Tíminn - 25.09.1966, Page 5

Tíminn - 25.09.1966, Page 5
SUNNUDAGUR 25. september 1966 Útgefandi: FRAMSÓKNARIFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ab), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur ) Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300 Áskriftargjald kr. 105.00 á mán. innanlands. — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. bjo ara striðið sem tapaðist Það er mjög einkennandi fyrir núverandi ríkisstjórn, að allir viðurkenna — einnig hún sjálf í orði og verki, að henni hafi mistekizt hið yfirlýsta meginverk. Vegur hennar, einkum síðustu árin, er þétt varðaður þessum viðurkenningum, stefnuhvörfum og uppgjafaráföngum. En í raun og veru má segja, að skýrsla Efnahagsstofnun- arinnar sé eins og lokayfirlýsing um uppgjöf og hald- leysi stjórnarstefnunnar síðustu sjö árin. í bók þeirri, sem „Viðreisn“ hét og var stefnuyfir- lýsing stjómarinnar, gefin út á kostnað þjóðarinnar og dreift sem gjafabiblíu, var það höfuðatriði sett fram sem meginkjarni stjórnarstefnunnar, að koma á jafnvægi og stöðugleika í íslenzkum efnahagsmálum, skapa trú á ís- lenzkan gjaldeyri og treysta starfsgrundvöll atvinnuveg- anna. Ríkisstjórnin var í raun og veru beinlínis til þess mynduð að koma þessum lagfæringum í kring samkvæmt hennar eigin yfirlýsingu. Síðan eru liðin nær tvö kjör- tímabil — sjö ár — og stjórnin hefur gert margar og mi'klar ráðstafanir og breytingar, ekki vantar það, og allt þetta segir stjórnin, að hún hafi gert til þess að ná jafnvæginu, stöðugleikanum og traustleika íslenzks gjald- miðils. Hvern starfsdag sinn, hvert handtak allan þenn- an tíma segist hún hafa miðað við þetta og að þessu stefnt og beitt til þeiss heimskunnum og óibrigðulum ráðum . Um það, hvernig tekizt hefur að ná stefnumarkinu um traustleika gjaldeyrisins hefur nýlega fallið vafningalaus dómur. Fyrir nokkrum árum var talsvert um útflutningj íslenzks iðnvarnings, og ýmsir iðnrekendur byggðu bein- línis upp iðnaðarfyrirtæki með útflutning fyrir augum, keyptu sér vélar og búnað í samræmi við það. Um síðustu áramót lýsti formaður iðnrekendasamtakanna því yfir, að grundvöllur slíks útflutnings væri gersamlega brost- inn vegna dýrtíðar og óðaverðbólgu. Þetta hafa forsvars- menn iðnaðarins síðan margsinnis ítrekað, t.d. í sambandi við iðnsýninguna og sagt, að fyrir þetta vinni nú sæmilega vélbúin fyrirtæki með hálfum afköstum, önnur hafi ger- samlega gefizt upp, en góð, íslenzk hráefni flutt út óunnin í vaxandi mæli. Fyrir nokkrum árum básúnuðu talsmenn stjórnarinnar það sýknt og heilagt, hve traustur gjald- eyririnn væri. Nú er það tal að mestu hjaðnað, enda væri það napurt háð um ágæti stjórnarstefnunnar. í skýrslu Efnahagsstofnunarinnar er það nú meginnið- urstaða, að brýnast af öllu brýnu og beinlínis lífsnauð- synlegt til bjargar í bráðum voða, sé nú einmitt að virkja öll öfl til þess að ná jafnvægi og stöðugleika í íslenzkum efnahagsmálum. Þyngri og afdráttarlausari dóm er varla unnt Rð fella yfir þeirri ríkisstjórn, sem beinlínis var stofnuð til þess, og setti sér það sem meginmark að ná slíku jafnvægi fyrir sjö árum, segist síðan hafa beitt sér allri að þessu verkefni og beitt öruggustu ráðum til þess. Dómur Efnahagsstofnunarinnar er umbúðalaust sá, að þetta hafi stjórninni mistekizt, og