Vísir - 29.09.1975, Side 16

Vísir - 29.09.1975, Side 16
16 Visir. Mánudagur 29. september 1975 Klippmgar - Klippingar • • Hárgreiðslustofan VALHOLL Laugavegi 25. Simi 22158 Viltu lóta þér líða vel allan sólarhringinn? / Undirstaða fyrir góðri líðan er að sofa vel. Hjá okkur getur þú fengið springdynur í stífleika sem hentar þér best. Og ef þú ert í vandræðum með að f inna hjóna- eða einstaklings rúm, þá ertu viss um að f inna það hjá okkur. VERTU VELKOMINN! 'MIMS Spvingdýnur Helluhrauni 20, Sími 53044. Hafnarfirði Útboð Sildarvinnslan h.f. Neskaupstað óskar eftir tilboðum i raflagnir i fiskimjölsverk- smiðju á Neskaupstað. Útboðsgagna má vitja hjá Rafhönnun s.f. Skipholti 1, Reykjavik frá 29.9 gegn 15.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama staða kl. 11.00 þann 13.10. Rafhönnun. Húsbyggjendur — EINANGRUNARPLAST Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-' ReykjavikursvæðiO meO stuttum fyrir- vara. Afhending á byggingarstaO. HAGKVÆM VERÐ. GREIÐSLUSKILMÁLAR Borgarplast hf. Borgarnesi Simi 93-7370 Helgar- og kvöldsimi 93-7355 Glötuð er aevmd króna Þaö er meiningin meö nokkr- um stuttum greinum, sem ég hefi lofaö Visi aö rita um fjár- mál, aö fræöa fólk um gang þessara mála, þvf aö margir eru þeir, sem komast í snertingu viö fjármálin án þess að hafa þekk- ingu eöa reynslu á þeim, sem þeim er þó nauðsynleg, sem viö viðskipti fást. Ég gat þess i síðustu grein minni, að afföll af skuldabréfum væru algengt fyrirbæri á verð- bréfamörkuðum hér og erlend- is, en það þarf þó i þeim efnum að gjalda varhug við að brjóta ekki þau lög og þær reglur, sem þjóðfélagið setur okkur til þess að lifa og starfa eftir. Með lögum nr. 58/1960, um bann við okri, dráttarvexti o.fl. er svo fyrirmælt i 2. gr. ,,Ef skuld er tryggð með veði i fast- eign eða með handveði, er heimilt að taka af henni árs- vexti, sem séu jafnháir þeim vöxtum, er stjórn Seðlabankans leyfir bönkum og sparisjóðum að taka hæsta fyrir þannig tryggð lán á þeim tima, er til skuldar er stofnað”, o.s.frv. Samkv þessum lögum er miðað við það, að vaxtaburður af skuldabréfum sé hinn sami og opinberir aðilar ákveða af sams konar. verðbréfum á hverjum tlma. Hér virðist þvi i fljótu bragði séð, að séu vextir og af- föll af slikum verðbréfum samanlagt hærri en þeir vextir, sem Seðlabankinn ákveður hverju sinni, þá er um lögbrot að ræða. En það þarf nú ekki ávallt að vera svo. Þessu til skýringar er eftirfarandi dæmi: Maður er með tvö skuldabréf, sem hann vill selja. Annað bréf- ið hefir hann gefið sjálfur út og það er tryggt i hans eigin húsi, hitt bréfið hefir hann eignast við það að selja eign, sem hann átti og bréfið tryggt með veðrétti i henni og gefið út af kaupanda þeirrar eignar. 1 fljótu bragði virðist ekki mikill munur á þessum bréfum, en i fyrra tilfellinu er maðurinn að taka lán, en i hinu siðara er hann að selja kröfu á annan aðila. 1 fyrra tilfellinu mun það vera talið lögbrot að taka hærri vexti og afföll en getið er um i ofannefndum lögum, en í siðara tilfellinu ekki, nema misferli séu bundin við þau viðskipti. Lagafyrirmælin, sem hér hefir verið vitnað til, gefa manni til- efni til nánari heilabrota um þessi efni. Maður, sem lánar öðrum pen- inga og hefir tekið af þeim dálit- ið hærri vexti en löglegt er, en fær þá seinna endurgreidda og þá hefir rýrnun krónunnar orðið svo mikil á lánstimanum, að vextirnir hafa allir farið for- görðum og hluti af höfuðstóln- um einnig farið sömu leið, en samt er hægt að dæma lánveit- andann sem orkrara. / Það er margt skritið I kýrhausnum. Þá höfum við þegar komist i snert- ingu við þetta undarlega en jafnframt glæpsamlega fyrir- bæri, sem viðgetum nefnt verð- rýrnun peninga og gengisfell- ingar. 