Vísir - 02.10.1975, Síða 1

Vísir - 02.10.1975, Síða 1
vism Samúðarverkfall! Blessaðar elskurnar ætla að taka sér fri 24. október. Ekki er vafi á þvi, að það mun hafa véruleg áhrif á allt athafnaiif og jafnvel heimilislif. — Þetta var snjöll hugniynd hjá konunum, og margir karlmenn eru kviðnir. Margir spyrja hernig bregðast eigi við, þvi að liklega eru þær ómissandi, þrátt fyrir allt. — Þeirri hugmynd hefur nú skotið upp kollinum, að arkl- menn geri bara samúðarverk- fall til stuðnings konunum. Góð hugmynd það, eða hvað finnst ykkur? -AG- 65. árg. —Fimmtudagur 2. október 1975 — 224. tbl. Verður nýja hœkk- unin til að snúa olíuvopninu í höndum OPEC? AÐ UTAN bls. 6 VILJA MENN DRAGA ÚR VERÐBÓLGU? sjó forystugrein bls. 6 VISIR KANNAR HERRA- TÍSKUNA llerra fatatiskan i vetur hefur tekiö ákvcðna stefnu. Visir kannaði i gær hjá nokkrum helstu tiskuverslunum hvaða lina væri mest ráðandi hjá þeim. Við birturn árangur þessarar könnunar i dag, ásamt myndum, og upplýsing- um um verð. Sjá bls. 14-15. ÞEIR ÞORÐU EKKI AÐ LENDA VÉLINNI Þeir höfðu keypt gamla B-29 sprengjuflugvéi og fóru á henni i reynsluflug. Enginn þeirra hafði flogið slikri vél og þeim var auðvitaö meinilla við að lenda flugvél sem þeir höfðu ekki flogiö áöur. Sjá flugsiðu á hlaðsiðu 8. „Besta hverfið í Reykjavík!" Okkur fannst timi til kominn aö spjalla við Ibúana I Breiðholti, þessu umdeilda hverfi, og spyrja þá hvernig það væri að búa þar. En það eru ekki bara fullorðnir sem mynda sér skoöanir. Við spjölluðum við krakkana sem þar ciga heima, og þeim fannst þetta besta hverfið I Heykjavik! Sjá bls: 7 Gullskipið fundið Hollensk yfirvöld biðja um samvinnu við uppgröftinn Gullskipið a Skeiðarársandi er nú fundið, samkvæmt áreiðanlegum heimildum sem Visir hefur aflað sér. Utan- ríkisráðuneytið hefur staðfest að hollenska stjórnin hafi farið framá að höfð verði samvinna um uppgröft skipsins, sem var hollenskt indfafar og hét Het Wapen von Amsterdam. Gamlar heimildir herma að þrjátiu lestir af gulli hafi verið i kjölfestu skipsins. Hefur það liklega verið geymt þar af ótta við sjóræningja, sem mjög höfðu sig f frammi á þeim tim- um. Á núverandi verði nemur verðmæti þess yfir 700 milljónir króna. Fyrirtækið Björgun hf. hefur leitað að skipinu nokkur undan- farin sumur. Það hefur notið aðstoðar sérfræðinga frá varnarliðinu, sem hafa hjálpað til að staðsetja skipið, með segulm ælingum . Kristinn Guðbrandsson, forstjóri Björgunar h.f. var austur á Skeiðarársandi i morgun, og náði Visir þvi ekki sambandi við hann. Leitarmennirnir hafa notað afkastarhikinn pramma til að dæla sandi ofan af skipsflakinu, sem mun vera á tuttugu metra dýpi. Nauðsynlegt var að grafa mjög stóran gig i kringum skipið til að sandurinn félli ekki aftur yfir flakið. Slikt óhapp tafði leitarmennina i sumar, þegar þeir voru komnir niður á tiu metra dýpi. -ÓT. Reyna að koma tveim hóhyrningum lifandi í land Hamravíkin fékk óvœntan feng — Þetta mun vera I fyrsta sinn sem háhyrningar eru fangaðir lif- andi hér við land, og reyndar veit ég ekki til þess að þeir hafi áður gerst svo djarfir að fara inn i nót, I leit að æti — sagði Sveinn Svein- björnsson, fiskifræðingur, viðtali við Visi i morgun. Við á Árna Friðrikssyni biðum héma utan við Vik i Mýrdal eftir mönnum frá Sædýrasafninu, — sagði Sveinn ennfremur — en þegar þeir koma, munum við halda Ut til Hamravikur. Ætlunin er að reyna að svæfa háhymingana og flytja þá siðan til Þorlákshafnar. Þaðan verður þeim svo komið i Sædýrasafnið. Hamravik var að veiðum vest- ur af Hjörleifshöfða i nótt og var byrjað að draga eftir kast, þegar tveir háhyrningar fóru inn i nótina i ætisleit. Þeir sluppu aftur Ut, en skömmu siðar komu fimm háhyrningar til viðbótar og renndu sér inn 1 nótina. Þrir þeirra sluppu og rifu nótina nokkuð i leiðinni, en þegar áhöfnin hafði lokið við að draga, vom tveir háhyrningar lifandi i pokanum og tókstað hem ja þá við skipshliðina. Var siðan kallað i land og beðið um aðstoð við að ná skepnunum á land. Akvað Hafrannsókna- stofnunin að senda Árna Friðriksson á staðinn með for- stöðumann sjódýrasafnsins og dýralækni innanborðs. Komu þeir til Vikur skömmu fyrir klukkan 10 i morgun og voru fluttir um borð i Arna Friðriks- son af meðlimum i Björgunar- sveitinni i Vik. Reiknað var með, að um hálf- tima þyrfti til að komast að Hamravikinni, en bræla var komin á þessum slóðum i morgun, og þvi viðbúið að erfitt verði um vik að svæfa háhyrning- ana. Háhyrningar eru tannhvalir og þykja mjög skynsamir. Sjódýra- söfn og dýragarðar sækjast mjög eftir að fá slikar skepnur i hendur og greiða miklar fjárfúlgur fyrir þær. Fyrr á þessu ári kom hingað frakki einn, sem gerði Itrekaðar tilraunir til að ná háhyrningi lifandi, en án árangurs. Frakki þessi bauð allt að 50 þúsund dollurum fyrir lifandi há- hyrning, eða nálægt átta milljón- um króna. fró Framkvœmdanefnd um kvennafrí ,,Við óskum að heiðra Þor- stein Pálsson vegna leiðara hans i Visi 30. september s.l. Blað hanshefur með þessu tekið ákveðna og þýðingarmikla af- stöðu til jafnréttis karla og kvenna og til „kvennafrisins 24. október.” Þaðer Framkvæmdanefndin um kvennafri'ið sem þannig tekur til orða. I morgun kom Erna Rágnarsdóttir ein nefndarmanna og nældi merkið i barm Þorsteins fyrir hönd nefndarinnar hér á rit- stjórninni. . ,Ég lit á þetta, sem viður- kenningu til Visis”, sagði Þor- steinn, þegar Erna hafði nælt merkið i hann. Hún lét ekki þar við sitja, heldur gaf hún Þor- steini koss i kaupbæti! -EA.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.