Vísir - 28.08.1975, Side 16
VERKFALLI A GRUNDAR-
TANGA VARÐ AFSTÝRT
Samningar höfðu i
morgun tekizt um aðal-
atriðin i kjaradeilu
Jóns V. Jónssonar
verktaka á Grundar-
tanga við nokkur
verkalýðsfélög. Torfi
Hjartarson sáttasemj-
ari var bjartsýnn um,
að gengið yrði frá
samningum um hádeg-
isbilið og verkfalli yrði
afstýrt.
Verkalýðsfélögin munu hafa
náð fram kröfum um bættan að-
búnað og fullgerða samninga,
en aðilar treystu sér ekki til að
greina frá einstökum atriðum.
Verkfall hafði verið boðað frá
miðnætti 2. september. Jón V.
Jónsson mun hafa haft um 60
manns i störfum við byrjunar-
framkvæmdir, og hefur verið
starfaði nokkrar vikur, án þess
að gengið væri frá nægilega
haldgóðum samningum, að þvi
er verkalýðsfélögin töldu.
Fundur hófst hjá sáttasemj-
ara klukkan tvö i gær.
—HH
Tveir þjófar komu upp um sig á óvenjulegan hótt:
Skriðu út úr bílflakinu,
veltu því við og óku brott
vísir
Fimmtudagur 28. ágúst 1975
Ökumaður-
inn enn í
lífshœttu
- Sprunginn hjólborði
orsakoði slysið
Maðuriun, er lézt i bilslysinu
á Vesturlandsveginum á
þriðjudag hét Þorsteinn Páls-
son, múrari, til heimilis að
Arkarholti 14, Mosfellssveit.
Hann var 32 ára gamall og
lætur eftir sig konu og tvö
börn.
Hinn ökumaðurinn, Vé-
steinn Magnússon, 48 ára
gamall, einnig búsettur i Mos-
fellssveit, liggur enn lifs-
hættulega slasaður á gjör-
gæzludeild Borgarsjúkrahúss-
ins.
Komið hefur i ljós að hjól-
barði sá, sem sprunginn var á
öðrum bilnum og skýrt var frá
i VIsi i gær, haföi sprungið
fyrir áreksturinn. Skýrir það
stjórnleysi bilsins. —JB
KRISTINN
SVER AF
SÉR NÝJA
BLAÐIÐ
Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri Timans, sver i dag
af sér öll tengsl við hiö nýja dag-
blaö þeirra Jónasar Kristjáns-
sonar og Sveins R. Eyjólfssonar
og segir meðal annars, að hann
léti sér aldrei koma til hugar að
fjárfesta I blaði, þar sem Jónas
Kristjánsson væri leiðarahöfund-
ur.
Þá gerir hann einnig ómerka þá
fullyrðingu Sveins, að hann hafi
hringt I einn af blaðamönnum
VIsis til að fullvissa blaðamenn
Visis um, að nýja blaðið fengist
örugglega prentað i Blaöaprenti.
Kristinn segir I viðtali I Timan-
um, aö þvert á móti hafi hann
sagt þessum blaðamanni, að ekki
yrði að sinni hægt að taka fyrir
beiðni nýs dagblaðs um prentun i
Blaðaprenti. Hins vegar segir
hann ekkert um hvers vegna
hann, framkvæmdastjóri Tim-
ans, var að hringja i blaðamann á
Visi, að beiðni Sveins R. Eyjólfs-
sonar.
Blaöamaðurinn, sem hér um
ræðir, hefur staðfest, að Kristinn
fari rétt með i yfirlýsingu sinni.
Og vill fá að bæta þvi við, að til-
efni Kristins með umræddri upp-
hringingu hafi fyrst og fremst
verið það að bera til baka orð,
sem höfðu ranglega verið eftir
honum höfð um stöðuna i Visis-
málinu. Orð, sem voru nýja blað-
inu all verulega i óhag og voru til
þess fallin að draga úr áhuga
blaðamannsins á að flytja sig af
gamla biaðinu yfir til hins
nýja —óT
Piltar, sem velt höfðu bil sinum
við Unalæk innan við Egilsstaði
um kvöldmatarleytið i gær, stigu
hinir rólcgustu út úr bilflakinu.
Með hjálp skelfingu lostins sjón-
arvotts af næsta bæ tókst þeim að
koma bilnum á réttan kjöl.
Aðkomumaðurinn, ungur pilt-
ur, vildi nú aumkva sig yfir þessa
vesælu landa sina, draga flakið
heim á bæinn og hlúa að þeim.
En þá máttu þeir ekki heyra
neitt slikt nefnt. Þeir settust inn i
bflflakiö, uppásnúið, rúðulaust og
allt meira og minna krumpað.
Furðulegt nokk, þeim tókst að
— Ferðir Smyrils næsta ár
verða fleiri en I sumar. Við ráð-
gerum að hefja millilandasigling-
arnar 1. júni og fara siðustu ferð-
ina I fyrri hluta september, sagði
Tomas Arabo, framkvæmdastjóri
Strandferðaskip Landsins I Þórs-
höfn, sem rekur ferjuna Smyril.
— Áhuginn á ferðunum og
rekstur skipsins i sumar hefur
gengið með ágætum og meðal
annars þess vegna viljum við
koma bilnum I gang og aka á
brott.
Sjónarvottinum þótti þetta
furðulegar tilfæringar og runnu
nú á hann tvær grimur. Hann
grunaði helzt, að þarna hefðu pilt-
arnir haft stolinn bil undir hönd-
um, og hafði þvi samband við lög-
regluna.
