Vísir - 02.10.1975, Page 2

Vísir - 02.10.1975, Page 2
2 VjswvJ^iilvmtuilagur 2. októb«M975 HÍSKTO Hefur þú efni á að fylgj- ast með tiskunni? Filipus, guösbarnNei, ég fylg- ist voða litið með henni. Ég kaupi mjög sjalda* föt og ef ég geri það, kýs ég méi; einföld og smekkleg föt. Voffi, i bil á Skóiavörðustignum: — Ég skal segja yður, að þar sem hundahald er bannað i Reykjavik, er engin tiskuverslun til fyrir mig og mina. Ég sakna þess mjög.t.d. langar mig óskaplega i nýju flau- els hálsböndin sem mest seljast i útlandinu. En vegna búðarleysis- ins get ég ekki fylgst með tisk- unni, þótt ég eigi að sjálfsögðu gras af seðlum. Anna Friöriksdóttir, há- skóianemi: — Ég hef engin efni á þvi, af þvi að ég er nemandi. Mér finnst föt vera dýr. En ég reyni að fylgjast meö eftir þvi sem ég get. Jóhanna Ragnarsdóttir, fóstra: — Nei, en ég reyni eftir efnum og ástæðum að fylgjast með. Mér finnst fólk hér almennt fylgjast vel með tiskunni, þótt dýrt sé. Aðalbjörg ólafsdóttir, kennari: — Ég held enginn hafi efni á þvl. Ég reyni að fylgjast með tiskunni. Það er misdýrt, eftir þvi hvort maður kaupir fatnaðinn tilbúinn úr búð, eða saumar hann sjálfur. Það munar mjög miklu þar á. LESENDUR HAFA ORÐIÐ MEIRA „BEAT" í BALLETTINN No-6075—7550 skrifar: Ballett er eitt af þeim fyrir- brigðum sem hvað erfiðast eiga uppdráttar á fslandi og ekki að ósekju. Ballett sem er tjáning- arform er með afbrigðum hé- gómlegur og oftast hundleiðin- legur Vinsældir eru þvi sennilega I réttu hlutfalli við það sem gerist erlendis. Þetta er fámenn þjóð og þvi eru ballett-unnendur svo fáir að ekki er von nema að undirtektir séu litlar. Það voru þvi eðlileg viðbrögð þeirra sem við ballett fást, að þeir reyni á einhvern hátt að aðlaga hann að menningarli'fi sem hér þrifst. Þetta hafa forráðamenn ís- lenska dansflokksins nú loksins uppgötvað. Nú nýlega dönsuðu þrir af meðlimum flokksins I sjónvarpi, eftir liflegri ,,beat músik”. Ég sem hef m jög takmarkaða ánægju af klassískum ballett, varð yfir mig hrifinn, mér fannst þetta sérlega skemmti- leg tilbreyting i sjónvarpsdag- skránni og ég naut þessa skemmtilega rytma og fallegu tónlistar, sem dans þremenn- inganna magnaði á mjög skemmtilegan hátt. Ég vil beina þeim tilmælum til íslenska dansflokksins að hann geri meira af þessu og hafi með sér þá listrænu fagmenn, sem hér stjórnuðu hljóði og íslenski dansflokkurinn hefur a.m.k. einn aðdáanda, sem mun myndatöku. með þessu framtaki unnið styðja hann i framtiðinni. Pelican og Pétur Kristjánsson Pétur Kristjánsson skrifar: Vegna viðtals við mig undir- ritaðan, er birtist I dagblaðinu Visi, laugardaginn 27. septem- ber s.l. vil ég gera eftirfarandi athugasemd: Tilefni athugasemdar þessar- ar er tilvisun á viðtal við mig, sem birt er efst á forsiðu Visis, umræddan dag. I tilvisun þess- ari stendur: ,,Það voru þeir sem voru lélegir — Ekki ég”, og undirfyrirsögn: — sjá viðtal við Pétur Kristjánsson. Tilvisun þessi er sett innan gæsalappa og gefur þvi lesend- um tilefni til að halda, að hér sé orðrétt haft eftirmérogað þessi ummæli visi að einhverju leyti á inntak viðtalsins við