Vísir - 01.09.1975, Síða 15
Visir. Mánudagur 1. september 1975
15 (
Burton saman í ísrael
Fjórir Tarzanar
á einum fundi
ZDIYIBI
Töf raborðið fyrir allt og ekkert
ZOMBI er sófaborð.
ZOMBI er sjónvarpsborð.
ZOMBI er reykborð.
ZOMBI er hljómtækjaborð.
ZOMBI er morgunverðarborð.
ZOMBI er skrautborð.
ZOMBI erá hjólum.
ZOMBI ER ALLT.
Fæst í teak, Ijósri og dökkri eik
(wenge lituð).
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf.
J L Húsið Siglufjörður:
Híbýlaprýði Akureyri:
Dúna Húsavík:
Akranes: Verzl. Bjarg Selfoss:
Borgarnes: Verzl. Stjarnan Keflavík:
Bolungarvik: Verzl. Virkinn,
Bernódus
Halldórsson
Bólsturgerðin
Augsýn hf.
Hlynur sf.
Kjörhúsgögn
Garðarshólmi hf.
HUSGAGNAVERKSMIÐJA
KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Hoykjavik sími 25870
Fjórir Tarzan-ar stóðu
i skugga trés i Los
Angeles og öskruðu I
einum kór við mikinn
fögnuð þriggja Jane-a,
sem álengdar stóðu.
Á að heyra voru þessi hljóð ekk-
ert tilíakanlega hrollvekjandi,
eins og öskur apamannsins á þó
að vera. Satt að segja frekar
ámátleg hljóð.
En þessir fjórir eru úr hópi 15
manna, sem farið hafa með hlut-
verk apafóstra i kvikmyndum.
Þessi endurfundur þeirra var i
tilefni fæðingardags skapara
Tarzans, nefnilega rithöfundar-
ins, Edgar Rice Burroughs
Einn þessara fjögurra
gamlingja gat þö enn likt nokkuð
vel eftir grimmdaröskrum apa-
mannsins, en það varð olýmpiuj-'
sundkappinn gamli, Johnny
Weissmuller, sem lengst af fór
með þetta hlutverk. 71 árs gamall
orðinn getur hann enn látið barka
sinn framleiða þetta hljóð, sem
vakti áður hroll með bíógestum.
Enda var Weissmuller sá eini i
hlutverkum Tarzans, sem ekki
þurfti að láta annan öskra fyrir
sig.
Buster Crabbe, sem nú er 67
ára, (og sömuleiðis fyrrverandi
sundgarpur), en hann lék Tarzan
á árunum eftir 1930, sagði frétta
. mönnum, að hljóðupptökumenn
hefðu orðið að beita sérstökum
brögðum til þess að magna upp
rödd hans og gera úr skræknum
alvöruöskur.
James Pierce, 85 ára, sem áður
var knattspyrnumaður, en lék
Tarzan á timum þöglu mynd-
anna, þurfti hinsvegar ekki að
gripa til þess. Það kom ekki að
sök i þöglu myndunum þótt hon-
um lægi lágt rómur. Pierce gekk
að eiga á sinum tima Joan, dóttur
Burroughs.
Fjórði Tarzaninn þarna var
Jock Mahoney, 56 ára, sem lék i
Tarzanmyndunum eftir 1960.
Konurnar þrjár, sem farið hafa
með hlutverk Jane, lifsförunaut-
ar apamannsins, voru Loyise
Lorraeine, sem kom fram á
sjónarsviðið 1918 með fyrsta
Tarzanleikaranum, Elmo
Lincoln. Hinar voru Joyce
Mackenzie og Eve Brent.
Þarna undir trénu i Los Angeles
var tekin ákvörðun um það af
bæjaryfirvöldum, að frá og með
næsta mánudegi að telja yrði 1.
september kallaður i Los Angeles
„Dagur Edgars Rice
Burroughs”. — Burroughs-fjöl-
skyldan bjó lengi i einu úthverfa
Los Angeles, en það hverfi er
siðan nefnt Tarzana.
Var einhver að spyrja hvað
tréð, sem hér var að ofan getið,
kæmi þessu máli við? — Jú, það
er nokkuð mikilvægt i þessu máli.
Undir þvi voru nefnilega grafnar
jarðneskar leifar höfundar
Tarzanbókanna.
Leikendurnir sjö, fjórir Tarzan-ar og þrjór Jane-ur
Taylor og
Elizabetu Taylor hefur
boðizt hlutverk i kvik-
mynd/ þar sem eiginmaður
hennar fyrrverandi/
Richard Burton/ leikur. En
mynd þessa á að taka í
israel.
Ekki hefur leikkonan gefið svar
við þessu tilboði ennþá.
Hún kom i gær ásamt Burton til
Tel Aviv, en þar eru þau saman á
ferðalagi og vekja mikla athygli.
Svo mikla, að jafnvel Henry Kiss-
inger, utanrikisráðherra, sem
þarna er staddur með annan fót-
inn vegna milligöngu sinnar i
samningatilraunum Egypta og
Israela, hefur alveg horfið i
skuggann.
Þau Burton hafa verið samvist-
um i Sviss i rúma viku, áður en
þau fóru til Israel. Segja tals-
menn þeirra beggja að þau hafi
sætzt heilum sáttum og hugsi til
hjónabands á nýjan leik.
Próforkalesari óskast
Dagblaðið Visir óskar eftir að ráða próf-
arkalesara. Upplýsingar veittar á rit-
stjórn blaðsins og i sima 86611.
Visir.
Tupolev flýgur
ekki yfir þéttbýli
Tupolev, TU-144, þessi yfir-
hljóðfráa þota Sovétmanna
mun fyrst um sinn aðeins
fljúga yfir strjálbýlum land-
svæðum Sovétrikjanna — og
einungis að degi til — meðan
hún er til reynslu i innanlands-
flugi.
Þessi flugvél, sem etur
nú kappi við Concorde-þotu
Breta og Frakka, verður að
likindum tekin i almenna
þjónustu sovézks flugs undir
lok þessa árs. Reynslutimi
fyrir almenna notkun er senn
á enda.