Vísir - 07.11.1975, Síða 6
6
VÍSIR. Föstudagur 7. nóvember 1975.
vísm
Umsjón: GP
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson,
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson
Rjtstjóri frétta: Arni Gunnarsson
Fréttastjóri erl. frétta: Guömundur Pétursson
Augiýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Sími 86611
Ritstjórn: Sföumúia 14. simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innanlands.
i lausasölu 40 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Jacques Chaban-Delmas,
fyrrum forsætisráðhcrra
gaullista, hefur veist að
Valery Giscard D’Estaing
Frakklandsforscta ineð
ásökunum, um aö hinn siðar-
nefndi hafi iagt hindranir á
leiö Chaban-Delmas til for-
Afnemum tekjuskatt og
drögum úr skattamisrétti
Skattar náungans hafa alla jafnan verið eitt
helsta umræðuefni manna á meðal hér á laridi eins
og viða annars staðar. útkoma skattskrár vekur á
ári hverju upp umræður og þrætur um réttlæti og
ranglæti i skattlagningu. Það er vissulega rétt, að
aðstaða manna gagnvart skattalögum er nokkuð
misjöfn. Framhjá þeirri staðreynd er ekki unnt að
horfa.
í þessum efnum rikir ójöfnuður. Launþegar telja
yfirleitt fram tekjur sinar að fullu. Ýmsir hópar
manna, sem hafa atvinnurekstur með höndum, eiga
hins vegar hægar um vik með ýmis konar tilfærslur
og undanskot innan endimarka laga og reglna eins
og utan þeirra. Engir rikisstjórn hefur tekist að
sniða tekjuskattslöggjöf, sem girt hefur fyrir ójöfn-
uð af þessu tagi.
Tilgangur stighækkandi tekjuskatts er m.a. sá að
stuðla að tekjujöfnun i þjóðfélaginu. Sannleikurinn
er hins vegar sá, að þessu yfirlýsta markmiði verð-
ur ekki náð með slikri skattlagningu. Tekjuskatt má
nota til tekjujöfnunar innbyrðis milli launþega og
atvinnurekenda.
Þetta eru sannindi, sem rikisstjórnir á öllum tim-
um hafa horfst i augu við. Lausnarorðið hefur yfir-
leitt verið krafa um hert skattaeftirlit. Yfirlýsingar
hafa verið samþykktar æ ofan i æ og stjórnmála-
menn hafa haldið fjálglegar ræður um skattamis-
réttið, án þess að nokkuð hafi breyst. Og flestum er
ljóst, að einu gildir hverjir sitja við stjórnvölinn.
Fæstum hefur hins vegar dottið i hug að setja
fram kröfu um afnám tekjuskattsins. í sjálfu sér er
það þó eina leiðin til þess að koma i veg fyrir mis-
réttið að afnema þá skattheimtu, sem mestum
ójöfnuði og óánægju hefur valdið. Hlutdeild beinna
skatta i heildartekjum rikissjóðs hefur farið heldur
minnkandi. En ýmsir stjórnmála- og hagsmuna-
hópar halda þó enn fast i úreltar hugmyndir um
nauðsyn stighækkandi tekjuskatts til tekjujöfnunar.
í fjárlagafrumvarpi rikisstjórnarinnar er gert
ráð fyrir þvi, að tekjuskatturinn standi undir tólf
hundraðshlutum af tekjum rikissjóðs. Þetta er i
raun réttri ekki stór hluti af rikissjóðstekjunum.
Það er þvi engum vafa undirorpið, að tiltölulega
auðvelt á að vera að afnema tekjuskattinn fyrir fullt
og allt og um leið það misrétti, sem hann býður upp
á.
Hér verður einnig að hafa i huga að innheimta
tekjuskattsins er mikið fyrirtæki og kostar mikinn
mannafla. Afnám tekjuskattsins væri stórt stökk i
átt að einfaldara skattkerfi. Nú er að þvi stefnt að
taka upp virðisaukaskatt. Við innheimtu hans þarf
talsvert skrifstofukerfi. Það er þvi full þörf á að
skera niður það skattinnheimtubákn, sem nú er fyr-
ir hendi.
