Vísir - 01.09.1975, Blaðsíða 9
Vlsir. Mánudagur 1. september 1975
9
Fyrirtœki íVogunum mynda meðsér sterksamtök:
Ætla að kaupa
fullkomnasta
og stœrsta
eldvarnakerfi
landsins
Eigendur fyrirtækja við
Súðarvog, Dugguvog,
Kænuvog og Tranavog
hafa í hyggju að sameinast
um kaupá fullkomnasta og
stærsta brunarvarnar- og
slökkvikerfi, sem komið
hefur hingað til lands.
Við kerfið er tengt eftirlits- og
stjórnborð fyrir öll fyrirtækin.
Kerfi þetta krefst þess, að vakt-
maður sé sifellt í námunda við
það. Ef reyk- eða hitaskynjari
verður einhvers var, kviknar ljós
i stjórnborðinu og hringing heyr-
ist. Jafnframt gefur senditæki,
sem vaktmaður ber á sér, frá sér
hljóð.
Vaktmaðurinn getur á auga-
bragði gengið úr skugga um,
hvort um bilun eða raunveruleg-
an eld sé að ræða. Ef kallið er
vegna elds, ýtir vaktmaðurinn á
hnapp, sem gerir slökkviliði við-
vart. Kerfið gerir slökkviliðinu
sjálft viðvart, ef vaktmaðurinn er
ekki kominn innan viss tima.
Kaup á þessu kerfi er eitt af
þeim málum, sem nýstofnað
félag fyrirtækja i Vogahverfi hef-
ur i hyggju að framkvæma. Félag
fyrirtækjanna heitir Iðnvogar og
var stofnað fyrir stuttu.
Náin samvinna fyrirtækjanna i
Vogahverfinu hófst fyrir þrem
árum, er innbrot voru orðin mjög
algeng i hverfinu. Þá réðu fyrir-
tækin til sin sameiginlegan
næturvörð, sem hafði þau áhrif,
að afbrot i hverfinu stórminnk-
uðu. Nú er i ráði að auka enn um-
rædda gæzlu.
t „Iðnvogatiðindum”, blaði,
sem félagið hefur hafið útgáfu á,
kemur fram, að fyrirtækin I
hverfinu hyggjast með umræddu
brunavarnarkerfi lækka bruna-
tryggingaiðgjöld sin, en þau
nema nú hátt á annan tug
milljóna á ári.
Jafnvel hefur stjórn félagsins
rætt um að stofna til sjálfstæðs
tryggingafélags.
Jafnframt þessu hefur verið
rætt um að koma á fót einni sim-
stöð fyrir öll simtæki i hverfinu,
þannig að sama simanúmeriö
verði hjá öllum fyrirtækjunum.
Yrði kerfi þetta með um 500
innanhússnúmerum. Þá hefur
jafnframt verið rætt um sam-
eiginlega póstdreifingu, simrita-
þjónustu, sorphreinsun og mötu-
neyti.
I blgerð er einnig að koma upp
viðtæku þjófavarnarkerfi i fram-
haldi af brunavarnakerfinu. Þá
mun hverfið i framtiðinni verða
girt og þvi lokað um nætur.
— JB
Symr i
OUT PUT
Helgi P. Friðjónsson opnaði
sýningu á verkum sinum I
Gallerý OUT PUT að Laugar-
nesvegi 45 á fimmtudaginn.
Helgi er fæddur 1953 og hefur
stundað nám i Myndlista- og
handiðaskóla íslands i 4 ár og
þar af 2 ár i grafik.
Sýning Helga verður opin
fimmtudag til sunnudags klukk-
an 16-21 fram til 7. september.
Helgi hefur áður tekið þátt i
þrem samsýningum hérlendis
og einni erlendis.
— JB
Helgl P. Friöjónsson.
Rithöfundar þinguðu
Dagana 18.-22. ágúst voru haldin
tvö norræn rithöfundamót á
Biskups-Arnarey i Sviþjóð. Á
fyrra mótinu var fjallað um efnið
Fjölmiðlarnir og rithöfunda-
rétturinn, en hitt mótið fjallaði
um norrænar bókmenntir i skól-
um. Af hálfu tslands sóttu mótið
rithöfundarnir Agnar Þórðarson,
Björn Bjarman, Gréta Sigfús-
dóttir og Jenna Jensdóttir.
Stjórnandi mótanna var rektor
lýðskólans að Biskups-Arnarey,
Ake Leander. Mót þessi fóru vel
og skipulega fram.
BB/SHH
RPBSAMTNDIR
"óUóátuvi á. Ö tnín -J
ó ökíoskiriíaini, ~ na/'n^ki/tieini
</egaóré/c~ skóUöski/itasU ».«.
MATORVERZLUNIN//
LAUGAVEGI 55
Veizlusalir
Hótels Loftleiöa
standa öllum opnir
HOTEL LOFTLEIÐIR
Það leynir
sérekki
skólaórið er að hefjast. Það
hefst ó hverju hausti hjó okkur eins
og hjó ykkur.
Hjó ykkur: Nýjar nómsgreinar, nýjar
bækur, ný óhöld.
Hjó okkur: Nýjar sendingar af
gömlu góðu skólavörunum
og nýjungum í meira úrvali en
nokkru sinni fyrr.
Ein ferð í einhverja af þrem
verzlunum Pennans nægir, — þar
fóst allar skólavörurnar, sem þið
þurfið að taka með í skólann,
— og meira til!
rmTTrr
Hafnarstræti 18
Laugavegi 84
Laugavegi 178