Vísir - 03.11.1975, Blaðsíða 1
VISIR
Mánudagur 3. nóvember 1975 — 249 tbl.
Schlesinger vikið burt og
risið lœkkað á Kissinger
Til uppgjörs virðist hafa kom-
ið i valdatafli þeirra Henry
Kissingers, utanrikisráðherra,
og James Schlesingers, varnar-
málaráðherra i stjórn Fords
forseta.
Búist er við staðfestingu
Hvita hússins i dag á þeiin tið-
indum, að Schlesinger hafi verið
vikið úr ráðherraembætti, en
um ieið hafi verið fækkað
áhrifastöðum, sem Kissinger
gegndi.
Þessir tveir áhrifamestu
embættismenn Bandarikja-
stjórnar hafa lengi verið á önd-
verðum meiði um mikilvæg
stefnuatriði, og hvor um sig
keppt um áhrifin á æðsta mann
þjóðarinnar, forsetann sjálfan.
Sjá bls.5
MIKIÐ TJÓN í 6 VEÐRINU
VESTMANNAEYJAR:
3 bátar slitnuðu frá
„Það er langt siðan það hefur
komið annað eins ausandi
vatnsveður og hér var aðfara-
nótt sunnudagsins”, sagði lög-
reglumaður sem við spjölluðum
viö i Vestmannaeyjum i morg-
un.
12 vindstig voru i Eyjum, en
vindhraðinn hefur áreiðanlega
verið meiri þegar verst lét.
Enda var það lika orðað svo, að
„hafrót væri” og þá er veður-
ofsinn orðinn allmikill.
Þrátt fyrir þetta varð litið
sem ekkert um tjón i Eyjum. Að
visu slitnuðu þrir bátar frá
bryggju i nótt og lentu á malar-
bakka skammt frá. Ekkert tjón
varð á bátunum, og það tók inn-
an við klukkutima frá þvi að
þetta skeði að koma bátunum
íyrir á ný.
Lögreglan hafði engar fregnir
haft af foki eða tjóni, „enda er
oft einkennilega mikið skjól hér
i bænum þó svona láti”.
KEFLAVÍK:
Tvær trillur sukku og
vinnuskúr tókst á loft
Lögreglan i Keflavik hafði i
nógu að snúast i fyrrinótt.
Versta veðúr var þá skollið á,
og má segja að allt hafi verið á
mikilli hreyfingu við höfnina.
Tvær trillur sukku, og salt-
skip, sem lá við bryggju flutti
sig út og lá fyrir utan á meðan
veðrið var verst. Voru fest-
arnar byrjaðar að slitna.
Vinnuskúr sem verkstjórar
sem stjórna vinnu við höfnina
hafa aðsetur i, fór af stað og
fauk einn til tvo hringi, en það
tókst aö stöðva hann, áður en
hann færi lengra.
Að öðru leyti höfðu menn við
veðurofsanum. —EA
SANDGERÐI:
Bfll í sjóinn — fimm bátar
upp í fjöru
„Það var hroðalegt útlit i
höfninni i Sandgeröi i morgun,
stórgrýti og steyptar hellur úr
bryggjunni foknar upp. Nokkrir
bátar slitnuðu upp og fimm rak
upp i fjöru. Fjórum tókst að ná
út aftur en Skúmur 140—150
tonna bátur liggur enn í fjör-
unni. Skemmdir eru ókannaðar
enn. Rambler bifreið sem stóð
mannlaus bryggjunni skolaðist
út af henni I sjóganginum og
liggur nú I höfninni.”
Þannig lýsti Óskar Hall-
grimsson í Keflavik ástandinu I
Sandgerði, en hann var þar á-
samt fleirum á vakki i nótt.
Að hans sögn var vitlaust
í morgun kviknaði i
báti i Reykjavikur-
höfn. —Sjá bak
veður þar i nótt, hvassviðri,
rigning og haugabrim. Talin er
mesta mildi að ekki skyldu fleiri
bátar fara upp I fjöru, en sjó-
menn voru á verði og reyndu að
afstýra tjóni. Ekki var þó unnt
að komast út i alla bátana, þar
sem sjógangur á kantinum var
svo mikill.
Að sögn óskars fauk eitthvað
af þakjárni af húsum, en veðrið
er nú að ganga niöur, þó búast
menn við að eitthvað geti gengið
á á flóðinu I kvöld og eru þvi við-
búnir. —EB
GRINDAVIK:
Sérstaklega mikil flóðhæð var
i Grindavik i nótt og I morgun.
A milli klukkan f jögur og fimm i
morgun slitnaði stór bátur,
Hrafn GK 12, sem er um 300-400
tonn, frá bryggju og rak upp i
fjöru.
I morgun þegar við höfðum
samband við lögregluna i
Grindavik voru skemmdir ekki
fullkannaðar á bátnum.
Talið var að bátar sem lágu
við bryggju gætu hafa skemmst
eitthvað, þótt þeir hafi ekki
slitnað frá.
