Vísir - 27.11.1975, Qupperneq 3
3
VISIR
Fimmtudagur 27. nóvcmbcr 1975.
Sölustofnun lagmetis:
,/Byggt vor
á of mikilli
bjartsýni"
..Eftir á að hyggja hcfur vcrift
byggt á of mikilli bjartsýni.
Menn voru bjartsýnir á mikla
sölu, en sú bjartsýni var ekki á
rökum bvggð”.
Þctta sögðu stjórnarmenn
Sölustofnunar lagmetisiðnaðar-
ins m.a. á blaðamannafundi
sem þeir boðuðu til í gær. Þar
var lögð fram greinargerð
stjórnarinnar þar sem þeim
vandaniálum sem við er að etja
er lýst og gerö grein fyrir
meginstefnu Sölustofnunarinn-
ar i framtiðinni.
Stofnunin hefur átt við
margháttuð vandamál að etja.
Mikil sölutregða hefur vcrið á
stærstu inörkuðunum. Þá hefur
hlaðist upp stór unibúöalager
seni aukið hefur á lausaskuldir
stofnunarinnar.
Fram kom á blaðamanna-
fundinum að það er stefna
stjórnarinnar að gjörbreyta
starfsháttum öllum. Ætlunin er
að stofnunin geti staðið algjör-
lega á eigin fótum. Enda lýkur
eftir tvö ár því timabili sem
Sölustofnunin nýtur framlags úr
rikissjóði. Og þvi þarf mikið
átak til þess að hdn geti orðið
sem sjálfstæðust.
Jafnframt er það ætlun
stjórnarinnar að Sölustofnun
lagmetisiðnaðarins verði
hreinn umboðsaðili framleið-
enda. Þannig munu framleið-
endur sjá um öll umbúðakaup
sjálfir i stað þess að sölustofn-
unin sjái um slikt eins og hingað
til hetur tiðkast. — EKG.
Boranir fyrir
akureyringa
kosta 86
milliónir kr.
Áætlaður kostnaður
við borun eftir heitu
vatni fyrir Akureyri, er
86,5 milljónir króna.
Borunin fer fram að
Syðra-Laugalandi við
Eyjafjörð.
Stærsti hluti kostnaðarins er
borunin sjálf, rúmar 73 milljónir
króna. Enannar kostnaður er alls
13,4 miiljónir.
Akureyrarbær greiðir 40% bor-
unarinnar en Orkusjóður mun
lána 43,8 milljónir króna, sem er
60% kostnaðarins. Loks mun
Byggðasjóður lána sem næst 13
milljónum króna til verksins.
Þegar eru hafnar boranir að
Syðra-Laugalandi, Jötunn byrj-
aði að bora sl. laugardag. Búist er
við að boranirnar taki rúmlega
tvo mánuði. Þannig ætti árangur
þeirra að liggja ljós fyrir i byrjun
næsta árs.
— EKG
Endurmenntun
manna í rafiðn
Hér á landi hefur
starfað um hrið sam-
starfsnefnd rafverk-
taka og rafvirkja um
námskeiðahald. Nefnd-
in sem nefnist Eftir-
menntunarnefnd hefur
á þessu ári haldið 17
námskeið viðsvegar
um landið með þátt-
töku um 240 rafiðnað-
armanna.
Með þessum námskeiðum
hafa rafiðnaðarmenn riðið á
vaðið hvað snertir endurmennt-
un iðnaðarmanna.
Dagana 9.11. nóvembersl. var
haldin ráðstefna á vegum
NEUK sem tekið hefur fyrir
menntun rafiðnaðarmanna á
Norðurlöndum. Lagði ráð-
stefnan þunga áherslu á að
grunnmenntun rafiðnaðar-
manna sé sifellt i endurskoðun.
Bent var á að vel skipulögð
endurmenntun rafiðnaðar-
manna sé nauðsynleg vegna
örra tækninýjunga við nýtingu
raforku. —EKG
Gisli og Ólafur leyfðu kisu að setjast i snjóþotuna en þorðu ekki að fara i „brun” rneð hana. Ljósm. Bragi
Kisa vildi á snjóþotu
— Nei, við eigum ekkert i þess
ari kisu. Ilún kom bara og vildi
endilega leika við okkur, sögðu
þeir Gisli Þórðarson og Ólalur
Eggert Guðmundsson, þegar
við hittum þá i Ártúnsbrekkunni
i gær.
Þeir félagar voru þar ásamt
stórum liópí annarra krakka að
þeysast niöur brekkuna i
snjóþotum. Ekki höfðu þeir þó
boðið kisu far. — Hún vill
gjarnan láta lialda á sér,
kannske er henni kalt á fótun-
iiin. sagði Gisli.
Kisa fékk að setjast i
snjóþotuna. en félagarnir voru
hræddir um að meiða hana ef
þeir yltu með hana á ferð, svo
hún varð að láta sér nægja að
horla á. Ekki var að sjá að kisa
væri illa haldin af kulda.
Þaö var galsi i henni og hún
sentist fram og aftur þegar þeir
Gisli og Ólafur stigu um borð i
þotur sinar. Þeir eru þarna i
sinni einkabrekku. með
stökkpalli og tilheyrandi. Hinir
krakkarnir voru aðeins lengra
í burtu þar sem þeir áttu ekki á
hættu að fara i loftköstum.
Það var mikið um hróp og
hlátrasköll og auðsjánlegt. að
krakkarnir voru alveg laus við
áhyggjur þær sem þungbúnir
bilstjórar hafa þegar snjó
leggst yfir landið
Brun-
inn
Slökkviliösmenn þurftu
aö setja á sig reykköf unar-
tæki fyrst þegar þeir fóru
inn í Óðinsgötu 4. Þegar
búið var aö f lytja íbúana út
og ráöa niðurlögum eldsins
tóku þeir til óspilltra mál-
anna við aö hreinsa til.
(Myndir JIM.)