Vísir - 21.11.1975, Side 12
Föstudagur 21. nóvember 1975.
visir
Jöfnuðu
á síðustu
mínútunni
Tékkóslóvakia og Austur-Þýskaland gerðu
jafntefli — 1:1 — i fyrri leik þjóðanna i und-
ankeppni olympiuleikanna i knattspyrnu i
fyrrakvöld.
Leikurinn fór fram i Prag og skoruðu aust-
ur-þjóöverjarnir sitt mark átta mínútum
fyrir lciksiok — Weisse — en tékkar jöfnuðu á
siöustu minútunni, og var Bicovsky þar að
verki.
Með austur-þýska liðinu, sem nú er taliö
nokkuð öruggt um að komast til Montreal,
léku nokkrir leikmenn sem voru i liðinu, sem
tapaði fyrir islenska landsliðinu á Laugar-
dalsvellinum i vor, cins og frægt er.
—klp—
Allt frítt
fyrir 16 til
A-Þýskalands
llandknattleiksráði Heykjavfkur hefur
borist boð frá Austur-Þýskaiandi um að
senda þangað til keppni Heykjavikurúval
karla i handknattleik.
Er þctta mjiig girnilcgt boð, þvf að það
hljóöar upp á friar ferðir og uppihald fyrir
sextán manna hóp, og er erfitt að hafna slfku
kostaboði.
Ekki er samt enn búið að ákveða, hvort því
verðurtckið, og er ástæðan sú, að þessi borg-
arkeppni vcröur um áramótin, en þá kemur
hingaö landsliö Sovétrikjanna og rekst sú
heimsókn á viö þetta boð.
Búast má viö aö árekstur verði á milli HSI
og HKRR ef IIKRH tekur þessu boði, því að í
landsliöinu verða sjálfsagt margir reykvik-
ingar. Kemur þá upp sú spurning, hvor eigi
meiri rétt á þeim — landsliðið eöa félögin
sem þeir leika fyrir og eru aðilar að HKRR.
—klp—
Spánn var á
undan að skora
— og það nœgði samkvœmt
reglunum sem leikið var eftir
Spánn sigraði i unglingakeppni landsliða f
knattspyrnu — 20 ára og yngri — sem háð er i
Monte Carlo á h verju hausti og þekkt er undir
nafninu „Monaco unglingakcppnin”.
I Urslitunum léku-spánverjarnir við sigur-
vegarana ikeppninni í fyrra -- Frakkland —
ogsigruðu 2:1 eftir framlengingu. Staðan var
1:1 að venjulegum leiklima loknum, en spán-
verjarnir skoruðu á 10. minútu framlenging-
arinnar og var þá leiknum hætt.
Var þetta samkvæmt nýjum reglum, sem
leikiðvar eftir, en i þessari keppni eru ætið
leikiðeftir nýjum lögum og gerðar tilraunir
með ýmsar breytingar.
t þetta sinn voru t.d. allar hornspyrnurnar
teknar frá vitateigi — likt og gert er hjá
vngstu flokkunum hér — menn reknir út af f
10 minútur eða lengur fyrir brot - mark-
verðinum leyft að hreifa sig að vild i vita-
spyrnum, og annað eftir þvi.
Sérfræðingar á vegum Knattspyrnusam-
bands Evrópu og fleiri fylgjast siðan með
hvernig þessar breytingar koma út, og gefa
skýrslu til UEFA, sem siðan er unnið úr.
— klp —
ISLAND AFTUR I RIÐLI
MED ÞEIM BESTU í EVRÓPU
— Dregið var í undankeppni heimsmeistarakeppninnar í gœr og er ísland
r
í riðli með Hollandi, Belgíu og Norður-lrlandi
island lenti meö Hol-
landi/ Belgíu og Noröur-ír-
landi í riðli þegar dregið
var í undankeppni heims-
meistarakeppninnar i
Guatemala i gær.
Fréttastofan Reuter og breska
útvarpið BBC skýrði frá þvi að i
fjórða riðli keppninnar hefðu tvær
af bestu knattspyrnuþjóðunum i
Evrópu, Holland og Belgia dreg-
ist saman og hafi ísland og
Norður-Irland verið óheppin að
lenda i riðli með þessum sterku
þjóðum. I siðustu HM keppni hafi
hollendingar, belgar og islending-
ar leikið saman i riðli og hafi úr-
slitin i leik Islands og Hollands
ráðið úrslitum um að hollending-
ar komust áfram. Þeir hafi verið
með jafnmörg stig og belgar en
komist áfram á betra markahlut-
falli.
Hollendingar hlutu svo eins og
kunnugt er silfurverðlaun i HM-
keppninni, léku til úrslita við
vestur-þjóðverja og töpuðu 2:1.