Eitthvað af járnplötum fauk
af húsþökum, en ekkert tjón
hlaust af. Mikið af grjóti kastað-
ist upp á bryggjur.
Vont veður var i Grindavik i
fyrrinótt en öllu verra i nótt.
—EA
Þak> vinnuskúrar og tjöld á
loft — Herjólfsgatan í
Hafnarfirði ófær í morgun
Þó ekki liafi orðiö mikið tjón
af óveðrinu hér i Reykjavik eða
næsta nágrenni liafði lögreglan i
vmsu að snúast.
I Hafnarfirði var Herjólfsgat-
an til dæmis ófær af grjóti i
morgun. Þar fauk einnig þak af
• hlöðu sem stendur áföst ibúðar-
húsi.
Ekki nema helmingur þaksins
fauk. Sem betur fer hlaust ekk-
ert tjón af, enda stendur ibúðar-
húsið nokkuð frá öðrum húsum,
eða rétt við Reykjanesbrautina.
Vinnuskúrar voru á hreyfingu
á Seltjarnarnesi i óveðrinu, og
þar þurfti lika að bjarga svo-
kölluðum simatjöldum, en þar
hafa menn aðsetur við vinnu.
—EA
Gífurlegt tjón ó Eyrarbakka
Hér gefur að lita Sólborgu AR 15, þar sem hún liggur á hafnargarðin-
um. A ininni myndinni sést gatið sem myndaðist á vegg salthússins
þegar sjórinn hafði grafiðundan þvi. Veggirnir voru steyptir og hrundu
út. Ljósm. Visis Bragi.
Stjórtjón varö i nótt á Eyrar-
bakka i ofsaroki og sjógangi.
Tveir bátar, Skúli fógeti og
Sleipnir sukku I höfninni og Sól-
borg AR 15 lagðist upp á hafnar-
garðinn. Skúli og Sleipnir eru 22
tonn og 10 tonn og sást hvorki
tangur né tetur af þeim er Visir
kom á staðinn i morgun. Sólborg-
in, 86 lesta, liggur stórlöskuð á
hafnargarðinum og um tíuleytið
voru inenn byrjaöir að bjarga
tækjum úr henni.
Salthús frystihússins eyðilagð-
ist cr sjórinn gróf undan þvi
þannig að steyptir veggir hússins
hrundu. Einnig hvarf gersamlega
aökeyrslan aö húsinu og stórar
steypublokkir þeyttust með sjónr
um upp aö veggjum frystihússins.
Vatn flæddi inn i nokkur hús og i
einu þeirra, sem er um 300 metra
frá sjávarmáli, vaknaði maður
einn við þaö að sjór flæddi upp
undir svefnbekkinn hans.
Sjógangurinn náði hámarki
sinu um hálfsex-leytiö á flóöinu að
sögn nokkurra manna á staönuni.
Sögöu þeir að það væri cins og
fellibylur hefði gengið yfir og
flóðbylgja skolliö á kauptúninu.
Sólborgin er i eigu frvstihússins
sem er rekiö sem hlutafélag i eigu
hreppsbúa. Það hefur þvi oröið
fyrir geysilegu tjóni núna en ekki
er nema unt hálfur máuuður sið-
an veiðafærageymsla frvstihúss-
ins á Eyrarbakka brann meö öll-
uin veiðarfærum sem voru litið
tryggð. —RJ
Fjárreiður Kröflu-
nef ndar gagnrýndar
Kröflunefnd er harðlega
gagnrýnd i Alþýðuinanninum á
Akureyri sem út kom 29. októ-
ber. Er þar sagt að hegðun
liennar veki undrun og hneyksl-
un og spurt um hvað sé verið að
~ ~ - ------ - ] ' -
fela. Fjallað er um fjárreiður
nefndarinnar og eyöslusemi
gagnrýnd.
Meðal annars er sagt að skrif-
stofa Jóns G. Sólnes, formanns
nefndarinnar, sé einhver sú
glæsilegasta á landinu og séu
sagðar sögur um óhemjulegan
kostnað við flutning hús-
gagnanna einna, hvað þá verðið
á þeim.
Einnig er minnst á ferðalög
nefndarjnnar og sagt að Jón G'
Sólnes, Július Sólnes og Jón Kr.
Sólnes séu nú á ferðalagi i
Japan, ásamt eiginkonum sin-
um, þeirra erinda að fá lán fyrir
Kröfluvirkjun.
Getið er um að erfitt sé áð fá
upplýsingar um hvernig nefndin
eyði þvi fé sem hún hefur til ráð-
stöfunar. Er vitnað til nýútkom-
innar skýrslu fjármálaráðu-
neytis um stjórnir, nefndir og
ráð rikisins. Þar er frá þvi skýrt
að Kröflunefnd hafi ekki svarað
tilmælum um að gera grein J
fyrir kostnaði við starfa sinn. i
— ÓT