Vísir - 07.11.1975, Blaðsíða 14
14
T—
VÍSIR. Föstudagur 7. nóvember 1975.
LÍF OG LIST UM HELGINA
Atriði úr myndinni Emmanuelle sem sýnd er i Stjörnubiói
Naktar konur og
negrahrollvekja
Bidin verða sæmilega lifleg
yfir heigina, i einu er negra-
hrollvekja, öðru spennandi
sakamálamynd, i þvi þriðja
snilldarverk og svo má lengi
telja. Og það sem meira er, það
eru ekki allar myndirnar
bannaðar börnum.
Stjörnubiósýnir þá mynd sem
einna mesta athygli kemur til
með að vekja, Emmanuelle.
bessi mynd er frönsk með ensku
tali og fjallar um unga stúlku,
gifta sendiráðsstarfsmanni.
Þau búa i Thailandi og það er
regla I hjónabandi þeirra að þau
njóti algers frjálsræðis. Þessi
mynd hefur það fram yfir aðrar
sem sýndar eru þessa dagana
að Emmanuelle er sjaldnast i
fötum.
Austurbæjarbió endursýnir
tvær myndir, t klóm drekansog
Fýkur yfir hæðir.Þessar endur-
sýningar eru vegna þess að bió-
ið biður eftir að fá The Exorcist
til sýningar, sem verður
væntanlega eftir helgina.
Laugarásbió hóf nýlega
sýningar á Barnsráninu með
Michael Caine i aðalhlutverki.
Þetta er sakamálamynd og
gengur út á það að barni
stjórnmálamanns er rænt og
leitað er að þvi. Inn i söguþráð-
inn blandast siöan allskonar
flækjur sem gera málið erfitt
viðureignar. Að sögn fróðra
manna er vel þess virði að sjá
þessa mynd.
Tónabíó heldur enn áfram
sýningum á Tommy og gerir
væntanlega fram yfir helgi. Ef
það er einhver sem enn þekkir
ekki efni myndarinnar má geta
þess að það er mikið stilfærð
ævisaga manns, sem á sér-
kennilegan hátt verður
átrúnaðargoð ungs fólks. En svo
bregðast krosstré sem önnur
tré.
Hafnarbió sýnir Sviðsljós
C'haplins. Það er meistaraverk
sem enginn ættiað láta fram hjá
sér fara. Chaplin er þar i essinu
sinu og gerir úttekt á lifi lista-
mannsins sem hefur misst
vinsældir sinar og berst við
einmanaleikann.
Bæjarbióer nýbyrjað að sýna
Blakúla sem er smkv. auglýs-
ingu negrahrollvekja af nýjustu
gerð. Ekki náðist samband við
bióið til að fá nánari upplýsing-
ar.
Háskólabió sýnir S.P.Y.S. og
fjallar hún um njósnara i
Frakklandi. Þar er gert hið
mesta grin að njósnurum og
starfi þeirra. Hún fjallar aðal-
lega um tvo njósnara sem hafa
verið reknir úr þjónustunni og
reyna þeir af öllum mætti að
selja upplýsingar til að afla sér
viðurværis. Þeir eiga sér félaga
úr róttækum samtökum ffakka
og er takmörkuð hjálp af þeim
félagsskap. Sæmileg mynd.
Nýja biö heldur áfram
sýningum á Lokaorrustunni um
Apaplánetuna og verður hún
væntanlega sýnd framyfir helg-
ina. Þessi mynd er sú fimmta i
röðinni af apaplánetumyndun-
um sem sýndar hafa verið við
hina sæmilegustu aðsókn. rj
Gagnrýnendur segja
þetta um Saumastof una
Frumsýning
Saumastofunnar var
28. okt. s.l. Mikil
aðsókn hefur verið að
leiknum.
Indriði G. borsteinsson segir
m.a. iVisi: Kjartan Ragnarsson
hefur skrifað ágætt byrjanda-
verk, raunar miklu betra en
maður trúði á að óséðu”...
