Vísir - 13.11.1975, Page 6
6
Fimmtudagur 13. nóvember 1975. VISIR
Hóseta vantar
á m/b Arnar frá Þorlákshöfn til
netaveiða.
Uppl í síma 99-3644
Verslunar- og
skrifstofufólk
Verzlunarmannafélag Reykjavikur held-
ur félagsfund i Vikingasal Hótels Loft-
leiða, sunnudaginn 16. nóv. 1975, kl. 14.
Fundarefni: Uppsögn kjarasamninga.
Verzlunarmannafélag Reykjavikur.
Nýir
snjóhjólbarðar
Hollenskir
heilsólaðir
snjóhjólbarðar
HJDLBflRBflSALflH
BORGARTÚNI 24 - SÍMI 14925 - PÓSTHÓLF 5169
„Hvaðer a'tarna?...Ekkert vatn!"—Nýlega sýknaði hæstiréttur Indlands, hæst-
ráðanda landsins, Indiru Gandhi, af ákærum um kosningasvik og stjórnarskrár-
brot og þótti mörgum það lítt sannfærandi hvítþvottur.
SAKHAROV
fœr ekki að
fara til Osló
Lumar á ríkisleyndarmálum, segja
ferðaleyfisyfirvöld Sovétríkjanna
um þann, sem hefur ekki verið
treyst fyrir nokkru verki síðan 1968
Eins og Andrei Sakharov haffti sjálfur spáft fyrir, þá neituftu sov-
ésk yfirvöid honum um fararleyfi til Osló, þar sem þessi oddviti
mannréttindabaráttunnar i Sovétrikjunum ætlafti aft veita viötöku
sjálfur friftarverðlaunum Nobels.
Dr. Sakharov mótmælti þegar I staft þessari synjun og benti á, aft
hún striddi gegn anda Helsinki-ályktunarinnar, niöurstöftu öryggis-
málastefnunnar, sem svo miklar vonir voru bundnar viö.
Sakharov ásamt konu sinni, Yelenu.
Þar undirrituðu Kremlherr-
arnir eins og aðrir leiðtogar
yfirlýsingu þess efnis, að vilji
væri til þess að greiða streymi
bæði upplýsinga og fólks austur
og vestur fyrir járntjaldið.
öryggismálaráðstefnan
dróst eins og menn minnast
mjög á langinn, einmitt vegna
þessa atriðis, sem vestur-
evrópumenn vildu fyrir alla
muni hafa með i ályktuninni.
Austantjaldsmenn þrjóskuðust
lengi við, en létu svo loks tilleið-
ast, gegn þvi að vesturlönd
viðurkenndi landamæri austan-
tjaldsrikja, eins og þau eru i
dag, sem sovétmönnum var
mjög i mun.
Ljóst er nú orðið, hvað sovét-
yfirvöld leggja mikið upp úr
efndum þessa atriðis. A þvi örl-
aði reyndar f 1 jótlega eftir
Helsinkifundinn, þegar Boris
Spassky, fyrrum heimsmesitari
i skák, rakst á ýmsar hindranir,
áður en honum var svo loks náð-
arsamlegast leyft að ganga að
eiga franska stúlku.
Yfirvöld Sovétrikjanna firrt-
ust að vonum við, þegar kunn-
gert var9. október, að Sakharov
hefði verið úthlutað friðarverð-
launum Nóbels „sem talsmaður
samvisku mannkynsins”.
Skrif málgagna sovétstjórnar
fjölluðu næstu daga um, hversu
pólitisk veiting þessara verð-
launa væri orðin seinni árin. —
bað þótti ekki liklegt, að þess-
um helsta stjórnarandstæðingi
sovétstjórnarinnar yrði greidd
gatan til Osló.
Við synjun ferðaleyfisins var
borið við, að dr. Sakharov hefði i
fórum sinum rikisleyndarmál,
sem ekki væri hættandi á, að
færu úr landi. — Kona
Sakharovs, Yelena, sem stödd
er á ítaliu til augnlækninga,
segir, að þetta sé einber fyrir-
sláttur.
„Honum hefur ekki verið
treyst fyrir neinum rikisleynd-
armálum siðan 1968, á meðan
aðrir vlsindamenn, sem vinna
að leynirannsóknum, eru á ferð
og flugi milli landa,” segir hún.
Dr. Sakharov var fremsti
kjarneðlisfræðingur Sovétrikj-
anna og stundum nefndur faðir”
atomsprengju rússa. — Gagn-
rýni hans á stjórnarhætti og á-
troðslu mannréttinda sovéskra
borgara kom honum i ónáð.