Vísir


Vísir - 02.10.1975, Qupperneq 9

Vísir - 02.10.1975, Qupperneq 9
Visir. Fimmtudagur 2. október 1975 9 Umvafinn kvenfólki Hann hefur búiö meö Dinah Shore s.l. 4 ár þótt hún sé 17 árum eldri en hann. Ekki er annað aö sjá en vel fari á með Burt og Catherine Deneuve. Burt, en hún neitar öllu slikií og sagði m.a. nýlega i sjónvarps- þætti, að „þau væru aðeins góðir vinir og Dinah þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur.” Ekki er alveg vist að Dinah geri sér það að góðu þvi' enn fleiri koma til greina. Burt hafði nýlega boðið annarri sjónvarps- stjömu, Conny Van Dyke, i heimsókn i kvikmyndaverið i Mexico. Hann var svo upptekinn i samkvæmislifinu að fólk velti fyrir sér hvort hann hefði nokkurn tima aflögu fyrir kvik- myndatökuna! Ekki er þó unnt að segja á þessu stigi málsins hvort sam- band þeirra Dinah og Burt sé búið. En haft er eftir fyrrver- andi eiginkonu hans, Judy Crane, að hann hafi nokkuð lengi veriðað undirbúa „skilnað við Dinah, en vilji ekki særa hana,” sagði Judy. — „Hún er yndisleg kona sem hefur kennt mér margt og ég vil ekki gera hana óhamingjusamav Þegar Burt byrjaði að vera með henni sagði hann mér að það væri mjög þroskandi fyrir hann að vera með henni. Það var einmitt það sem Burt þurfti á að halda, að vera með einhverjum sem var eldri og gat leiðbeint honum. En nú hefur hann lok'ð þeim kafla i ævi sinni og vill losna.” „Elskum alltaf livort annað Burt sagði sjálfur nýlega að engu máli skipti hvað kæmi fyrirá milli hans og Dinah, þau myndu alltaf elska hvort annað. Dinah sjálf hefur af skiljan- legum ástæðum ekki viljað mikið til málanna leggja, en áhugasamur iþróttafréttaritari. sem skrifaði um golfmót, sem Dinah tók þátt í, fékk hana til að segja eftirfarandi: „Við Burt stunduðum aðallega innanhúss iþróttir. Nú ætla ég að snúa mér að utandyra iþróttum, aðallega golfi!” En hvort sem Dinah og Burt halda áfram að vera elskendur eða bara vinir er augljóst mál að Burt verður aldrei „einnar konu maður,” hann kann betur við frjálsar ástir og elskar kvenfólk almennt meira en svo, að hann vilji Utiloka allar nema eina. sambandi. Þau bjuggu saman og hættu bæði að fara út með öðrum. Þau héldu þvi fram að þau vildu ekki eyðileggja fullkomið ástarsamband með þvi að gift- ast en þau voru eins og ham- ingjusömustu hjón. Ástfangin upp fyrir haus í fjögur ár töluðu Dinah og Burt um ástarsamband sitt opinskátt bæði i sjónvarpsþátt- um, timaritum og við hvern sem heyra vildi. Dinah sagði m.a.: „Okkur finnst við hafa fast land undir fótum. Við höfum verið saman i tvö ár. Þetta er ekki neitt sam- band sem maður svifur inn i og siðan beint úr aftur. Strax frá byrjun var okkur ljóst að við áttum einstaklega vel saman og samband okkar var traustum á grunni.” Burt sagði: „Það er ekki sá maður til i Kaliforniu, sem hefur einhverja hugsun i hausn- um, sem ekkimyndi glaður gefa hægri handlegginn til að standa i þeim sporum sem ég stend hjá Dinah. Ég þurfti að ryðja úr vegi heilum hópi manna og það var svo sannarlega þess virði. Við erum einfaldlega vfir okkur ástfangin hvort af öðru.” Burt dró enga dul á að hon- um fannst það vera honum sjálfum til hróss að Dinah elsk- aöi hann. Og hann gerði sér það að góðu um tima. Hann var mjög heimtufrekur við hana og krafð- ist þess að hún væri með honum allar stundir. . — Burt lét sér mjög annt um samband okkar strax frá byrj- un, segir Dinah. — Hann lagði mikla áherslu á að við værum ekki meö fólki sem gæti haft skaðleg áhrif á samband okkar. Við