„Þessi hlutverk eru öll mjög vel
gerð, hvert á sinn hátt. Þó mun
mörgum verða eftirminni-
legastur þáttur Soffiu Jakobs-
dóttur”.
Ólafur Jónsson skrifar m.a. i
Dagblaðinu: „Þetta tekst auð-
vitað misjafnlega, sumt betur
annað verr eins og gengur, en
styrkur sýningarinnar fannst
mér látleysi hennar og einlægni
i meðferð alveg raunverulegs
efniviðar.” Og „Þannig bland-
aðist margvislega glens og
alvara i Saumastofunni,
sýningu sem alltént er mjög svo
geðfelld i látleysi sinu, einatt
hnyttin og spaugvis.”
Hákarlasól frum-
sýnd á Lrria sviðinu
í Þjóðleikhúsinu
Á sunnudag kl. 20.30
frumsýnir Þjóðleik-
húsið leikritið
Hákarlasól, tviþáttung
eftir Erling Hall-
dórsson. Er þetta
fyrsta leikrit hans sem
hann leikstýrir
jafnframt.
Leikritið fjallar um þrjá
menn, sem i viðureign sinni við
kassa smám saman breytast i
trúða. Verkið túlkar lifsbaráttu
manna almennt og hvernig þeir
mótast I sama farveg i þeirri
baráttu. Fyrri verk höfundar
eru einkum Minkarnir sem
Leikfélag Reykjavikur flutti
1973 en áður var það sýnt á
Akureyri.
Annað verk Erlings Reikni-
vélin er væntanlegt i sjón-
varpinu innan skamms. Leik-
endur i Hákarlasól eru þeir
Gunnar Eyjólfsson, Sigmundur
örn Arngrimsson og Sigurður
Skúlason. Leikmynd gerði
Magnús Tómasson.
Erlingur Halldórsson höfundur verksins Frá æfingu á Hákarlasól. Leikendur hafa ekki
tekið á sig endanlega mynd.
l
Málverka-
sýningar...
Asgrimssafn: Sýning á
vatnslitamyndum Asgrims
Jónssonar. Opið sunnudag kl.
1.30—4.
Galleri OUT PUT: Niels
Hafstein. Sýningin er opin kl.
4—9 föstudag til sunnudags.
Listasafn tslands:
Yfirlitssýning á verkum Jóns
Engilberts. Opið laugard. og
sunnudag kl. 2—10.
Norræna húsið: Björgvin Sigur-
geir Haraldsson sýnir. Sýning-
unni lýkur á sunnudagskvöld.
Opið kl. 2—10.
MíR-salurinn: Eftirprentanir
sovéskra veggspjalda frá styrj-
aldarárunum 1941—1945.
Sýningin verður opin laugardag
kl. 4—6 og sunnudag kl. 2—4.
Mokka: Tryggvi Ólafsson sýnir
teikningar.
Klausturhólar: Sýning á
þekktum listaverkum eftir Guð-
mund Þorsteinsson, Gunnlaug
Scheving og fl. Opið kl. 4—6
fram til sunnudags, en þá fer
fram uppboð á myndunum að
Hótel Sögu kl. 3.
Þjóðleikhúsið:Carmen verður
á stóra sviðinu i kvöld og
laugardagskvöld. Kardi-
mommubærinn, siðasta
sýning á sunnudag kl. 3.
Hátiðarsamkoma Þjóðræknis-
félagsins, laugardag kl. 2. Á
litla sviðinu er barnaleikritið
Milli himins og jarðar kl. 3 á
laugardag. Hákarlasól, frum-
sýning, sunnudag kl. 8.30.
Iðnó: Skjaldhamrar, föstudag
kl. 8.30. Saumastofan laugar-
dag kl. 8.30. Skjaldhamrar
sunnudag kl. 8.30.
Barnaleikhús Leikfelags
Hafnarfjarðar sýnir Halló
krakkar i Bæjarbiói kl. 2 á
laugardag og i Breiðholtsskóla
kl. 4.30 á sunnudag.
Herranótt: MR-ingar sýna
Járnhausinn i Félagsheimili
Seltjarnarness, mánudag,
þriðjudag kl. 8.30.