því sé brýnna en nokkru sinni fyrr að gera það, sem ríkisstjórnin gat ekki í sjö ára stríði. Nú vérður að ná þeim árangri, sem hún reyndist ófær með öllu til að ná. Ef þetta er ekki skýlaus krafa um nýja stjórnarstefnu og ný stjórnartök, þá er erfitt að skilja, hvernig hlutlaus og opinber efnahagsstofnun getur orðað slíka kröfu. ___TIMINN__________________________ f—■■■ ■ ■»- ......... JAMES RESTON: Kjarnorka vinnur ört á sem afl- gjafi viö rafmagnsframleiðslu í Bandaríkjunum taka einkarekstur og ríkisvald höndum saman í þessu efni, og mikið hefur áunnizt- Hljótt er um þessa starfsemi, og baráttan fyrir banni gegn útbreiðslu kjarn-orkuvopna er hávaðameiri þó að á- rangur sé þar minni. ÞAU áform ríkisstjórnarinn ar í Washington, sem h'.jótt fara, eru oft og einatt mjög mikilvaeg, en önnur áform, sem hæst er haft um, eru stund um næsta lítilvæg, þótt undar legt kunni að virðast. Hinn einstæða árangur í framkvæmd áætlunar kjarnorkunefndar, um að framleiða með kjarn- orku rafmagn á samkeppnis- hæfu verði er aðeins enn eitt dæmið um þetta. Árið 1958, þegar öðru kjör tímabili Eisenhowers forseta var að verða lokið, hófst kjarn orkunefnd handa við fram- kvæmd tíu ára áætlunar, um framleiðslu kjarnorku á sam- keppnishæfu verði á ákveðn- um svæðum árið 1968. Mikið gys var gert að þessari fyrir ætlun á sinni tíð, hún talin fá víslegur draumur og timasó- un ein að reyna að framkvæma hana. Árið 1962 skipaði Kennedy, forseti fyrir um, „nýja, gaum gæfilega athugun á hlutverki kjamorkunnar í efnahags lífi okkar.“ Þá var spáð, að rafmagnsframleiðsla meö kjarn- orku vrði orðin fimm millj- ónir kílówatta árið 1970 fjöru tíu milljónir kílówatta árið 1980 og í lok aldarinnar yrðu öll ný raforkuver í landinu knú in kjarnorku. Sætti þessi spá mjög mikilli gagnrýni. ÞESSAR spár virtust ákaf lega öfgakenndar á sinni tíð, en hafa reynzt hinar hófsam- legustu. Rafmagnsframleiðsla með kjarnorku í Bandarík.1- unum nemur nú þegar tveimur milljónum kílówatta og á þessu ári, einu hefur verið fastráðið að reisa kjarnorku- knúin raforkuver, sem fram- leiða ellefu milljónir kíló- watta. Eftirspurn er nú meiri eftir kjarnorkuknúnum raf- stöðvum en hinum venjulegu raforkuverum, sem knúin eru kolum eða oðíu. Verið er nú að endurskoða áætlanir um rafmagnsfram- leiðslu með kjarnorku, og gert ráð fyrir miklu örari aukn ingu en áður var búizt við. Nú er opinberlega gert ráð fyr ir, að árið 1970 nemi raf- magnsframleiðsla með kjarn orku ellefu milljónum kiíó- watta, en ekki fimm milljón- um, eins og spáð var árið 1962 •'Eins er gert ráð fyrir, að fram leiðslan nemi 100 milljónum, kílówatta árið 1980, en ekki fjörutíu milljónum, eins og áætlað var 1962. Mikið hefur verið rætt og rit að um stöðvun á útbreiðslu kjarnorkuvopna í heiminum, en lítið orðið ágengt í því efni. Samtímis hefur lítill áróður, verið hafður í frammi til að kynna kosti kjarnorkunnar til rafmagnsframleiðslu, en mjög mikið áunnizt á þvi sviði, eigi að síður. FYRIR skömmu lagði dr. Glenn T. Seaberg af stað í opinbert ferðalag um Austur Evrópu og Austurlönd nær, en enginn virtist taka eftir því. Hann kemur við í Finnlandi, en Sovétmenn eru komnir þar á stúfana um að láta að sér kveða við byggingu afl- stöðva, sem knúnar eru kjarn orku. Kjarnorkukeppnin í heiminum er