Við munum þvi fá tækifæri til að
sjá eitt besta knattspyrnulið
heimsins leika hér á landi sem
státar af leikmönnum eins og
Johan Cruyff og Johan Neeskens.
Riðlarnir i Evrópu eru niu og
eru þannig skipaðir.
1. riðill: Pólland, Portúgal,
Danmörk og Kýpur.
2. riðill: Italia, England, Finn-
land og Luxemborg.
:i. riðill: Austur-Þýskaland.
Austurriki, Tyrkland og Malta.
4. riðill: Holland, Belgia,
Norður-lrland og Island.
5. riðill: Búlgaria, Frakkland
og Irska lýðveldið.
(i. riðilí: Sviþjóð, Sviss og
Noregur.
7. riðill: Skotland, Tékkóslóva-
kia og Wales.
8. riðill: Júgóslavia, Spánn og
Rúmenia.
9. riðill: Sovétrikin, Ungverja-
land og Grikkland.
Það lið sem sigrar i niunda riðl-
inum verður að leika við lið frá
Suður-Ameriku um réttinn til að
komast i lokakeppnina.
— BB
Móttu Gunnar
og Ólafur leika
með FH í Osló?
Sagt var frá þvi I einu norsku
blaðanna fyrir leik FH og Oppsal i
Osló á sunnudaginn, að FH ætti
tvo leikmenn, sem hefðu verið
með liöinu i fyrra „bröderne
Einai’sson” og að Oppsal reiknaði
fastlega með þvi, að FH myndi
nota þá i leiknum, þó svo að þeir
væru nú með vestur-þýskum
handknattleiksliðum.
Fullyrðir blaðið að i reglugerð-
inni um Evrópukeppnina i hand-
knattleik segi svo, að heimilt sé
að nota leikmann eða leikmenn i
Evrópukeppninni sem hafi leikið
með viðkomandi liði á siðasta
keppnistimabili, þótt svo að þeir
leiki með öðru liði þetta
keppnistimabil.
„Við fréttum ekki af þessu fyrr
en við komum til Noregs, en þá
fóru þeir hjá Oppsal að tala um
þetta og sögðu að þetta væri
rétt,” sagði Geir Hallsteinsson, er
við spurðum hann um þetta i
morgun.
„Ég er ekki alveg viss um að
þetta sé svona, en ef svo er þá
finnst mér sjálfsagt að athuga
það að fá þá Gunnar og Einar i
siðari leikinn hér heima, og þá
ekki siður fyrir Viking, að nota
Einar Magnússon i leikina við
Gummersbach.”
Við höfðum samband við Rós-
mund Jónsson, markvörð Vik-
ings, og spurðum hann hvobt Vik-
ingur hefði nokkuð kannað þessa
möguleika. Hann sagðist ekki
hafa heyrt um þessa reglugerð,
fyrr en nú, að við segðum honum
frá þessu.
„Ef þetta er rétt þá finnst mér
sjálfsagt að kanna hvort unnt er
að fá Einar i annan hvorn leikinn.
Það er liklega orðið of seint að fá
hann i leikinn hér heima, en við
munum strax fara i að athuga
þetta og gera okkar ráðstafanir.”
—klp—
MEÐ
ILJARNAR
UPP I LOFT!
William Baxter, skotinn sem
hingað er kominn til að kenna
fjölbragðaglimu eða „Wresling”
eins og iþróttin er kölluð erlendis,
var með fyrstu æfinguna i gær-
kvöldi.
Þar sýndi hann nemendum sin-
um nokkur brögð, og var ekki
lengi að koma iljunum á þeim upp
i loft eins og myndin hér til hliðar
sýnir, en hana tók ljósmyndari
okkar Einar Karlsson á æfingunni
i gærkvöldi.
Baxter þessi á að baki frækinn
feril i grisk-rómverskri glimu og
„FANGBRÖGÐUM” eins og ein-
hver orðanefnd á vegum KR hef-
ur ákveðið að kalla iþróttina hér á
landi.
Hann byrjaði að glima árið 1952
og hefur fjórum sinnum orðið
breskur meistari i „Fangbrögð-
um”. Þá hefur hann verið þjálfari
breska landsliðsins i grisk-róm-
verskri glimu siðan 1966.
Siðast en ekki sist hefur hann
fjórum sinnum orðið Skotlands-
meistari i „Hryggspennu” .......
Já hryggspennu, sem hann segir
sjálfurað sé upprunnin á Islandi,
en nú er hvergi keppt i henni —
a.m.k. opinberlega — nema i
Skotlandi.
—klp—
Um kvöldiö
l»aö d enginn fast
iyrsta liöinuTommy
Menn veröa aö vinna fyrir því
og þú ert ekki nein
undanteknmg!
