Vísir - 13.11.1975, Síða 1
VÍSIR
65. árg. — Fimmtudagur 13. nóvember 1975 — 258. tbl.
Með hljóð
fœri fyrir
tugi millj-
óna króna
VISIR heimsœkir Sinfóniuhljómsveitina
— sjó bls. 4-5
1
Hvað fannst þeim um þóttinn
, ,Fyrir hverju barðist Jón Sig-
urðsson?”spurði Finnbogi Rútur
Valdimarsson, fyrrum alþingis-
maður og bankastjóri er Visir
innti hann og fleiri álits á
sjónvarpsþættinum i fyrra-
kvöld, þar sem Gunnar Thor-
oddsen og Lúðvik Jósefsson
svöruðu spurningum Eiðs
Guðnasonar. — Tveir reyndust
ánægðir og tveir óánægðir, —
Svörin eru á 3. siðu.
Meiri óhugi ó
efnahagsmólum
en þorskastríði
Bretar hafa miklu meiri áhuga á efnahags-
máiunum og ræðu Wilsons en hugsanlegu þorska-
stríði. Litið er um málið rætt í Lundúnum, en meira
í Hullog Grimsby.T— Þetta kemur fram í frétt, sem
Óli Tynes, blaðamaður Vísis, sendi frá Lundúnum i
morgun. Sjá baksíðu.
SAKHAROV
NEITAÐ UM
FERÐALEYFI
Kjarneðlisfræðingnum,
Andrei Sakharov, hcfur verið
neitaðum ferðaleyfi til Osló þar
sem hann ætlaði að veita
viðtöku i eigin persónu friðar-
verðlaunum Nóbeis.
Sakharov segist hafa mót-
inælt þessari synjun og litur á
hana sem algert brot á Helsinki-
samkomulaginu, þar sem
Sovétieiðtogarnir undirrituðu
viljayfirlýsingu um aukið ferða-
frelsi fólks milli austurs og
vesturs.
— Sjá erlendar fréttir bls. 6 og
Stoðuljós kvikna um leið
og bifreiðin er
Á nýju árgerðunum af SAAB
og Volvo muu stöðuljósin kvikna
um leið og bifreiðin cr ræst, og
munu þvi bifreiðarnar aka með
rœst...
stöðuljós bæði á nótt sem degi.
í bls. 19 i blaðinu i dag hefur
uýr þáttur göngu sina og nefnist
hann Hilarnir og við.
Jórnblendiverksmið jan:
Dregið verður úr
framk vœmdahraða
Forráðamenn Járnblendi-
félagsins hafa boðað til blaða-
mannafundar i dag, þar sem
skýrt verður frá ástandi og
horfum i sambandi við smiði
járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga.
Visir skýrði frá þvi i gær, að
ýmsar blikur væru nú á lofti
vegna smiði verksmiðjunnar.
Verðfall hefur orðið á stáli i
heiminum og um leið járn-
blendi, sem verksmiðjan mvndi
framleiða. t>á hafa aliir lána-
markaðir þrengst mjög frá þvi
að áætlanir voru gerðar um
smiði verksmiðjunnar.
Nú hefur verið um það rætt að
draga verulega úr fram-
kvæmdahraða við verksmiðj-
una, en ekki er vitað hve mikið
smiði hennar getur dregist. Þá
er heldur ekki ljóst hvaða áhrif
þetta kann að hafa á fram-
kvæmdir við Sigöldu, sem eru
nátengdar smiði járnblendi-
verksmiðjunnar.
Kunnugir telja, að miklir
erfiðleikar séu framundan og að
endurskoðun áætlana um stofn-
kostnað verksmiðjunnar muni
leiða i' ljós miklar verðhækkan-
ir. Ekki er óliklegt, að Alþingi
láti málið til sin taka.
— AG.
Leikir barna geta oft verið
hættulcgir. Ljósmyndari Visis
kom i gærdag að þremur
drengjum, þar sem þeir höfðu
hellt kveikjarabensíni á hús-
vegg i Grjótaþorpi og kveikt i.
Eftir að eldurinn byrjaði að loga
sprautuðu þeir meira bensini á
vegginn, en þegar Ijósmyndar-
inn kom, hlupu þeir á brott. Vart
þarf að geta þess, að i Grjóta-
þorpi eru nær eingöngu gömul
limburhús, sem eru góður elds-
matur. Auk þess hefðu
drengirnir getað skaðbrennst,
ef eldurinn hefði komist i
umbúðir vökvans. — Ekkert
gerðist i þetta sinn, en sú
spurning vaknar: Hvað hefði
geta gerst?
Ljósmynd: Bragi.
Byggingarnefnd sjálfstœðishússins nýja lýkur störfum
„Hefur nóð tilgangi
sínum", segir Albert
Byggingarnefnd Sjálf-
stæöisf lokksins er að
skila af sér nýja Sjálf-
stæðishúsinu við Bolholt
um þessar mundir og
lýkur þar með störfum.
Flokkurinn er þegar
byrjaður flutninga í nýja
húsið, enda innrétting vel
á veg komin.
Albert Guðmundsson, for-
maður byggingarnefndar, sagði
i samtali við Visi i morgun, að
eiginlega hefði byggingar-
nefndin átt að skila af sér húsinu
i sumar, þegar það varð tilbúið
undir tréverk. Þá hefði upphaf-
legu ætlunarverki byggingar-
nefndar raunverulega verið
lokið. Nefndin hefði þó haldið
áfram að vinna að framgangi
byggingarinnar, en þar sem nú
væri innréttingum vel á veg
komið og flutningur hafinn i hið
nýja hús, þá hefði nefndin náð
tilgangi sinum og afhenti þvi
húsið miðstjórn flokksins. Nú
lægi næst fyrir að kjósa hús-
nefnd.
Albert kvaöst aðspuröur vera
að hugsa um að hætta i fjár-
málaráði flokksins. Hann kvað
það þó ekki fréttnæmt, það væri
daglegt brauð að hann færi úr og
i nefndir. -VS