Vísir - 01.09.1975, Side 11
Vísir. Mánudagur 1. september 1975
Víkinguraf
greiddi FH
Sigraði 2:0 í heldur tílþrifalitlum leik, þar
sem ekkert var í húfi hjó hvorugu liðinu
Vikingur og FH kvöddu knatt-
spyrnuvertiðina hjá scr i ár með
lieldur litilf jörlegum leik á
Kaplakrikavellinum á laugar-
daginn. Var sá leikur hvorki til
skemmtunar fyrir leikmenn né
áhorfendur og sjáfsagt allir
ánægðir, þegar honum lauk —
flestir þá orðnir hundblautir og
kaldir eftir að hafa hlaupið um
eða hangið þarna í hrauninu i tvo
tima.
Vikingarnir fóru með sigur af
hólmi, skoruðu tvö mörk, en FH-
ingarnir ekkert. Bæði mörkin
komu með stuttu millibili i siðari
hálfleik og verða sjálfsagt ekki i
minnum höfð hjá áhorfendunum
fyrir glæsileik frekar en þessi
leikur.
Fyrra markið kom snemma i
siðari hálfleik. Misskilningur
varð á milli markvarðar og
varnarmanns FH — báðir létu
boltann eiga sig — og Stefán
Halldórsson komst i auðan sjó og
skoraði auðveldlega.
Siðara markið skoraði svo
Gunnar örn rétt á eftir með
skalla. Fékk hann knöttinn eftir
fyrirgjöf frá Gunnlaugi Krist-
finnssyni — fyrirgjöf, sem Ómar
markvörður FH-inga átti að geta
ráðið við. Siðari hálfleikurinn var
öllu skárri en sá fyrri, og áttu þá
bæði liðin ágæt tækifæri — en hin-
ir ungu FH-ingar gátu samt
aldrei nýtt sin.
Leikurinn skipti engu máli fyrir
GS TIU
HÖGG-
UM Á
liðin eða leikmennina, og var
hann eftir þvi. Bæði voru örugg
áfram i deildinni og enginn mögu-
leiki hjá þeim að ná i efstu sætin.
Það bar enginn af öðrum i þess-
um leik — allir svipaðir að „gæð-
um” og sömuleiðis dómarinn,
sem átti rólegan dag, enda sjald-
an að eitthvað markvert gerðist.
UNDAN
Glofklúbbur Suðurnesja sigraði
i Aðmirálskeppninni f golfi, sem
fram fór á heimavelli
Suðurnesjamanna — Ilólmsvelli i
Leiru — á laugardaginn.
Sveitir frá fimm golfklúbbum
kepptu. Sendi hver sveit fram 8
manna lið og var árangur 6 fyrstu
talinn og lagður saman. úrslitin
urðu þessi:
Golfkl. Suðurnesja ....
Golfkl. Reykjav........
Golfkl. Keilir .........
Golfkl. Nes.............
Golfkl. Varnarliðsins ...
Högg
.... 482
.... 492
.... 497
.....517
.... 561
Markið, sem bjargaði KR. Knötturinn á leið yfir marklínuna i leik KR og ÍBV á Melavellinum I gær-
kvöldi. Arsæll Sveinsson, markvörður ÍBV, kominn I öfugt horn... Ljósmynd Bj. Bj.
Lónsskómír úr Eyjum sendu
Vestmannaeyinga ó botninn!
KR bjargaði sér með því að sigra IBV 1:0 í //fallleiknum,/
í 1. deild — Halldór Björnsson skoraði markið sem nœgði
Melavöllurinn varð ekki heima-
grafreitur KR-inga i 1. deildinni i
knattspyrnu, eins og svo margir
bjuggust við i gær, þegar tilkynnt
var, að KR ætti að mæta ÍBV i
„fallleiknum” i 1. deild á vestur-
bæjarvellinum. Þeir höfðu það af
að „jarða” Vestmannaeyingana
þarmcðþviað sigra þá 1:0 og það
nægði þeim til að halda sæti sinu i
1. deild næsta ár.
Það var Halldór Björnsson —
hinn eitilharði rauðhærði miðju-
maður þeirra — sem skoraði
þetta eina mark i leiknum. Það
gerði hann á 18. mínútu fyrri hálf-
leiks og fékk við það ágæta aðstoð
frá Vestmannaeyingum.
t fyrsta lagi var hann i láns-
skóm, sem einn fyrrverandi leik-
maður Ur Eyjum átti, en þegar
hann fékk þá lánaða hjá honum
rétt fyrir leikinn, sagði hann um
leið, aðmeð þessum skóm ætlaði
hann að skora markið, sem kæmi
hans mönnum i botnsætið — og
við það stóð hann, þótt það hefði
verið sagt i grini.
