Vísir - 09.10.1975, Page 1
VÍSIR
65. árg. — Fimmtudagur 9. október 1975 — 229. tbl.
RUDDIST INN Á 8 ÁRA TELPU
stal, braut og bramlaði
Drukkinn maður ruddist inn i
ibúð, þar sem átta ára stúlka
var ein heima, við Fálkagötu i
gær. Maðurinn vann spjöll á
húsmunum, ruddi þeim um og
braut, auk þess stai hann þar
sparifé úr veski.
Hann var handtekinn á staðn-
um og færður i fangageymslu.
Maðurinn komst inn i ibúðina
á þann veg að hann hringdi
dyrabjöllu og opnaði þá litla
stúlkan dyrnar, Ruddist hann
fram hjá henni inn i ibúðina,
með nokkrum hamagangi.
Stúlkan varð mjög hrædd við
og forðaði sér yfir i næstu ibúð,
en þaðan var hringt á lögregl-
una.
Þegar lögregla kom á staðinn
hafði maðurinn haft endaskipti
á Ibúðinni og lá sjálfur á stofu-
gölfi hennar. Var hann að eiga
við sjónvarpstæki.
Hafði hann stungið á sig
sparifé úr veski i ibúðinni og tal-
ið er að húsbrotið hafi verið
framið i þjófnaðarskyni. —Hv
Enn eigum
við metið
— Verðbólgan á íslandi
54,5% í ágúst
Verðbólguskrúfan hægði verulega á sér i ágúst á
Vesturlöndum, nema á islandi, sem á þann vafa-
sama heiður að vera í lang-efsta sæti á verðbólgu-
lista OECD, Bretar og Tyrkir telja sig eiga um sárt
að binda, vegna óðaverðbólgu. Þeir eru i öðru og
þriðja sæti, Bretar með 26,9% og Tyrkir með 21,1%.
— Sjá blaðsíðu 5.
Niðurgreiðslu-
kerfið hefur
gengið sér ~ SÍ° viðtal við formann
a Stéttarsambands bœnda
til huðar bis. 8-9
Útgáfa spari-
skírteinanna
nónast geðveiki
— segir formaður Félags iðnrekenda
— Þessi spariskirteinaútgáfa
rikissjóðs er nánast geöveiki,
sagði Davið Scheving
Thorsteinsson, formaður Félags
isl. iðnrekenda, við Visi i morg-
un. — Það er varla nokkurt fé
að hafa á lánamarkaðinum og
að rikið skuli hirða hundruð
milljóna til óarðbærra hluta á
þennan hátt, er fásinna.
— Það er lika verið að setja
timasprengju undir rassinn á
komandi rikisstjórnum. Hvað
ætla þeir að gera þegar kemur
að skuldadögum? Gefa út ný og
ný og ný? Hvenær springur
blaðran?
— Aumingjalegasta auglýs-
ing sem ég hef séð, birtist þegar
bréfin frá 1974 féllu. Þá kom
auglýsing frá Seðlabanka og
rikisstjórn um að nú mætti inn-
leysa spariskírteinin. Þau höfðu
þá fjórtánfaldast eða þar um
bil. í auglýsingunni var jafn-
framt bent á að þeir væru að
gefa út ný bréf, sem hægt væri
að skipta á I stað þess að taka
peningana. Þeir áttu ekki fyrir
þvi að borga bréfin.
1 næsta mánuði verða gefin út
happdrættisskuldabréf fyrir um
300 milljónir. Útgáfa rikissjóðs
á spariskirteinum og happ-
drættisskuldabréfum verður þá
orðin rúmlega einn og hálfur
milljarður á þessu ári.
— ÓT.
Rikisstjórnir koma í
veg fyrir hallalausan
rekstur Pósts og síma
Gagnrýnin beinist einnig að
rikisstjórnum, bæði fyrrverandi
og núverandi. Segja simamenn i
ályktun sinni, að ríkisstjórnirnar
hafi komið i veg fyrir að Póstur
og simi sé rekin hallalaust.
En vegna þess að póst- og sima-
málastj^ hafi ekki gert yfir-
stjórn þessara mála nægilega
skýra grein fyrir þörfum stofnun-
arinnar, hafi rikisstjórnirnar ekki
gert sér grein fyrir ástandinu.
Stofnunin fleytir sér
áfram á innheimtufé
t ályktun simamanna segir, að
þeim sé kunnugt um að Póstur og
simi sé að kafna I óreiðuskuldum,
bæði innanlands og utan. Stofnun-
in hafi fleytt sér áfram á fé, sem
hún innheimtir fyrir riki og-
einkaaðila. Svo langt hafi gengið,
að stofnunin hafi ekki getað skilað
þessu fé á gjalddögum. Telur
fundurinn að rekstur á þessum
grundvelli geti ekki haldið áfram.
Best að loka stofnun-
inni þar til viðunandi
lausn finnst
Fundurinn skorar á póst- og
simamálastjóra að hann geri
rikisvaldinu skýra grein fyrir
þessu ástandi og krefjist eðlilegs
rekstrargrundvallar fyrirtækis-
ins. Ella sé eðlilegast að loka
stofnuninni þar til viðunandi
lausn sé fundinn á fjárhagserfið-
leikunum.
Simamenn gera fleiri ályktan-
ir, þar sem fram kemur gagnrýni
M.a. er hún gagnrýnd fyrir að
láta árásum á stofnunina
ósvarað.
Visir náði ekki sambandi við
Jón Skúlason, póst- og simamála-
stjóra I morgun, til að bera álykt-
anir slmamanna undir hann.
—ÓH
„Fundinum er kunn-
ugt um að stofnunin er
að kafna i óreiðuskuld-
um..... Fundurinn telur
að Póst- og simamála-
stjóri hafi ekki gert yfir-
stjórn þessara mála
nógu skýra grein fyrir
þörfum stofnunarinnar i
þessum efnum, þess
vegna sé komið i það
ófremdarástand sem nú
rikir hjá Pósti og sima.”
Þessi tilvitnun er tekin úr einni
af þeim ályktunum sem Félag Is-
lenskra slmamanna gerði á
landsfundi sinum á Húsavik dag-
ana 2. til 5. október.
Simamenn gagnrýna æðstu
yfirboðara sinn, póst- og sima-
málastjóra, harðlega vegna
hinnar slæmu fjárhagsstöðu
Pósts og sima.
Póstur og sími er að
kafna í óreiðuskuldum
> o
— segja símamenn. sem gagnrýna harðlega yfirboðara sína fyrir linkind við ríkisvaldið