Vísir - 02.10.1975, Qupperneq 4
4
REUTfcR
AP NTB
Vísir. Fimmtudagur 2. október 1975
VEIZTU EITT?
Þegar þú hringir eða kemur til okkar, þá ertu i beinu sam-
bandi við springdýnuframleiðanda. I
Springdýnur
er
aðeins notað 1. flokks efni, sem þar af leiðandi tryggir
margra ára endingu i upprunalegum stifleika, sem þú
/ hefur valiö þér.
Næst þegar þú kaupir springdýnur athugaðu hvort þær
eru merktar
tM
Springdýnur
Við höfum einnig mjög gott úrval af hjóna- og einstakl-
ingsrúmum,i svo að ef þig vantar rúm eða springdýnur,
þá gleymdu ekki að hafa samband við okkur. Við erum
alltaf reiðubúin til aö aðstoða þig að velja réttan stlfleika á
springdýnum.
Springdýnur
Helluhrauni 20, Sími 53044.
Hafnarfirði
SENDILL OSKAST
Piltur eða stúlka óskast til sendistarfa
fyrir eða eftir hódegi
Hafið samband
við
afgreiðsluna
visir
eða ritstjórn
Síðumúla 14 - Sími 86611
Ókeypis Ijósaskoðun
til 1. október á öllum gerðum
Skoda bifreiða.
Tékkneska bifreiðaumboðið
á íslandi hf.
Auðbrekku 44-46 — Kópavogi
BILAVARAHLUTIR
m
N
Notaðir varahlutir
í flestar gerðir eldri bíla
Yfir vetrarmánuðina er opið frá kl.
1 - 6
Upplýsingar í síma kl. 9-10
fyrir hádegi og 1-6 eftir hádegi
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9 — 7 alla virka daga og 9—5
laugardaga
Smáauglýsing-ar Vísis
Markaðstorg
tækifæranna
Vísir auglýsingar
Hverfisgötu 44"sími 11660
ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Ú1
Francisco Franco hershöfðingi og kona hans, Dona Carmen, sjást hér veifa til mannfjöldans fyrir
framan konungshöilina I Madrid i gærkvöidi.
Heimta fleiri aftökur
eftir morð á lögreglu
Stjórnin í Madrid virðist
ákveðin í að mæta ofbeldi
hryðjuverkamanna með hörðu,
eftir að þrir lögreglumenn voru
skotnir til bana i gærkvöldi og
sá fjórði særður.
Mikill mannsafnaður varð i
Madrid i gær, Barcelona og öðr-
um borgum til að lýsa stuðningi
við stjórn Francos i aðgerðum
hennar gegn skæruliðum, og til
að visa á bug mótmælum er-
lendra aðila við aftökunum um
helgina.
Telja sumir, að um 300,000
manns hafi safnast saman til að
hylla Franco hershöfðingja i
Madrid i gær, en aðrir segja
150,000.
Fjórar árásir voru gerðar á
lögreglumenn samtimis í fjór-
um mismunandi borgarhlutum.
Þykir liklegt, að um hafi verið
að ræða samræmdar hefndar-
aðgerðir fyrir skæruliðana
fimm, sem teknir voru af lifi á
laugardag.
Þegar fréttist um morðin á
þessum lögreglumönnum,
kröfðust þeir, sem marséruðu
um götur til stuðnings stjórn-
inni, að framfylgt yrði fleiri
dauðadómum yfir öðrum lög-
reglumorðingjum.
Mannfjöldinn, sem safnaðist
saman fyrir framan konungs-
höllina iMadrid, hrópaði: „Burt
með erlend afskipti”...,,Dauða
yfir kommúnistana”.
Franco hershöfðingi, sem
ávarpaði mannfjöldann i tilefni
af þvi, að 39 ár eru liðin, siðan
hann kom til valda, fordæmdi
erlend afskipti af innanrikis-
málum Spánar. Féllu orð hans i
góðan jarðveg.
Þegar mannfjöldinn dreifðist
tóku sumir sig út úr hópnum til
að gera aðsúg að sendiráðum
þeirra rikja, sem fordæmt hafa
aftökurnar. Lögreglan hafði
strangan vörð um sendiráðin,
og fékk afstýrt þvi, að nokkuð
alvarlegt hlytist af þessum upp-
hlaupum.
ÓEINING INNAN
VERKAMANNAFLOKKS-
INS í BRETLANDI
Mikil óeining virðist
ríkja á ársþingi breska
Verkamannaflokksins,
sem stendur yfir þessa
dagana í bænum Black-
Denis Healey, fjármála-
ráðherra, kallar hina róttækari
félaga Verkamannaflokksins
„svikara” við flokkinn, en hver
höndin virðist uppi á móti
annarri á ársþingi flokksins.
pool. Hefur að undanförnu
staðið mikill styrr milli
róttækari flokksmanna og
hinna, sem hófsamari
þy.kja, um stefnu stjórnar-
innar varðandi verðbólgu-
aðgerðir.
Hörku-rifrildi varð á þinginu i
gær eftir ræðu, sem Ian Mikardo,
fyrrum formaður Verkamanna-
flokksins, flutti á fundi róttækari
arms flokks sins.
Fundurinn hálfleystist upp i
hróp . og köll eftir að
Mikardo hafði legið forystu
verkalýðssamtakanna á hálsi
fyrir að hafa samþykkt of fljótt
takmarkaðar launahækkanir,
þegar hún hefði átt að reyna að fá
meiri hækkanir til handa félags-
mönnum.
Jack Jones, framkvæmdastjóri
stærsta verkalýðsfélags Breta —
sem gegnt hafði mikilvægu hlut-
verki i samningaviðræðum við
ráðherra Verkamannaflokksins,
þegar fallist var á að takmarka
launahækkanirnar — brást illa
við þessari ádeilu. Stökk hann
upp að ræðustólnum og las yfir
Mikardo vegna þessara ummæla.
En ekki heyrðist orð af þeirri
ádrepu, vegna hrópa fundar-
manna.
Denis Healey, fjármálaráð-
herra, flutti skömmu siðar ræðu á
fundi i Bolton, og veittist mjög
hart að Mikardo fyrir ræðuna.
Kallaði hann hana,,fúla og ill-
girnislegan róg” og kvað hana
lýsa svikum við flokkinn.
r
I œðisgengn-
um eltingar-
leik í skólabíl
Vopnaður bankaræningi, sem
rænt hafði skólabil á flótta sinum
undan lögreglunni, var skotinn til
bana i Montreal i gær eftir æóis-
genginn eltingarleik og haróan
skotbardaga við lögregluna. —
En saklaus sex ára skóladrengur
varð einnig fyrir skoti og lét lifið.
Skólabillinn var stöðvaður eftir
25 mimitna æðislegan akstur um
götur Montreal með þvi að lög-
reglubifreið var ekið á hann.
Hálf tylft skólabarna var í biln-
um, þegar ræninginn neyddi ekil-
inn til þess að flýja með sig.