Vísir - 04.10.1975, Side 6
6
Vísir. Laugardagur 4. október 1975
VÍSIR
(Jtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson
Ritstjóri frétta: Arni Gunnarsson
Fíéttastjórierl.frétta: Guömundur Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innanlands.
i lausasölu 40 kr. eintakiö. Blaðaprent nf.
Höft og heilbrigð
st/órnsýsla
Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra, lýsti
yfir þvi i ræðu á framsóknarfundi nú i vikunni,
að ekki væri hægt að bæta gjaldeyrisstöðuna með
innflutningshöftum. Það væri óheilbrigð stefna að
byggja á sliku. Sérstök ástæða er til þess að fagna
þessari yfirlýsingu, þvi að framsóknarmenn hafa
fram til þessa verið veikir fyrir hinum úreltu hafta-
hugmyndum.
Eins og menn muna flutti viðskiptaráðherra
samskonar ræðu i byrjun ársins. Þar lét hann hins
vegar mjög að þvi liggja að nauðsynlegt kynni að
vera að gripa til hafta að einhverju leyti. í kjölfar
þeirrar ræðu spunnust miklar haftaumræður og
ýmsir létu i það skina að með höftum væri fundin
leið út úr aðsteðjandi efnahagsvanda og gjaldeyris-
erfiðleikum.
Nú segir viðskiptaráðherra að við getum ekki
komist upp með það einir að gripa til innflutnings-
hafta. Frelsi i viðskiptum sé mikils virði fyrir þjóð
eins og okkar er á svo mikið undir utanrikisvið-
skiptum sem raun ber vitni um. En það er ekki ein-
vörðungu að viðskiptaráðherra telji frjáls viðskipti
nauðsynleg, heldur segir hann berum orðum, að
haftastefnan sé óheilbrigð.
Hér er komið að kjarna málsins. Haftatimarnir
voru gróðrarstia flökkspólitiskrar spillingar og
mismununar. f skjóli haftastefnunnar spratt upp
kerfi flokkspólitiskra eftirlits- og fyrirgreiðslu-
manna. Viðskiptaráð, fjárhagsráð og innflutnings-
skrifstofa eru minnisvarðar þessa timabils.
1 byrjun sjöunda áratugsins var blaðinu snúið við.
Með frjálsum viðskiptaháttum var sjálfkrafa dreg-
ið úr flokkspólitisku eftirliti i stjórnsýslunni.
Viðskiptafrelsið horfði þvi til heilbrigðari hátta
bæði i viðskiptalifi og stjórnsýslu.
Það var þvi mörgum áhyggjuefni, þegar vinstri
stjórnin endurvakti pólitiska eftirlitsmannakerfið i
yfirstjórn Framkvæmdastofnunar rikisins á sinum
tima. Með þeirri ráðstöfun var horfið áratugi aftur i
timann. Hér er um óheilbrigða stjórnunarhætti að
ræða sem heyra til skömmtunarhugsunarhætti
haftaáranna.
Forystuflokkur núverandi rikisstjórnar sam-
þykkti á landsfundi sl. vor að lög um Framkvæmda-
stofnun rikisins skyldi endurskoða með það fyrir
augum að hverfa frá pólitisku eftirlitsmannakerfi i
yfirstjórn stofnunarinnar. í stefnuyfirlýsingu rikis-
stjórnarinnar segir að þessi lög eigi að endurskoða
en ekki er tekið fram með hverjum hætti.
Viðskiptaráðherra hefur nú afdráttarlaust tekið
af skarið að þvi er varðar haftastefnuna. Hann segir
nú hiklaust, að hún sé óheilbrigð. Forystumenn
Framsóknarflokksins hafa ekki talað svo skýrt og
skorinort um þetta efni fyrr og beinlinis afneitað
haftakerfinu.
1 framhaldi af þessari afstöðu viðskiptaráðherra
væri eðlilegt að Framsóknarflokkurinn féllist á að
afnema pólitiska eftirlitsmannakerfið i yfirstjórn
Framkvæmdastofnunarinnar. Þeir stjórnarhættir
eru aðeins leyfar gamla haftahugsunarháttarins.
Þegar hann er nú úr sögunni ætti ekkert að vera að
vanbúnáði að koma fram nýrri löggjöf um þetta at-
riði og festa nútima stjórnsýsluhætti i sessi.
Umsjón: GP
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSU8SSSSS5SÍ
mmmmSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS!
Echeverria
velur sér
eftirmann
í Mexíkó
Forsetaefnið lítt reyndur stjórnmóla-
maður, sem Echeverria forseti hefur
tyllt undir og bindur miklar vonir við
þjóömálanna eftir að sex ára
kjörtimabili hans lýkur.
Hinn 55 ára gamli Lopez
Portillo hefur aðeins tveggja og
hálfs árs reynslu sem ráðherra.
Hann þykir hófsamur i skoðun-
um og sú stefna, sem hann hefur
fylgt sem fjármálaráðherra, er
stefna sem dr. Echeverria hefur
mótað með honum.