Boð var látið út ganga til lög-
reglustöðva niðri á öllum nær-
liggjandi fjörðum og lögreglu-
menn beðnir um að fara á kreik i
leit að umræddum bfl.
Svo varð vart við bilinn á leið út
að Hallormsstað. Lögreglan hélt
fjölga ferðunum nokkuð næsta
sumar, sagði Tómas Arabo.
Að sögn Arabo var ferjan ætið
fullskipuð milli Færeyja og Nor-
egs og þvihefði ekkiverið hægt að
taka eins marga tslendinga með
og vildu.
— Aætlun okkar verður væntan-
lega tilbúin I byrjun næsta
mánaðar og upp úr þvi verður
hægt að taka á móti pöntunum
fyrir næsta sumar. Við viijum
þegar á eftir bflnum og kom að
lokum að honum, þar sem honum
hafði verið ekið út af á leið til
Egilsstaða á ný.
Piltarnir reyndust vera
stúdentar ættaðir af suðvestur-
kjálkanum og billinn frá bilaleigu
Neskaupstaðar. Piltarnir voru
drukknir, en þegar billinn var at-
hugaður á ný, þótti hann hlaðinn
óvenjumiklu af dýrmætu góssi.
Kom i ljós, að þarna var um að
ræða varning, sem stolið hafði
verið úr verzlunum, einkum niðri
á Seyðisfiröi.
Eins og Visir skýröi frá I sið-
gefa fslendingum kost á þvi að
panta snemma, svo að fleiri kom-
ist að en i sumar, sagði Arabo.
Tomas Arabo sagði, að Smyrill
væri nú i innanlandssiglingum i
Færeyjum og yrði það verkefni
hans i vetur. Hugmyndir væru þó
uppi um að sigla með Færeyinga
á skipinu til Noregs um jólin og ef
til vill til Islands um páskana.
— Ef svo fer þá mun skipið
koma til hafnar i Þorlákshöfn,
ustu viku hafði mikið af viðtækj-
um og öðrum varningi upp á
hundruð þúsunda verið stolið I
umræddum innbrotum.
í ljós kom, að þarna höfðu verið
að verki þessir tveir piltar, en
annar þeirra var þá starfandi á
Seyðisfirði. Eftir innbrotin héldu
piltarnir sig i Mjóafirði, en tóku
siðan bilaleigubil á leigu og óku
um firðina.
Þýfið höfðu þeir falið á Hall-
ormsstað og voru þeir að koma
frá þvi að sækja það, er þeir voru
gripnir.
þar sem ófærð verður það mikil
fyrir austan. Næsta sumar er þó
ráðgert að koma inn til Seyðis-
fjarðar eins og i sumar, sagði
Tomas Arabo.
Tomas Arabo sagði, að áætlun
skipsins leyfði ekki lengri sigl-
ingu á sumrin en til Seyðisfjarð-
ar. Siglingin til Þorlákshafnar
fram og aftur tæki til dæmis 16
tima aukalega og hentaði þvi ekki
inn i áætlun Smyrils á sumrin.
„Liggur við að ég þurfi að taka fram reiðhjólið"
— segir Bjarni Jónasson sem rekur nú 3ja Trabanta bílaleigu í Eyjum
,,Það hefur verið svo mikið að
gera, að það liggur við, að ég
þurfi að taka fram reiðhjólið
mitt. Ég fæ ekkert tækifæri til
þess aö vera á bíl sjálfur”.
Þetta sagði Bjarni Jónasson,
flugmaður i Vestmannaeyjum,
þegar við röbbuðum við hann,
en Bjarni rekur nú bilaleigu I
Eyjum. Farkostirnir eru 3 Tra-
bantar.
Bjarni kom bilaleigunni á
laggirnar i mai siðastliðnum og
hefur verið mjög mikið að gera
hjá honum i allt sumar.
Eru það bæði erlendir ferða-
menn, Islendingar og svo Eyja-
skeggjar sjálfir, sem nota sér
bflana. „Bilarnir hafa staðið sig
mjög vel og eru mjög góðir á
hrauninu”, sagði Bjarni. ,,Það
eina sem hægt væri að finna að,
er að þeir eru 4ra manna, en það
gæti stundum veriðbetraaðhafa
fimm manna bil.”
Auk þess að vera með bila-
leiguna er Bjarni svo i stöðug-
um ferðum á milli lands og
Eyja, — flugleiðis.
—EA
—GB/jb
Lokaðist í
bílflakinu
Eldri kona lokaðist inni i bil,
sem hún var farþegi i, i
hörðum árekstri tveggja bíla á
m.ótum Kringlumýrarbrautar
og Suðurlandsbrautar um
klukkan 7 i gærkvöldi.
Sjúkraflutningamenn urðu að
beita rifjárnum til að ná hinni
slösuðu konu út úr bilnum. Hún
var flutt á slysavarðstofuna á-
samt ökumanni hins bilsins.
Meiðsli þeirra voru ekki lifs-
hættuleg og voru bæði með með-
vitund.
Áreksturinn varð, er önnur
bifreiðin kom suður Kringlu-
mýrarbraut, en hin norður
sömu götu. Bifreiðin, sem kom
suður Kringlumýrarbrautina,
ók yfir á grænu ljósi, en hin ætl-
aði að beygja vestur Laugaveg.
Hugleiða að sigla Smyrli til
Þorlókshafnar um nœstu páska