áttum bæði stóran kunningjahóp sem við yfirgáf- um. Segja má að við höfum eiginlega alltaf verið ein, bjugg- um okkur alveg nýjan heim. Er nú tilbúinn til að ná sér i fleiri vinkonur A s.l. mánuðum virðist þessi heimur þeirra þó vera að hrynja. Burt hefur hlotið mikla frægð og leikur i hverri kvik- myndinni á eftir annarri og er á sifelldum ferðalögum. Virðist hann nú tilbúinn að ná sér i fleiri vinkonur en Dinah. — Ég hef ekki leikið i kvik- myndum einungis peninganna vegna, segir Burt, — ekki siður Vt »na þess að mér hafi litist vel á aðal-leikkonuna. Og nú er hann orðinn svo frægur að hann getur valið mót- leikkonur sinar úr hópi fegurstu og eftirsóttustu leikkvenna heims. Hann hefur verið orðaður við ýmsar frægar stjörnur, sem hann hefur leikið með, m.a. Catherine Deneuve sem lék með honum i „bannaðri” mynd. Ekki var talið óliklegt að þau aðhefðust eitthvað „bannað” þegar úr kvikmyndaverinu kom. Liza Minelli núna? Um þessar mundir er hann við myndatöku i Mexico. Liza Minelli leikur á móti honum. Látið hefur verið að þvi liggja að e.t.v. hafi hann tekið við hlut- verki i þeirri mynd, er nefnist „Luchy Lady”, vegna þess, „að honum hafi litist á mótleik- konuna.” A. m.k. er haft eftir einum af samstarfsmönnunum að „hann sé á eftir Lizu allar stundir og hver viti hvað þau geri þegar enginn sér til!” Liza er nýgift Jack Haley jr„ en það þarf ekki að standa i vegi fyrir nýju ástarsambandi. En ekki sú eina Liza er ekki eina konan sem orðuð hefur verið við Burt þess- ar siðustu vikurnar. Sjónvarps- stjörnunnar Adrienne Barbeau hefur verið getið i sambandi við Burt Reynolds þykir mjög „sexy” og þær eru margar frægar, sem hann hefur lagt aö velli. Hann vill frjálsar ástir og getur ekki verið„einnar konu maður" Ef dæma á velgengni karlmanna eftir kven- hylli þeirra má með sanni segja að banda- riski leikarinn og „kyn- bomban” Burt Reynolds njóti mikillar velgengni. Listi þeirra kvenna sem hann hefur verið kenndur við er lang- ur og þar eru mörg fræg nöfn. Missti „sveindóm” sinn 14 ára Burt viðurkennir að hann hafi misst „sveindóm” sinn er hann var aðeins 14 ára gamall og hafi eftir það verið með ótal konum áður en hann kvæntist fyrrver- andi eiginkonu sinni, Judy Crane. Hann hefur látið sér nægja að „búa með” siðan hann skildi við Judy. A eftir henni kom hin undur- fagra japanska leikkona, Miko Mayama. Samband þeirra var svo innilegt að á tímabili leit Ut fyrir að hann ætlaði að reyna til við hjónaband á ný, en svo var skyndilega bundinn endir á samband þeirra. Þá tók Burt saman við Inger Stevens, sem hann lék með i sjónvarpsþáttunum „Run, Simon, Run”. Þetta ástarsam- band varð þó skammvinnt og fékk skjótan endi þvi Inger lést skyndilega og á vofeiflegan hátt. Eftir það hafði Burt, af skiljanlegum ástæðum, ekki mikinn áhuga á að koma sér i nýtt fast ástarsamband. Hann saknaði Inger jnnilega og eins og aðrir sem svipað er farið hafa gert, leitaði hann huggunar i örmum margra tilkippilegra kvenna og hvildist I mörgum heitum rekkjum. En þá kom Dinah Shore til sögunnar Um tima leit út fyrir að hann ætlaði ekki að „komast á fast”, einungis halda áfram að hlaupa úr einum faðmi i' annan. En þá kom Dinah Shore til sögunnar. Þau hittust þegar Burt var gestur i sjónvarpsþætti hennar og urðu strax ástfangin hvort af öðru, þrátt fyrir 17 ára „rang- an” aldursmun. Þau fóru að fara út saman og eftir stuttan tima varð sam- band þeirra að eldheitu ástar- UMSJON: ABj.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.