Vísir - 02.10.1975, Blaðsíða 5
Vísir. Fimmtudagur 2. október 1975
5
önd í morgun utlöndí morgun útlönd í morgun ÚTL Umsjón: Guðmundur Pétursson
'fcfc.- .. -------------<-T-1---
sinn hóf hann meö þvi aö flæma
úr Uganda tugþúsundir borgara
af Siuættum, sem hann rúði öll-
um eignum. í brottflutningun-
um nauðguðu hermenn hans
flestum konum þessara ólán-
sömu landleysingja.
Ekki alls fyrir löngu smánaði
hann svivirðilega Elizabetu
prinsessu, utanrikisráðherra
sinn og fyrrum sendiherra
Uganda hjá Sameinuðu þjóðun-
um.
Skömmu siðar beygði hann
bresku stjórnina i duftiö, þegar
hann neyddi utanrikisráðherra
Breta til þess að koma bónarför
til Uganda að biðja blásaklaus-
um breskum kennara griða.
Amin forseti hafði látið dæma
kennarann til dauða fyrir njósn-
ir, vegna þess að honum mislik-
aði hvaða orðum kennarinn i
bókarhandriti sinu hafði farið
um Amin. — Heimurinn var
vitni að þvi, þegar utanrikisráö-
herrann þakkaði Amin með
handtaki drengskapinn og
mannkærleikann, þegar Amin
hætti við að láta taka kennarann
af lifi.
Ekki er langt siðan Idi Amin
lauk heimsókn til Italiu, þar
sem hann naut áheyrnar páf-
ans, sem tók honum tveim
höndum, auk annarrar virðing-
ar, sem þessum þjóðhöfðingja
Uganda var sýnd.
AllSHCRJARÞINCI S.Þ.
Idi Amin, Ugandafor-
seti, lét gamminn geisa í
ræðu, sem hann flutti á
allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna í gær.
Þar heimtaði hann, að
Israel yrði vikið úr sam-
tökunum, sakaði Bret-
land um f járkúgun og lá
Bandaríkjamönnum á
hálsi f yrir vonda meðf erð
á blökkumönnum.
brem mönnum var nóg boðið
undir þessari ræðu, og gengu
þeir úr fundarsalnum i mót-
mælaskyni. Voru það breski
fastafulltrúinn, Richard, og
tveir fulltrúar Israels.
Amin skartaði sinu fegursta,
þegar hann sté i ræðustól alls-
herjarþingsins. Glitraði á
heiðursmerkjaskrautið, sem
þakti brjóstið á marskálksein-
kennisbúningi hans. — Varð
mörgum starsýnt á merki is-
raelskra fallhlifahermanna,
sem marskálkurinn bar, á
meðan hann krafðist brottvis-
unar Israels.
,,‘Mérlíkar vel við gyðinga, en
ég kann ekki að meta zion-
isma,” sagði hann við þingfull-
trúana. Kvað hann zionista hafa
lagt Bandarikin undir sig, og
hefðu þeir i sinum höndum allar
framfarir og öll völd. Lýsti hann
þvi yfir, að ziónistar hefðu
breytt CIA, leyniþjónustú
Bandarikjanna, i morðsveit,
sem útrýma vildu allri réttlátri
andspyrnu, hvar sem hún fynd-
ist i heiminum.
Chaim Herzog, fastafulltrúi
Israels hjá Sameinuðu þjóðun-
um, sagði eftir á: „Þetta sýn-
ingaratriði var algert hneyksli
og sorglegur vitnisburður um,
hvernig komið er fyrir Samein-
uðu þjóðunum.”
Amin forseti talaði i nafni ný-
fengins embættis sins, sem for-
maður E iningarsam taka
Afrikulanda.
Idi Amin er sennilega ill-
ræmdasti núlifandi þjóðhöfðingi
heims. Hann er grunaður um að
hafa látið taka af lifi pólitiska
andstæðinga, raunverulega sem
imyndaða, heima i Uganda svo
að þúsundum skiptir. Valdaferil
Idi Amin, forseti, er brosleitur á þessari mynd, sem tekin var af honum,
kennaranum Dennis Hills (t.h.)og James Callaghan, utanrikisráð
herra Breta, sem þakkaði honum við þetta tækifæri hjartanlega fyrir
mannkærleikann að þyrma llfi Hills.
IDIAMIN FIR Á KOSTUM Á
Bœttist morðákœra á
aðrar sakargift-
ir Patty Hearst?
Rannsóknin á geðheilsu
milljónaerf ingjans, Patty
Hearst, er nú að komast á
lokastig, en verjendur
hennar segja, að hún sé
ófær um að þola réttar-
höldin, sem væntanleg eru
i máli hennar.
A meðan hefur skrifstofa sak-
sóknarans i San Francisco látið á
sér skilja, að sakargiftum eigi
eftir að fjölga, og jafnvel sé
hugsanlegt, að hún verði ákærð
fyrir morð.
Skýrsla sálfræðinga og úr-
skurður um, hvort hún geti svar-
að tilsaka, verður lögð fyrir rétt-
inn á þriðjudag. Þá um leið er að
vænta álitsgerðar heilaþvottar-
sérfræðings, en verjendur Patty
segja, að ræningjar hennar hafi á
sinum tima heilaþvegið hana og
neytt til fylgis við bankarán og
aðra þeirra iðju.