VÍSIR
Föstudagur 21. nóvember 1975.
■rasw
pdwwww!
■ :::::
„HEIMALNINGARNIR" EIGA
LÍKA AÐ FÁ TÆKIFÆRI!
Er hann
úr leik?
Alll útlit er fyrir að aust-
ur-þjóðverjar verði án cins
besla skiðastökkvara sins,
Hans Georg Aschenbach, á
vetrarolympiuleikunum ,i
Innsbruck I febrúar.
Hann þurfti aðganga undir-
mjög erfiða skurðaðgerð á
mjöðm nú í sumar, og hefur
enn ekki náð sér, að sögn
skiöastökkvara frá Aust-
ur-Þýskalandi, og telja þeir
að búið sé að aískrifa hann
hjá a-þýsku olympiunefnd-
inni.
Þeir segja þó að Aschen-
bach sé vis til að hlusta ekki
á hana og mæta i keppnina,
og verði erfitt að stöðva
þennan fyrrverandi heims-
meistara i þeirri ákvörðun
sinni. ef hann ætli sér að
fara. —klp—
Bayern
hrapar!
Bayern Munchen hrapaði
niður i fjórða sæti i
„Bundérsligunni i Vest-
ur-Þýskalandi um helgina er
liöið tapaði fyrir VFL
Bochum á útivelli 2:1.
Borussia Munchenglad-
bacli sigraði á sama tima
Fortuna Dússcldorf 1:0og er
nú i efsta sætinu með 20 slig.
Næst kemur Eintraeht Brun-
schweig með 18 stig en síöan
Hamburg SV og Bavern
Miinchen með 17 stig. —klp
iuventusí
efsta sœti
Juventus náði forustunni i
itölsku l. deildarkeppninni I
knattspyrnu með þvi að
sigra Milan á útivelli 1:0 um
siðustu helgi.
liefur Juventus aðeins tap-
aö einu stigi i fyrstu sex
leikjunum, og er þvi nú með
II stig. N'æsta lið er N'apoli
með 9 stig — tapaði fyrir
Torino á útivelli 2:1 um helg-
ina — en Torino er i þriðja
sæti meö 8 slig.
Þar á eftir koma þrjú lið,
sem iill eru með 7 stig að
loknum (i umferðum — Ces-
ena. Milan og Bologna. klp
öl
Straufría sængurfataefnið er nu
fyrirliggjandi í mörgum mynztrum
og litum. j
Einnig í saumuðum settum.
Kærkomin gjöf, hverjum sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk,
sofið þægilega og lífgið upp á litina
í svefnherberginu.
Reyni,ð Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvik sími28200
ipjfHiiijiniiij •
ím jijjiíi ms liiif ém'xiwí
:ííi*;;:í ....... ........ ...........** ***"'“”
::®:-‘*KÍ?ií;jj lliiii lljillli: ÍHIIIÍ' jgj'ÍMöH Kiöóö'
Lið VFL Gummersbach sem leikur gegn tslandsmeisturum Vikings ihandknattleik i laugardalshöllinni á laugardaginn kl. 15:00 og gegn
llaukum á sunnudaginn. Aftari röð frá vinstri: Eugen Haas, þjálfari.Hansi Schmidt. Joachim Deckram, Klaus Westebbe, Werner Lettgen,
Heiner Brand, Klaus Schlagheck, Rof Jaeger og Hans-Willi Kleine þjálfari. Fremri röð: Jochen Feldhoff, Joachim Henkels, Thomas Krokowski,
Klaus Kater, Rainer Schumacher, Karl-Heinz Nolde, Manfred Globbc og Rolf van Kaldekerken.
Nú þcgar aðal handknattleiks-
vertiðin fer i hönd verður sjálf-
sagt mörgum tiðrætt um, hver sé
framtið islenska landsliðsins og
félagsliðanna á þessum erfiðu
timum. Búið er að fleyta rjómann
ofan af liöunum og nú leika flestir
af okkar bestu handknattleiks-
mönnum með liðum i Vest-
ur-Þýskalandi. Það er þvi ekki
nema von að menn séu hálf kviðn-
ir fyrir framtiðinni, þvi að nú
ræður meðalmennskan rikjum
eins og landsliðsþjálfarinn Viðar
Simonarson sagði i viðtali við eitt
af dagblöðunum nýlega. Það sést
best á islandsmótinu þar sem
haráttan hefur sjaldan verið jafn-
ari og ekkert eitt lið sker sig þar
úr.
Er von að menn spyrji. — Hvað
er til ráða? Auðvitað höldum við
okkar striki eins og ekkert hafi i
skorist. Það er ekki nema gott um
það að segja, að góðir handknatt-
leiksmenn sem þess eiga kost fari
og leiki með erlendum liðum.