Óbeinir skattar eru að mörgu leyti eðlilegri en
tekjuskatturinn eins og þjóðfélagshættir eru nú.
Skattarnir eru þá greiddir af eyðslunni. Fólkið fær
sjálft aukinn rétt til þess að ráðstafa tekjum sinum
að eigin vild. Hér er um að ræða mikið framfara- og
réttlætismál, sem frjálshyggjuþingmenn ættu að
gefa gaum.
sætisembættisins.
Sakar Chaban-Delinas
þennan l'yrrverandi keppi-
naut sinn um, að hafa hvatt
til aögerða, sem miöuöu að
þvi aö lækka álil Chaban-
Delmas i byrjun þessa ára-
tugs.
Svona á yfirborðinu séð,
viröist aðalástæöa þess, aö
Chaban-Delmas tókst ekki
aö verða forseti Frakklands,
vera einfaldlega sú, aö kjós-
endur tóku Giscard
D'Estaing fram yfir liann.
En ef kafað er dýpra i um-
rót þessara ára gaullista-
timabilsins i Frakklandi,
grillir i margt, sem bendir til
þess að Chaban-Delmas hafi
töluvert til sins mál. — Hann
fullyrðir, að spillt hafi verið
fyrir möguleikum hans með
skipulagðri rógsherferð og
hrekkjabrögðum.
Chaban-Delmas hefur nú
skotið máli sinu fyrir dóm al-
menningsálitsins i nýútkom-
inni sjálfsævisögu sinni.
Heitir hún „Ardour” og er
gefin út af forlaginu Stock i
Paris.
Þegar þessi gjörvilegi
borgarstjóri Bordeaux, sem
frakkar kalla i daglegu tali
einfaldlega Chaban, snéri
sér fyrst að stjórnmálum,
naut hann þess orðstis, sem
hann gat sér á árum siðari
heimstyrjaldarinnar. Hann
var einn af hetjum neðan-
jarðarhreyfingarinnar, sem
daglega hættu lifi sinu i and-
spyrnu sinni gegn hernáms-
liði þjóðverja. — Leið hans
lá i gegnum forsæti þjóð-
þingsins meðan stjórnar De
Gaulles hershöfðingja naut
við, og siðan i forsætisráð-
herrastólinn undir stjórn Ge-
orges Pompidous forseta.
Brautin að sjálfu forseta-
embættinu virtist blasa við
béin og greið.
Þegar Pompidou andaðist
i fyrra, var foringjaskikkja
gaullista lögð á herðar
Chaban. 1 kapphlaupinu,
sem hófst um sæti Pompi-
dous, þótti Chaban sigur-
stranglegastur allra — á
þeirri stundu. En honum
fórst kosningabaráttan
hrapalega úr hendi. A enda-
sprettinum stjakaði fjár-
máláráðherrann, Giscard
D’Estaing — sem ekki var
Gaullisti — honum ómjúk-
lega til hliðar.
Vonsvikinn lýsir erfða-
prins gaullista þvi, hvernig
skuggabaldrar Pompidous
hafi skipulega tætt hann sak-
lausan i sundur.
í augum Chabans var
piskurstriðið, sem háð var i
göngum Elysee-hallar,
miklu miskunnarlausara en
barátta hernámsáranna.
„Með þvi, að ég er sjálfur
alls óvanur þeirri vopnfimi,
sem þarf til þess að bregða
velbrýndum rýtingnum und-
an skikkjunni úr állskonar
stellingum til að reka hann i
orðstir náungans, þá hef ég
sjaldan getað imyndað mér
aðra eiga slikt til,” skrifar-
Chaban.
Það var fyrst eftir að hann
varð forsætisráðherra 1969,
að augu hans tóku að opnast
fyrir þvi, við hvað hann átti
að etja. Það var eftir heim-
sókn Pierre Juillet, aðalráð-
gjafa Pompidous i stjórn-
málunum heima fyrir, og um
leið áhrifamesta baktjalda-
mannsins i Frakklandi. Dag
einn 1971 veittist Juillet
Var
Chaban
fórnar-
lamb
sam-
sœris?
