Vísir - 17.11.1975, Qupperneq 9
VISIR Mánudagur 17. nóvember 1975.
9
Eskfirðingar eru ekki bangnir við snjóflóð. Nýjasta ibúðabyggingin
er ihliðum fjallsins, og enn fleiri byggingaframkvæmdir eru hugs-
aðar þar. Fyrir ofan á svo að koma nýr Noröfjaröarvegur.
Lesendur Visis muna
eflaust eftir þeirri yfir-
lýsingu svissneska
snjófióðafræðingsins
M. De Quervain, að
vegna snjóflóðahættu
teldi hann ekki ráðlegt
fyrir Eskfirðinga að
leggja út i fyrirhugaða
ibúðabyggð á staðnum.
Taldi de Quervain að ef búast
mætti við stórum snjóflóðum á
30 ára fresti væri óráðlegt að
leggja i þessar framkvæmdir.
De Quervain tók fram að hann
hefði ekki heimsótt Eskifjörð.
Þar lá hann einmitt i þvi —
telja Eskfirðingar. Þeim finnst
það mikil fjarstæða að gera ráð
fyrir stórum snjóflóðum á 30 ára
fresti þar sem reynslan sýnir
alls ekki að um slikt geti verið
að ræða.
Grunarmenn á Eskifirði að de
Quervain hafi dregið ályktanir
sinar af ljósmyndum og landa-
kortum af staðnum. Hinsvegar
fékk hann aldrei neinar upp-
lýsingar frá staðarbúum sjálf-
um.
A korti kann að virka mikil
hætta á snjóflóðum á Eskifirði.
En ef flett er upp I gömlum sög-
um kemur annað i ljós. 1 Eskju,
afmælisriti Eskifjarðar, segir
þannig frá öðru af tveimur
meiriháttar snjóflóðum sem
falliðhafa á Eskifirði. Var þetta
flóð þó alls ekki beint snjóflóð,
heldur bljóp fram krapastífla:
,,Það mun hafa verið 1849,
seint um haustið eða snemma
um veturinn, að kom afar mikill
snjór, lagði feiknamikinn skafl
svo að nærri fyllti Grjótárgilið i
brúninni fyrir ofan Klofa. Þá bjó
Þorgrfmur Jónsson snikkari frá
Gilsá I Breiðdal á Eskifirði.
Hann hafði lært i Danmörku og
var talinn besti trésmiður á
Austurlandi á sinni tiö. Hann
byggði sér hús mikið og vandað
i kaupstaðnum rétt á Grjótár-
bakkanum. Hann hafði oft pilta
til kennslu og svo var þennan
vetur. Einn þeirra var Eyjólfur
Þorsteinsson, seinna bóndi á
Stuðlum i Reyðarfirði. Þegar
þennan mikla snjó gerði, hafði
komið til umtals milli læri-
sveina Þorgrims að fara upp i
Grjótárgilið og grafa sundur
skaflinn i brúninni. Þó varð ekki
af þvi, enda vissu menn þess
engin dæmi að Grjótá hefði
valdið tjóni. Siðan kom hláka og
aftaka-langvarandi stórrigning.
Stiflaöist Grjótáin fyrir ofan
brúnina uns vatnið náði sér
fram og kom það með ógurlegu
hlaupi af vatni, snjó, jörð og
stórgrýti niður fjallið. Þetta var
að degi til. 1 þvi hlaupi fórst
Klofi og þeir sem þar áttu
heima: Margrét, Jón sonur
hennar og niðursetningurinn.”
ESKJA I. bindi, bls. 209.
Næst skýra heimildir frá snjó-
flóði árið 1919, eða 60 árum sið-
ar
1 þvi snjóflóði jafnaðist við
jörðu hlaða, hjallur og stein-
steypufjós, eign Friðgeirs
Hallgrimssonar, drap tvær kýr,
einn kálf og tvær kindur, en ein
kýr bjargaðist. Þá tók flóðið
hesthús, veiðarfæri, matbjörg
og steinoliu. Ennfremur hljóp
flóðið i gegnum ibúðarhús i
smlöum, eign Vilhelms Jensens
kaupmanns, og skemmdist það
nokkuð.
Frá þessu segir Olafur Jóns-
son ráðunautur i grein i Sam-
vinnunni 1. tbl. 1975.
Þetta flóð var einnig krapa-
hlaup, likt og það sem fyrr var
greint frá.
Þessi tvö snjóflóð eru þau einu
sem sögur geta um að failið hafi
þar sem nú er byggð i Eski-
fjarðarkaupstað.
Það er þvi mikil fjarstæða að
ætla að Eskifjörður sé i nokk-
urri hættu vegna snjóflóða.
Enda taka þeir ályktun de
Quervain hvergi nærri sér. og
ætla ótrauðir að halda áfram að
byggja.
Til að lesendur Visis átti sig
betur á staðháttum á Eskifirði.
tók Hjörvar ó. Jensson, frétta-
ritari blaðsins, nokkrar myndir
þar nýlega.
— ÓH
FORMULA GETRAUNAKERFIN GEFA 11RÉTTA!
X Kerfis- numer íl il If ll
Formula 0-6-12 0 6 12 11 réttir
Formula 0-7-16 0 7 16 11 réttir
Formula 1-6-24 1 6 24 11 réttir
Formula 0-8-32 0 8 32 11 réttir
Formula 2-5-36 2 5 36 11/éttir
Formula 1-7-48 1 7 48 11 réttir
Formula 3-4-48 3 4 48 11 réttir
Formula 0-9-64 0 9 64 11 réttir
Formula 2-7-128 2 7 128 11 réttir
Formula 4-4-144 4 4 144 11 réttir
/11. LEIKVIKU GÁFU 11RÉTTIR 89.000.00 KR.
Þeir sem nota kerfi vinna oftar í getraunum en aórir. Er það ekki næg ástæóa til að nota getrauna- kerfi ? Tryggóu þér eitt strax i dag! Fullkomnar upplýsingar fylgja. ADEINS KR 500- FORMULA Pósthólf 973 Reykjavík
Bygginganefnd verkamanna er að byggja 8 ibúða fjölbýlishús, og
sést grunnur þess fremst á myndinni. Fjær sér yfir grunn slökkvi-
stöðvarinnar, en hinum megin er Skeljungur að byggja söluskála og
þvottaplan. Ljósmyndir: Hjörvar Ó. Jensson.
Langt er komið byggingu saltfiskverkunarhúss fyrir Hraðfrystihús
Eskifjaröar hf., sem byrjað var á i haust. t forgrunni hússins er nýr
steypubili sem keyptur var til Eskifjarðar i september, og hefur
liann haft yfirdrifið nóg að gera.
Bygging er hafin á slökkvistöð, sem verður stálgrindarhús á steyptum grunni. Aætlað er aö viö noröurenda hennar bætist svo áhaldahús
bæjarins.
Þetta er grunnur nýs barna- og gagnfræðaskóla sem bygging var
hafin á i haust. Fyrir aftan stendur nýtt og glæsilegt iþróttahús.