Luis Echeverria, for-
seti Mexíkó, hefur
komið mörgum á óvart
með vali á eftirmanni
sínum. Sá er að visu
lærður maður i sínu
fagi, en með litla
reynslu á sviði stjórn-
mála og á fáa að.
Valið á Jose Lopez Portillo,
fjármálaráðherra, sem kunn-
gert var núna I vikunni með við-
eigandi trumbuslætti og lúðra-
blæstri að litríkum mexlkönsk-
um sið, hefur komið mönnum til
að leiða hugann að þvl, hvort dr.
Echeverria gangi eitthvað
fleira til.
Nefnilega að hann sé ef til vill
að búa svo um hnútana, að hann
geti áfram haft áhrif á gang
Dr. Echeverria, forseti Mexikó: — Valdi hann sér eftirmann, sem
j> gæti oröiö honum leiöitamur eftir aö Echeverria lætur sjálfur af
!! embætti?
Fram til þess að hann tók við
embætti fjármálaráðherra,
hafði Portillo starfað við
kennslu i háskólanum, eða þá
gegnt embættisverkum, sem
honum vorum falin vegna
þekkingar hans og álits hennar
vegna, en ekki vegna persónu-
fylgis sem stjórnmálamönnum
er nauðsyn I einsflokkakerfi
Mexlkó.
Hann á brautargengi sitt að
þakka dr. Echeverria sem setti
þennan, áður alls óþekkta
mann, til ráðherraembættis I
mái 1973. Og nú — eftir þvi sem
allir telja — valdi þennan
saman mann til að erfa forseta-
embættið.
Kynni þeirra verða rakin aft-
ur til ársins 1940, en þá voru þeir
nánir vinir, stúdentar saman I
háskóla og tókust á hendur
ferðalög saman til útlanda.
Éf þeir verða áfram jafn sam-
hentir og áður er ólíklegt, að
Portillo komi að sök þótt hann
skorti pólitisk sambönd. Dr.
Echeverria getur bætt honum
það upp. — Þvi láta menn sér
koma til hugar, að dr. Eche-
verria muni veita Portillo
stuðning I þessum efnum, gegn
þvi að fá einu og öðru ráðið um
stefnu stjórnarinnar, eftir að
hann hverfur frá embætti, sem
verður I desember 1976.
Mexlkönum þykir þessi hug-
mynd ekki svo fráhrindandi
sjálfum. Eitt virtasta dagblað
þeirra, hið óháða „Exelsior”,
skrifaði nýlega, að það væri
„rökrétt, að forsetanum léki
hugur á að starfi hans yrði hald-
ið áfram.” A
. „Sá mjói munur, sem getur
verið á slikum áhrifum og hin-
um óheilbrigðari afskiptum,
kynni þó auðveldlega að
hverfa,” skrifar blaðið enn-
fremur.
Það er erfitt að segja fyrir
hvort Portillo verði llklegur til
að taka upp nýja stefnu við
stjórn landsins ef hann kemst
að. Eða hvort hann verði likleg-
ur til að fylgja fordæmi Eche-
verria, sem stefnir að hægfara
þróun og þjóðfélagslegum
umbótum heima við, en styður
eindregið róttækni þriðja
heimsins á alþjóðlegum vett-
vangi.
Flokkur þeirra, byltingar-
flokkurinn, sem nú er við völd,
hefur ekki tapað kosningum,
hvorki forsetakosningum,
fylkiskosningum eða þing-
kosningum siðan hann var
stofnaður 1929. Það þykir ekki
ýkja liklegt, að hann taki upp á
þvi I forsetakosningunum sem
boöað hefur verið til 4. júli
næsta ár.
■■
Lopez Portillo hefur þegar
sagt af sér fjármálaráðherra- ■■
embættinu til þess að undirbúa ■■
framboð sitt I forsetakosningun- ■■
um. Hljóti hann tilnefningu ■■
flokksins, getur hann vænst 80% !■
atkvæða kjósenda, sem hefur !■
verið það fylgi, sem flokkurinn ■■
venjulegast nýtur.
Hann hefur verið talinn lik
legur til þess að hljóta I framtlð- |(
inni þennan frama, þótt ekki •!
yrði kannski alveg strax, meðan U
hann hefur ekki meiri reynslu I 5:
stjórnmálum. En verkalýðs- ::
félögin gengu á undan öðrum ::
með þvi að lýsa þvi yfir á dög-
unum, að þau styddu framboð
hans.
Liðu ekki margar
klukkustundir, þar til allt
flokkskerfið hafði fylgt á eftir,
utan fjórir þingmenn.
Dagblaðið „Exelsior” hefur
tekið sig út úr fjöldanum og
gagnrýnt þetta val. Það lýsir
Portillo sem öriyndum manni,
sem verði að læra, að
„stjórnmál og stjórnsýsla
íýðræðisriki sé unnin með höfð-
inu en ekki hjartanu.”
>■■■•■■■■■■■■■■£