Vísir - 28.10.1975, Side 1
vism
Þriðjudagur 28. október 1975 — 244. tbl.
FYRSTU
ÍSLENSKU
LJÓNIN
— sjá bls. 3
Svissneski snjóflóðafrœðingurinn dr. M. de Quervain:
Ráðteggur Eskfirðingum að
hœtta við húsbyggingar
- segir byggingar í þremur öðrum kaupstöðum
komnar langt inn á hœttusvœði vegna snjóflóða
Eskfirðingar ættu að hætta
við fyrirhugaðar ibúðabygging-
ar, vegna snjófióðahættu, ráð-
leggur svissneski snjóflóða-
fræöingurinn de Quervain.
Eftir snjóflóðin á Neskaup-
stað um jólin f fyrra, var dr. M.
de Quervain fenginn til að
kanna snjóflóðahættu hér á
Iandi. Skýrsia hans barst nýiega
til Almannavarna.
Þd að de Qúervain skoðaði
ekki sérstaklega á Eskifirði,
ályktaði hann af lýsingu á fyrir-
huguðu ibúðasvæði, að vegna
möguleikanna á snjóflóðum þar
á að minnsta kosti 30 ára fresti,
að ekki væri ráðlegt að hefja
neinar ibúðabyggingar þar.
M. de Quervain hefur ýmis
önnur ráð á takteinum, sérstak-
lega hvað varðar staðina þrjá
sem hann heimsótti, Neskaup-
stað, Seyðisfjörð og Siglufjörö.
Hann ráðleggur, að á þessum
stöðum verði komið upp sér-
stökum nefndum, sem undirbúi
varnarkerfi vegna snjóflóða.
Hann leggur til að bæjarstjórnir
komi á fót viðtækri starfsemi,
sem hafi með höndum allar ráð-
stafanir, ef snjóflóð verða.
M. de Quervain segir i skýrslu
sinni, að miklar varúðarráð-
stafanir þurfi að gera á þeim
stöðum sem hætta er á aö snjó-
flóð veröi á. Hann bendir á, að
nú þegar séu ibúða- og iðnaðar-
byggingar komnar langt inn á
hættusvæði.á stööunum þremur
sem hann skoðaði.
— ÓH
406 flutn-
ingaskip
hafa beðið
mónuðum
saman eftir
— Sjá erlendar
lOSUn fréttir bls. 5
SÍÐUSTU BÆIRNIR f DALNUM
i Laugardalnum eru dalnum, og tröllin sækja framar vinalega kú bita
tveir litlir bóndabæir. hart aö þeim. Ef tröllin gras meö háhýsin i bak-
Það eru síðustu bæirnir í vinna sjáum við ekki sýn. Sjá bls. 8.
Hver segir satt um verð
nýju gœsluvélarínnar?
Hin nýja Fokker-flugvél
Landhelgisgæslunnar mun
kosta um 600 miiljónir
króna, þegar hún kemur
hingað og er tilbúin til
gæslustarfa. Landhelgis-
gæslan hefur sakað frétta-
menn um falsanir í sam-
bandi við verð á vélinni.
Sjálf virðist hún að
minnsta kosti vera sek um
nokkra reikningsskekkju.
Landhelgisgæslan hefur sagt að
umsamið kaupverð hafi verið 436
milljónir króna og sérhæfð tæki
kosti um 50 milljónir i viðbót.
Endanlegt verð verði þvi um 500
milljónir. en ekki 600 eða 750
milljónir ,,sem sumir blaðamenn
hafa sagt”.
t greinargerð frá Leifi Magnús-
syni, varaflugmálastjóra, hefur
nú hins vegar komið fram, að
skráð samningsverð er yfir 7,5
milljón gyllini. Það eru yfir 470
milljónir króna. Þá hefur Lanri-
helgisgæslunni láðst að geta þess
að samningsákvæði um erlendar
verðhækkanir á hinum langa
tima frá pöntun til afgreiðslu,
Gœslan nefndi
ekki
samningsbundnar
verðhœkkanir
valda þvi að afgreiðsluverðið,
verður nær 550 milljónir. Þar við
bætast svo þessar 50 milljónir
sem Landhelgisgæslan ætlar til
tækjakaupa. I greinargerð Leifs
J. Magnússonar kemur einnig
fram að ýmsar tæknilegar upp-
lýsingar Gæslunnar virðast vera
frá árinu 1968. Nokkrar framfarir
og breytingar munu hafa orðið
siðan.
— ÓT.