Vísir - 02.10.1975, Síða 24
k
4
Fimmtudagur 2. október 1975
Sextug kona
lést
eftir umferðar
slys í morgun
Rúinlega sextug kona fórst I
umferöaslysi I Fossvogi I
morgun. Lenti konan fyrir bifreið
á Kringlumýrarbrautinni,
skammt frá Nesti.
Slysið varð með þeim hætti, að
konan gekk út á Kringlumýrar-
brautina, i áttina vestur yfir
hana. Gekk hún þá i veg fyrir bif-
reið, sem var á leið eftir vinstri
akrein, i átt til Reykjavikur.
Lenti konan á hægra framhorni
bifreiðarinnar, barst upp á vélar-
hlifina og kastaðist siðan i göt-
una.
Konan missti þegar meðvitund
og var flutt á slysavarðstofuna.
Lést hún skömmu eftir að komið
var með hana þangað.
ökumaður bifreiðarinnar ber
að hann hafi ekið á um 60 kfló-
metra hraða. Sá hann konuna
þegar hún gekk út á akbrautina
og reyndi að hemla, en hún var oí
nálægt til að hann fengi við ráðið.
Umferð var nokkuð mikil á
Kringlumýrarbrautinni, þegar
slysið varð. —HV
„Bítum á
jaxlinn"
Hver verða óhrif
kvennafrís
,.,Þær eru svo skeleggar
hérna, þessar elskur, þær verða
sjálfsagt með,” sagði Guð-
mundur Jónsson starfsmanna-
stjóri Hljóðvarpsins er Visir
spurði hann um væntaniega
þátttöku kvenstarfsmanna
hljóðvarpsins i kvcnnafriinu 24.
október. Hann kvað enga könn-
un hafa verið gerða hjá þeim
ennþá, en þar sem um 45% ai
starfsliðinu væru konur, mætti
gcra ráð fyrir töluverðri röskun
á vinnutiihögun þennan dag el
margar þeirra tækju fri.
Forstjóri mjólkursamsölunn-
ar sagði málið algjörlega óat-
hugað hjá þeim ennþá, en ef
þátttaka yrði mikil gæti þurft að
loka öllum mjólkurbúðum.
Yfirleitt virðist ekki hafa ver-
ið gerðar kannanir hjá atvinnu-
rekendum og fyrirtækjum,
nema hjá starfsmannafélögum
bankanna, en þar er þátttaka
mjög góð, ekki aðeins hér i Rvik
heldur einnig i útibúum viðs
vegar um landið.”
,,Við verðum að bita á jaxlinn
og reyna að halda bönkunum
opnum”, sagði Sólon Sigurðsson
deildarstjóri.
Gera má ráð fyrir að dagur-
inn verði karlmönnunum erfið-
ur, þar sem um 65% banka-
starfsmanna eru konur. —EB
UTANRÍKISRÁÐHERRA KANNAR HEIÐURSVÖRÐ
Einar Agústsson, utanrikis-
ráðherra kom i gær til Colorado
Springs i Colorado i Banda-
rikjunum. Utanrikisráðherra
þáði boð Atiantshafsbanda-
lagsins um að heimsækja aðal-
stöðvar þess i Colorado og
viðar. A myndinni sést utan-
rikisráðherra kanna heiöurs-
vörð við komuna til Colorado
Springs, en þar skoðar hann
aðal-stöðvar loftvarna Noröur--
Ameriku. A móti honum tók
einn hæstsetti biökkumaður i
Bandarikjaher, Daniel James,
en hann er æðsti yfirmaður
sameiginlegs árásar- og
viðvörunarkerf is Banda-
ríkjanna og Kanada.
,Vonum$t eftir
góðum órangri'
— segir iðnaðarróðherra
um perlusteinsvinnsíuna
„Perlusteinsvinnslan hcfur
verið I undirbúningi undanfarin
ár,” sagði Gunnar Thoroddsen,
iðnaðarráðherra f viðtali við
Vísi.
„Hörður Jónsson efnaverk-
fræðingur hefur annast undir-
búninginn á vegum Iðnþróunar-
stofnunarinnar og Gosefna-
nefndar. Ætlunin er að tilrauna-
vinnsla hefjist nú i okt.-nóv. og
gæðaprófanir munu fara fram,
jafnframt þvi sem kannaðir
verða markaðsmöguleikar
innan lands og utan.
