Vísir - 01.11.1975, Side 16
16
VtSIR. Laugardagur 1. nóvember 1975
í í DAG | Q KVÖLD | Q □AG | Q KVÖLD | Q □AG |
Sölubörn Visis liafa lengi sett svip sinn á borgina: Mörg börn vinna sér inn talsverða peninga og flest
eru þau að safna fyrir einhverju. En fyrir hverju? Rætt verður við sölubörnin I sjónvarpinu á morg-
un.
Sjónvarp, kl. 18.00 ó sunnudag:
Fyrir hverju eru
sölubörnin að safna?
— rœtt við sölubörn síðdegisblaðanna í
„Stundinni okkar"
Sölubörn Visis hafa lengi sett
stóran og skemmtilegan svip á
horgarlifiö með hrópum sínum
og köllum. Ekki hafa hrópin
heldur minnkað siðan síðdegis-
biöðin urðu tvö.
Þessir duglegu krakkar fá nú
pláss I þættinum „Stundin okk-
ar” á morgun. Með sölunni
vinna margir krakkar sér inn
talsverða peninga, en hvað gera
þau við þá?
Flest eru þau að safna fyrir
einhverju, sagði Sigriður Mar-
grét Guðmundsdóttir, en Sigrið-
ur sem er annar umsjónarmaö-
ur stundarinnar, fór með sjón-
varpsmönnum i bæinn og ræddi
við nokkur barnanna.
Þá eru þau spurð að þvi hvar
þau selji helst blöðin, og rabbað
er við strákana sem selja við
umferðarljósin. En er ekki eitt-
hvað um stúlkur innan sölu-
barnanna? Ekki virðást þær
margar. Að minnsta kosti fundu
sjónvarpsmenn ekki nema eina,
þó svo þeir reyndu að finna
fleiri. En að sjálfsögðu var rætt
við þessa einu.
Arangurinn sjáum við svo á
morgun. Sigriður sagði að það
yrði liklega gert að föstum lið i
þættinum, að fara út i bæ til þess
að forvitnast um hvað krákk-
arnir eru yfirleitt að bralla.
Ýmislegt fleira er i bigerð,
t.d. er nú að hefjast undirbún-
ingur jólaefnis. t þættinum á
morgun verður fleira en sölu-
börnin, svo sem söngur Bessa
Bjarnasonar um Rönku og hæn-
urnar hennar, mynd um Mishu
og býflugu sem heitir Herbert.
Loks verður svo sýnd mynd frá
fiskasafninu i Kaupmannahöfn.
—EA
Sjónvarp, kl. 20.30:
Hópur af ungum
sœtum stelpum
- ó ýmsu gengur hjó lœknunum í kvöld
Það er von á hóp af nýjum
sjúkraþjálfum á spitalann sem
allt eru ungar og aö sjálfsögðu
fagrar stúlkur.
Eftir þessu að dæma ætti að
verða lif og fjör hjá Læknunum i
kvöld, en að sjálfsögðu kemur
upp einhver vandi.
Læknarnir fyllast miklum
áhuga á störfum stúlknanna, en
eitthvað hlýtur þó að búa undir.
Duncan kemst i kynni við eina
stúlkuna úr hópnum, sem
virðist ákaflega saklaus, hann
hagar sér i samræmi við það.
Hann fæst til þess að bjóða
henni á spltalaball, og þar
gengur svo sannarlega á
ýmsu....
En við biðum bara til klukkan
20.30 I kvöld
—EA
Sjónvarp, kl. 22.50 annað kvöld:
Nýbreytni í sjónvarpi
Leikmaður
flytur
hugvekju
Nýbreytni hefur verið tekin
upp hjá sjónvarpinu. Ilingað til
hafa nær eingöngu prestar flutt
kvöldhugvekjuna á sunnudags-
kvöldum.
Þessu á nú að breyta, og
verður fleirum gefinn kostur á
að segja nokkur vel valin orð I
enda dagskrárinnar.
Páll Glslason, yfirlæknir,
flytur til dæmis hugvekjuna
annað kvöld.'og leikmenn ann-
asthana síðan öðru hverju i vet-
ur.
—EA
Páll Gislason.
SJÚNVARP •
Laugardagur
1. nóvember
17.00 tþróttir. Umsjónarmað-
ur ómar Ragnarsson.
18.30 Leikbrúðulandið. End-
ursýndir 2 þættir um
Meistara Jakob: 1. Meistari
Jakob kemur i heimsókn. 2.
Meistari Jakob í konungs-
höllinni. Frumflutt 1. og 15.
april 1975.
19.00 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Læknir i vanda. Breskur
gamanmyndaflokkur. úlf-
urinn taminn. Þýðandi Ste-
fán Jökulsson.
20.55 Heriúðrar gjaiia. Skosk-
ar, enskar, ástralskar, ný-
sjálenskar og kanadiskar
herhljómsveitir leika her-
göngulög við Edinborgar-
kastala. Einnig er skemmt
með söng og dansi. Þýðandi
Stefán Jökulsson.
(Evróvison — BBC).
22.10 Eltingarleikur i Atlants-
hafi (The Bedford
Incident). Bandarisk bió-
mynd frá 1965. Leikstjóri
James B. Harris. Aðalhlut-
verk Richard Widmark og
Sidney Poitier. Bandariskur
tundurspillir er á eftirlits-
ferð á Grænlandshafi.
Sovézkur kafbátur sést á
siglingu. Bandariski skip-
herrann ákveður að fylgja
kafbátnum eftir og telur það
góða æfingu fyrir skipshöfn
sína. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
23.45 Dagskrárlok.
Sunnudagur
2. nóvember 1975.
18.00 Stundin okkar. Sýnd
verður mynd um býflugu,
sem heitir Herbert. Bessi
Bjarnason syngur um
Rönku og hænurnar hennar.
Siðan er mynd um Mishu og
viðtöl við börn, sem selja
síðdegisblööin I Reykjavlk,
og loks sýnd mynd, sem tek-
in var á fiskasafninu I
Kaupmannahöfn.
Umsjónarmenn Sigriður
Margrét Guðmundsdóttir og
Hermann Ragnar Stefáns-
son. Stjórn upptöku Kristln
Pálsdóttir.
Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Það eru komnir gestir.
Arni Gunnarsson tekur á
móti Asa i Bæ, Jónasi Arna-
syni, og um 30 nemendum
Stýrimannaskólans. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.40 Samleikur á tvö pianó.
Gisli Magnússon og Halldór
Haraldsson leika Scara-
mouche, svitu eftir Darius
Milhaud. Upptaka Egill
Eðvarðsson.
21.50 Landrek. Bresk fræöslu-
mynd um landreks kenning-
una og þá byltingu, sem
varö er hún kom fram. Þýð-
andi og þulur Ellert Sigur-
björnsson.
22.40 Að kvöldi dags. Páll
Gislason yfirlæknir flytur
hugvekju. Prestar hafa nær
einvörðungu flutt þessa
kvöldhugvekju frá upphafi,
en nú hefur verið afráöiö að
leikmenn annist hana öðru
hverju i vetur.
22.50 Dagskrárlok.
— Finnst þér ekki kominn tlmi til að þétta þennan glugga
eitthvað?