1 þessum efnum er spari- fjáreigandanum settar reglur i islenskum lögum. í lögum hr. 4/1960, segir svo i 6. gr. „Eigi er heimilt að stofna til skuldar i islenskum krónum með ákvæði þess efnis, að hún eða vextir af henni breytist i samræmi við gengi erlends gjaldeyris, nema um sé að ræða endurlánað erlent lánsfé.” Og siðar i sömu grein segir: „Akvæði i lánssam ningum gerðum fyrir gildistöku lag- anna, um að endurgreiðsla eða vextir skuli háð gengi erlends gjaldeyris, skulu ekki gild”, o.s.frv. Samkvæmt framansögðu er þvi þá slegið föstu, að vilji lög- gjafans er á einn veg gagnvart sparifjáreigendum i landinu. Frá þeim er tekinn sá mögu- leiki, sem þægilegastur er til þess að verðtryggja fjármuni þeirra. Það er meðfæddur eigin- leiki hjá mörgu fólki, sem betur fer, vil ég segja, að leggja fyrir eitthvað af launum sinum, ef þess er kostur. 1 gamla daga hét það, að eiga fyrir útförinni. NU eru allir þjóðfélagshættir svo breyttir, að það sem var, er ekki lengur. Þörfin fyrir að leggja fyrir peningá hefir minnkað hjá hverjum einum að sama skapi, sem hin þjóðfélags- lega samhjálp hefir aukist. Nú eru látnir grafnir á sómasam- legan hátt, þótt þeir eigi ekki fyrir útförinni. Sjúkir fá læknis- hjálp, þótt þeir geti ekki greitt fyrir hana, en hin þjóðfélags- lega þörf fyrir spariféð er sist minni nú, heldur en hUn hefir alltaf áður verið. Sparifjáreig- andinn er að miklu leyti aflgjafi athafnalifsins i landinu, og þótt ekki væri nema af þeirri ástæðu einni, ber þjóðfélaginu sjálfs sin vegna að halda hlifiskildi yfir eignum hans. Hverjir eru svo eigendur að sparifénu. Þar sem ég hefi unnið fyrir þetta fólk i meira en 40 ár, er mér kunnugt um það. Það er almenningur. Fólkið, sem við mætum á förnum vegi. Barnið i vöggunni og gamal- mennið, sem biður dauðans. Það er mikið óþokkaverk að eyðileggja eignir þessa fólks. En fyrir þá menn, sem vilja þjóðfélagið feigt i þeirri mynd, sem það nU er i, er þetta auð- veldur leikur. Þegar fólkið hefir missttrúna á gildi peninganna, þá missir það um leið trúna á þjóðfélagið. Þessi stórbrotna eyðilegging á verðmætum i landinu er að miklu leyti sjálfskaparviti. Við þekkjum þetta allt. Takmarka- laus kröfugerð til atvinnuveg- anna, sem þeir geta ekki risið undir. Siðan gengisfelling til þess að koma i veg fyrir algera stöðvun. Ég vil aðeins taka hér eitt dæmi. Með kjarasamningunum, sem gerðir voru i febrúar 1974, var knúin fram kauphækkun um 25% hjá stærsta hópi Dagsbrún- armanna. Þessir samningar voru gerðir eftir þriggja daga verkfall, sem talið var að hafi skaðað þjóðfélagið um kr. 400 milljónir ca. á loðnunni einni saman, en kjarabæturnar, sem fólkið fékk, voru runnar út i sandinn eftir 3 til 4 mánuði. En þetta fólk, sem fékk þessar kjarabætur, átti lika sparifé, sem rýrnaði að sama skapi. Það má þvi segja, að hér hafi verið tekin fjórða hver króna af öllu sparifé landsmanna, fjórða hver króna af öllum sjóðum i landinu og jafn mikið af fjár- skuldbindingum manna á milli og tryggingum alls konar, og öll þessi verðmæti sett i eina hrúgu og kveikt i henni með þessum samningum. Þvilik meðferð á fjármunum almenn- ings! Merkilegt er það, að sparifjáreigendur i landinu, sem eru af öllum stjórnmála- flokkum, skuli ekki fyrir löngu hafa myndað með sér félags- skap til þess að vernda eignir sinar. 1 lokin ætla ég að koma með eina lagatilvitnun enn. 67. grein stjórnarskrárinnar hljóðar svo: „Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sina, nema almenningsþörf krefji, þarf til þess lagafyrirmæli, og komi fullt verð fyrir.” Erfitt er að átta sig á þvi, hvernig hægt er með lögum að skylda sparifjáreigendur til þess að láta af hendi eigur sinar bótalaust, án þess að það sé brot á þessari grein stjórnarskrár- innar. Lög um gengisfellingar og annað það, sem beinlinis verkar sem eignaupptaka er tvimælalaust- brot á stjórnar- skránni. Það væri sennilega erfitt að fá löggjafann dæmdan fyrir slikar lagasetningar, en það væri fróðlegt að sjá, hvaða bellibrögð dómstólar mundu nota til þess að sýkna hann.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.