Vísir - 23.09.1975, Qupperneq 8
8
Vísir. Þriðjudagur 23. september 1975
„Það ó ekki að slótra því í haust"
— Hérna er lambið mitt. Það er orðið svo stórt, að ég ætlaði varla
aðþeklcja það, sagði þessi litli snáði. — Afisagði, aö það ætti ekki að
slátra þvi i haust.
Reykvikingar flykktust I Lögbergsrétt, enda var gott veður þennan sunnudag. Reykjavikurbörnin
þurfa lika að fá að upplifa réttardag eins og börnin I sveitinni.
"'l ' ,
Þau komu riðandi i réttirnar, eins og sveitamönnum sæmir, en Reykvikingarnir komu auðvitað ak-
andi á „blikkbeljunni”, enda er hún núorðið þarfasti þjónninn eða hvað..
Hann er faglegur þessi Lyonsmaður, þar sem hann gengur um
beina og seiur fólki kaffi og sætabrauð. En ljónynjurnar höfðu bak-
aö meðlxtið.
Auðvitað var peiinn á sinum staðIrassvasanum... Hún er alltaf góð,
brjóstbirtan, ekki sizt I réttunum á haustin, þegar farið er að kóina.
Annars er brennivínið orðið svo fjári dýrt, að það iiggur við, að
maður verði að leggja niður þennan þjóðarsið að hafa með sér smá-
lögg i réltirnar!
Þegar farið er yfir langan veg, er alltaf hætta á því, aö hestarnir missi skeifurnar undan hófunum.
Ungir Reykvikingar fylgdust áhugasamir með, þegar verið var að járna klárinn.