Vísir - 07.11.1975, Page 4
4
VISIR. Föstudagur 7. nóvember 1975.
Norska sendiráðið
óskar að ráða mann
i um það bil tvo mánuði frá 15. nóv. n.k. til af-
leysinga við símavörslu/ móttöku og hús-
varðarstarfa.
Einhver kunnátta í norsku er nauðsynleg.
Uppl. um starf ið veittar í síma 13065 kl. 9-12 og
13-16.
Starf
yfirleikmyndateiknara
Þ jóöleikhússins er laust til umsóknar frá
l. janúar 1976. Laun samkv. 23. launa-
flokki rikisstarfsmanna. Umsóknir með
upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist skrifstofu Þjóðleikhússins.
Umsóknarfrestur er tii 5. desember.
Sýning í Hjúkrunarskóla
íslands
Sýnd verða sjúkragögn i Hjúkrunarskóla
islands næstkomandi laugardag og sunnu-
dag kl. 13 til 18 báða dagana. Niu fyrirtæki
taka þátt i sýningunni. Allir velkomnir.
Hjúkrunarnemafélag íslands.
Nýkominn
í fiskabúr
GULLFISKABÚÐIN
Skólavörðustíg 7 sími 11757
BILAVARAHLUTIR
Notaðir varahlutir
í flestar gerðir eldri bíla
Ath. breyttann
opnunartima. Höfum
framvegis opið kl. 9-6,30
Höfðatúni 10,
Opið frá kl. 9
laugardaga
suni 11397.
— T alla virka daga og 9—3
Hið nýja hús Evrópuráðsins sem hornsteinn var lagður að á árinu 1972 og væntan-
lega verður tekið i notkun á næsta ári.
or sem mannréft-
indi eru í heiðri höfð
Mannréttindi eru
viða fótum troðin og
þeim rikjum fer fjölg-
andi sem hafna lýðræði
og taka upp einræðis-
stjórnarfar. Einnig i
Evrópu — þar sem lýð-
réttindi eiga sér langa
hefð — koma upp mál
þar sem uppvist verður
um brot á mannrétt-
indum.
„Nefndin tekur til meðferðar
400 til 500 mál á hverju ári.
Þessi mál eru af misjöfnum
toga spunnin.
Af þessum málum fara u.þ.b.
20 til mannréttindadómstólsins.
Frá þvi að ráðið var stofnað,
hafa yfir 7000 manns borið fram
beiðni varðandi mannréttindi.
Þorra þeirra var hafnað þar
sem þær skorti stoð i lögum.
Mannréttindasáttmáli
Evrópu gekk i gildi árið 1953.
Þau riki sem undirritað hafa
sáttmálana skuldbinda sig til
þess að stuðla að varðveislu og
eflingu mannréttinda. Riki þau
sem undirritað hafa sáttmálann
eru 18 að tölu.
Mannréttindanefnd
Evrópu
Þrjár meginstofnanir tryggja
mannréttindi i Evrópu. Fyrsti
aðilinn sem fjallar um mann-
réttindi er Mannréttindanefnd
Evrópu. í henni á sæti maður
tilefndur af hverju aðildarrikj-
anna sem þó starfar sjálfstætt
og án afskipta heimalands ins.
Af íslands hálfu situr Gaukur
Jörundsson, prófessor, i nefnd-
inni.
Hann var inntur eftir helstu
verkefnum Mannréttindanefnd-
arinnar.
„Mannréttindanefnd Evrópu
hefur það hlutverk með höndum
að taka við kærum sem berast
út af ætluðum brotum á Mann-
réttindasáttmála Evrópu.
Nefndin getur synjað að taka
beiðni til greina og er ákvörðun
hennar endanleg og verður ekki
áfrýjað. Taki nefndin beiðnina
gilda skilar hún áliti hvort málið
skuli tekið fyrir. Þá hefst gang-
ger rannsókn á málinu og
nefridin gerir drög að itarlegri
skýrslu og tillögu að dómsniður-
stöðu. Náist ekki samkomulag
milli aðila fer málið til ráð-
herranefndarinnar eða mann-
réttindadómstólsins eftir þvi
sem við á.”
Hvað fara mörg mál til Mann-
réttindanefndarinnar á ári
hverju?
Margvisleg mál
koma fyrir
Mannréttindanefnd.
Á þeim árum sem Mannrétt-
indanefndin hefur starfað hefur
hún haft til umfjöllunar mjög
mörg og margvisleg mál. Flest
koma þau frá hinum stærri
löndum Evrópu eins og Eng-
landi og Þýskalandi.
Sem dæmi um fjölbreytileika
þeirra mála sem koma fyrir
nefndina má nefna: Kæru sem
tveir sviar hafa lagt fyrir
Mannréttindanefndina þar sem
þeim var neitað um launahækk-
un vegna þess að þeir hefðu ver-
ið I stéttarfélagi sem boðaði
verkföll árið 1971.
Stéttarfélag belgiskra lög-
regluþjóna leitar nú réttar sins
um þátttöku i viðræðum um
kaup og kjör meðlima sinna.
Kært hefur verið til Mannrétt-
indanefndarinnar vegna óhæfi-
lega langrar málsmeðferðar.
Gaukur Jörundsson er spurð-
ur hvort mörg mál frá tslandi
hafi verið fjallað um af Mann-
réttindanefndinni.
„Sárafá islensk mál hafa
komið fyrir Mannréttinda-
nefndina. Að visu eru nokkur i
meðferð núna hjá nefndinni
vegna banns við hundahaldi.”
Hverjir geta kært til
Mannréttindanefndar?
Til þess að Mannréttinda-
nefndin taki til nánari meðferð-
ar þær kærur sem henni hafa
borist frá einstaklingum, þarf
ýmsum skilyrðum að vera full-
nægt.
Þannig visar nefndin frá sér
öllum kærum sem berast frá
ónafngreindum aðilum, svo og
kærum sem bersýnilega hafa
ekki við rök að styðjast. Ekki
eru heldur teknar gildar kæru-
heimildir sem áður hafa verið
rannsakaðar af nefndinni eða
fela i sér misnotkun á kæru-
heimildinni.
Þá er það skilyrði að einstakl-
ingur hafi reynt til hins ýtrasta
að fá leiðréttingu mála sinna i
heimalandinu, og að hann hafi
siðan kært til nefndarinnar
innan sex mánaða frá þvi að úr-
slitadómur eða ákvörðun
fékkst.
Flestar þær kærur sem berast
Mannréttindanefndinni eru frá
einstaklingin, en fáar hafa verið
bornar fram af hálfu eins aðild-
arrikis á hendur öðru.
Aðildarrikin eru ekki skuld-
bundin til þess að viðurkenna
kærur einstaklinga, nema þau
hafi gefið um það sérstaka yfir-
lýsingu — og hafa 13 þeirra gert
það.
—EKG