Við vonumst eftir góðum
árangri, en um framhaldið er
ekkert hægt að segja, fyrr en
niðurstöður af þessum tilraun-
um liggja fyrir,” sagði
iðnaðarráðherra að lokum.
-EB.
FIMMTÍU ÞÚSUND í VERÐLAUN
-í gær var Tropicana appel-
sinusafa tappað á aðra mill-
jónustu fernuna frá þvi að
framleiðsla á Tropicana hófst
hér á landi 8. feb. 1973.
Einhver Tropicanakaupandi
mun þvi finna innan skamms
áprentaða plastræmu i fern-
unni sinni, þar sem honum er
tilkynnt um 50.000 kr. verð-
laun.
1 þessar tvær milljón fernur
hafa farið samtals u.þ.b.
2.118.000 litrar af appelsinu-
safa, eða tæplega þrjátiu og
þrjár milljón appelsinur. eb.
Ibúar Grjótaþorps
stofna félag um
verndun hverfisins
— Við höfum stofnað þessi
samtök til þess að vinna að
varðveislu og viðhaldi á Grjóta-
þorpi eins og það er í dag og vilj-
um sýna fólki fram á, að fæst
húsanna eru I niðurrifsástandi.
Flest eru þau mjög góð að innan
cn þarfnast málningar og
annars viðhalds að utan og það
er engin ástæða til að rifa þau —
■sagði Gerard Lemarquis, einn
af félögum nýstofnaðra ibúa-
samtaka Grjótaþorps, i viðtali
við Visi.
— fbúasamtökin, sem stofnuð
voru nú i vikunni, munu beita
sér eindregið gegn þeim niður-
rifstillögum, sem fram hafa
komið varðandi skipulag
hverfisins — sagði Gerard enn-
fremur — og vinna á annan hátt
að umbótum innan hverfisins.
Ennfremur hafa samtökin
áhuga á að kanna sögu
hverfisins og færa hana á skjöl.
Hafa þau stofnað starfshóp i þvi
augnamiði.
t viðtalinu við Visi skýrði
Gerard Lemarquis einnig frá
þvi, að samtökin hygðust
hreinsa til i Grjótaþorpinu, og
að hugmyndir séu uppi um að
rækta blóm á opnum svæðum og
koma upp aðstöðu fyrir börn i
hverfinu.
Ibúasamtök Grjótaþorps eru
opin öllum ibúum hverfisins til
inngöngu, en að sögn forráða-
manna þeirra munu flestir
þeirra þegar vera i þeim.
Þá geta þeir sem vilja vinna
að markmiðum félagsins gerst
s tu ð nings f éla g a r Fram-
kvæmdanefnd samtakanna mun
taka við nýjum félögum og veita
upplýsingar, en i henni eiga
sæti þau Laufey Jakobsdóttir,
Aðalstræti 16, Gestur Ólafsson,
Garðastræti 15, Friða Haralds-
dóttir, Bröttugötu 3a, Arnlin
óladóttir, Garðastræti 9 og
Helena Ben Garðastræti 21.-HV
Nýi leiklistar-
skólinn settur
„Kvenfólkið er i meirihluta,
eins og ævinlega i leiklistinni”,
sagði Pétur Einarsson, skóla-
stjóri nýja Leiklistarskólans,
sem settur var i fyrsta sinn i
gær.
„Nemendur verða 44, og
koma þeir úr þeim tveim
leiklistarskólum, sem fyrir
voru, og munu ljúka námi sinu
hér. 1 fyrstu mun skólinn
eingöngu mennta leikara og
verður aðaláherslan lögð á
leiktúlkun, en er fram lfða timar
finnst mér eðlilegt að i skólan-
um verði einnig veitt tilsögn i
öðrum störfum sem unnin eru i
leikhúsum,” sagði Pétur
Einarsson.
Nýi Leiklistarskólinn verður
til húsa i Pósthússkólanum,
Lækjargötu 14.
Frá setningu ieiklistarskóians i Iðnó I gær.