Vísir - 27.11.1975, Page 1
<>5. árg. — Fimmtudagur 27. nóvember — 270. tbl.
ÞEIR
FÓRUST
Þeir, sem fórust i eldsvoðanum
að Óðinsgötu 4 i gær voru Gunn-
ar Sigurðsson, fæddur 1928, Hall-
dór Guðjónsson, fæddur 1919 og
Jóhann Guðnason, fæddur 1923.
Þeir voru allir ókvæntir. — ÓT.
Dómarinn
ritskoðun
Gandhi
hnekkti
Indiru
sjá erlendar fréttir
bls. 6
N
✓
Hvernig bregstu við ef
makinn heldur framhjá?
,,Þú heldur kannski að þú getir tekið framhjáhaldi með mestu ró, þar
sem þú ert skynsöm vera sem tilheyrir breyttum tima? Þannig er það
sjaldnast. Þann dag sem þú kemst að framhjáhaldi maka þins, bregst
tilfinningalif þitt harkalega við.”
Sjá Innsíðu bls. 10.
Þeir hjá Þróunarstofnun Reykjavikurborgar hafa atvinnu af þvi að
vera framsýnir. Þeir hafa meira að segja þegar gert tillögur um ný
ibúðahvcrfi i nágrenni Reykjavikur sem eiga að rúma 40 til 00 þúsund
ibúa.
— sjá bls. 5.
Minna prjál á
amerískum bílum
Ameriskir bilar hafa löngum verið hlaðnir miklu glingri, og iburð-
urinn verið fram úr hófi. A 76 árgerðunum breytist þetta. Bilarnir
eru heflaðri, minni, og með minni vélar. Sumar stóru tegundirnar
er hætt að framleiða.
— Sjá „Bilarnir og við” bls. 19.
Söngkúnstin ekki
lifibrauð hérlendis
— segir óperusöngvarinn Stefán tslandi i viðtali við Visi i dag, i tilcfni
af útkomu endurminningabókar hans. Stefán segist hafa gert scr ofan-
greint Ijóst. Þess vegna fluttist hann til útlanda.
— sjá bls.4.
Daniel og Stcfán mættu til vinnu i inorgun og gerðu ekki ráð fyrir að mæta á útifundinum eftir hádegið.
Vinna í fullum gangi í morgun
Menn mættu viðast hvar til vinnu i morgun, þrátt fyrir áskoranir Sam-
starfsnefndar um verndun landhelginnar um að menn tækju sér fri frá
störfum i dag. I nokkrum skólum var þó ekki mætt i morgun.
Sjá frásögn á baksiöu.
Persónuleg skoðun
Jóns mótar fiski-
frœðileg rök hans
álíta fiskifrœðingar um skýrslu yfirmanns síns
Nokkrir fiskifræðingar Haf-
rannsóknarstofnunarinnar sendu
frá sér bréf í gær þar sem þeir
telja þau rök setn Jón Jónsson,
forstöðumaður llafrannsóknar-
stofnunarinnar, færir frarn i álits-
gerð sinni um samningsdrögin,
ekki fiskifræðileg, heldur lituð af
persónulegum skoðunum.
Vísir hafði samband við Ingvar
Hallgrimsson fiskifræðing i
morgun og spurði hann hvort með
þessu bréfi væru þeir að brigsla
Jóni um pólitiskan undirlægju-
hátt.
,,Nei, ég segi það nú ekki”,
sagði Ingvar. „Það kemur fram i
bréfinu sjálfu hvað við viljum
segja. Við teljum að það endur-
spegli ekki almennt okkar sjónar-
mið. Við viljum benda á þá val-
kosti sem við höfum gert grein
fyrir i skýrslunni okkar. Við telj-
um að fiskifræðileg rök
skýrslunnar séu undir áhrifum
persónulegra skoðana semjanda
en komum ekkert inn á pólitik.
Það má hver hafa sina pólitisku
skoðun sem hann vill okkar
vegna”.
„Hreint fiski-
fræðilegt mat”.
,,Ég tel að bréf mitt sé hreint
faglegt mat á þeim valkostum
sem fyrir hendi eru og mótmæli
eindregið að eitthvað annað liggi
að baki”, sagði Jón Jónsson.
Varðandi ummæli Ingvars
sagði Jón, að meinið væri að það
væri ákaflega mikil pólitik i
þeirra bréfi. „Mitt bréf er svar
við þvi, hvernig virkar þetta. Ég
tel mig svara þessu hreint fiski-
fræðilega án nokkurs annars.”
sagði Jón að lokum. -VS