Patty Hearst er gefið að sök að
hafa borið ólöglega vopn, að hafa
tekið þátt i bankaráni, og að hafa
átt þátt i mannráni og fleira og
fleira. Nýlega létu yfirvöld i Kali-
forniu á sér skilja, að sjónarvott-
ar úr bankaráni, sem framið var i
Sacramento — og leiddi til dauða
konu einnar — hafi borið kennsl á
Patty meðal ræningjanna.
Hver sem reynist sannur að
hlutdeild i þvi bankaráni, liggur
undir sök, þótt hann hafi ekki með
eigin hendi valdið bana konunnar.'
Að lokinni hjónavígslu
Þessi mynd hér að ofan hefur borist frá Moskvu, en hún var tekin
af hinum nývigðu hjónum, Marlnu Stcherbatcheff og skák-
meistaranum Boris Spassky á þriðjudag, þegar þau voru að koma
frá hjónavigslunni.
Þótt yfirvöld hafi leyft hjúskapinn, er ekki öllum þeirra erfiö-
Ieikum úr vegi rutt. Til að byrja með eru þau á hálfgerðum hrak-
hólum með húsnæði, en búast viö að þau fái inni i ibúðarblokk, ætl-
aðri útlendindum þar sem Marina ætti að eiga vlsan aðgang að.
StaíaSS
dólS)0Uíf
Lögreglumaðurinn og iögreglu-
hundurinn á myndinni eru með-
al þeirra, sem standa vörð um
itölsku matsöluna i Knights-
bridge I London, en þangað sæk-
ir múgur og margmenni I for-
vitni sinni til að fylgjast með
umsátrinu, sem staðið hefur á
fimmta sólarhring.
Fengu spil á 5.
deqi umsát-
ursins í London
Hvor er þrjóskari, lögreglan
eða ræningjarnir? A þvi veltur
niðurstaða umsátursins um mat-
söluna i Knightsbridge i London,
sem nú hefur staðið á fimmta
sólarhring.
Þrir ræningjar hafa búið um sig
með sex gislum i kjallara matsöl-
unnar og halda lögreglunni i
skefjum, en hún elur með sér von-
ir um, að geta þreytt þá til upp-
gjafar blóðsúthellingalaust.
Lögreglan hefur neitað að
verða við kröfu ræningjanna um
flugvél til að flytja þá úr landi, og
hafa þeirekki ámálgað það meir.
— Hinsvegar hefur ræningjunum
og gislunum verið látið i té kaffi
og tóbak og áhöld til snyrtingar
og næturgagn.
Gislarnir eru sagðir við ágætis
heilsu, og sú spenna og kviði, sem
einkenndu fyrstu daga umsáturs-
ins, er óðum að vikja fyrir
kumpánlegheitum og hugarró.
Lögreglan hefur girt af svæðið
næst matsölunni, en Lundúnabú-
ar og túristar eru farnir að leggja
þangað leið sina til að forvitnast
um gang umsátursins.
1 upphafi voru gislarnir átta, en
ræningjarnir hafa sleppt tveimur.
— I staðinn fyrir kröfuna um flug-
vélina, sem ræningjarnir hafa
greinilega gefið upp á bátinn,
báru þeir fram nýja kröfu i nótt,
sem þeir settu á oddinn. Heimt-
uðu þeir spil til að stytta sér
stundir við, og var það látið eftir
þeim.
Rúður brotnuðu
i 8 km fjarlœgð
Sprenging í sprengiefnaverksmiðju nœrri Montreal
— Þeytti bifreið af nœrliggjandi vegi út í á
Taliðer/ aðsex manns að
minnsta kosti hafi látið líf-
ið og tólf slasast í gifur-
legri sprengingu, sem tætti
í sundur sprengiefnaverk-
smiðju skammt utan við
Montreal í gærkvöldi.
Svo mikill var kraftur
sprengingarinnar, að byggingar i
allt að átta km fjarlægð frá verk-
smiðjunni urðu fyrir skemmdum.
— Mátti sjá leifturglampa
sprengingarinnar i þriggja km
fjarlægð.
Þeir, sem létu lifið, voru að
sögn lögreglunnar i Montreal
verkamenn að störfum inni i
verksmiðjunni, þegar sprenging-
in varð.
Lýsingar sjónarvotta, sem
komu að rústunum eftir
sprenginguna, voru hroðalegar.
Blöstu við þeim likamspartar hér
og þar innan um rústirnar.
Sprengiefnaverksmiðja þessi
var i McMasterville, sem er i um
25 km fjarlægð frá Montreal. Eld-
ur braust út strax eftir sprenging-
una og varð að kveða til liðsauka
slökkviliðsmanna til að reyna að
hefta útbreiðslu eldsins.
Fjöldi fólks, sem býr i nágrenni
verksmiðjunnar, mun hafa orðið
fyrir minniháttar meiðslum, þeg-
ar það skarst undan glerbrotum,
sem rigndi yfir það um leið og
rúður brotnuðu i húsum þeirra
undan sprengingunni.
I morgunsárinu leituðu bátar á
Richelieu-ánni að bifreið, sem
talið er að hafi þeyst i ána út af
veginum, þegar hún ók hjá verk-
smiðjunni i sömu andránni sem
sprengingin varð.