því tvenns konar. Annars vegar er keppt að því að stöðva útbreiðslu kjarn- orkuvopna; en hins vegar er keppt um fullnægingu síauk innar eftirspurnar eftir raf- orkuverum, sem knúin eru kjarnorku. General Electric og West- inghouse eru bandarískir brautryðjendur i hinni frið sömu kjarnorkukeppni. Þessi fyrirtæki hafa þegar gert samninga um að reisa kjarn orkuknúin raforkuver í Jap- an, Þýzkalandi, Ítalíu, Sví- þjóð, Hollandi og Spáni. Bret ar taka einnig þátt í keppn- inni um þennan stækkandi út flutningsmarkað, svo og Frakk ar, þó að í minna mæli sé. Allir keppa nú að því að reisa fjölþætt orkuver, sem fram- leiða ekki aðeins rafmagn með kjarnorku, heldur ná einnig salti úr sjó og vinna köfnunar efni til áburðarframleiðslu. Þessar mikilvægu tilraun ir fara fram hávaðalaust og þar gætir ekki hinna grimmi- legu átaka opinberra aðila og einkaaðila um yfirráð, en þeirra átaka hefur gætt afar mikið í allri orkuvinnslu í Bandaríkjunum í liðinni tíð. Fyrir 1964 tóku einkaaðil ar kjarnorkueldsneyti á leigu hjá ríkisstjórninni í Washing ton, en nú er þeim leyft að kaupa það og eiga. EINKAAÐILAR og opin ber yfirvöld vinna saman að framleiðslu og dreifingu kjarn orku í Bandaríkjunum. Til dæm is má nefna, að gerð hefur ver ið áætlun um að reisa í Los Angels kjarnorkuver, sem framleiðir 1,8 milljónir kíló- watta rafmagns, og vinnur jafn framt salt úr 568 þús. smálest um af sjó á dag. Þetta er sam eiginlegt fyrirtæki kjarnorku nefndar, innanríkisráðuneyt- isins í Washington, borgar yfirvaldanna í Los Angeles sem dreifa vatninu, og einka fyrirtækisins Southern Cali fornia Edison Company, en það dreifir rafmagninu. Breytingin, sem orðið hef- ur síðan Kennedy forseti tók við völdum í Hvíta húsinu, er ákaflega mikil. Kjarnorku- nefndin hefur ekki framar áhyggjur út af því, hvort kjarn orku muni yfirleitt takast að ryðja sér til rúms sem aflgjafi við rafmagnsframleiðslu, held ur hinu, hvort ágætur árangur í þessu efni kunni að leita til óréttmæts ótta meðal þeirra, sem framleiða rafmagn með kolum, olíu og öðru slíku elds- neyti. Sem betur fer eykst eftir- spurn eftir raforku það ört, að allir eru önnum kafnir. Raf magnsframleiðsla í Bandaríkj unum nemur nú um 250 millj ónum kílówatta á ári. Árið 1980 verður hún komin upp í 520 milljónir kílówatta, og gert er ráð fyrir, að hún verði orð in 1,6 milljarðar kilówatta í lok aldarinnar. Allar horfur eru þó á, að eftirspurn ört fjölgandi þjóðar og mjög auk ins iðnaðar, gleypi alla orku, sem unnt er að framleiða með hvaða móti sem er. i KJARNORKUNEFNDIN starfar í samvinnu við yfir- stjórn geimrannsókna og yfir- stjórn hersins. Unnið er að framleiðslu kjarnorkueld- flauga til flutninga til tungls ins, og varanlegra aflsföðva til notkunar í geimnum. Einnig er unnið að hraðastilli, sem gengur fyrir plútóníum- 238 og koma má fyrir í líkama hjartveikisjúklinga svo og fjölmörgu öðru, sem lengt getur líf manna og aukið við reynslu þeirra bæði á jörðu niðri og úti í geimnum. í Washington hafa fleiri aðsetur en stjórnmálamenn einir, sem karpa um verð- bólgu og stríðið í Vietnam. Þar verður til saga, ekki síður en fréttir, og þeir, sem ekki hafa hátt um sig, kunna að vinna mannkyninu meira gagn en hin ir, sem hávaðasamastix eru.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.