Vísir - 23.09.1975, Page 4
4
Visir. Þriðjudagur 23. september 1975
€?
j
Breiðholtsbúar
Kennsla mun fara fram i Breiðholtsskóla i
eftirfarandi greinum: Barnafatasaumi,
ensku 1-^4. fl., þýsku 1. og 2. fl.
1 FELLAHELLI er fyrirhuguð kennsla i
leikfimi mánud. og fimmtudaga klukkan
9.30 og 11.30 að morgni en siðdegis mun
kennt: enska, spænska, stærðfræði
(mengi fyrir foreldra),myndvefnaður og
postulinsmálning (i henni hefst kennsla
ekki strax, en þeir, sem áhuga hafa, eru
beðnir að gefa sig fram við innritun). Inn-
ritun i Breiðholtsskóla fer fram 24. sept.
kl. 8—10 siðdegis. Innritun i Fellahelli fer
fram i byrjun okt. samkv. auglýsingu.
Barnagæsla verður i Fellahelli fyrir börn
innan skólaaldurs, meðan foreldrar eru
við nám.
NÁMSFLOKKAR REYKJAVÍKUR
I VELJUM fSLENZKT <H> fSLENZKAN IÐNAÐ I
Þakventlar
Kjöljárn
Kantjárn
ÞAKRENNUR
KENNSLA | HREIHGERNINGAR | TAPAD — FUNDID
Hyert ætlarðu
aðhringja...
Hvert ætlarðu að
hringja þegar stiflast,
eða dripp-dropp úr eld-
húskrananum heldur
fyrir þér vöku? Þjón-
ustuauglýsingar Visis
segja þér það — og
margt fleira.
mmmm\
ÞJONUSTA |" OKUKENNSLA | BARNAGÆZLA
Vísir hefur farið þess á leit við
Aron Guðbrandsson, forstjóra
Kauphallarinnar i Reykjavlk,
sem er stærsta og elzta
verðbréfasala landsins, að hann
skrifi greinar fyrir blaðið um
fjármál og þjóðmál almennt. —
A næstunni birtast i Visi greinar
eftir Aron, og sú fyrsta I dag.
Vart þarf að kynna Aron fyrir
lcsendum blaðsins. Skoðanir
hans vekja ávallt mikla athygli,
og er skemnist að minnast þátt-
ar, er hann flutti I Útvarp og olli
miklu fjaðrafoki. Aron hefur
mjög ákveðnar skoðanir á efna-
hagsmálum og fleiri þáttum
þjóðlifsins, og verða greinar
hans vafalaust mjög áhuga-
verðar. — Hér á eftir fer fyrsta
grein Arons Guðbrandssonar:
Aron Guðbrandsson.
Nýlega hafa birst i Visi
greinar um verslun
með veðskuldabréf, en
menn hafa ekki verið
sammála um þau efni.
Ekkert fast gengi er til á sllk-
um verðbréfum og stafar það af
þvl, að þau greiðast niður á mis-
munandi löngum tima. Þau
bera mismunandi háa vexti,
sem eru frá 7% til hæstu leyfi-
legra vaxta, sem munu vera nú
um 16%. Þá getur tryggingin
fyrir slikum skuldakröfum ver-
ið misjöfn, þannig að nokkur
áhætta getur verið fólgin i slík-
um verðbréfakaupum. Endur-
sala á þeim getur li"ka valdið
eigendum þeirra erfiðleikum.
Þá hefir það verið venja að
slik verðbréf hafi verið seld með
afföllum þ.e. að þau hafa ekki
verið greidd með fullu nafnverði
þeirra. Þetta hefir mörgum orð-
ið hneykslunarefni og þá helst
þeim, sem ekki þekkja til mál-
anna. Dæmi um þetta er, að al-
gengt er i viðskiptum manna á
milli, aðsá sem greiðir keypta
eign af öðrum og borgar allt á
borðið, gerir betri kaup en sá,
sem þarf að skulda og þannig
hefir seljandinn tekið afföll af
skuldinni með hærra verði á þvi
sem selt var. Afföll af
verðbréfum eru venjuleg
viðskiptafyrirbæri i hinum
vestræna heimi, bæði manna á
milli og eins á hinum opinberu
verðbréfamörkuðum. Á sama
hátt geta verðbréf einnig selst á
yfirverði.'