Chaban-Delmas, fyrrum for-
sætisráölierra, var af öllum talinn
liklegastur i forsetastólinn á eftir
Pompidou, en Giscard
D’Estaing skaut honum ref fyrir
rass.
JM MIM
harkalega að Chaban á skrif-
stofu hans. Það verður að
teljast með eindæmum per-
sónuleg árás, miðað við, að
þar var Juillet að tala við
sjálfan forsætisráðherrann.
■ „Þú ert gaullisti, það skal
ég viðurkenna,” sagði
Juillet, sem um þær mundir
var i leyfi frá störfum sinum
i Elysee-höll. „En þú ert sá
maðurinn, sem ert að inn-
leiða sosialisma i Frakk-
landi...það mun leiða til
stjórnleysis og opna leiðina
óvinum okkar.”
Að baki þessari hatrömmú
árás lágu þær áhyggjur, sem
hinir ihaldssamari i röðum
gaullista, þar á meðal
Pompidou sjálfur, höfðu af
áætlunum Chabans um þjóð-
félagslegar umbætur. — Ein
hugmyndin þar i var að losa
rikisútvarpið franska úr
eftirlitsgreipum stjórnarinn-
ar.
Þótt Chaban tækist að
hrinda i framkvæmd að
hluta til áformum sinum um
að losa höftin á útvarpinu
(og sjónvarpi), fannst hon-
um það hálfgerður
Pyrrusarsigur.
„Það átti eftir að kosta
mig mikið. Það varð af-
bragðs tilefni þeirrar niður-
rifsherferðar, sem haldið
var úti gegn mér með öllum
tiltækum ráðum næstu fimm
árin,” skrifar hann.
Hann bendir á Giscard
D’Estaing sem aðalfrum-
kvöðul þeirra erfiðleika, sem
hann átti við að etja eftir
handtöku Edourad Dega.
Dega var háttsettur starfs-
maður á skattstofu Frakk-
lands, og hafði um margra
ára bil talið fram fyrir Cha-
ban til skatts.
Það var Giscard
D’Estaing fjármálaráð-
herra, sem i eigin persónu
skýrði Pompidou frá þvi, að
Dega lægi undir ákæru, —
eftir þvi sem Chaban skrifar.
Dega var sakaður um að
hafa fundið leið til þess að
spara skjólstæðingum sinum
fúlgur fjár, sem þeir annars
hefðu átt að greiða i skatta.
Meðal skjólstæðinga Dega
voru ýmsir áhrifamenn.
Hneykslið lá i loftinu.
Meðan Gróusögurnar fóru
á milli, þar sem nafn Cha-
bans var haft milli tannanna
éins og annarra, reyndi
Chaban-Delmas með öllum
tiltækum ráðum að fá málið
tekið fyrir hið fyrsta og af-
greitt fljótlega i von um að
nafn hans yrði hreinsað af
öllum ósóma, áður en slúður-
sögurnar hefðu gert of mik-
inn usla.
En eftir þvi sem höfundur
heldur fram, fann fjármála-
ráðuneytið (undir stjórn
D’Estaings) sér alltaf
ástæðu með reglulegu milli-
bili til nýrra málshöfðana,
sem kröfðust nýrrar frestun-
ar og drógu málið á langinn.
Allan timann á meðan varð
forsætisráðherrann áð engj-
ast undir brennandi
ásökunaraugum alþýðunnar.
„Þetta var allt gert að
yfirveguðu ráði,” skrifar
hann. Segist hann hafa
áreiðanlegar heimildir fyrir
þvi, að aðstoðarmenn
D’Estaings hafi jafnvel gert
sér vonir um að draga málið
á langinn fram á mitt ár
1976. Þá hefðu forsetakosn-
ingar átt að fara fram, ef
Pompidou hefði ekki burt-
kallast i millitiðinni.
Bók Chabans hefur þegar
vakið mikla athygli, en á
vafalaust eftir að vekja enn
meira umtal. Það stutt er þó
siðan hún kom út, að enn hef-
ur hún ekki sært fram nein
viðbrögð af hálfu þeirra, sem
Chaban veitist að i henni.