mig. Þetta er alrangt. Þessi um- mæli eða annað i þessum dúr sagði ég aldrei i þessu viðtali og hef aldrei sagt. Þessi tilvitnun er að minum dómi visvitandi röng og þarna verið að gefa i skyn hluti, er ég hef aldrei látið frá mér fara og er mér tilgang- urinn hulin ráðgáta. Mér hefur aldrei þött hljóm- sveitin Pelican léleg, hvorki meðan ég starfaði með henni, né eftir að ég hætti störfum með hljómsveitinni. Hins vegar kemur fram I við- talinu við mig orðrétt: Hann tjáði mér, að það hefði ekki ver- ið mi'n söngrödd sem var léleg, heldur raddirnar á plötunni, raddir annarra hljómsveitar- manna. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna og von um að þessi leiði misskilningur sé hér með leið- réttur. Frímerkjo- leysi háir ekki lengur í Bústaða- hverfi Eigendur versiunarinnar Elly, Hólmgarði 34, hringdu: Þeir biðja að heilsa mann- inum, sem skrifar i lesenda- dálk Visis um hversu dýrt sé að senda bréf innanlands fyrir ibúa Bústaðarhverfis. 107 krónur segir hann að það kosti og fær þá upphæð með þvi að leggja saman tvo strætómiða og frimerkið á bréfið. Hann þurfti nefnilega að fara niður i bæ til að kaupa frimerkið. Nú hefur verslunin Elly nýlega tekið það að sér að selja frimerki, einmitt af þvi hversu mikið hefur verið kvarlað yfir frimerkjaleysi i hverfinu. Verslunin býður manninn velkominn I búðina svo og alla aðra sem vantar þessa þjónustu. Margföldun og mjólkurkýr Keikningsglöggur lésandi hringdi: Vegna skrifa Ragnars Halldórssonar, Miðvangi 41 i „Lesendur hafa orðið” 30. sept. um grein i Visi 3. sept. vil ég benda á verulega reikningsvillu sem gerir málflutninginn vafasaman. Talað er um, að úr þeim þrjátiuog átta til þrjátiu og niu þús. mjólkandi kúm sem eru i landinu, fáist um 130 millj. litra árlega. 1 fram- haldi af þvi er vitað i orð Hauks Halldórssonar, bónda á Svalbarðsströnd, sem á milli 80 og 90 m jólkandi kýr. t reikningi sinum fær Ragn- ar þá útkomu að hver ein kúa Hauks mjólki um 1,4 millj. 1 árlega, og er sú útkoma sennilega fengin með þvi að deila kúafjölda Hauks eins upp i heildarframleiðslu allra mjólkurframleiðenda i landinu. Villan er sú að Haukur talar um að 400 bændur með sömu bústærð og hann gætu framleitt nægilega mjólk fyrir landið allt, en Ragnari hefur að llkindum sést yfir það i útreikningi sinum. „Fóstra" eða ekki „Fóstra" ,,Að gefnu tilefni vill stjórn Fóstrufélags íslands benda á efirfarandi, vegna greinar þeirrar sem birtist i dag- blaðinu Visir laugardaginn, 30. ágúst ’75, um gæsluvöll við Miðvang i Hafnarfirði. Einungis þær stúlkur á gæsluvöllum úr Fósturskóla tslands og hafa lokið tilteknu námi frá þeim skóla, eiga að bera starfsheitið „Fóstra”. Þær stúlkur sem starfa á gæsluvöllum eða á annan hátt gæta barna, án mennt- unar úr Fósturskólanum, eru ekki „Fóstrur”. Þær eiga þar af leiðandi ekki að bera það starfsheiti. Viljum við leggja mikla áherslu á að starfsheiti okkar sé þannig ekki misnot- að. Virðingarfyllst, Stjórn Fóstrufélags islands.” Hafsteinn Sæmundsson, nemi: — Alls ekki. Ég kaupi sjaldan föt, mér finnst þau vera dýr.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.