Vísir - 03.11.1975, Page 2
vteutro
Ferðu oft i leikhús?
Sigurgeir Jóhannsson, sendibii-
stjóri: Nei, sjaldan, kannski
tvisvar til þrisvar á ári. Siðastsá
ég Kristnihaldið i Iðnó. bað er
ekkert sérstakt i leikhúsunum
sem heillar mig þessa dagana.
Elin Eva Grimsdóttir, 11 ára,
Visissölumaður: Stundum. Síðast
sá ég Kardemommubæinn i Þjóð-
leikhúsinu. Það var i fyrra.
Finnbogi Pétursson, nemandi:
Aðeins á skólasýningar. Siðast sá
ég Höfuðsmanninn frá Köpernik
i fyrravetur. Annars er ég litið
gefinn fyrir leikhús.
Kristjana Hreinsdóttir, af-
greiðslustúlka: Nei, mjög sjald-
an. Siðast sá ég Kardemommu-
bæinn. Ég ætla að sjá Carmen i
Þjóðleikhúsinu.
Halldór Þorsteinsson, verslunar-
maður: Nei, sjaldan. Égskilekki
biómyndir né leikrit, nema þau
leikrit sem ég les. Siðast sá ég
Kristnihald undir Jökli eftir Lax-
ness en það var bara vegna þess
að við erum bræður i pólitikinni.
Sólveig Jónsdóttir, blaðamaður
Timans: Eins oft og ég get. Næstu
leikrit sem ég ætla að sjá eru
Carmen og Saumastofan.
LIGGUR
ÞÉR
EITTHVAÐ
Á HJARTA
Visir. Mánudagur 3. nóvember 1975.
Hver
ber óbyrgðina
á eitraða
saltinu?
Hulda Magnúsdóttir hringdi:
Það hefur verið rætt og ritað
um eitrað salt sem selt hefur
verið hér i verslunum ob m.a.
eyðilagt matvæli fyrir fólki.
Mig langar til að vita hverjir
flytja þetta salt inn og einnig
hverjir beri ábyrgð á innflutn-
ingnum og sölunni?
Upplýsingar fengust ekki um
hver væri innflytjandi á þessu
umrædda salti. Hins vegar mun
það vera ljóst að innflytjendur
bera ábyrgð á þeirri vöru sem
þeir flytja inn og verslanir bera
ábyrgð á þeirri vöru sem þær
selja. f þessu tilviki mun þó að
sögn fróðra manna dregið i efa
að verslunin sé skaðabótaskyld
vegna skemmda af þessu salti
þar sem ekki var um neinar
villandi upplýsingar að ræða á
umbúðunum.
Utanáskriftin er: VÍSIR „lesendur hafa orðið"
Síðumúla 14 - Reykjavík
Akureyrar-
strœtó og
Donny Osmond
H.J. Akureyri skrifar:
„Ég fer oftast þrisvar i strætó
á dag, bara til að fara i og Ur
skóla. Ef ég fer ekki með strætó
heim i mat þá kem ég of seint i
skólann.
Þeirsem búa úti i Glerárþorpi
þurfa fjórum sinnum i strætó og
það kostar 30 krónur i hvert
sínn.
Það gera um 2.400 krónur yfir
mánuðinn eða upp undir 20.000
krónur yfir skólatimann. Þetta
finnst mér nú einum of mikið
yfir unglinga sem kannski hafa
enga vinnu fengið i sumar.
Getur rikið ekki borgað far-
gjaldið fyrir skólakrakka?
Svo vil ég bæta við að sá sem
skrifaði um að Donny Osmond
væri úreltur, hann er mjög
fáfróður, þvi Donny er nefnilega
finn söngvari. Hins vegar þekki
ég engan sem hefur áhuga á
David Bown.”
LESENDUR:
Sími okkar
er 8 66 11