Ávöxtun peninga i' fasteigna-
tryggðum skuldabréfum hérhjá
okkur,ermjög léleg ráðstöfun á
sparifé. Fyrir þvi eru eftirtald-
ar ástæður: Afföll af slikum
skuldabréfum eru skattskyld,
svo og vextir af þeim, hvort
tveggja sem tekjur og höfuð-
stóllinn er skattskyldur sem
eign. Svo gæti farið, að helming-
ur affalla og vaxta væri tekið af
eigandanum i skatt. Mestur
hluti af þessum skuldabréfum
er gefiðúttil handhafa. Margir
halda, að hér skapist ágætt
tækifæri til þess að sniðganga
skattgreiðslur af þeim, en þetta
er ekki rétt. Ef skattheimtan er
Ilagi hjá því opinbera má fylgja
skuldabréfunum eftir með þvi
að krefjast sagna um það, hver
Plastsundlaug við
Breiðholtsskólann
— Verður sett upp þegar hœðarpunktar eru ákveðnir
i haust er áætiað að
setja niður rúmlega 120
fermetra plastsundlaug
við Breiðholtsskóla í
Breiðholti I. Sundlaugin
er innf luttog hefur nú um
skeið beðið þess á
hafnarbakka í Reykjavik
að verða leyst úr tolli.
Upphaflega var sundlaug þess-
ari ætlaður staður við Fella-
skóla i Breiðholti III, en eftir að
ákveðið var að tilbúin kennslu-
laug sky ldi vera við
fjölbrautarskólann þar var
staðsetningu plastlaugarinnar
breytt.
Uppsetning laugarinnar tekur
skamman tima, þar sem hún er
að öllu leyti tilbúin til niður-
setningar. Það sem á stendur er
hönnun byggingar einnar við
Um veðskuldabréf
o k
og þátt þeirra í viðskiptum
tekur við greiðslum af þeim, og
þetta mun almennt gert, hvort
sem innheimtan fer fram i
banka eða hjá einstakiingum.
Þá kemurhéreinnig til greina
hið mikla hrun á verðgildi
peninganna. Ef lögð er til
grundvallar visitala bygginga-
kostnaðar, litur dæmið þannig
út: Á timabilinu 1. júli 1974 til 1.
júli 1975var visitalan 45.81%. Ef
maður hefði keypt fasteigna-
tryggt skuldabréf þ. 1. júli 1974
með 45.81% afföllum, þá hefðu
afföllin öll verið horfin I verð-
rýmun peninganna á einu ári.
Eftir það hefði hann getað horft
á eignir sinar fara sömu leið og
sparifé i banka, að þvi viðbættu
að greiða skatta til þess opin-
bera af skuldabréfinu, sem
hann hefði þó sloppið við, ef
hann hefði átt aurana sina i
bankabók.
Þá er full ástæða til þess að
vara fólk við, ef það ætlar að
selja fasteign. Það ætti fyrst að
afla sér upplýsinga um það,
hvað þvi getur orðið úr skulda-
bréfum, sem oft verða til við
slik viðskipti. Venjulegur mark-
aður fyrir þau er sáralitill.
Breiðholtsskóla, en sú bygging á
i framtiðinni að gegna hlutverki
búningskiefa og baða fyrir
sundlaugina.
Þegar hæðarpunktar og önnur
staðsetningaratriði byggingar-
innar hafa verið ákveðin,
verður haf izt handa um að grafa
fyrir sundlauginni. Vonast er til,
að hönnun byggingarinnar ljúki
i bvrjun október.
-HV.
Tafl- og bridgeklúbb-
urinn heiðrar tvo menn
Aðalfundur TBK var haldinn
þann 15. þ.ma. i Domus Medica.
Ný stjórn var kosinn eftir að fyrri
stjórn hafði beðizt undan endur-
kosningu. Nýju stjórnina skipa:
Formaður, Eirikur Helgason.
váraformaður Helgi Einarsson.
gjaldkeri Sigurjón Tryggvason,
ritari Kristján Jónasson og
áhaldavörður Ingolfur Böðvars-
son, Fyrrverandi formanni.
Tryggva Gislasyni, voru þökkuð
sérlega vel unnin störf i þágu
félagsins.
Áfundinum voruveitt verðlaun
fyrir unna sigra i keppni
vetrarins.
Tveir menn voru heiðraðir, þeir
Tryggvi Gislason, fyrrverandi
formaður, sem veitt var
guilmerki félagsins, æðsta viður-
kenning sem veitt er, og Harald-
ur Snorrason fyrrverandi gjald-
kerfi sem var veitt silfurmerki
félagsins fyrir mikil störf i þágu
TBK unnin af ósérhlifni. Þá
voru ræddar lagabreytingar, og
spunnust út af þeim miklar
umræður Ákveðið var að kalla
saman aukaaðalfund hið fyrsta,
þar sem ekki tókst að ljúka
umræðum um málið.