Hann fékk boltann við vitateig
Vestmannaeyinga frá Atla Þór
Héðinssyni og sendi hann með
þrumuskoti i átt að marki ÍBV. Á
leiðinni þangað hitti knötturinn
Magnús Þorsteinsson, sem þarna
lék sinn fyrsta leik með meistara-
flokki tBV — breytti um stefnu og
þaut i hitt markhornið.
Markið var ekki neitt sérlega
glæsilegt og þvi siður leikurinn,
enda aðstæðurnar ekki upp á það
bezta — rok á annað markið með
tilheyrandi rigningu eins og oftast
i sumar. Knattspyrnan var mjög
takmörkuð og samspil sást varla.
Bæði liðin hugsuðu um það eitt að
sparka — og sparka langt — og að
berjast. t þvi voru KR-ingarnir
betri. Sparkkeppnin var aftur á
móti jafnari.
KR-ingar léku undan vindinum
i fyrri hálfleik og áttu þá nokkur
góð tækifæri til að skora — en að-
eins eitt þeirra nýttist. Vest-
mannaeyingarnir áttu sárafá
tækifæri á móti vindinum fyrir ut-
an einu sinni, að örn Óskarsson
slapp úr umsjá Guðmundar
Ingvasonar og komst á ská við
markið. Magnús Guðmundsson
markvörður hikaði en fór siðan út
á móti Erni, sem skaut hörku-
skoti á markið. Magnús stökk þá
upp i loftið og varði boltann með
„botninum”.
Var hann heppinn i það skiptið
og þá ekki siður i siðari hálfleik,
þegar hann fór i ævintýraúthlaup
og missti af boltanum. Hann
stefndi i markið, en á siðustu
stundu náði Stefán örn að skalla
hann yfir þverslána. Vestmanna-
eyingarnir áttu meir i siðari hálf-
leiknum — án þess þó að geta
ógnað neitt verulega, enda KR-
vörnin þétt fyrir. Var engu likara
en að þeir sættu sig við að tapa
þessum leik — a.m.k. voru þeir
óvenju rólegir miðað við oft áður.
„Ég bjóst aldrei við þvi i vor, að
þetta færi svona hjá okkur”,
sagði Gisli Magnússon þjálfari
Vestmannaeyinganna eftir leik-
inn. „Þágekkailt eins og i sögu og
allir friskir en siðan hefur allt
verið á móti okkur. Nú er eins
gott fyrir mann að koma sér inn á
Þróttarvöll og sjá Þróttarana
leika — það er eini möguleikinn.
sem eftir er hjá okkur. að sigra þá
i aukaleiknum um aukasætið i
deildinni. Að tapa fyrir þeim yrði
ægilegt áfall fyrir knattspyrnuna
hjá okkur, en maður vonar að það
komi aidrei til.”
• •
Ekki var mikið af áberandi
góðum leikmönnum i þessum
leik. KR-ingarnir börðust allir
sem einn — og einna mest þeir
Halldór Bjömsson og Haukur
Ottesen. Einnig var Guðmundur
Ingvason góður. í liði ÍBV bar
mest á Ólafi Sigurvinssyni og ný-
liðanum Magnúsi Þorsteinssyni,
en þar er efnilegur leikmaður á
ferðinni. Magnús V. Pétursson
dæmdi leikinn og gerði það ágæt-
lega.
— klp —
VISIR VERÐUR ÞAR!
islenzka landsliöið i knatt-
spyrnu hélt i morgun áleiöis til -
Nantes i Frakklandi, þar sem
siöari leikur íslands og Frakk-
lands i Evrópukeppni landsliða
fer fram á miövikudagskvöldiö.
Kftir þann lcik lieldur liöiö til
l.iegc i Belgiu, þar sem það
leikur viö Belga i sömu keppni á
laugardagskvöldið. A sunnudag
fcrliðið svofrá Belgíu áleiöis til
Moskvu, þar seni leikið veröur
viö Rússa i undankeppni
olympíuleikanna.
Með annarri flugvél i morgun
hélt einnig utan 20 til 30 manna
hópur islendinga, sem ællar að
horfa á leikina i Frakklandi og
Belgiu, en koma siðan heim n.k.
sunnudag. i þeim hóp verður
blaöamaöur frá Visi — Kjartan
L. Pálsson — og mun hann
scnda heim fréttir frá báðum
þessum leikjum, svo og ýmsar
aðrar fréttir úr þessari ströngu
ferð landsliðsins.