Vonandi eiga flestir þeirra eftir
að koma heim aftur reynslunni
rikari og geta miðlað þekkingu
sinni meðal leikmanna hér,
þannig að eitthvað nýtt lærist.
Eitt verðum við að varast, og
það er að lýsa „frati” á þá leik-
menn sem eftir eru. Þeir verða að
fásin tækifæri —þvi með þvi móti
eignumst viö „stjörnur” i stað
þeirra sem fara til útlenda eða
hætta.
Núna nýlega sögðu tveir af okk-
ar bestu badmintonmönnum, að
þeir vildu fá hingað góða erlenda
badmintonmenn til að leika við.
Ef það yrði ekki gert, næðum
við ekki mikið lengra. Sömu sögu
er að segja úr körf.uboltanum.
Þar er gengið lengst, þvi nú ieika
hértveir bandarikjamenn með is-
lenskum félagsliðum, og að sögn
forystumanna er það gert til að
lyfta iþróttinni upp.
Það kemur manni þvi óneitan-
lega spánskt fyrir sjónir þegar
landsliðsþjálfarinn i handknatt-
leik, Viðar Simonarson afþakkar
boð um að landsliðið leiki við eitt
besta félagslið heims —
Gummersbach — þar sem hann
er að undirbúa liðið fyrir erfið
átök — þar sem undankeppni
byggja upp úr þvi sem við höfum.
Þarna gefst tækifæri til að leika
við þá bestu i Þýskalandi. Það
hefur aldrei brotið neitt lið niður
að tapa leik — heldur þjappað þvi
saman. Einnig fannst mér það
koma sterklega til greina að láta
landsliðið, 23 ára og yngri, leika
við Gummersbach.”
Karl Benediktsson, þjálfari
Vikings og ÍR: „Auðvitað átti aö
taka þessu boði og láta landsliðið
leika við Gummersbach — jafn-
vel þó það hafi ekkert æft saman
að undanförnu. Þarna hefði verið
hægt að skoða þá „kandidata”
sem koma til greina, einmitt i leik
við sterkt lið sem svipar til júgó-
slavanna. Það reynir á hæfni
manna að leika gegn liði eins og
Gummersbach. Þeir hafa svipað-
ar skyttur og júgóslavar og þvi
hefði verið hægt að sjá viðbrögð
okkar manna i vörn og i sókninni
gegn ■ sterkri vörn og góðum
markverði. Það gagnar ekki
feimni iþessum málum. Þeir sem
heima eru verða lika að öðlast
reynslu.”
Ingólfur óskarsson, Fram:
„Við verðum að gefa þeim sem
eftir eru tækifæri. Það eru til
margir góðir'Jiandknattleiks-
menn sem eiga framtiðina fyrir
sig og þeim verðum við að sýna
traust en ekki hunsa þá. Annars
finnst mér skritið i öllum þessum
látum i að sækja leikmenn frá
Þýskalandi að aldrei skuli minnst
á Jón Hjaltalin Magnússon sem
leikur með sænska 1. deildar
liðinu Lugi. Hann hefur staðið sig
frábærlega vel og skorar fjögur
til fimm mörk i leik. Það er t.d.
sænskur landsliðsmaður sem er
mikil skytta i liðinu og segir það
best um getu Jóns að hann er
ávallt markahærri en þessi
sænski landsliðsmaður.
Mér fannst lika koma sterklega
til greina að láta landsliðið 23 ára
og yngri leika við Gummersbach,
eða þá einfaldlega annað úrvals-
lið sem ekki hefði þurft að kalla
landslið”.... — BB
Olympiuleikanna er. Viðar ber
þvi við að ekki sé hægt að ná i þá
leikmenn i Þýskalandi sem eiga
að vera burðarásirnir i liðinu i
vetur.
En hvað um hina sem heima
eru? Hvers vegna ekki að gefa
þeim tækifæri? Það hlýtur að
iiggja i augum uppi að i fram-
tiðinni getum við ekki haldið uppi
landsliðsæfingum i Þýskalandi og
þvi verðum við að treysta á þá
Íeikmenn sem heima eru. Það
hefur þegar sýnt sig m.a. með
Gunnar Einarsson, sem leikur
með Göppingen, að ef það hentar
ekki félögunum, þá lána þau ekki
leikmenn sina. Og þegar svo er
komið þá er betra að vera búinn
að undirbúa þá sem heima sitja!
Við leituðum álits á hvað væri
til ráða hjá þrem þekktum þjálf-
urum i 1. deild og fara svör þeirra
hér á eftir:
Hilmar Björnsson þjálfari
Vals: „Það er ekkert vafamál að
við verðum að halda áfram að