fyrri verk Antonioni hlotið mik-
ið lof gagnrýnenda.
Aðalhlutverk i þessari mynd
leika Jack Nicholson, og Maria
Schneider. Maria Schneider
vakti fyrst á sér athygli með þvi
að leika á móti Marlon Brando i
„The Last Tango in Paris” en
Jack Nicholson á sér mun lengri
feril að baki i kvikmyndunum.
Hann hefur nú bæði fengizt við
kvikmyndaframleiðslu og hand-
ritagerð, en nú siðustu árin hef-
ur hann snúið sér nær eingöngu
að kvikmyndaleik. Hann lék á
sinum tima i „Easy Rider”
„The last Detail” og smáhlut-
verk hafði hann i „Tommy”
eftir Ken Russel. Þá lék hann
einnig i tveim kvikmyndum
Mike Nichols „Carnal
Knowledge” og „The Fortune”,
sem nýlega var frumsýnd.
Fyrir stuttu lék Jack
Nicholson einnig á móti Fay
Dunaway i myndinni „China-
town”, sem Roman Polanski
leikstýrði.
Locke dregur lfkið af Robertson
á milli herbergja á hótelinu til
að geta villt um fyrir öðrum á
einkennum þess.
Við töku myndarinnar „The Passanger”. Antonioni tii vinstri og
Jack Nichoison og Maria Schneider I bilnum.
Betri, glœsilegri og ódýrari
Hann undirstrikar einnig
flóttakennd Locke vel, þegar
hann beinir myndav.élinni i einu
atriðinu að bil og fylgir honum
eftir, þar til hann ekur fram hjá
Locke og stúlkunni, sem sitja
við borð úti á útikaffihúsi.
Þarna hefðu flestir leikstjórai
látið staðar numið. E
Antonioni heldur leiknum áfran
og lætur myndavélina um stunc
fylgja eftirþeim bilum,sem akc
að og frá kaffihúsinu á m
þau hjúin spjalla saman.
Visir. Fimmtudagur 28. ágúst 1975
cTVÍenningarniál
Michaelangelo Antonioni og hin sanna kvikmyndalist:
NÝJASTA MYND
MEISTARANS
VEKUR ATHYGU